Morgunblaðið - 22.10.2004, Side 39

Morgunblaðið - 22.10.2004, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. OKTÓBER 2004 39 MINNINGAR það hvað Halli væri lánsamur að eiga hana Möddu sem konu. Hún er þol- inmóðasta og umhyggjusamasta kona sem hægt er að hugsa sér. Það var al- veg sama hvað gekk á alltaf var hún honum jafnblíð, strauk honum aðeins um vangann og brosti svo fallega til hans. Minningarnar um Halla og Möddu fylgja mér eins langt og ég man. Þegar ég var lítil var sveitin mín í Garði, sem þau byggðu og bjuggu þar til þau fluttu inn á Akureyri og synirnir, Aðalsteinn og Garðar, tóku við búinu. Alltaf umvafði Halli frændi „litlu“ frænku sína þegar hún kom í sveitina. Hann var svo ljúfur og nota- legur og svo kunni hann líka að spila á munnhörpu sem mér fannst hann gera svo vel. Nú seinni árin er það orðin hefð hjá okkur að skreppa norð- ur, í það minnsta einu sinni á sumri, því annars er ekkert sumar. Í þeim ferðum höfum við haldið meira eða minna til hjá Halla og Möddu og þau alltaf bestu gestgjafar sem hægt er að hugsa sér. Í nokkur ár höfum við líka alltaf farið í bíltúr um Akureyri með Halla og Möddu, sem ávallt endaði í Brynjuís. Í sumar var Halli orðinn svo veikur að ekkert varð af bíltúrnum, en í sárabætur var keyptur Brynjuís og hann borðaður heima í Skarðshlíð- inni. Í gegnum árin hefur Halli spilað við litlu Pálínu þegar við höfum komið í heimsókn, en í sumar treysti hann sér ekki til að spila við hana en sagðist myndi spila við hana næst þegar hún kæmi að heimsækja frænda. Ekki verður meiri spilamennska hjá þeim í bráð, en Halli frændi finnur sér örugglega einhvern til að spila við á nýjum stað. Þegar ég kvaddi Halla frænda í sumar var ég nærri viss um að hann yrði ekki í Skarðshlíðinni næsta sumar. Þá verður öðruvísi að koma norður en við komum samt. Elsku Madda mín, þinn missir er mikill, þú hefur staðið þig eins og hetja og átt skilið mikið hrós. Addi, Kitta, Gæi, Pála Gunna og fjölskyld- ur, ættingjar og vinir Halla frænda, Guð gefi ykkur öllum styrk í sorginni. Elsku Halli frændi, takk fyrir sam- fylgdina, megi almættið taka þig í faðm sinn og umvefja alla tíð. Margrét Ísaksdóttir. Kynni okkar Hallgríms Aðalsteins- sonar hófust haustið 1941, en við átt- um þá samleið frá Akureyri að Hvanneyri, þar sem við vorum báðir að hefja nám. Er til Hvanneyrar kom fengum við vist saman á herbergi og urðum síðan herbergisfélagar í þrjú misseri. Að námi á Hvanneyri loknu fórum við báðir norður á æskustöðvarnar. Tveimur árum síðar lágu leiðir okkar saman að nýju. Þá réðumst við til vinnu við framræslu með skurðgröfu á Staðarbyggðarmýrum og unnum þar saman í þrjú sumur. Við höfðum lengst af aðsetur á Öngulsstöðum. Þar var þá margt af ungu fólki, sem við Hallgrímur blönduðum geði við. Glaðværð og góður félagsandi var þar ríkjandi, og er gott að minnast þessa tíma. Á þessum árum kynntist Hallgrím- ur konu sinni, Magneu Garðarsdótt- ur, sem var ein heimasætan á Öng- ulsstaðatorfunni, og varð hún upp frá því lífsförunautur hans. Þau Hall- grímur og Magnea festu litlu síðar kaup á landspildu úr landi næstu jarð- ar við æskuheimili Magneu. Þar byggðu þau nýbýlið Garð og ráku þar um aldarfjórðungs skeið notadrjúgt kúabú, þar sem hver hlutur bar snyrtimennsku þeirra vitni. Árið 1980 fengu þau sonum sínum tveimur bú og jörð í hendur og fluttu til Akureyr- ar. Síðustu árin hittumst við Hall- grímur ekki oft, en jafnan, þegar ég átti leið til Akureyrar, reyndi ég að líta inn til þeirra hjóna í Skarðshlíð- inni. Þar var gott að koma. Þótt lang- ur tími væri liðinn frá síðustu heim- sókn fannst mér eins og ég hefði hitt þau í gær. Síðast