Morgunblaðið - 22.10.2004, Page 38
38 FÖSTUDAGUR 22. OKTÓBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
S. 555 4477 • 555 4424
Erfisdrykkjur
Verð frá kr. 1.150
✝ HallgrímurÁrnason Aðal-
steinsson var fæddur
á Akureyri 24. júní
1918. Hann lést á
hjúkrunarheimilinu
Seli á Akureyri 12.
október síðastliðinn.
Foreldrar hans voru
Pálína Hallgríms-
dóttir, húsmóðir á
Akureyri, f. 23. júlí
1891, d. 3. apríl 1925,
og Aðalsteinn Magn-
ússon, skipstjóri á
Akureyri, f. 10. sept-
ember 1892, d. 17.
nóvember 1953. Systkini Hall-
gríms eru: 1) Margrét Sigríður, f.
6. febrúar 1916, d. 15. mars 1962.
2) Viktor, f. 5. apríl 1922. 3) Agnes,
f. 16. júlí 1924, d. 2. febrúar 1925.
Hallgrímur kvæntist 17. septem-
ber 1949 eftirlifandi konu sinni
Magneu Garðarsdóttur, f. 17. sept-
ember 1928. Foreldrar Magneu
voru hjónin Kristrún Guðlaug Sig-
urðardóttir húsmóðir, f. 18. maí
1905, d. 21. september 1985, og
Garðar Sigurgeirsson bóndi á
Staðarhóli í Eyjafjarðarsveit, f. 6.
gamall. Þá var hann tekinn í fóstur
af sæmdarhjónunum Kristjáni Jós-
efssyni og Guðrúnu Sigurðardótt-
ur að Garðsá í Eyjafjarðarsveit.
Þar ólst hann upp við mikið ástríki
ásamt dætrum þeirra hjóna þeim
Þóru og Sigríði. Síðar fluttist Hall-
grímur með fósturforeldrum og
fóstursystrum sínum í Kamb í
sömu sveit þar sem hann ólst upp
fram á fullorðinsárin. Árið 1941
fór Hallgrímur á Hvanneyri og
lauk þaðan búfræðiprófi. Til
margra ára var aðalatvinna Hall-
gríms að vinna á skurðgröfu sem
Ræktunarfélag Öngulsstaða-
hrepps átti.
Árið 1954 stofnuðu Hallgrímur
og Magnea nýbýli sem þau nefndu
Garður. Þar byggðu þau upp fyr-
irmyndarbú og m.a. sá Búnaðar-
samband Eyjafjarðar ástæðu til að
verðlauna býlið fyrir snyrtilega
umgengni. Hallgrímur og Magnea
bjuggu allt til ársins 1981 er synir
og tengdadætur þeirra tóku við.
Þá settust þau að á Akureyri þar
sem Hallgrímur bjó til æviloka.
Hallgrímur var söngmaður góð-
ur og hafði ákaflega gaman af að
syngja, hann starfaði með kórum
sveitarinnar til margra ára og tók
jafnframt þátt í félagsstarfi sveit-
arinnar. Hann var einn af stofn-
endum Lionsklúbbsins Vitaðsgjafa
og vann þar ötult starf til fjölda ára
og var hann þar skráður ævifélagi.
Útför Hallgríms fer fram frá
Munkaþverárkirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 13.30.
september 1899, d. 21.
júlí 1980. Börn Hall-
gríms og Magneu eru:
1) Aðalsteinn, f. 12.
apríl 1955, maki Ásdís
Einarsdóttir, f. 20. júlí
1958, börn þeirra eru
Einar Örn, í sambúð
með Sesselju Ingi-
björgu Barðdal Reyn-
isdóttur, Hallgrímur
og Magnús. 2) Krist-
rún, f. 14. ágúst 1956,
maki Sigurgísli Svein-
björnsson, f. 7. ágúst
1955, börn þeirra eru
Anna María og Lína
Björg, í sambúð með Benedikt
Helgasyni. 3) Garðar, f. 2. mars
1958, maki Þórunn Inga Gunnars-
dóttir, f. 24. febrúar 1959, börn
þeirra eru Magnea, Viðar, í sam-
búð með Heiðdísi Dögg Sigur-
björnsdóttur, og Ebba Karen. 4)
Pálína Guðrún, f. 14. desember
1959, maki Hergeir Einarsson, f.
