Morgunblaðið - 22.10.2004, Side 34
34 FÖSTUDAGUR 22. OKTÓBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
BRÉF TIL BLAÐSINS
Morgunblaðið Kringlunni 1 103 Reykjavík Bréf til blaðsins | mbl.is
Í LJÓSI umfjöllunar sem hefur ver-
ið um Torfastaði í fjölmiðlum und-
anfarið viljum við koma á framfæri
okkar hlið af Drífu, Ólafi og Torfa-
stöðum.
Öll eigum við það sameiginlegt að
hafa verið vistmenn á Torfastöðum
allt frá einu ári til nokkurra ára.
Starfsemin á Torfastöðum byggist á
því að aðstoða brothætta ein-
staklinga og byggja þá upp til þess
að takast á við lífið og standa á eigin
fótum.
Það er óhætt að segja að hjónin
Drífa og Ólafur hafi bjargað lífi
margra einstaklinga. Við sem bjugg-
um með þeim lærðum að umgangast
hvert annað með virðingu og tillits-
semi. Alltaf vorum við sem ein stór
fjölskylda og eiga börn Drífu og
Ólafs þau Fannar, Björt og Eldur
stórt hrós skilið fyrir þolinmæðina
sem þau þurftu að sýna okkur og
vera alltaf jafnyndisleg í garð okkar,
öll þessi ár.
Fyrir sum okkar voru Torfastaðir
endastoppistöð á erfiðu meðferð-
arferli. Eftir að á Torfastaði var
komið þurfti ekki að leita lengra.
Starf þeirra (Torfastaða) er ómet-
anlegt og eigum við velgengni okkar
í dag þeim að þakka. Við þökkum
þeim fyrir að hafa hjálpað okkur til
að verða sterkir einstaklingar sem
getum horft björtum augum til
framtíðarinnar.
Hildur Steindórsdóttir,
Rikharð Júlíus,
Berglind Leifsdóttir,
Kristín Svafarsdóttir,
Gunnlaugur Hrafnkell
Ágústsson,
Kristinn Hallbjörn Þorgrímsson,
Sherry Lynn Cormier,
Kristinn Bjarni Þorvaldsson,
Logi Laxdal,
Elín Hreggviðsdóttir,
Hugrún Hreggviðsdóttir.
Meðferðarheimilið
að Torfastöðum
Frá fyrrverandi vistmönnum
á Torfastöðum:
NÚ ER kominn 29. dagur kenn-
araverkfallsins og ekkert þokast í
samkomulagsátt. Það er búið að
gera flestar þær tilfæringar sem
deiluaðilar geta gert án þess að
kostnaðarauki komi til, eins og
það heitir á fínu máli. Nú stendur
ekki á neinu nema peningum.
Sveitarfélög og ríki virðast vera
tvíhöfða þurs sem ekkert hefur
með málið að gera og bendir hvor
hausinn á annan. Ríkið hefur yf-
irstjórn menntamála og skipulag á
sinni könnu en sveitarfélögin eiga
að framkvæma. Þau eru með
bundnar hendur sakir fjárskorts.
Við kennarar semjum ekki nema
við fáum launahækkanir. Það er
alveg ljóst. Sveitarfélög eiga ekki
pening til að borga. Ríkið á svo
mikinn pening að það ætlar að
lækka skatta, en er ekki tilbúið til
að auka fé til skólamála. Einkafyr-
irtæki græða á tá og fingri og eru
mörg hver að kaupa enn fleiri og
stærri fyrirtæki í útlöndum. Og
því segi ég si svona. Fáum bara
Bónus til að kosta matreiðslu-
kennsluna, Byko til að kosta smíð-
ina og Íslandsbanki getur til dæm-
is borgað stærðfræðikennslu
o.s.frv. Þá getur ríkið sem hefur
ekki ábyrgð á rekstri skólanna
áhyggjulaust haldið áfram að
lækka skatta á þeim hæstlaunuðu.
Þessi góða hugmynd getur sem
best dugað heilbrigðiskerfinu líka.
Væri til dæmis ekki huggulegt að
kúra í eldrauðu og hvítu kókakóla
rúmi eða vera vafinn inn í sára-
bindi merkt Alcoa!