kom ég til þeirra í vor sem leið. Hallgrímur var þá orð- inn lasburða, en svo var að sjá sem hann léti það ekki hafa áhrif á sitt góða geð. Hann var enn léttur í tali og með gamanmál á vörum, þegar við fórum að rifja upp gamlar minningar. Með Hallgrími Aðalsteinssyni er genginn mætur maður, sem gæfa var að fá að kynnast og eiga samleið með. Eftirlifandi konu hans og fjöl- skyldu votta ég innilega samúð. Bjarni Arason. Hinsta kveðja frá móður og systkinum Á kertinu mínu ég kveiki í dag við krossmarkið helgi og friðar því tíminn mér virðist nú standa í stað en stöðugt þó fram honum miðar. Ég finn það og veit að við erum ei ein að almættið vakir oss yfir, því ljósið á kertinu lifir. Við flöktandi logana falla nú tár, það flýr enginn sorgina lengi. Hún braut allar vonir, hún braut allar þrár, hún brýtur þá viðkvæmu strengi, er blunda í hjarta og í brjósti hvers manns. Nú birtir, og friður er yfir, því ljósið á kertinu lifir. Sá einn þekkir gleðinnar gáska og fjör sem gist hefur þjáning og pínu. Sá einn getur sigrast á ótta og kvöl sem eygir í hugskoti sínu, að sorgina við getum virkjað til góðs, í vanmætti sem er oss yfir, ef ljósið á kertinu lifir. (Kristján Stef. frá Gilhaga) Í dag er til moldar borin frænka mín Guðrún Björgvinsdóttir. Mig langar til að minnast góðra stunda sem ég átti með henni þegar ég var barn og unglingur. Ég átti mitt annað heimili hjá for- eldrum Guðrúnar, Ástu móðursystur minni og Bögga manni hennar. Þar bjuggu líka afi, amma og Nonni frændi. Á loftinu á Herjólfsgötu 6 áttu þau hvort sitt herbergið Guðrún og Gunnar Jónas bróðir hennar. Það var aðeins árið á milli þeirra systkina sem voru um margt ólík því Guðrún hafði frekar hljótt um sig en náði því fram sem hún ætlaði sér, en Gunnar var ærslabelgurinn. Honum leiddist ekki að stríða systur sinni sem hefur líklega verið á viðkvæmum aldri fyr- ir slíku. Ég skynjaði mikla hlýju milli þeirra systkina og það var öllum mikill harmur þegar Gunnar fórst í sjóslysi með m.b. Þráni í nóvember 1968 aðeins 18 ára. Ég minnist þess vel, þá aðeins 12 ára, hve góð mér fannst Guðrún vera við mömmu sína á þessum erfiða tíma. Þá hafði fjölg- að á Herjólfsgötunni, lítil Lilja hafði fæðst og fullorðna fólkið gat faðmað hana í sorg sinni. Í febrúar fæddist þeim Ástu og Bögga lítill drengur sem var afskaplega líkur eldri bróð- ur sínum og var skírður Gunnar. Það var líflegt á Herjólfsgötunni þar sem þrjár kynslóðir áttu saman GUÐRÚN ÞÓRDÍS BJÖRGVINSDÓTTIR ✝ Guðrún ÞórdísBjörgvinsdóttir fæddist í Vest- mannaeyjum 16. febrúar 1949. Hún lést á líknardeild Landspítalans 14. október síðastliðinn. Foreldrar hennar eru Ásta Finnboga- dóttir, f. 1927, og Björgvin Þórðarson, f. 1924, d. 2001. Systkini Guðrúnar eru Gunnar Jónas, f. 1950, d. 1968, Lilja, f. 1967, og Gunnar, f. 1969. Árið 1972 giftist Guðrún Gísla Tómasi Ívarssyni, f. 1949, og eign- uðst þau þrjár dætur, Ástu Guð- rúnu, f. 1970, Elvu Björk, f. 1973, og Helenu Sif, f. 1976. Útför Guðrúnar fer fram frá Fossvogskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. heimili. Ég sótti mikið þangað og fylgdist með Guðrúnu stóru frænku minni þroskast í unga konu Ég sat löngum inni í herberginu hennar þegar hún var annað hvort í skólanum eða síðar farin til vinnu og drakk í mig andrúms- loftið sem ríkti þar. Guðrún var þægileg- ur og góður unglingur og sýndi mér alltaf góð- vild og skilning og aldr- ei skammaði hún mig fyrir forvitnina Hún var glaðvær og hafði smitandi hlátur en gat verið snögg í tilsvörum. Það var náið samband milli mæðgnanna Ástu og Guðrúnar þó ekki hafi tíðkast hástemmdar játn- ingar um væntumþykju innan fjöl- skyldunnar en