Morgunblaðið - 22.10.2004, Síða 28

Morgunblaðið - 22.10.2004, Síða 28
28 FÖSTUDAGUR 22. OKTÓBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LÍF Classic Rock Ármúla 5 • S: 568-3590 Idol-keppnin á breiðtjaldi og boltinn í beinni. Föstudaginn 22. okt. & Laugardaginn 23. okt. svaka stuð alla helgina           ! "#$$    %&' &(&& )* * $    HELGIN Bókin Kjendisenes bestekaker sem er kökuupp-skriftabók eftir GuðrúnuRúnarsdóttur er nýkomin út í Noregi og hefur vakið mikla at- hygli. Guðrún hefur búið í Noregi í sex ár ásamt eiginmanninum Haf- steini Sigurðssyni kokki og þremur sonum á aldrinum 4–14 ára. Guðrún er faglærður þjónn en hefur alltaf verið sérstaklega áhugasöm um kök- ur og eftirrétti. Hún hefur unnið sem þjónn á veitingastöðum á Íslandi og Noregi og einnig bakað kökur á veit- ingastöðum. Undanfarin ár hefur hún unnið með börnum, bæði í grunnskóla og á leikskóla. Á síðasta ári fannst henni nóg komið, hún stóð á krossgötum, og langaði virkilega að breyta öllu og gera eitthvað annað og meira spennandi. Eftir að hafa kom- ist í kynni við konur sem mynda hóp að nafni Embla og eru hluti af sam- tökum sem styðja konur sem vilja hefja eigin atvinnurekstur, keypti bókaforlagið Orion hugmynd hennar að kökuuppskriftabók á hálftíma fyrr á þessu ári. Alin upp við heimabakstur „Ég kynntist ljósmyndara og graf- ískum hönnuði í þessum hópi og þær unnu bókina með mér,“ segir Guð- rún. Guðrún hefur alla tíð bakað mik- ið og er alin upp við heimabakstur. Eftir að hún hætti að vinna sem þjónn byrjaði hún að baka kökur fyr- ir fólk í Kongsberg eftir pöntun. Hún hefur haft nóg að gera í kringum há- tíðir eins og jól, páska, þjóðhátíð- ardaginn, fermingar og fleiri veislur og í byrjun þessa árs ákvað hún að safna uppskriftunum saman í bók. „Norðmenn eru ekki eins flinkir og við Íslendingar að prófa nýjar upp- skriftir, heldur halda sig í þessu gamla góða. Því langaði mig að breyta með þessari bók. Bókin er ein- föld og allt hráefni er auðvelt að nálg- ast og oft á tíðum það sem maður á í ísskápnum eða í bakstursskúffunni. Þetta hef ég fengið mikið lof fyrir, því fólki fallast hendur af að sjá þessar svaka kökur í öðrum bókum sem engum nema konditorimenntuðu fólki tekst að laga,“ segir Guðrún. Uppskriftirnar í bókinni eru fjölbreyttar og Guðrún kynnir þar m.a. íslenskar kleinur og „brúnkök- una hennar ömmu “ en jafnframt aðrar framandi og spennandi upp- skriftir. Hún segir að Norðmenn spái mikið í mat og þyki gott að borða en virðist ekki nota jafnmikinn tíma og Íslendingar í bakstur og elda- mennsku. Bakað í sjónvarpinu Fjallað hefur verið um bókina í norskum fjölmiðlum, m.a. svæð- isblaðinu í Kongsberg þar sem fjöl- skyldan býr og í vinsælum útvarps- þætti á NRK. Nú stendur til að Guðrún baki í beinni í morgunþætti sjónvarpsstöðvarinnar TV2 með þekktum sjónvarpskokki, Wenche Andersen. „Ég er mjög ánægð með bókina og það er gaman að hún skuli vekja svona mikla athygli af því að hluti af söluhagnaðinum rennur til samtaka í Noregi sem kallast Rådet for psykisk helse sem eru svipuð og Geðhjálp á Íslandi. Ég var ákveðin í því að styrkja gott málefni með bókinni og til þess að bókin vekti meiri athygli en ella, hafði ég samband við þekktar konur og bað þær að gefa uppáhalds- kökuuppskriftina sína í bókina,“ seg- ir Guðrún. Í vikunni var einmitt landssöfnun í Noregi til styrktar geð- sjúkum og í tengslum við hana voru boðin upp tíu eintök af bók Guðrúnar árituð af þeim þekktu konum sem gáfu uppskriftir. Allar eru þær norskar nema Vigdís Finnbogadóttir sem er mjög virt og vinsæl í Noregi