ÁSA BJÖRK
SNORRADÓTTIR,
Austurgata 41,
220 Hafnarfjörður.
Hvar eru peningar?
Frá Ásu Björk Snorradóttur:
HÆSTVIRTUR mennta-
málaráðherra.
Verkfræðimenntun á Íslandi hef-
ur verið mikið í umræðunni und-
anfarnar vikur. Ýmsir frammámenn
og konur hafa látið í ljós álit sitt og
komið hefur fram nokkur gagnrýni
á þá menntun sem boðið er upp á í
verk- og tæknifræði. Þorgerður
Katrín! Er ekki kominn tími til að
spyrja okkur stúdenta álits?
Við fögnum allri samkeppni
Samkeppnin er að okkar mati einn
þeirra miklu drifkrafta sem auka
hvers konar framfarir. Þetta á að
sjálfsögðu einnig við um verkfræði-
menntun á Íslandi og því fögnum
við allri samkeppni sem mun færa
stúdentum aukið val. Við hlökkum
til samkeppninnar og við getum
fullvissað alla landsmenn um að
verkfræðideild Háskóla Íslands er
tilbúin í samkeppnina. Við sem
nemendur í verkfræði teljum okkar
kennara hafa mikla yfirburði og
reynslu varðandi rannsóknir og við
að mennta verðandi verkfræðinga.
Erum við eftirbátar
annarra þjóða?
Í fréttum ríkissjónvarpsins 19.
október sl. sagðir þú meðal annars:
,,Við Íslendingar höfum aðeins ver-
ið eftirbátar annarra þjóða þegar
kemur að tæknimenntun og verk-
fræðimenntun.“ Einnig sagðir þú að
sameining Háskólans í Reykjavík
og Tækniháskólans væri: ,,tækifæri
til þess að rífa okkur aðeins upp úr
meðaltalinu og vera meðal fremstu
þjóða í tækni- og verkfræðimálum.“
Þessi ummæli getum við ekki
sætt okkur við. Við teljum námið í
verkfræðideild HÍ mjög krefjandi
og erfitt en jafnframt mjög
skemmtilegt. Verkfræðinemar sem
hafa farið utan til náms við virta
háskóla svo sem MIT, Caltech,
Stanford, DTU hafa staðist full-
komlega samkeppni við nemendur
annarra landa. Okkur finnst einnig
mikilvægt að benda á að margir af
fyrirmönnum þjóðarinnar hafa hlot-
ið menntun sína í okkar deild. Má
þar m.a. nefna borgarastjóra
Reykjavíkur, bankastjóra og for-
stjóra stórfyrirtækja. Við teljum að
þessir einstaklingar hafi staðið sig
afburða vel í sínum störfum og
þökkum við það að miklu leyti góð-
um grunni sem verkfræðimenntun
HÍ hefur veitt í gegnum tíðina og
gerir enn.
,,Verkfræðideild Háskóla
Íslands veitir fyrsta flokks
menntun“
Ýmsir aðilar sem sótt hafa verk-
fræðideild heim á undanförnum ár-
um hafa lýst yfir ánægju með mikl-
ar kröfur og metnað. Til stuðnings
vísum við meðal annars til þess að
árin ‘92-‘93 fékk Verkfræðideild HÍ
mjög jákvæða umsögn frá ABET
sem er alþjóðlegur úttektaraðili
fyrir verkfræðiháskóla. Meðal þess
sem sagt var um deildina var:
,,Gæði námsins og kröfur eru fylli-
lega sambærileg við þá verkfræði-
menntun sem veitt er í Bandaríkj-
unum. Nemendur standa mjög vel
að vígi á alþjóðlegum mælikvarða.“
Þó að nokkuð sé liðið frá heimsókn
bandarísku sérfræðinganna hafa
kröfurnar við deildina aukist og
áhugi nemenda vaxið mikið sem
sést glögglega þegar skoðaðar eru
tölur um fjölda nýnema við verk-
fræðideild. Frá ’94 til ’04 hefur
fjöldi nýnema aukist um 144%.
Þetta hlutfall endurspeglar mikið
traust nema á námi við deildina.
