Morgunblaðið - 22.10.2004, Side 36

Morgunblaðið - 22.10.2004, Side 36
36 FÖSTUDAGUR 22. OKTÓBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Gróa SveinbjörgGuðmundsdóttir fæddist á Árnastöð- um í Seyðisfirði 1. ágúst 1911. Hún lést á líknardeild Landa- kotsspítala fimmtu- daginn 14. október síðastliðinn. For- eldrar hennar voru Guðmundur Jóns- son, f. á Brunna- stöðum í Vatns- leysustrandarhreppi í Gull. 3. ágúst 1871, d, 15. desember 1937, og Auðbjörg Valgerður Árnadóttir, f. á Krókvelli í Gerðahreppi í Gull. 23. október 1874, d. 8. apríl 1958. Systkini Gróu voru Dreng- ur Guðmundsson, f. 1898, d. 1898; Kjartan Ágúst Guðmunds- son, f. 1899, d. 1919; Jón Guð- mundsson, f. 1902, d. 1977; Guð- björg Guðmundsdóttir, f. 1904, d. 1984; Skafti Guðmundsson, f. 1905, d. 1930; Bjarni Guðmunds- son, f. 1907, d. 1957; Gísli Guð- mundsson, f. 1910, d. 1980; Guð- rún Guðmundsdóttir, f. 1913, d. 1997; og Ágústa Guðný Guð- mundsdóttir, f. 1920, d. 1987. Börn Gróu eru: 1) Sverrir Briem, f. 1930, d. 1977, húsa- smiður í Reykjavík. Faðir hans var Páll Jakob Kristinsson Briem, f. 1912, d. 2000. Börn Sverris eru Þórarinn Valur Sverrisson, f. 1955, móðir hans er Margrét Björg Þórarinsdótt- ir, f. 1930; Hrefna Sigríður Sverrisdóttir, f. 1969, móðir Sigrún Hrefna Guðmundsdóttir, f. 1947. 2) Ragnheiður Guð- mundsdóttir, f. 1932. Faðir Guð- mundur Steingrímur Þorgríms- son, f. 1897, d. 1944, búfræðingur og verkamaður á Siglufirði. Maki Ragnheiðar var Óskar Jóhannesson, f. 1921, d. 1994, bóndi frá Svínhóli í Dölum. Börn Ragnheiðar og Óskars eru Guð- mundur Ómar Ósk- arsson, f. 1952; Heimir Már Óskars- son, f. 1954; Auð- björg Vordís Ósk- arsdóttir, f. 1958; Jóhannes Halldór Óskarsson, f. 1963; Ólafur Óskarsson, f. 1966; og Alvar Óskarsson, f. 1969. 3) Lúðvík Vignir Ingvarsson, f. 1939, var ættleiddur. Sambýlismaður Gróu var Ragnar Pálsson, f. 1899, d. 1973. Börn þeirra: 4) Guðmunda Ragnarsdóttir, f. 1941, maki Helge Pettersen, f. 1933. Börn þeirra Hafdís Rut, f. 1959; Ole Ragnar, f. 1961; Jan Helge, f. 1967; Gro Marie, f. 1972. 5) Skafti Axel Ragnars- son, f. 1943, sambýliskona Edda Sigurðardóttir. Barn hans Skafti Ragnar Skaftason, f. 1967, móðir hans er Erla Vil- borg Adolfsdóttir, f. 1948. 6) Sigríður Pálína Ragnarsdóttir, f. 1944, maki Douglas Malcom Nicolson, f. 1955. Börn Sigríðar með Sveini Valgeiri Jónsyni, f. 1943, skildu, Jón Valgeir Sveinsson, f. 1965; Heiðrún Björg Sveinsdóttir, f. 1967; Ragnar Már Sveinsson, f. 1971. 7) Klara Margrét Ragnarsdóttir, f. 1950, maki Sveinbjörn Krist- inn Stefánsson, f. 1949. Börn þeirra Einar Kristinn Svein- björnsson, f. 1971; Elínborg Sveinbjörnsdóttir, f. 1973; Krist- ín Gróa Sveinbjörnsdóttir, f. 1975. Útför Gróu Sveinbjargar fer fram frá Hvítasunnukirkjunni Fíladelfíu, Hátúni 2 í dag og hefst athöfnin klukkan 15. Það er svo skrítið að komið sé að kveðjustund ömmu, hún var búin að vera til svo lengi. Hún var svo sterkur hluti af fjölskyldunni. Það var eins og hún ætti alltaf að vera til, vera eilíf. Í barnsminningu minni var hún ekki venjuleg amma með fléttur og í peysufötum, eins og aðrar ömmur sem ég hafði séð. Amma var alltaf pæja í háhæluðum skóm með varalit. Þegar hún var að koma vestur með rútunni vorum við krakkarnir látin fylgjast með hvenær við sæjum til hennar, svo að pabbi væri kominn á réttum tíma að sækja hana. Þegar hún kom fannst mér hún svo fín og ein- hver ævintýrablær á heimilinu fyrst á