27. nóvember 1960, börn þeirra
eru Hilmar Örn og Herdís.
Hallgrímur ólst upp hjá foreldr-
um sínum á Akureyri þar til hann
missti móður sína aðeins sjö ára
Elsku pabbi. Nú ertu farinn frá
okkur, búinn að fá hvíldina frá þraut-
um hins illvíga sjúkdóms sem leggur
svo marga að velli. Minningarnar
hrannast upp, minningar frá æsku-
slóðunum, sveitinni, frá Garði sem þú
og mamma byggðuð upp af miklum
dugnaði og myndarskap. Þá var
vinnudagurinn hjá þér oft ansi lang-
ur, því jafnframt því að vinna við upp-
byggingu jarðarinnar og búskapinn
vannst þú utan heimilis fyrstu árin.
Börnin fæddust eitt af öðru, fjögur
á aðeins fimm árum, þá var oft fjör í
bæ. Á björtum sumardögum voru oft
miklar annir í sveitinni, þú vildir sinna
vel bæði mönnum og málleysingjum,
þér var jafnframt mjög í mun að hafa
snyrtilegt í kringum þig.
Sveitasælunnar nutu margir vinir
og vandamenn og þau voru ófá börnin
sem dvöldu hluta úr sumri við ríka
umhyggju ykkar mömmu. Þá var oft
kátt á hjalla og ýmislegt brallað af
krakkaskaranum en alltaf sýndir þú
okkur umburðarlyndi, ást og hlýju.
Mér er í fersku minni fagur ten-
órsöngur sem barst úr fjósinu út á
hlað, ég efa ekki að kýrnar mjólkuðu
betur þegar þú tókst lagið, þá bárust
ósjaldan fagrir tónar út frá baðher-
berginu, smáupphitun fyrir söngæf-
inguna, þannig varst þú alltaf sísyngj-
andi og hrókur alls fagnaðar.
Er aldurinn fór að færast yfir og
heilsan að bila fluttuð þið mamma til
Akureyrar en synirnir tóku við bú-
skapnum. En varla leið sá dagur með-
an heilsan leyfði að þú færir ekki í
sveitinna til að hjálpa strákunum, því
næg voru verkefnin.
Þér var mjög í mun að þínu fólki liði
vel, þú gerðir allt til þess að svo gæti
orðið.
Börnin mín Hilmar Örn og Herdís
minnast þín sem afa á Akureyri sem
tók á móti þeim fagnandi, alltaf tilbú-
inn að spila á spil, spila á munnhörpu
eða syngja, enda voru þau ætíð treg
til að halda heim á leið.
Hafðu þökk fyrir allt, elsku pabbi,
þú sýndir okkur öllum ómælda hlýju,
umhyggju og ástúð allt til dauðadags.
Þín dóttir
Pálína.
Halli frændi er dáinn. Margar
minningar streyma fram frá því ég
var lítil. Lengstu og skemmtilegustu
ferðalögin voru norður til Halla og
Möddu. Mér fannst alltaf svo sniðugt
þegar Halli knúsaði mig og kallaði
mig litlu frænku með þessum fína
norðlenska hreim.
Sumarið sem ég var fjögurra ára
var ég með Atla bróður, 15 ára, í sveit-
inni hjá Halla og Möddu. Skemmti-
legasta sagan er þegar ég var úti að
leika mér og kom svo inn í fjós og
spurði um Atla. Halli og strákarnir
sögðu mér að hann hefði farið á kló-
settið. Þá stökk ég inn í bæ, bankaði á
klósettdyrnar og kallaði á Atla. Atli
svaraði og sagðist vera úti í fjósi. Þá
þaut ég út í fjós aftur til að leita að
honum. Þessi saga lifir góðu lífi enn
þann dag í dag – 30 árum síðar.
Þetta sama sumar tók ég upp á því
að krota á vegginn í stofunni hjá þeim.
Þegar Madda spurði mig hver hefði
gert þetta var ég sakleysið uppmálað.
