Morgunblaðið - 22.10.2004, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. OKTÓBER 2004 27
MINNSTAÐUR
KJÖTSÚPa
ÍSLENSK
1. dag
vetrar
Gerðu það að hefð að elda kjötsúpu á fyrsta vetrardag. Eldaðu
kjötsúpu í stórum potti og hóaðu í vini og vandamenn. Íslenska
grænmetið gefur kraft og bragð, hikið ekki við að nota það
grænmeti semykkur lystir.
1 kg súpukjöt
1,8 l vatn
1msk salt, eða eftir smekk
1–2msksúpujurtir
½ laukur, saxaður smátt
500ggulrófur
500g kartöflur
250ggulrætur
100ghvítkál (másleppa)
nýmalaður pipar
hrísgrjón1½dl
haframjöl½dl (másleppa)
Kjötið e.t.v. fituhreinsað að hluta og síðan sett í pott, vatninu
hellt yfir og hitað að suðu. Froða fleytt ofan af, saltað og
súpujurtum, lauk og hrísgrjónum hrært saman við. Soðið í um
40mínútur. Ámeðan eru gulrófurnar afhýddar og skornar í bita,
kartöflurnar afhýddar og skornar í helminga eða fjórðunga, ef
þær eru stórar, og gulræturnar skafnar og skornar í bita. Sett út
í og soðið í 15 mínútur til viðbótar. Kálið skorið í mjóar ræmur,
sett út í og soðið í um 5 mínútur, eða þar til allt grænmetið er
meyrt. Um leið er haframjölið sett ef á aðnotaþað. Smakkaðog
bragðbættmeðsalti og pipar, ef þarf. Kjötið er ýmist borið fram
í súpunni eðameðhenni á sérstöku fati.
Ýmislegt annað grænmeti má hafa í súpuna, svo sem blómkál,
sellerí eða grænkál. Ágætt er að sjóða rófurnar og kartöflurnar
sér í potti. Ef afgangur verður þá er gott að muna að mörgum
finnst kjötsúpan langbest þegar hún er hituð upp í annað eða
þriðja sinn. Verði ykkur aðgóðu!
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
1
0
5
3
3
Sérfræðingar Kanebo verða í Hygeu Kringlunni
með kynningu á spennandi nýjungum
í dag föstudag kl. 13-19 og morgun laugardag kl. 13-17.
Hægt er að panta tíma í förðun í síma 533 4533 og húðgreiningartölvan verður í boði.
INTERNATIONAL
GOÐSÖGNIN UM SILKI
Kringlunni
THE SILK frá Kanebo
Krem og púður sem unnið
er úr dýrindis silki
SUÐURNES
Grindavík | „Sjómennskan og garð-
urinn fara vel saman. Ég nota fríin
til að vinna í garðinum,“ segir Árni
Valur Þórólfsson sjómaður en garð-
ur hans og Ástu Fossárdal, konu
hans, fékk viðurkenningu Umhverf-
isnefndar Grindavíkur. Nefndin
verðlaunaði þrjá garða og komu
viðurkenningarnar í hlut Jennýjar
Jónsdóttur og Reynis Jóhannssonar
og Svanhildar Káradóttur og
Brynjars Bergmanns Péturssonar,
auk Árna og Ástu. Einhverjir
kynnu að halda að sjómaður hefði
lítinn tíma til að vinna í garðinum
en Árni notar landlegur til þess.
„Sá tími hefur dugað til að gera
beðin klár og halda þeim við. Garð-
urinn er mitt helsta áhugamál og
ég er flestum stundum í garðinum.
Gárungarnir segja að konan reki
mig út í garð en staðreyndin er sú
að ég hef mjög gaman af þessu og
nota fríin í garðinn. Það er stund-
um svekkjandi þegar mikil suð-
austan rok koma og eyðileggja
gróðurinn en ég hef búið til mikið
skjól í garðinum og þá hef ég líka
notað frekar plöntur sem þola seltu
og vind,“ segir Árni.
40 hlöss af mold
Hann hóf ræktunarstarfið árið
1979 og minnir að það hafi verið á
Ári trésins. „Alla vega var mikil
vakning í gróðursetningu það árið.
Við settum 40 vörubílahlöss af mold
í garðinn því hér var bara hraun.
Flestir héldu því fram að hér í
Grindavík væri ekki hægt að rækta
neitt en það er búið að afsanna
það,“ sagði Árni.
Umhverfisnefnd veitti einnig við-
urkenningu til Þorbjarnar-
Fiskaness fyrir glæsilegar end-
urbætur á húsnæði og snyrtilegt
umhverfi. Þá veitti nefndin Ómari
Ólafssyni og Berglindi Benón-
ýsdóttur, Bjarmalandi, viðurkenn-
ingu fyrir fallega endurnýjað gam-
alt hús.
Veittar viðurkenningar fyrir fallega garða og umhverfi
Morgunblaðið/Garðar Páll Vignisson
Haust í garðinum Árni Valur Þórólfsson hefur gaman af garðstörfunum. Nú er orðið vetrarlegt í garðinum.
Vinnur í garðinum í landlegum