eftir. Ég man líka þegar ég var að fara með mömmu til Reykjavíkur, þá var alltaf pláss hjá ömmu, þótt hún byggi oft mjög þröngt og hefði ekki mikið að bjóða. Ömmu fannst erfitt að vera fátæk, því hún hafði unun af að gefa öðrum. Hún vildi vera rausnarleg og gaf oft meira en hún átti. Hún var sérstaklega dugleg að breyta gömlum flíkum og gera þær eins og keyptar úr tískubúð. Það var kannski gömul kápa sem hún setti á loðkraga og nýja hnappa, þá var hún orðin ný. Amma vildi vera fín og líta vel út. Margir töluðu um hvað hún væri alltaf glæsileg til fara. Henni fannst gaman að fara í veislur og klæða sig uppá. Hún var oft lengi að hafa sig til. Það var gaman að fylgjast með því hvað hún var mik- il pjattrófa. Sérstaklega seinni ár- in. Ég kynntist ömmu betur eftir að ég varð fullorðin. Sérstaklega eftir að hún flutti á Njálsgötu 75 þar sem hún bjó um árabil. Þar átti hún gott heimili sem hún leigði af sinni góðu trúföstu vinkonu Mörtu Jónsdóttur. Þangað var gott að koma og þar gisti ég og fjölskylda mín þegar við vorum í Reykjavík. Amma átti ekki auðvelt líf þegar hún var yngri. Hún talaði þó alltaf hlýlega um æsku sína og sagði oft- ast bara frá því jákvæða. Það var ekki auðvelt hlutskipti að vera ein- stæð móðir með tvö börn fyrir sjö- tíu árum. Hún þurfti að stíga mjög þung spor, sem fáir geta ímyndað sér hvað hafa verið erfið. Suma hluti gat hún aldrei talað um án þess að tárast, þótt öll þessi ár væru liðin og hún orðin gömul kona. Hún leið fyrir fátækt sína og oft var þröngt í búi og mörg lítil börn á heimilinu sem þurfti að fæða og klæða. Amma var stolt og skapmikil en samt viðkvæm. Ef- laust hafa þessi erfiðleikar mótað skapferli hennar og sjálfsmynd. Hún fann huggun og kjark í trúnni á Guð. Hann létti byrðarnar sem hún bar. Hún var óþrjótandi að boða okkur afkomendum sínum trúna á hann. Hún bað fyrir okkur öllum, að við mættum eignast lif- andi trú á Jesú Krist frelsara okk- ar. Amma var einstök, hún gat ver- ið snögg upp á lagið en gat verið mjög skemmtileg. Hún hafði ótrú- legt minni, gat þulið endalaust ljóð og vísur, sungið gömul lög með rómantískum textum sem enginn hafði nokkurn tíma heyrt. Hún hafði mikinn áhuga á ættfræði og svo síðast en ekki síst ljósmyndum, sérstaklega fjölskyldumyndum af hennar fólki. Örugglega eiga allir minningar um það að skoða myndaalbúmin hennar. Elsku amma mín, þakka þér fyr- ir öll árin. Þakka þér fyrir hvað þú varst gjafmild. Litlu langömmu- börnin þín héldu að þú værir svo rík, af því að þú vildir alltaf vera að gefa þeim peninga til að gleðja þau. Þú varst ekki rík af verald- legum hlutum. Þú varst rík af þín- um góðu börnum, barnabörnum og langömmubörnum, í þeim er þinn fjársjóður. Ég er þakklát fyrir það að Guð tók þig til sín, svo að þú þyrftir ekki að þjást lengur. Nú hvílir þú örugg og áhyggjulaus hjá honum. Þitt barnabarn Auðbjörg Vordís Óskarsdóttir. GRÓA SVEINBJÖRG GUÐMUNDSDÓTTIR ✝ Sigurbjörg Mar-grét Benedikts- dóttir fæddist 2. apríl 1916. Hún lést á líkn- ardeild Landspítal- ans 13. október síð- astliðinn. Foreldrar hennar eru Krist- björg Stefánsdóttir bóndi og Benedikt Kristjánsson, bóndi og oddviti á Þverá í Öxarfirði í Norður- Þingeyjarsýslu og fyrrverandi skóla- stjóri á búnaðarskól- anum Eiðum. Systk- ini Sigurbjargar eru Stefán, Rósa, Kristján, Eva, og Sigurveig. Hinn 27. júní 1937 giftist Sigur- björg Ágústi V. Matthíassyni, f. 30.7. 1914 á Jaðri í Vestmannaeyj- um, d. 21.1. 