Þá spurði hún mig hvort ég vissi hver
hefði gert þetta. Já, ég vissi það, Halli
frændi! Ég vissi að hún myndi ekki
skamma hann, en hún skammaði mig
svo sem ekki heldur.
Þegar ég fór norður með mömmu
sumarið ’76, þá var fyrsta barnabarn-
ið fætt í Garði. Það var Anna María
dóttir Kristrúnar. Mér fannst litla
Anna María svo mikið undur og svo
falleg að ég lét dúkkuna mína heita í
höfuðið á henni.
Seinni árin hafa ferðirnar verið
færri hjá mér til Halla og Möddu. En
það toppaði alltaf sumarið ef farið var
norður til þeirra og keyptur Brynjuís
í leiðinni.
Sumarið 2002 heimsótti ég Halla og
Möddu með dóttur mína, sem þá var
sjö mánaða. Hún var alveg heilluð af
þessum afalega frænda og sat allan
tímann sem við stoppuðum í fangi
hans.
Í fyrrasumar var ákveðið að halda
smáættarmót fyrir norðan sem var
vel til fundið því það var síðasta stund
sumra okkar með Halla frænda.
Ég vil þakka Halla frænda fyrir
samfylgdina og Möddu og öllum af-
komendum þeirra votta ég mína
dýpstu samúð. Minningin um góðan
mann lifir.
Guðný Ísaksdóttir.
Í dag kveðjum við móðurbróður
minn Hallgrím Aðalsteinsson, bónda.
Í rúm sextíu ár höfum við fetað saman
lífsleiðina, fyrst á Akureyri og áfram
þótt fjölskylda mín flyttist til Reykja-
víkur er ég var sjö ára. Halli var alla
tíð miðpunktur minnar norðlensku
tilveru. Áður en hann gerðist bóndi sá
hann okkur systrum fyrir sumardvöl
á eyfirskum óðalssetrum, sem varð
þess valdandi að síðan er Eyjafjörð-
urinn í huganum baðaður sól og hlýrri
sumarangan. Haustið 1949 skein
hamingjustjarna Halla hvað skærast,
en þá gekk hann að eiga heimasætuna
á Staðarhóli, Magneu Garðarsdóttur.
Það varð þeirra heillaspor. Síðan hafa
þau gengið saman lífsins veg af gagn-
kvæmri ást og umhyggju. Og varla
var annað þeirra nefnt að nafn hins
fylgdi ekki með; Halli og Madda –
Madda og Halli. Þau keyptu lands-
spildu úr landi Jódísarstaða, reistu
sér bú og nefndu Garð, eins og „óðal
feðranna“ hét og stóð í Kaupangs-
gilinu á Akureyri. Mér er í fersku
minni þegar við systur ásamt móður
okkar fórum að skoða nýreist húsið,
snerumst þar í hringi og sögðum:
„Hvað ætlið þið eiginlega að gera við
öll þessi herbergi?“ Í dag þætti ekki
ástæða til að óskapast yfir stærðinni.
Þegar hér var komið sögu var Að-
alsteinn, frumburðurinn, fæddur og
næstu árin fjölgaði um þrjú. Fjögur
mannvænleg börn, augasteinar for-
eldra sinna, stolt og gæfa.. Öll fengu
börnin mín að dveljast hjá þeim í
sveitasælunni. Fæ ég það seint full-
þakkað. Starfsdagurinn var oft lang-
ur við búskapinn hjá þeim hjónum,
Halli að vinna við skurðgröft auk bú-
skaparins og Madda inni sem úti, hin
styrka stoð. Búið óx og dafnaði, kún-
um fjölgaði, kartöflugarðarnir stækk-
uðu. Börnin uxu úr grasi og tóku sí-
fellt meiri þátt í bústörfunum. Hann
var ekki hár í loftinu hann Aðalsteinn,
þegar hann fór að fylgja föður sínum
hvert fótmál í útiverkunum, enda fór
svo að hann ásamt Garðari bróður
sínum tók við búinu, þegar Halli og
Madda fluttu niðrá Akureyri. Árið
1980 keyptu þau hjón fallega íbúð í
Skarðshlíð. Þar undu þau glöð við sitt
og tóku fagnandi ýmsum „farfuglum“
sem tylltu niður tá hjá þeim um lengri
eða skemmri tíma. Samverustundir
okkar eru orðnar margar og allar
kærar. Fyrir þær þakka ég af alhug.
