Morgunblaðið - 22.10.2004, Side 33

Morgunblaðið - 22.10.2004, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. OKTÓBER 2004 33 UMRÆÐAN Í FYRRI grein minni um fisk- veiðistjórnun sem birtist í Morg- unblaðinu, og einnig má lesa á lands- mal.is, ræddi ég þann vanda sem stjórnmálamönnum er á höndum þegar þeir ákveða aðgang að auðlind- inni sem við eigum öll saman. Ég nefndi líka nauðsyn þess að við skoð- um stjórnunaraðferðir frá nýju sjónarhorni – óbundin af fyrri aðferð- um sem ekki hafa reynst vel. Einnig þá sérstöðu sem fiskiðn- aður, sem heild, hefur einn iðngreina: Að fá hráefni sitt fyrir það eitt að sækja það. Mér er að sjálfsögðu ljóst að ég hef nokkuð einfaldað þessa mynd. Sjálfstætt fiskverk- unar- eða frysti-hús þarf t.d. að greiða fyrir fisk uppúr skipi. Út- gerð skipsins fékk hann hinsvegar fyrir lítið meira en kostnaðinn við að sækja hann – nema hún hafi keypt kvótann af einhverjum sem fékk hann að gjöf, kannski af því hann átti einhverntíma skip sem veiddi ókeypis fisk. Hinn raunverulegi eigandi aflans, hinn venjulegi Íslendingur, fær hinsvegar ekkert. Stundum er talað um óbeinan hagnað, t.d. störf í þjónustugreinum og fiskvinnslu, en þar er fólki ekki greidd hlutdeild í verðmæti þess sem verið er að fram- leiða, heldur laun fyrir vinnuframlag – og mest er það erfiðisvinna ef ég man rétt. Stöldrum nú aðeins við og skoðum málið frá grunni með opnum huga fyrir nýjum leiðum. Skoðum heild- armyndina frá sjónarhóli okkar eig- endanna, hvers einasta Íslendings sem byggir þetta land: Ef við öll, saman, eigum þessar birgðir af mat og hráefni sem fiskurinn í sjónum er, er þá ekki eðlilegt að hver sá sem tekur af birgðunum greiði raun- verð fyrir? Eru það ekki eðlilegir viðskiptahætt- ir? Er það virkilega rétt- látt að birgðunum sé skipt á milli fárra út- valdra án þess að fyrir komi full greiðsla til eig- endanna? Hér er um mikil verðmæti að ræða. Í áratugi hafa stjórn- málamenn úr öllum flokkum haft tækifæri til að stjórna nýtingu auðlindarinnar af réttlæti og sanngirni. Öllum hefur þeim mistek- ist hrapalega og leiðir þeirra löngu fullreyndar. Með fyrirgreiðslupólitík, atkvæðaveiðum og hrossakaupum er nú svo komið að lítill hluti þjóð- arinnar er uppnefndur sægreifar en við hin erum á leið að verða leiguliðar í eigin landi. Eina sanngjarna leiðin er að þeir sem vilja veiða fisk greiði fyrir það markaðsverð – beint til okkar eig- endanna. Að settum einföldum reglum um sanngjarnan aðlög- unartíma og nánari framkvæmd, verði kvóta útdeilt jafnt til allrar þjóðarinnar sem þannig fengi óskor- aðan, staðfestan eignarétt og arð af honum. Auk hins augljósa réttlætis sem í þessu felst, verður þá líka eðlilegra að kostnaður við t.d. landhelgisgæslu, veiðieftirlit og hafrannsóknir sé greiddur af ríkissjóði – peningum allra landsmanna. Einföld framkvæmd Þegar fiskifræðingar hafa ákveðið leyfilegt aflamark hverrar tegundar, á næstu vertíð, er hverjum ein- staklingi sent veiðileyfi sem nemur hans hlutdeild í því magni sem til ráð- stöfunar er, á gefnu tímabili. Það er einfalt í okkar tölvuvædda þjóðfélagi. Leyfin skiptast jafnt milli allra Ís- lendinga, frá vöggu til grafar. Leyfin og sala þeirra verða ekki skattstofn. Leiði hið nýja fyrirkomulag til tekjutaps ríkissjóðs miðað við núver- andi stöðu má hugsanlega bæta