1988. Hann var sonur Matthíasar Finnbogasonar, f. 25.4. Sigurður Náll Njálsson. Börn þeirra eru: a) Ágúst Vilhjálmur, maki Elma Jóhannsdóttir. Börn þeirra eru: Einar Páll, Guðrún Jenný, Guðjón Vilhjálmur, Alex- ander Fannar. Fyrir á Elma Guð- mund Kristin Vilbergsson. b) Sig- urbjörg Margrét, maki Björgvin Sigurðsson. Börn þeirra eru: Sig- urður Gunnar, Finnur Emil og Al- dís Helga. c) Fannar, sambýliskona hans er Íris Tebe. Barn þeirra er Daniela. Fyrir á Íris soninn Alex- ander Ísak Tebe. 3) Kristbjörg. Dóttir hennar er Helga Friðriks- dóttir, maki Knútur Bjarnason. Dætur þeirra eru: Högna Krist- björg og Melkorka. 4) Egill, maki Hildur Einarsdóttir. Synir þeirra eru: Darri og Andri. 5) Matthildur Ágústsdóttir, sambýlismaður Guð- brandur Siglaugsson. Sonur Matt- hildar er Stefán Þór Björnsson. Sambýliskona hans er Svava Hin- riksdóttir. Sonur þeirra er Hektor, en fyrir á Svava soninn Hinrik Bjarkason. Útför Sigurbjargar verður gerð frá Dómkirkjunni í dag og hefst at- höfnin klukkan 10.30. 1882 í Presthúsum í Mýrdal og Sigríðar Ólafar Þorsteinsdótt- ur, f. 29.1. 1989 á Vil- borgarstöðum í Vest- mannaeyjum, d. 18.11. 1947. Börn Sigur- bjargar og Ágústs eru: 1) Sigríður Rósa, f. 5.10. 1937, d. 13.9. 1997, maki Kurt Haug- land. Börn þeirra eru: a) Arnfinn Ágúst, maki Karen Haugland. Börn þeirra eru: Björn Vilhjálmur, Karl Jó- hann og Tove María. b) Anna Björg Haugland, börn henn- ar eru: Matthias Claes Torson og Terese Anna María Torson. c) Kristín Greta, maki Hakon Rose. Börn þeirra eru: Carolina Silla María, Markus Lars Erik og Patrik Kurt Erik. 2) Guðrún Helga, maki, Það er komið að leiðarlokum, og ekkert nema góða minningar fylla hugann. Mamma var svo sannarlega Mamma með stóru M. Þegar ég var strákur var ég afar uppátækjasamur, en það var nánast alveg sama hvað óskunda ég gerði af mér, aldrei heyrði ég styggðaryrði frá henni og pabba. Hún hafði endalausa þolinmæði með mér og talaði við mig í yfirveguðum tóni og reyndi þannig að hafa hemil á kraftmiklum strák sem þurfti að fá út- rás. Þannig augum leit hún þessi strákapör. Mamma hafði einstaklega góða nærveru. Hún var góðviljuð og velti sér ekki uppúr vandamálunum heldur stafaði frá henni jákvætt andrúmsloft og þessi endalausa orka. Ef eitthvað þurfti að framkvæma, stórt eða smátt, eyddi hún litlum tíma í að tala um hlut- ina heldur framkvæmdi strax. Ég hef aldrei kynnst manneskju sem var svo gjörsamlega laus við verkkvíða eins og hún var. Þessir eiginleikar eru dýr- mætir. Þegar líða tók á ævina mildaðist hún enn meira og frá henni kom þessi endalausa hlýja og væntumþykja, sem beindist ekki aðeins að okkur sem næst henni stóðum heldur einnig að vinum og öðrum samferðamönnum. Það var stórkostlegt hvað hún náði góðu sambandi við barnabörnin, barnabarnabörnin og tengdabörnin sem löðuðst að henni en þau reyndust henni ekki síður vel. Við áttum það sameiginlegt að Öx- arfjörðurinn, hennar æskuslóðir, skip- aði stóran sess í hugum okkar og eydd- um við oftast lunganum úr fríum okkar á þeim slóðum og var stutt á milli okk- ar þar. Það var alveg sama hver kom í heimsókn í Framnes til okkar Hildar, mamma vildi alltaf bjóða okkar gest- um til sín líka og skipti þá engu hversu stór hópurinn var, alltaf var búið að dekka upp borð og boðið til dýrindis veislu. Það leið varla sá dagur að við mamma töluðumst ekki við í síma og var þá talað um alla heima og geima en hún fylgdist með öllu af lifandi