Morgunblaðið - 22.10.2004, Page 37

Morgunblaðið - 22.10.2004, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. OKTÓBER 2004 37 MINNINGAR um eða þau léku sér í boltaleikjum í grasivöxnum Djúpadalnum. Síðustu mánuði talaði Sigurbjörg oft um það hvað hún hefði átt gott líf og hvað hún væri þakklát fyrir það. Hún þakkaði guði fyrir góða heilsu en hún hafði ávallt verið heilsuhraust nema þetta eina ár sem hún hafði fengið berkla og þurfti að fara frá ungum börnum og dvelja á Vífilsstöðum. Sigurbjörg hugsaði vel um heilsufar sitt. Hreyfði sig mikið utandyra og borðaði holla fæðu. Hún var ung í anda og fannst gaman að vera innan um ungt fólk. Þegar máttinn tók að þverra og hún treysti sér ekki til að fara út að ganga eða í sundlaugarnar gekk hún upp og niður stigann í húsinu sem hún átti heima í, hún bjó á níundu hæð. Fyrsta gekk hún niður á þriðju hæð, síðan þá fjórðu, svo þá fimmtu, það er að segja eftir því sem styrkur hennar leyfði. Sigurbjörg var þrautseig kona sem tók því sem að höndum bar og gaf ekkert eftir fyrr en hún hafði unnið sinn persónulega sigur. Þótt okkur fyndist eins og Sigur- björg yrði eilíf þá hlaut hún að sinna hinsta kallinu eins og aðrir. Ég kveð tengdamóður mína með söknuði og þakka henni óendanlega hlýju og vin- áttu. Eftir sitja minningar um stóra og hugrakka konu sem kunni að lifa lífinu og elska þá sem voru í kringum hana. Hildur. Það sem kemur fyrst í huga minn þegar ég kveð jafnyndislega mann- eskju og tengdamóðir mín var, er kraftur, lífsgleði og jákvæðni, Sigur- björg mín, þú gafst mér mikið. Það er erfitt að taka eitthvað sér- staklega fyrir því af mörgu er að taka, maður minnist allra heimboðanna sem þú hefur boðið til, sérstaklega aðfanga- dagskvölds, öll fjölskyldan kom í mat til þín, ennfremur fyrir allar veislur sem þú hefur séð um fyrir mig og mína fjölskyldu, skírnir, fermingar, gifting- ar og afmæli. Ég minnist áranna í Vestmannaeyjum þegar farið var út í Klauf á sunnudögum með tengdaföður mínum Ágústi þeim góða manni og vini, fór hann þá að synda í sjónum og gerði grín að okkur hinum sem þorð- um ekki vegna kuldans. Á meðan varst þú heima og eldaðir sunnudagssteik- ina. En við Ágúst spiluðum bridge saman í Krummaklúbbnum eftir að við fluttum á höfuðborgarsvæðið. Einnig minnist maður ferða til Kanaríeyja, Svíþjóðar og dvalar í sumarbústaðnum í Öxarfirði, Bjargarlundi. Þá var oft tekið í spil, það er að segja bridge og þar varst þú í essinu þínu ásamt Evu systur þinni, og ekki skemmdi það fyr- ir að þér fannst það eðlilegt að dekra við karlmennina. Oft var spurt: Gunna, ertu búin gefa Sigga kaffi og meðlæti, og þú varst ekki ánægð þegar sagt var: Hann getur fengið sér það sjálfur. Ég þekki og hef þekkt margan dugnaðarmanninn en engan hef ég þekkt duglegri en þig og allt gerðir þú með glöðu geði því þú gafst af sjálfri þér og baðst ekki um endurgjald og þú færðir gleði og styrk inn í líf okkar. Ég er þakklátur fyrir þessi 43 ár sem við urðum samferða. Megi algóður Guð taka á móti þér og gefa börnum og barnabörnum styrk í sorg þeirra. Sigurður Njáll Njálsson. Hér sit ég og hugsa um þig, amma mín, og hversu stór hluti af lífi okkar þú varst. Ég á aldrei eftir að gleyma þegar við vorum tvö saman í Bjarg- arlundi, hvað þú hugsaðir vel um mig og hversu vel okkur kom saman. Ég minnist þess líka þegar þú gekkst með mér upp að álfasteininum og sagðir mér frá álfunum og öllum ævintýrun- um sem þú last fyrir mig áður en ég fór að sofa. Það var gaman að fá að taka þátt í því að byggja Bræðralund, litla húsið okkar bræðranna, útbúa brú yfir Þverá og láta bátana sigla niður ána. Ég