Haustið 1981 fór Halli í erfiða
mjaðmaaðgerð fyrir sunnan og varð
sem nýr maður – gat meira að segja
tekið að iðka danslistina á ný. Síðustu
árin hefur hver aðgerðin tekið við af
annarri og 12. október s.l. kvaddi
Halli frændi minn, saddur lífdaga. Þá
hafði Madda annast hann um langa
hríð af slíkri alúð og elskusemi að
aðdáunarvert var. Að leiðarlokum
þakka ég frænda mínum umhyggju
hans í minn garð og barna minna. Ég
bið Guð að blessa og styrkja Möddu
og alla afkomendur þeirra.
Nú veit ég að sumarið sefur
í sál hvers einasta manns.
Eitt einasta augnablik getur
brætt ísinn frá brjósti hans,
svo fjötrar af huganum hrökkva
sem hismi sé feykt á bál,
uns sérhver sorg öðlast vængi
og sérhver gleði fær mál.
(Tómas Guðm.)
Pálína Snorradóttir.
Það kom mér ekki á óvart að fá
fréttirnar að norðan um að Halli
frændi hefði kvatt okkur í dag. Madda
var búin að hringja fyrir fáeinum dög-
um og segja okkur að nú væri orðið
stutt eftir hjá honum. Halli frændi er
búinn að vera veikur lengi, en ýmis-
legt hefur hann staðið af sér með bros
á vör. Undir það síðasta var hann orð-
inn þreyttur og hallaði sér því mikið
upp að Möddu sinni sem var klett-
urinn í lífi hans. Við höfum oft rætt
HALLGRÍMUR
ÁRNASON
AÐALSTEINSSON✝ Árni Magnússonfæddist á Akur-
eyri 22. ágúst 1957.
Hann lést á Fjórð-
ungssjúkrahúsinu á
Akureyri 14. októ-
ber síðastliðinn. For-
eldrar hans voru
Magnús Jón Árna-
son, f. 9. nóv. 1910, d.
10. jan. 1986, og Val-
gerður Þorbergs-
dóttir, f. 26. jan.
1919, d. 21. okt.
1987. Árni átti þrjár
systur. Þær eru: 1)
Bára Magnúsdóttir,
f. 13. okt. 1937, d. 5. okt. 1995. 2)
Lilja Magnúsdóttir, f. 7. mars 1941,
d. 4. sept. 1988. 3) Dóra Magnús-
dóttir, f. 3. ágúst 1955, búsett á Ak-
ureyri.
Árni ólst upp á Hjalteyri og bjó
þar því nær öll sín ár, fyrir utan
nokkur ár sem hann bjó á Akur-
eyri.
Árið 1979 hóf Árni sambúð með
Sigríði Katrínu Þorbjörnsdóttur, f.
27. okt. 1963. Þau giftust árið 1982
og skildu árið 1984. Dóttir þeirra
er Guðrún Vala, f. 26. feb. 1980,
búsett í Reykjanesbæ. Árið 1987
hóf Árni sambúð með
Kristbjörgu Egils-
dóttur, f. 13. jan. 1966.
Slitu þau sambúð.
Áttu þau tvö börn,
Magnús Jón, f. 24. jan.
1989, búsettur á Hjalt-
eyri, og Líneyju
Björk, f. 15. feb. 1991,
búsett á Akureyri.
Árið 1998 giftist
Árni eftirlifandi konu
sinni, Sigrúnu Helgu
Sigurhjartardóttur, f.
18. feb. 1970. Foreldr-
ar hennar eru Sigur-
hjörtur Stefán Krist-
insson, f. 16. júlí 1931, og Kristrún
Bergsveinsdóttir, f. 2. maí 1945,
búsett á Akureyri.
Árni stundaði ýmis störf og var
meðal annars með verslunarrekst-
ur í nokkur ár á Akureyri. Hann
var lærður húsasmiður og vann við
það ásamt öðrum störfum. Árið
1990 hóf hann störf hjá Fiskeldi
Eyjafjarðar og vann þar til 2002 en
þá varð hann að hætta vegna veik-
inda.
