Morgunblaðið - 22.10.2004, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 22.10.2004, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. OKTÓBER 2004 41 MINNINGAR ✝ Árni Magnússonfæddist í Guð- laugsvík við Hrúta- fjörð 12. ágúst 1914. Hann lést á Garð- vangi í Garði 16. október síðastliðinn. Foreldrar hans voru Magnús Guðbrandur Árnason, f. 5. júní 1884 í Holti á Brim- ilsvöllum í Fróðár- hreppi, d. 22. febr- úar 1963, bóndi í Tröð, og Ragnheiður Helga Skarphéðins- dóttir, f. 10. júní 1893 í Guðlaugsvík í Bæjarhreppi í Strandasýslu, d. 27. maí 1975. Systkini Árna eru Margrét Hulda Magnúsdóttir, Jaðri í Ólafsvík, f. 20. febrúar 1918, giftist Sigurði Brandssyni frá Fögruhlíð í Fróð- árhreppi, f. 14. október, 1917, d. 31. maí 1996. Ragna Jenný Magn- úsdóttir, f. 1. janúar 1924 d. 1. apr- íl 2002, giftist Alfonsi Sigurðssyni, frá Eskifirði, f. 17. desember 1916. Karl Magnússon, f. 30. mars 1928, kvæntur Hallfríði Eiðsdóttur, f. 27. júlí 1924. Þau búa í Tröð í Fróðárhreppi. Karl var áður kvæntur Láru Ágústsdóttur frá Kötluholti í Fróðárhreppi, f. 8. nóvember 1935. Þau skildu. Skarphéðinn Magnússon, f. 15. dóttir, f. 1994, og Heiðrún Björk Ingibergsdóttir, f. 1996. Barnsfað- ir þeirra er Ingibergur Kristjáns- son. Núverandi sambýlismaður Sólveigar er Sigurður Hafsteinn Guðfinnsson og eiga þau saman Bríeti Björk, f. 2003. Kristín, f. 1982, sambýlismaður hennar er Daníel Þorgeirsson en börn þeirra eru: Árni Ágúst, f. 2001, og Katrín Júlía, f. 2003. Guðjón, f. 1986. 3b) Kolfinna Björk Bombardier, f. 21. apríl 1960, d. 27. október 1992. Hún giftist Kjartani Hafsteini Kjartanssyni, f. 1956. Þeirra börn eru: Hafdís Lára, f. 1977, barns- faðir hennar er Guðmundur Georg Jónsson en þeirra börn eru Kol- finna Björk, f. 1996, og Sindri Freyr, f. 1997. Þau slitu sambúð. Vilhjálmur Árni, f. 1981. Signý Sara, f. 1984, d. 1985. María Ósk, f. 1986. 3c) Tína Gná Róbertsdóttir, f. 27. ágúst 1966, gift Gunnari Þór Sæþórssyni, f. 1965. Þeirra börn eru: Sæþór Björn, f. 1984, Margrét Jóna, f. 1989, og Guðríður Lára, f. 1992. 4) Vilhjálmur Grétar Árna- son, f. 1. maí 1942, d. 18. desember 1968. Árni ólst upp á bænum Tröð í Fróðárhreppi þar sem hann stund- aði almenn landbúnaðarstörf. Eft- ir að hann kynntist Láru hófu þau búskap, fyrst í Duus-húsum og síð- ar að Garðavegi 5 í Keflavík. Árni réðst til starfa hjá Keflavík hf, og vann þar alla sína starfsævi við al- menn fiskvinnslustörf og smíðar. Útför Árna fer fram frá Kefla- víkurkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. nóvember 1930, d. 3. júní 1946. Árni Magnússon giftist Láru Þórðar- dóttur, f. 30. júní 1919, d. 22. nóvember 1955. Foreldrar henn- ar voru Þórður Valdi- mar Marteinsson fæddur í Haga, Barða- strandarhreppi 1. maí 1879, d. 7. maí 1929, og Ólafía Ingibjörg Elíasdóttir, f. í Siglu- nesi í V-Barðastrand- arhreppi 26. septem- ber 1885, d. 1. ágúst 1970. Árni og Lára eignuðust sex börn, tvö létust í frumbernsku en fjögur komust til manns. Þau voru: 1) Hafsteinn Árnason, f. 10. júlí 1938, d. 10. nóvember 1963. 2) Lýður Brynjólfur Árnason, f. 9. september 1939, d. 11. desember 1959. 