áhuga. Mamma, ég mun sakna þín. Egill. Hvað skiptir máli í sjálfu sér? Þessi spurning leitaði á tengdamóður mína síðustu ævidagana, þegar hún gerði sér grein fyrir að hverju stefndi. Sig- urbjörg var í lifanda lífi ekki mikill pælari sem glímdi við rök tilverunnar hvern dag, miklu fremur lét hún verk- in tala og í þeim kom fram heilsteypt lífsviðhorf hennar, ákveðni og góð- lyndi. En niðurstaða tengdamóður minnar við spurningunni um hvað hefði skipt hana mestu máli í lífinu var hvað hún átti góð börn og ágæta af- komendur. „Hvaða máli skipta met- orðin ef maður hefur ekki hlúð að börnunum sínum og eignast þau að vinum?“ sagði hún. Í sjálfu sér kom þessi niðurstaða hennar ekki á óvart vegna þess að Sig- urbjörg hefur alla tíð lagt mikla rækt við fólkið sitt, ekki aðeins börnin, tengdabörnin, barnabörnin og barna- barnabörnin heldur einnig þá sem hún skynjaði að þurftu á henni að halda en þá var hún fljót að rétta út trausta hönd sína. Sigurbjörg átti ekki langt að sækja rausnarskapinn. Á æskuheimili henn- ar var mikill áhugi á öllu sem heyrði til félagsmála og framfara. Benedikt faðir hennar var farsæll forystumaður sveit- arfélagsins og Kristbjörg móðir henn- ar var traust kona sem hafði lært ljós- myndun á Seyðisfirði. Hjá þeim lærði Sigurbjörg eflaust þá samheldni sem einkenndi samskipti foreldra hennar og samlíðan með meðborgurunum. Ein fyrstu kynni mín af skyldmenn- um Egils voru þegar hann fór með mig í heimsókn til afa síns og ömmu sem dvöldu á heilsuhælinu í Hveragerði eða Heilsustofnun NLFÍ eins og það heitir nú. Kristbjörg var þá tæplega áttræð en Benedikt kominn fast að níræðu. Bróðir Benedikts, Jónas læknir, stofn- aði heilsuhælið á sínum tíma og voru þau Kristbjörg og Benedikt þar af og til sér til hressingar eftir að þau fluttu til Reykjavíkur. Þegar ég kom inn í herbergið þeirra sá ég hvar Kristbjörg sat í stól og las upphátt úr skáldsögu meðan Benedikt, sem sat á rúm- stokknum og var næstum orðinn blindur, prjónaði vettlinga af kappi, en hann var afkastamikill á því sviði. Ég man að mér fannst svolítið skrítið en skemmtilegt að sjá karlmann prjóna. Ég dáðist að handbragði hans enda vettlingarnir afar vel prjónaðir. Bene- dikt vildi lítið um það ræða, en sagði að það hefði verið mikið happ að hafa lært þessa iðn en prjónaskapurinn stytti honum stundir á ævikvöldinu. Sigurbjörg ólst upp á Þverá hjá for- eldrum sínum en þurfti snemma að fara að vinna fyrir sér. Á unglingsár- unum var hún send til Húsavíkur til frænda síns Bjarna Benediktssonar athafnamanns og gekk þar í skóla ásamt því að hjálpa til á heimili hans. Á nítjánda ári flutti hún til Vestmanna- eyja. Þar átti hún bróður, Helga Bene- diktsson, kunnan athafnamann. Í Vestmannaeyjum kynntist hún manni sinum, Ágústi V. Matthíassyni, sem þá var starfsmaður Einars Sigurðssonar útgerðarmanns. Til er skemmtileg saga í fjölskyldunni af því hvernig fyrstu kynnum þeirra Sigurbjargar og Ágústs var háttað. Tengdafaðir minn hélt því alla tíð fram að af hans hálfu hefði það verið ást við fyrstu sýn, en hún hefði gefið honum lítinn gaum. Sagan segir að ungir synir Helga Ben. hafi eitt sinn farið út í búð og hitt Ágúst sem var innanbúðarmaður og gaf hann þeim sælgæti gegn því að þeir tryggðu að Sigurbjörg frænka þeirra gæfist honum. Þegar drengirnir komu heim spurði Sigurbjörg, sem var að gæta þeirra, hvar þeir hefðu fengið sælgætið. Þegar hún heyrði hvernig það var til komið sendi hún