Rannsóknir á
heimsmælikvarða
Undanfarin ár hefur verið lögð mik-
il áhersla á að efla rannsóknatengt
meistara- og doktorsnám við deild-
ina. Mikið er lagt upp úr hagnýtum
rannsóknarverkefnum í þágu ís-
lensks þjóðfélags og eru mörg
rannsóknarverkefni deildarinnar
einstök í heiminum. Samkvæmt
skilgreiningu Carnegie-stofnunar-
innar í Bandaríkjunum er HÍ eini
háskóli landsins sem flokkast getur
sem alþjóðlegur rannsóknarháskóli
á næstu árum. Háskóli Íslands er
eini skóli landsins sem útskrifað
hefur doktorsnema í verkfræði og
eru engin teikn á lofti um að aðrir
háskólar muni gera það á komandi
árum.
Jafnréttisstefna
Við viljum einnig benda á hversu
vel verkfræðideild hefur tekist til í
að auka hlut kvenna í deildinni und-
anfarin ár. Deildin tók þátt í átaks-
verkefni um jafnara námsval
kynjanna árið 2001 þar sem konur
voru hvattar í verk- og tölv-
unarfræði. Á árunum 2001 til 2004
fjölgaði konum hlutfallslega um
27,3% í verkfræðideild en á sama
tíma fjölgaði konum í háskólanum
öllum um aðeins 1,6%. Þessar tölur
sýna glögglega árangur deild-
arinnar í því að glæða áhuga ungra
kvenna á verkfræði.
Hvar er Háskóli Íslands
í umræðunni?
Þú hefur talað um mikilvægi þess
að efla og bæta verkfræðimenntun
á Íslandi. Furðu vekur að í ræðu
þinni á ráðstefnu um menntun
verk- og tæknifræðinga 23. sept-
ember sl. var ekki minnst einu orði
á verkfræðideild. Þér var aftur á
móti tíðrætt um sameiningu HR og
THÍ í framtíðaráformum rík-
isstjórnar um verkfræðimenntun.
Við spyrjum því: Hvar er verk-
fræðideild Háskóla Íslands í þínum
framtíðaráætlunum?
Engin meðalmennska!
Okkur þykir augljóst að í verk-
fræðideild HÍ ríkir engin með-
almennska. Hér stundum við metn-
aðarfullt nám og lærum öguð
vinnubrögð. Síðast en ekki síst lær-
um við að rökstyðja mál okkar
ásamt því að beita og miðla þekk-
ingu á hagnýtan og skilvirkan hátt.
Við óskum því eftir rökstuðningi
þínum á ummælum þeim sem féllu í
seinni fréttum sjónvarps sl. þriðju-
dagskvöld um meðalmennsku í
verkfræðinámi.
Að lokum viljum við skora á
hæstvirtan menntamálaráðherra að
heimsækja verkfræðideild Háskóla
Íslands til að kynna sér betur það
frábæra starf sem þar fer fram.
Opið bréf til
menntamálaráðherra
Andri H. Kristinsson,
Hulda Hallgrímsdóttir og
Kenneth Breiðfjörð skrifa
menntamálaráðherra opið bréf
’Okkur þykir augljóstað í verkfræðideild
HÍ ríkir engin
meðalmennska.
Hér stundum við metn-
aðarfullt nám og lærum
öguð vinnubrögð. ‘
Kenneth
Breiðfjörð
Höfundar eru formenn
nemendafélaga í
verkfræðideild Háskóla Íslands.
Hulda
Hallgrímsdóttir
Andri H.
Kristinsson
VIKAN 18.–24 október er Evr-
ópsk vinnuverndarvika en hún er
nú í fyrsta skipti helguð einni
starfsgrein, þ.e. byggingariðnaði.
Hér á landi hófst vik-
an formlega með
morgunverðarfundi,
sem Vinnueftirlitið
stóð að í samvinnu við
aðila vinnumarkaðar-
ins, mánudaginn 18.
október.
Íslenskur bygging-
ariðnaður hefur lengi
verið drifkraftur í ís-
lensku efnahagslífi.
Þegar vel gengur og
mikið er undir fylgir
oftast uppgangur í ís-
lensku samfélagi.