elskuna milli þeirra var auðvelt að skynja. Árin liðu, Guðrún stofnaði fjöl- skyldu og eignaðist þrjár fallegar dætur. Gosið í Eyjum breytti ýmsu og langt varð á milli okkar í mörg ár . Örlögin höguðu því þannig að eftir að Guðrún veiktist af sjúkdómi sín- um, lágu leiðir okkar saman. Margt hafði breyst en þarna var samt sama Guðrún sem sýndi mikið æðruleysi í veikindastríði sínu og barðist með órtúlegri bjartsýni. Eftir að hún lagðist inn á Líkn- ardeild Landspítalans fékk ég tæki- færi til að sitja með henni nokkrar dagstundir og þá rifjuðum við upp dýrmætar samverustundir þegar tíminn leið oft hægt og orðin óþörf. Ég vil að leiðarlokum þakka Guð- rúnu fyrir alla góðvild sem hún sýndi mér sem barni. Ég bið góðan Guð að varðveita stelpurnar hennar, Ástu Guðrúnu, Elvu Björk, Helenu Sif, fjölskyldur þeirra, sem og ástvini hennar alla. Ásdís Lilja. Að leiðarlokum er við hæfi að kveðja með ljóði þjóðskáldsins okk- ar. Ég kveiki á kertum mínum við krossins helga tré. Í öllum sálmum sínum hinn seki beygir kné. Ég villtist oft af vegi. Ég vakti oft og bað. Nú hallar helgum degi á Hausaskeljastað. Í gegnum móðu’ og mistur ég mikil undur sé. Ég sé þig koma, Kristur, með krossins þunga tré. Af enni daggir drjúpa, og dýrð úr augum skín. Á klettinn vil ég krjúpa og kyssa sporin þín. Ég fell að fótum þínum og faðma lífsins tré. Með innri augum mínum ég undur mikil sé. Þú stýrir vorsins veldi og verndar hverja rós. Frá þínum ástareldi fá allir heimar ljós. (Davíð Stefánsson.) Tomma og fjölskyldu votta ég samúð mína. Sigurður Arngrímsson. Minningarkort 570 4000 Pantanir á netinu: www.redcross.is Rauði kross Íslands bregst við neyð jafnt innanlands sem utan og veitir aðstoð er gerir fólk hæfara til að takast á við erfiðleika og bregðast við áföllum. Þegar á reynir Rauði kross Íslands Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, ODDUR JAKOB BJARNASON, Engjavegi 20, Ísafirði, verður jarðsunginn frá Ísafjarðarkirkju laugar- daginn 23. október kl. 14.00. Ingibjörg Jónsdóttir, Helga Oddsdóttir, Jón B. Oddsson, G. Valdís Ólafsdóttir, Guðrún Oddsdóttir, Hörður Þór Ástþórsson, Oddný Kristín Oddsdóttir, Hákon Þorleifsson, Viðar Ingi Oddsson, Björg Leósdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir til ykkar allra, sem sýnduð okkur stuðning, samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför ástkærrar litlu dóttur okkar og systur, BIRTU SÆVARSDÓTTUR, Dverghömrum 28, Reykjavík. Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólki Barnaspítala Hringsins, deild 22-E, fyrir alla þeirra aðstoð og nærgætni. Einnig viljum við þakka starfsfólki barnadeildar Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri fyrir einstaka umhyggju í okkar garð. Sigríður María Jónsdóttir, Sævar Guðmundsson, Sonja Sævarsdóttir. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför HJÁLMARS SVEINSSONAR. Guð blessi ykkur öll. Soffía Sigurbjörg Jóhannsdóttir, börn, tengdabörn, barnabörn og langafadrengur. Ástkær móðir mín og amma, HELGA ÁSGEIRSDÓTTIR, Bergstaðastræti 45, andaðist miðvikudaginn 20. október. Jarðarförin fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík mánudaginn 25. október kl. 15.00. Elísabet og Róbert. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý- hug við andlát og útför PÉTURS JÓHANNESSONAR, Grundarbraut 4a, Ólafsvík. Sérstakar þakkir til starfsfólks St. Franciskus- spítalans, Stykkishólmi, fyrir góða umönnun. Frændfólk og vinir. Elskuleg móðir okkar, INGIBJÖRG SALÓME DANIVALSDÓTTIR, Borgarvegi 2, Njarðvík, lést aðfaranótt fimmtudagsins 21. október. Jarðarför auglýst síðar. Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.