og Dóra Þórhallsdóttir uppistandari sem búsett er í Noregi. Aðrar þekktar konur sem gefa uppáhaldsuppskriftina sína eru Björg Bondevik forsætisráðherrafrú Noregs, stjórnmálakonur, leikarar og tónlistarmenn. Einnig Hanne Krogh sem var hluti af dúettinum Bobbysocks sem vann Evróvisjón söngkeppnina á sínum tíma og marg- ir Íslendingar muna eftir. Draumur forsetans Indæl kaka sem er borin fram volg með ís eða þeyttum rjóma. Frá Vigdísi Finnbogadóttur, fyrrver- andi forseta Íslands. Bökubotn: 250 g hveiti 200 g smjör 30 g sykur 1⁄4 tsk lyftiduft 1 eggjarauða 1 msk vatn Fylling: 2 eggjarauður 1 bolli sykur 2 bollar fínt skorinn rabbarbari (skiptið stilkunum gjarnan langsum til að bitarnir verði eins litlir og hægt er) 2 kúfaðar msk hveiti Marengs: 11⁄2 msk sykur 3 eggjahvítur 1 tsk vanillusykur Hveiti, lyftiduft, sykur og smjör er hnoðað saman og eggjarauðu og vatni blandað út í. Hnoðið deigið vel saman og búið til kúlu. Hyljið með plastfilmu og látið deigið í ísskáp í 30–60 mínútur. Fletjið deigið út og setjið í kringlótt smurt bökuform. Látið deigið koma upp fyrir kantana á forminu því það dregst saman við baksturinn. Bakið við 150°C í u.þ.b. 10 mínútur eða þar til bakan verður ljósbrún. Á meðan bakan er í ofn- inum er rabbarbarafyllingin und- irbúin. Hrærið eggjarauðurnar saman við sykurinn. Blandið rabbarbara og hveiti lauslega saman og hrærið saman við egg- in og sykurinn rétt áður en botninn er bakaður, því það er mikilvægt að sykurinn bráðni ekki alveg. Dreifið fyllingunni yfir bökubotninn og bakið við 150°C í u.þ.b. 20 mínútur eða þar til rabbarbarinn er orðinn mjúkur. Þá er marengsinn búinn til. Stífþeytið eggjahvítur, sykur og vanillusykur í marengs, sem svo er smurt eða sprautað ofan á rabb- arbarafyllinguna. Bakið við 125– 150°C í u.þ.b. 20 mínútur. Veislukringla Bjargar Frá Bjørg Bondevik, sem er gift Kjell Magne Bondevik, forsætisráð- herra Noregs. Þessa kringlu bjó ég til í fyrsta skipti fyrir mörgum árum, hún er ennþá jafnvinsæl. Deig: 50 g ger 200 g smjör 5 dl mjólk 2 tsk kardemomma 2 dl sykur 1 tsk salt u.þ.b. 900 g hveiti Fylling: 150 g mjúkt smjör 100 g sykur 100 g malaðar möndlur 1 tsk kardemomma 1 egg eða eggjahvíta 3–4 epli 1 egg til að pensla 50 g perlusykur til skrauts Gerið er mulið í skál. Bræðið smjörið í potti og bætið mjólk og kardimommu við, hitið að 37°C. Setj- ið þetta út í skálina. Blandið þurr- efnum í og hnoðið deigið vel saman og látið hefast þangað til deigið hefur tvöfaldað stærð sína. Á meðan deigið er að hefast, er fyllingin búin til. Blandið saman smjöri, sykri, möl- uðum möndlum, kardimommum og eggi í jafna, þykka blöndu. Skrælið eplin og skerið í þunnar skífur eða búið til eplamauk. Epla- mauk er það besta, því það á að rúlla deiginu upp. Gott er að vera búinn að undirbúa eplamaukið. Þegar deigið hefur hefast að fullu, er því skipt í fjóra jafnstóra hluta. Fletjið hvern fjórðung út þannig að úr verði lengja. Smyrjið fyrst möndlublöndu og svo eplum á deigið. Rúllið deiginu upp og fléttið síðan tveimur og tveimur lengjum saman og mótið krans. Látið deigið hefast að nýju þar til krans- arnir eru léttir og fínir (verið þol- inmóð). Penslið þá að því loknu með þeyttu eggi og stráið perlusykri yfir. Bakið við 220°C í u.þ.b. 15 mínútur. Helst á að bera kringluna fram volga.  MATARKISTAN | Íslensk kona gefur út kökuuppskriftabók í Noregi Vön heimabökuðum kökum frá barnæsku Guðrún Rúnarsdóttir: Hráefnið í kökurnar er auðvelt að nálgast. Veislukringla Bjargar. Draumur forsetans. steingerdur@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.