minnist líka allra gönguferðanna með þér og margs fleira sem gerði daginn skemmtilegan. Eftir annasaman daga kom ég heim þreyttur með grasgrænu í buxunum og blautur í fæturna og þú brostir til mín, gafst mér pönnukökur og mjólk, sendir mig svo í sturtu og í hrein föt. Þá tóku við björt kvöldin þar sem ég las með þér eða horfði á sjónvarpið í hinum mestu rólegheitum. Þú varst þannig persóna að það var ekki hægt annað en líða vel nálægt þér. Skemmtilegasta kvöldi ársins eydd- um við heima hjá þér með stórfjöl- skyldunni, en það var aðfangadags- kvöld. Stemmningin sem þú skapaðir þessi kvöld er ógleymanleg og nánast fullkomin. Aðfangadagskvöld rann upp og þú varst búin að eyða að minnsta kosti tveim dögum í að gera allt eins og þú vildir hafa það. Skreyta íbúðina og búa til matinn, sem var sá besti sem ég hef nokkurn tímann smakkað enda rjúpurnar oftast að norðan. Það vildi svo óheppilega til að eitt aðfangadagskvöldið var ég með hlaupabólu og leið alls ekki vel. Það kvöld varð ég eftir hjá þér en fjöl- skylda mín fór heim. Þrátt fyrir að hafa stritað seinustu tvo sólarhringa við að gera kvöldið eins og það var þá vaktir þú með mér alla nóttina og sagð- ir mér sögur og barst á mig krem. Þú varst alltaf svo hugulsöm og yndisleg. Ég var hreykinn af því fyrir þína hönd hversu heilsuhraust þú varst. Fólk gapti þegar ég sagði frá því að þú keyrðir sjálf norður á Volvoinum, kom- in vel yfir áttrætt, margir héldu að þú værir allavega tíu árum yngri en þú varst í raun. Allar minningarnar sem ég á um þig eru svo fallegar. Þú varst alltaf að hugsa um okkur og alla í kring um þig. Þú sagðir mér oft hvað þú elskaðir mig mikið og ég sagði það við þig á móti. Ég á alltaf eftir að minnast þín sem einnar þeirrar yndislegustu mann- eskju sem ég hef kynnst. Darri. Amma mín var mörgum kostum bú- in. Hún var kraftmikil og hörkudugleg. Hún stundaði sund og gekk mikið. Þegar illa viðraði fór hún í stigana og gekk þar. Hún var listakokkur, skipu- lagði og stjórnaði veislum eins og höfð- ingi. Hún stóð upp og hélt ræður eins og ekkert væri. En það eru samt aðrar minningar um hana sem mér eru ofar í huga. Þegar ég var lítil fékk ég oft að gista hjá ömmu og afa í Stóragerði. Oftast fékk Helga frænka líka að gista um leið. Við frænkurnar áttum það til að vera fjörugar saman en amma gerði aldrei neitt mál úr því. Við lékum okk- ur oft í náttkjólunum hennar ömmu sem voru ekta prinsessukjólar. Hún hafði aldrei áhyggjur af því að við myndum skemma neitt og leyfði okkur t.d. að leika með stytturnar sínar en ég efast um að margar ömmur hefðu leyft það. Þegar ég varð sjálf foreldri sá ég sömu hlýjuna og umburðarlyndið gagnvart mínum börnum. Það er eiginlega ekki hægt að skrifa um ömmu mína án þess að minnast á sumarbústaðinn en þangað var farið reglulega með alla fjölskylduna og allt- af var tekið á móti manni sem kon- ungborin væri. Eini galli við þessar sumarbústaðarferðir var að maður kom alltaf tveimur kílóum þyngri heim. Elsku amma mín, ég elska þig og sakna þín sárt en ég veit að afi er alsæll að fá þig loksins til sín. Vort hjarta er svo ríkt af hreinni ást að hugir í gegnum dauðann sjást. Vér hverfum og höldum víðar, en hittumst þó aftur – síðar. (Jóhannes úr Kötlum) Sigurbjörg Margrét Sigurðardóttir. Mig langar til að minnast ömmu minnar Sigurbjargar í örfáum orðum hér. Frá því ég man eftir mér hefur hún verið í lífi mínu og auðgað það með kærleik sínum og vinsemd. Amma mín var afar fórnfús kona sem gafst aldrei upp þó að á móti blési. Hún var mér og öðrum mikil hjálparhella enda leituðu margir til hennar um huggun og upp- lyftingu. Það