það með sölu kvóta fyrir skiptingu. Slíkur kvóti yrði ófrávíkjanlega seldur hæst- bjóðanda með formlegu útboði og að- eins að því marki sem þarf til að bæta nettótap ríkissjóðs. Hugsanlega eru þó aðrar leiðir til þess. Hverjum einstaklingi – eða fjár- haldsmanni hans, t.d. þegar um börn er að ræða – er frjálst að ráðstafa sín- um hlut að vild. Einkarekin þjónustufyrirtæki sem hafa milligöngu um sölu og kaup veiðileyfa, líkt og fasteignasölur ann- ast fasteignaviðskipti, munu spretta upp. Eigendur geta einnig selt beint eða gegnum banka sinn. Líklegt má telja að flestir selji leyfi sín hæstbjóðenda en aðrir valkostir eru líka fyrir hendi: Sumir vilja e.t.v. eingöngu selja þau í heimabyggð sinni eða æskubyggð til að viðhalda þar útgerð og atvinnu – jafnvel selja á hálfvirði, eða gefa. Ein- hverjir e.t.v. friða sinn fisk eða róa sjálfir. Ráðstöfunarréttur hvers eig- anda er óskoraður. – Flóknara er þetta nú ekki. Þjóðarhagur Undirrituðum er ljóst að hér er boðuð fiskveiðistjórnun sem við fyrstu sýn rýrir hlut þeirra sem einir hafa setið að auðlindinni. Einnig völd stjórn- málamanna beint og óbeint. Ýmsir munu jafnvel freistast til að nota slagorð eins og „rugl“, „van- þekking“ og „óframkvæmanlegt“ til að slá ryki í augu almennings. Hinsvegar munu þeir útgerð- armenn sem eru tilbúnir að reka fyr- irtæki sín vel, sjá það tækifæri sem í frelsinu felst og kosti þess að versla á sanngjarnan hátt eftir eigin þörfum. Framsýnir, heiðarlegir stjórn- málamenn munu sjá það réttlæti sem þessi aðferð færir þjóðinni og jafn- framt fagna því að sitja ekki undir þrýstingi og ásökunum um að hygla „sínum mönnum“, eða auðgast sjálfir. Þeir sem vinna við sjávarútveg og fiskvinnslu geta með leyfum sínum haft áhrif á eigið starfsöryggi. Kjósendur munu gleðjast og styðja vel þá stjórnmálamenn sem hafa djörfung til að koma þessum breyt- ingum á. Þetta verður fengur öllum lands- mönnum; þeim sem það vilja, í bein- hörðum peningum – en öllum í rétt- læti og jafnrétti. Ný nálgun í fiskveiðistjórnun Baldur Ágústsson skrifar um stjórnun fiskveiða ’…er nú svo komið aðlítill hluti þjóðarinnar er uppnefndur sægreifar en við hin erum á leið að verða leiguliðar í eigin landi.‘ Baldur Ágústsson Höfundur er fyrrv. forstjóri og fram- bjóðandi í forsetakosningum 2004. baldur@landsmal.is. Gildi jafnréttislaga Fanný Gunnarsdóttir Formaður Jafnréttisráðs Gerð jafnréttisáætlana Ingunn H. Bjarnadóttir Sérfræðingur á Jafnréttisstofu Jafnréttisáætlanir á markaði María Ágústsdóttir Viðskiptalögfræðingur Fyrirtæki og jafnrétti Ragnar Árnason Forstöðumaður vinnumarkaðssviðs Samtaka atvinnulífsins Jafnréttisstefna Reykjavíkurborgar Hildur Jónsdóttir Jafnréttisráðgjafi Reykjavíkurborgar Jafnréttisáætlanir í fyrirtækjum Lind Einarsdóttir Framkvæmdastjóri starfsmannasviðs ALCAN Ávarp félagsmálaráðherra Árni Magnússon Fundarstjóri: Þórhallur Vilhjálmsson Varaformaður Jafnréttisráðs jafnréttisáætlanir Grand Hótel 26. okt. kl. 14.00 – 16.30 M Á L Þ I N G U M Skráning fer fram á www.jafnretti.is eða á Jafnréttisstofu í síma 460 6200 Árni Magnússon Lind Einarsdóttir Hildur Jónsdóttir Ragnar Árnason María Ágústsdóttir Ingunn H. Bjarnadóttir Fanný Gunnarsdóttir Þórhallur Vilhjálmsson E N N E M M / S IA / N M 13 7 5 2

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.