Útför Árna fer fram frá Möðru-
vallaklausturskirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 14.
Elsku pabbi. Voðalega finnst mér
erfitt og skrítið að þurfa að kveðja
þig. En ég veit að núna ertu kominn
til afa, ömmu og systra þinna og líður
yndislega. Loksins ertu laus við
veikindin og alla verkina. Þvílík
hetja og kraftaverkamaður þú varst
Þú barðist svo lengi við veikindin
þín, lengur en nokkur átti von á að
væri hægt. Takk fyrir að vera svona
lengi hjá okkur. Ég veit að það var
erfitt, en sem betur fer átti þú ástina
þína, hana Sigrúnu, að sem stóð við
hlið þér og hjálpaði þér í gegnum-
þetta allt.
Ég veit þú heldur áfram að vera
með okkur öllum og vakir yfir okkur.
Ég, Sigrún, Magnús og Líney mun-
um styrkja hvert annað og gleðjast
yfir öllum góðu og frábæru minning-
unum um þig. Takk fyrir allt, pabbi
minn, við hittumst seinna.
Þín dóttir
Guðrún Vala.
Elsku pabbi, vonandi líður þér
sem best hjá afa og ömmu og systr-
um þínum. Mig langar að kveðja þig
með þessu lagi.
Mundu bara að ég elska þig og
mun alltaf gera hvað sem gerist.
Mér finnst ég varla heill né hálfur maður
og heldur ósjálfbjarga því er ver.
Ef værir þú hjá mér vildi ég glaður
verða betri en ég er.
Eitt sinn verða allir menn að deyja.
Eftir bjartan daginn kemur nótt.
Ég harma það en samt ég verð að segja
að sumarið líður allt of fljótt.
Við gætum sungið, gengið um,
gleymt okkur hjá blómunum.
Ef rökkvar ráðið stjörnumál,
gengið saman hönd í hönd,
hæglát farið niður á strönd,
fundið stað,
sameinað beggja sál.
Horfið er nú sumarið og sólin.
Í sálu minni hefur gríma völd.
Í æsku léttu ís og myrkur jólin.
Nú einn ég sit um vetrarkvöld.
Því eitt sinn verða allir menn að deyja
eftir bjartan daginn kemur nótt
ég harma það en samt ég verð að segja
að sumarið, líður allt of fljótt.
Ég gái útum gluggann minn,
hvort gangir þú um hliðið inn.
Mér alltaf sýnist ég sjái þig.
Ég rýni útum rifurnar.
Ég reyndar sé þig alls staðar.
Þá napurt er, það næðir hér og nístir mig.
(Vilhj. Vilhj.)
Ástarkveðja.
Þín dóttir,
Líney.
Þökkum fyrir allar góðu stundirn-
ar og vináttu.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gakk þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
Grátnir til grafar
göngum við nú héðan,
fylgjum þér, vinur. Far vel á braut.
Guð oss það gefi,
glaðir vér megum
þér síðan fylgja í friðarskaut.
(V. Briem)
Elsku Sigrún, Guðrún, Magnús og
Líney, megi Guð styrkja ykkur og
styðja í þessari miklu sorg. Guð
blessi ykkur og verndi.
Guðbjörg, Steinþór og synir.
ÁRNI
MAGNÚSSON
Morgunblaðið birtir minningar-
greinar alla útgáfudagana.
Skil Minningargreinar skal senda
í gegnum vefsíðu Morgunblaðs-
ins: mbl.is (smellt á reitinn Morg-
unblaðið í fliparöndinni – þá birt-
ist valkosturinn „Senda inn
minningar/afmæli“ ásamt frekari
upplýsingum).
Skilafrestur Ef birta á minning-
argrein á útfarardegi verður hún
að berast fyrir hádegi tveimur
virkum dögum fyrr (á föstudegi
ef útför er á mánudegi eða
þriðjudegi). Ef útför hefur farið
fram eða grein berst ekki innan
hins tiltekna skilafrests er ekki
unnt að lofa ákveðnum birting-
ardegi.
Minningar-
greinar