segir mikið um hana að jafnvel í banalegunni veitti hún mér og öðrum ró og styrk. Hún bjó yfir svo miklum sálarstyrk að hún gat gefið af sjálfri sér þrátt fyrir að vera þrotin að kröftum. Það er því með miklum sökn- uði sem ég kveð ömmu mína en ég mun minnast hennar það sem ég á eft- ir ólifað. Stefán Þór Björnsson. Nú er hún amma mín dáin, blessuð sé minning hennar. Hún amma var engin venjuleg manneskja því hún var einstaklega góð manneskja og heilsteypt. Ég held að ég geti fullyrt það að engin lifandi eða liðin manneskja geti sagt neitt annað, amma var einfaldlega frábær mann- eskja. Ég var mjög ungur þegar ég gisti hjá ömmu og Ágústi afa yfirleitt 10 til 30 daga á ári og fór með í veiðitúra, á ég ekkert nema frábærar minningar. Það var alltaf gott að koma í heim- sókn til ömmu því að hún var alltaf tilbúin með góðgæti, það var oft þörf á því stoppa hana af þegar hún var að bjóða lostæti til hægri og vinstri. Síð- ustu árin spiluðum við mikið bridds í sumarbústað hennar í landi Þverár í Öxarfirðinum þar sem hún ólst upp. Við spiluðum oftar en ekki saman og með keppnisskapinu sem amma hafði unnum við oftast, föður mínum til mik- illar skapraunar, en hann var yfirleitt mótherjinn. Sem betur fer náði amma háum aldri, þannig að við sem erum í eldri kantinum af barnabörunum fengum notið hennar í dágóðan tíma en samt átti ég von á því að hún yrði 100 ára eða vonaði að hún myndi ná þeim aldri. Takk fyrir allar þær góðu minning- ar sem þú gafst mér og skildir eftir í hjarta mínu og huga. Ég og fjölskyldan kveðjum þig með söknuð í hjarta og vonum að þið afi hafið sameinast á ný. Þinn Ágúst. Í stórbrotnu umhverfi Axarfjarðar þar sem Jökulsá brýst út sandana og flýtur oft yfir bakka sína í leysingum, Ásbyrgið í suðri og Kópasker í norðri og Axarfjörðurinn framundan, þar sem Þveráin rennur tær frá austur- hlíðum fram í Axarfjörðinn. Í þessu stórkostlega umhverfi átti stórbrotin kona, Sigurbjörg Benediktsdóttir, sín- ar æskustöðvar og uppvöxt. Frá Ax- arfirði fór hún 1935 til Vestmannaeyja og giftist yndislegum manni, Ágústi Matthíassyni frá Litlu-Hólum. Þar eignuðust þau sín fimm börn Sigríði, Guðrúnu, Kristbjörgu, Egil og Matt- hildi. Hélt Sigurbjörg þar einstaklega myndarlegt heimili í rúm 30 ár. Vin- átta okkar og Egils sonar þeirra mót- aðist í Eyjum og hefur aldrei fallið skuggi þar á. Síðan hefur heimili þeirra verið mitt annað heimili í yfir 40 ár. Nokkru fyrir fráfall Ágústs 1988 voru þau farin að sækja aftur í faðm æskuslóða hennar við Axarfjörðinn og þar hefur hún dvalið hvert sumar í bú- staðnum sínum Bjargarlundi í Þver- árlandi síðustu tuttugu árin, og nú síð- ast í sumar. Þar hélt hún úti allan tímann fáheyrðri risnu fyrir ástvini sýna, gesti og gangandi, og brosti því meira sem gestirnir voru fleiri og ann- irnar meiri. Fyrir henni voru ekki til vandamál aðeins misstór verkefni sem þurfti að leysa, stundum að lengja dag- inn, en vol og víl voru ekki til í hennar orðabók. Reisn, dugnaður og festa voru hennar fylgidyggðir í svo ríkum mæli, að jafnvel þegar hún fékk sinn örlagadóm um sjúkdóm þann sem hún vissi sjálf að yrði ekki sigraður, þá var uppgjöf hvergi nærri. Síðustu vikurn- ar sagði hún jafnan: „Ég er búin að eiga 88 yndisleg ár, getur nokkur ætl- ast til meira?