þá um- sviflaust til baka til að skila góðgætinu. En þeir borðuðu það á leiðinni. Hélt Ágúst því fram að þar með væri kom- inn á bindandi samningur um þetta efni, því orð skulu standa. En hvað sem því líður þá giftust þau Ágúst og Sig- urbjörg og óhætt er að fullyrða að hjónaband þeirra í 51 ár hafi verið afar farsælt og fallegt, byggt á gagn- kvæmri ást og virðingu. Fljótlega eignuðust þau sitt fyrsta barn, Sigríði Rósu og fjögur fylgdu á eftir á fimm ára fresti, Guðrún Helga, Kristbjörg, Egill og Matthildur. Nokkrum árum eftir að þau giftu sig tók Ágúst á leigu ásamt félögum sínum Hraðfrystistöðina í Vestmannaeyjum og stofnaði síðar Fiskiðjuna. Á heimili þeirra Sigurbjargar og Ágústs var allt- af mikill gestagangur og segja kunn- ugir að heimili þeirra hafi nánast verið eins og hótel. Þau höfðu yndi af því að fá til sín fólk, gera vel við það og eiga með því skemmtilegar stundir. Þau Sigurbjörg og Ágúst voru hvort með sínu móti. Sigurbjörg kunni þá list að búa til góðan mat, var dugnaðar- forkur sem bretti upp ermarnar þegar á þurfti að halda. Ágúst hafði góðan húmor og var vel að sér í viðskiptum. Bæði voru þau glaðsinna og minnist ég þess þegar ég kynntist þeim hvað mér fannst þau jákvæð og bjartsýn, það var aldrei neitt vol og væl á þeim bæ, þrátt fyrir áföll í lífinu. Þegar ég kynntist tilvonandi tengdaforeldrum mínum voru þau ný- flutt til Reykjavíkur að fóta sig áfram á nýjum vettvangi, komin vel á miðjan aldur. Tengdamóðir mín hafði ekki unnið utan heimilis en setti fljótlega á laggirnar hreinsun sem hún starfrækti í nokkur ár. Rúmlega sextug réðst hún sem matráðskona við Sjálfsbjargar- heimilið í Hátúni og vann þar til sjötíu og fimm ára aldurs. Sigurbjörg naut starfsins og nýtti sér kunnáttu sína og áhuga á eldamennsku. Segja má að starfið hafi verið henni eins konar hug- sjón, lagði hún sig fram um að gera allt sem heimilislegast svo vistmenn gætu átt þar góða daga. Sigurbjörg rak eld- húsið af hagkvæmni án þess að það kæmi niður á gæðunum um leið og hún var fólkinu á heimilinu hlýr og góður vinur. Af sama áhuga starfaði hún í marga áratugi innan Oddfellow-reglunnar, þar sem hún kom ýmsum góðum mál- um í höfn. Til þess að verða hæfari til þeirra ábyrgðarstarfa sem hún valdist til innan reglunnar fór hún um sjötugt á Dale Carnegie-námskeið til þess að öðlast meiri færni í að koma fram á op- inberum vettvangi. Var gaman að fylgjast með því hvað Sigurbjörg átti auðvelt með að halda skemmtilegar ræður við hin ýmsu tækifæri. En umfram allt var tengdamóðir mín hin stóra móðir, miðja fjölskyld- unnar, sem hélt okkur öllum saman. Hjá henni áttum við svo ótal margar skemmtilegar stundir hvort sem það var á heimili hennar í Stóragerði og síðar Hraunbænum eða í sumarbú- staðnum fyrir norðan. Eftir að hún hætti að vinna tók hún sig venjulega upp á vorin með sitt hafurtask og flutti norður þar sem hún átti sumarbústað í Þverárlandi, á æskuslóðunum. Hún kom ekki til baka fyrr en líða tók á ágústmánuð. Í Bjargarlundi, eins og hún nefndi sumarbústaðinn, heimsóttu fjölskylda og vinir hana og dvöldu þar við linnulaus veisluhöld. Þeir sem kunnu að spila brids tóku slaginn fram á nótt en Sigurbjörg var ágætis brids- spilari. Ungviðið í fjölskyldunni fékk stund- um að vera lengur hjá henni sem er þeim ógleymanlegt. Þá var gengið með ömmu upp með ánni að huldusteinin- SIGURBJÖRG BENEDIKTSDÓTTIR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.