Morgunblaðið - 22.10.2004, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. OKTÓBER 2004 29
DAGLEGT LÍF
INGIBJÖRG Bergsveinsdóttir í
Soroptimistaklúbbi Seltjarnarness
hóf fyrir nokkrum árum að vinna í
allt að 80 ára gömlum handritum
móður sinnar skáldkonunnar Guð-
rúnar Jóhannsdóttur, frá Braut-
arholti. „Handrit þessi höfðu flest
ekki birst á prenti áður og þarna
fann ég perlur sem ég vildi ekki að
færu í glatkistuna. Ég vann því úr
þessu handrit að lítilli ljóðabók sem
ber nafnið Tilfinningar. Ég útbjó
bókina sem handbók þar sem auð-
velt er að finna ljóð fyrir þá sem
vilja tjá tilfinningar sínar í ræðu
eða riti. Ljóðin henta vel til dæmis
við skírn, brúðkaup, afmæli og aðr-
ar stórhátíðir í lífi fólks en ekki síð-
ur á sorgarstundum. Soroptim-
istaklúbburinn ákvað síðan að gefa
bókina út og láta allan ágóða renna
til styrktar einhverfum börnum.“
Ingibjörg segir að bókin hafi selst
mjög vel og salan sé nú komin í tæp
3000 eintök en hún er aðeins til sölu
hjá klúbbsystrum.
Safna saman þekkingu
Soroptimistaklúbburinn hóf síð-
an samstarf við Greiningarstöð
Ríkisins um stuðningshópa fyrir
foreldra einhverfra barna. „Við
vildum styrkja einhverf börn með
því að hjálpa foreldrum þeirra svo
þeir yrðu hæfari að hjálpa börn-
unum. Við fengum sálfræðinginn
Andrés Ragnarsson til að sjá um
stuðnings hópana en Greining-
arstöðin sér um að velja skjólstæð-
inga til að taka þátt í hópstarfinu.
Sálfræðingurinn skilar síðan
skýrslu til Greiningarstöðvarinnar
um þá vinnu sem fram fer í hópn-
um. Þannig safnast saman þekking
um þarfir foreldra einhverfra
barna.“
Markmiðið með stuðningshópa-
vinnunni er að gefa einstaklingum í
svipaðri stöðu svigrúm til að tjá til-
finningar sínar þar sem trúnaðar er
gætt. „Um leið og unnið er með erf-
iðar tilfinningar og viðbrögð er leit-
ast við að fræða fólk og leiðbeina.
Skoðuð eru viðbrögð stórfjölskyld-
unnar við því að barn er greint ein-
hverft sem og væntingar til fjöl-
skyldu og vina. Einnig er farið í
kreppukenningar og rætt um af-
leysingar og hvíld og nauðsyn þess
að foreldrar þessara barna haldi
sjálfum sér í formi. Unnið er með
hjónaeininguna og hætturnar fyrir
sambandið. Í raun er allt ferlið
skoðað frá kreppu til gleði.“
Áframhaldandi tengsl
Hver hópur samanstendur af 6–8
einstaklingum, hjónum eða ein-
stæðum foreldrum barna sem hafa
greinst með einhverfu. „Nú er
fimmta hópstarfið að fara af stað en
reynslan er frábær af þeim fjórum
hópum sem þegar hafa unnið sam-
an. Foreldrar eru mjög ánægðir
með þetta framtak og allir hóparnir
hafa komið saman aftur upp á eigin
spýtur að loknu námskeiði og for-
eldrarnir hafa því áfram stuðning
hver af öðrum. Einnig eru áform
þeirra að halda tengslunum við með
því að hittast í framtíðinni með og
án barna sinna. Það er von okkar að
fólkið í þessum hópum eigi eftir að
vera virkir þátttakendur í starfi
fyrir einhverfa og mynda grasrót til
styrktar öðrum foreldrum.“
UMHYGGJA | Stuðningshópur fyrir foreldra einhverfra barna
Gömul handrit kveikjan
Reuters
Árið 2003 greindust 55 börn með
einhverfu og aðrar raskanir á ein-
hverfurófi.
Stór hluti barnanna greindust á
forskólaaldri en það eru þau börn
sem eru með alvarlegustu ein-
kennin.
Meðalgreiningaraldur er innan við
4 ár og fer lækkandi.
Samkvæmt íslenskum rann-
sóknum greinast 4-5 drengir fyrir
hverja stúlku.
khk@mbl.is
Bætiefni á betra verði!
Gerið verðsamanburð!
lækkar
kólesteról
Benecol – fyrir þá sem vilja lækka kólesteról
Benecol er bragðgóður, náttúrulegur mjólkur-
drykkur. Hann er ætlaður þeim sem vilja lækka
kólesteról, en of hátt kólesteról er einn af
stærstu áhættuþáttum kransæðasjúkdóma.
Benecol hefur slegið í gegn erlendis og er nú
framleitt af Mjólkursamsölunni.
Vísindalega staðfest virkni Benecols
Fjölmargar vísindarannsóknir hafa verið gerðar
á undanförnum áratugum á áhrifum plöntu-
stanólesters, hins virka efnis í Benecol, á magn
kólesteróls í blóði. Niðurstöður eru einróma á þá
leið að neysla þess leiði til verulegrar lækkunar
kólesteróls (sjá línurit).
Áhrif Benecols
Til að ná hámarkslækkun nægir að drekka eina
65 ml flösku á dag og má þá reikna með allt að
15% meðaltalslækkun kólesteróls þó engar aðrar
ráðstafanir séu gerðar. Mælanleg áhrif koma
fram á nokkrum vikum eftir að neysla hefst, en
kólesteról hækkar aftur sé neyslu hætt.
Benecol fæst í tveimur bragðtegundum, með
appelsínu og jarðarberjum, og er selt í kippum
sem innihalda sex flöskur.
inniheldur plöntustanólester sem
-2 0 2 4 6 8 10 12 14
200
210
220
230
240
250
tími (mán.)
)l
d/g
m(lór etse ló k
rannsóknartímiFyrir Eftir
Á 12 mánaða tímabili lækkaði kólesteról
um 15% í hópi fólks sem fékk stanólester
Heimild: Miettinen o.fl., New England Journal of Medicine, 1995; 333:1308-12.
án stanólesters
með stanólester
nýjung
Framleitt með einkaleyfi frá
KRISTILEGUR LESTUR OG RAÐGJÖF
Lestur símleiðis
Sr. Lenny afhjúpar allt
Are you unhappy with your marriage, separeted from loved
ones, problems with luck, marriage, examinations, job,
immigration, evil spirit or any other problems?
Leading Spiritual Medium and Psychic Healer from Trinidad
who has helped thousands of people all over the world. In the
past 20 years help and advise you with the combination of
Psychic and Occult Art
001 352 622 4698 - 001 561 248 9974
Sr. Lenny