“ Þá varð okkur mörgum vafalaust hugsað: Það er sælt að geta þakkað sína vegferð og kvatt sáttur eftir farsælt og hamingjuríkt líf. Kæra Sigurbjörg, að leiðarlokum viljum við, ég og fjölskylda mín, þakka þér ástríki þitt og ég er þess fullviss að gengnir ástvinir hafa beðið þín með op- inn faðminn á sama hátt og þinn faðm- ur hefur umvafið samferðamenn þína alla tíð. Henrý Þór og fjölskylda. Elsku frænka ég náði ekki að segja þér allt sem mig langaði að segja þér áður en yfir lauk því eins og svo mörg- um fannst mér þú sigrast á þessum veikindum. Það er ekki svo langt síðan að þú sast við eldhúsborðið hjá mömmu og pabba brosandi að venju, kysstir mig og strákana á kinnina, hnarreist og tignarleg að vanda. Nú lif- ir þú í minningu okkar. Glæsilegt heimi Sigurbjargar frænku við Stóragerði er í minningu minni frá því ég var strákur sem lítið konungsríki, þar bjuggu þau Sigur- björg og Ágúst. Þangað var oft sem í ævintýri að koma. Gústi sagði manni sögur og Sigurbjörg veitti af sinni ein- stöku list kökur og kræsingar og sem ungum snáða þótti mér mikið til koma. Oft leið mér sem ég væri kominn inn í stofu til ömmu og afa því Sigurbjörg var hlý og gefandi og Gústi einstaklega barngóður. Seinna byggðuð þið ykkar konungsríki fyrir norðan í Öxarfirði þar sem fólk sótti Sigurbjörgu heim því gestrisin var hún með eindæmum og átti marga vini. Sigurbjörg hlúði að öllu, hvort heldur það var mannfólkið í kringum hana, sumarbústaðurinn eða heimili hennar. Hún var kvenskörung- ur, hélt risavaxnar veislur hjá Sjálfs- björg, ræktaði skóg fyrir norðan og ól upp stóra fjölskyldu sem hún var stolt af og láir henni enginn. Ég veit að það verður missir að hafa ekki Sigurbjörgu lengur meðal okkar. Ég kann þér bestu þakkir fyrir hve traustur og góður vinur þú varst for- eldrum mínum, hve kærleiksrík þú varst sonum mínum og elskuleg við mig frá fyrstu tíð. Guð geymi þig elskulega frænka. Við sendum börnum, barnabörnum og fjölskyldum samúðarkveðjur. Olgeir Olgeirsson og fjölskylda.  Fleiri minningargreinar um Sigurbjörgu Benediktsdóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Höfundar eru: Jóna Hannesdóttir. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, ÍSAK SIGURGEIRSSON, er lést í Hvammi, dvalarheimili aldraðra, Húsa- vík, laugardaginn 16. október sl., verður jarð- sunginn frá Húsavíkurkirkju laugardaginn 23. október nk. kl. 11.00. Kristrún Ísaksdóttir, Erlendur S. Baldursson, Sigurbjörg Ísaksdóttir, Sigurbjörn Finnbogason, Tryggvi Ísaksson, Hrefna M. Magnúsdóttir, Sigurgeir Ísaksson, Sveininna Jónsdóttir, Sigvaldi Gunnarsson, Lilja Jónasdóttir, afabörn, langafabörn og fjölskyldur. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, sonur og afi, GUNNAR MOGENSEN, Markarvegi 3, Reykjavík, lést þriðjudaginn 19. október. Útförin verður auglýst síðar. Hulda G. Mogensen, Elsa Mogensen, Páll Guðmundsson, Mogens Gunnar Mogensen, Margrét Líndal Steinþórsdóttir, Guðrún Þóra Mogensen, Árni Sigurjónsson, Petra Björk Mogensen, Sveinbjörn Sveinbjörnsson, Petra Louise Mogensen og barnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, BENEDIKT INGÓLFSSON, Ölduslóð 30, Hafnarfirði, andaðist á Hrafnistu Hafnarfirði fimmtudaginn 14. október. Sérstakar þakkir til starfsfólks deildar 4b. Jarðarförin hefur farið fram. Jóhanna Sigurjónsdóttir, Guðrún Benediktsdóttir, Gísli Sveinbergsson, Kristín Benediktsdóttir, Friðjón Sæmundsson, Ingólfur Benediktsson, Hildur Gunnarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi, GUÐNI JÓN GUÐBJARTSSON fyrrverandi stöðvarstjóri, Ljósafossi, lést á Hrafnistu, Hafnarfirði, miðvikudaginn 20. október. Halldóra Salóme Guðnadóttir, Sigurður Ingi Sveinsson, Íris Bryndís Guðnadóttir, Jón Birgir Jónsson, Kristjana Samper, Baltasar Samper, Ásgeir Guðnason, Bryndís Símonardóttir, Sigþrúður Þórhildur Guðnadóttir, Árni Mogens Björnsson, Ragnheiður Gunnhildur Gaihede, Ove Gaihede, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.