Miklar tækni-
framfarir hafa orðið á síðustu ár-
um og hafa afköst aukist að sama
skapi. Þessu hefur fylgt sífellt
styttri framkvæmdatími og aukið
álag á starfsmenn. Þrátt fyrir
miklar tæknilegar framfarir hefur
ekki tekist að draga úr hárri slysa-
tíðni og er hún með því hæsta sem
þekkist sé byggingariðnaður bor-
inn saman við aðrar starfsgreinar.
Byggingariðnaður hefur mátt búa
við dauðsföll nánast á hverju ári
og stundum fleiri en eitt. Margt
hefur þróast til betri vegar síðustu
ár. Vaxandi vitund stjórnenda og
starfsmanna fyrirtækja skilar sér í
betri líðan starfs-
manna og bættum
rekstri fyrirtækjanna.
Almennt hefur
markvisst innra eftirlit
í fyrirtækjunum skort;
eftirlit sem er vakandi
yfir hættum sem skap-
ast á síbreytilegum
vinnustöðum. Slíkt eft-
irlit þarf að byggjast á
mótaðri stefnu fyr-
irtækisins sem tekur
bæði til stjórnenda og
starfsmanna.
Samiðn og Samtök
iðnaðarins, í samstarfi
við Vinnueftirlitið, hafa síðustu
mánuði staðið fyrir tilraunaverk-
efni sem gengur undir heitinu TR-
mælir. Hugmyndin er fengin frá
Finnlandi og byggist á að koma
upp innra eftirliti, skipulögðum
skoðunarferðum og reikna út ör-
yggisstuðul fyrir vinnustaði í
hverri viku. Farnar eru vikulegar
skoðunarferðir um vinnustaðinn og
sex efnisatriði skoðuð út frá öryggi
og vinnubrögðum starfsmanna.
Skoðunarmaður, sem er starfs-
maður fyrirtækisins, fer um vinnu-
staðinn og skoðar notkun persónu-
hlífa, vinnupalla, fallvarnir, vélar
og búnað, lýsingu og umgengni.
Matið er sjónrænt og hvert atriði
er metið annaðhvort rétt eða rangt
eftir því hvort það uppfylli kröfur í
reglum um öryggi.
Að lokinni skoðunarferðinni er
öryggisstuðull vinnustaðarins
reiknaður út og hann merktur inn
á þar til gerða töflu sem er öllum
starfsmönnum aðgengileg. Verk-
stjóri fær ennfremur afrit af eyðu-
blaðinu þar sem fram kemur
hvernig einstaka þættir standa. Á
eyðublaðinu kemur m.a. fram
hvort eitthvað í vinnuumhverfinu
kalli á aðgerðir strax.
Þessi einfalda aðferð hefur
reynst mjög vel í Finnlandi og á
þeim vinnustöðum sem hún hefur
verið reynd hér á landi hefur hún
gefið skjótan og góðan árangur.
Til þess að TR-mælirinn skili ár-
angri þurfa stjórnendur sem og
starfsmenn að vera virkir. For-
senda árangurs er að stjórnendur
og starfsmenn móti sameiginlega
stefnu um öryggismálin og séu til-
búnir að fylgja stefnunni eftir. Sé
stefnan skýr er TR-mælirinn tæki
sem getur tryggt framgang stefn-
unnar. Mikilvægt er að stjórn-
endur fylgist með og séu tilbúnir
að grípa inn í og veita stuðning ef
með þarf.
Tilraunaverkefnið með TR-
mælinn mun standa fram að ára-
mótum.
Við sem höfum verið að vinna
með TR-mælinn erum sannfærð
um að hann getur komið að gagni
við að fækka slysum á bygging-
arvinnustöðum. TR-mælirinn er
einfaldur, ódýr og skilar góðum ár-
angri. Hann kallar á samvinnu og
ábyrgð allra; starfsmanna og
stjórnenda.
TR-mælirinn er ódýr,
einfaldur og skilvirkur
Þorbjörn Guðmundsson
skrifar í tilefni af Evrópsku
vinnuverndarvikunni
’Mikilvægt er að stjórn-endur fylgist með og séu
tilbúnir að grípa inn í og
veita stuðning ef með
þarf. ‘
Þorbjörn
Guðmundsson
Höfundur er framkvæmdastjóri
Samiðnar.