3) Guðrún Árnadóttir, f. 8. október 1940, d. 2. júlí 1971. Börn hennar eru: 3a) Lára Þórðardótt- ir, f. 5. október 1958, gift Einari Sveini Guðjónssyni, f. 1953. Börn þeirra eru: Guðrún Árný, f. 1975. Sambýlismaður hennar er Vil- mundur Rúnar Halldórsson, f. 1976, en börn þeirra eru Sara Dögg, f. 1999, og Einar Sveinn, f. 2002. Sólveig Rós, f. 1977, börn hennar eru Lára Björk Ingibergs- Mig langar að minnast með nokkr- um orðum tengdaföður míns Árna Magnússonar sem er látinn á tíræð- isaldri. Árni var elsta barn foreldra sinna. Tveimur árum eftir fæðingu, snemma vors 1916, fluttust foreldrar hans vestur í Fróðárhrepp, en Magn- ús faðir Árna átti ættir að rekja þang- að. Þetta fyrsta ferðalag hins unga sveins var viðburðaríkt. Haldið var yfir Laxárdalsheiði þar sem ungu hjónin hrepptu vonskuveður en kom- ust þó klakklaust yfir til Búðardals. Frá Búðardal var siglt til Ólafsvíkur og þaðan inn að Tröð í Fróðárhreppi en þar hóf fjölskyldan búskap. Í Fróðárhreppi ólst Árni upp í föður- húsum og vann við landbúnað og undi hag sínum vel. Ekki var að merkja að þessi fyrsta reynsla Árna af ferðalög- um hafi dregið úr ferðahug hans enda voru ferðalög innanlands hans helsta ástríða. Árni kvæntist Láru Þórðardóttur og fluttu ungu hjónin fljótlega til Keflavíkur þar sem Árni réðst til vinnu í Keflavík hf., eða HF eins og Keflvíkingar kölluðu fyrirtækið. Þar vann hann allan sinn starfsaldur við fiskvinnslu og smíðar. Meðal eldri Keflvíkinga var Árni reyndar aldrei kallaður annað en Árni í HF en það er viðhengi sem nokkrir aðrir starfs- menn þess fyrirtækis fengu við nafn sitt. Að mörgu leyti voru meiri byrðar lagðar á Árna en marga aðra sam- ferðamenn hans. Hann og Lára eign- uðust sex börn, tvö létust í frum- bernsku en fjögur komust til manns en öll létust þau í blóma lífsins úr arf- gengri heilablæðingu, sama sjúkdómi og Lára móðir þeirra lést úr 1955. Eitt barna þeirra, Guðrún, eignaðist þrjár dætur, þær Láru, Kolfinnu og Tínu Gná. Guðrún giftist aldrei og bjó alla tíð ein með dætur sínar hjá Árna föður sínum. Er Guðrún dó 1971 gekk Árni þeim systrum, Láru og Kol- finnu, sem nú er látin úr arfgengri heilablæðingu, í föðurstað enda köll- uðu þær hann aldrei annað en pabba. Tína sem var ársgömul fór í fóstur til frænku Árna, Jónu Lárusdóttur og manns hennar Björns Sveinssonar. Eftir að hafa séð eftir börnum sínum sex og eiginkonu tók Árni sér fyrir hendur að ala upp barnabörn sín tvö, þær Láru og Kolfinnu. Honum fórst það verk vel úr hendi. Áður en Árni var allur átti hann eftir að horfa á eft- ir dótturdóttur sinni, Kolfinnu, og dóttur hennar yfir móðuna miklu. Árni Magnússon var alveg einstak- ur maður. Eins og áður sagði mátti hann horfa upp á sína nánustu falla hvern af öðrum í valinn fyrir hinni óg- urlegu ættarfylgju sem arfgeng heilablæðing er. Þrátt fyrir þetta gafst hann aldrei upp og hélt trú sinni á lífið. Hann var víðlesinn og ljóðelsk- ur og fékkst sjálfur við kveðskap á yngri árum. Árni var ættrækinn mað- ur og á sínum mörgu ferðalögðum um landið lagði hann mikla áherslu á að sækja heim ættmenni sín. Það kom líka í ljós þegar á reyndi að Árni átti marga góða að. Í raunum sínu átti hann m.a. drjúgan stuðning hjá systkinum sínum Margréti, Rögnu og Karli en þau systkin voru alla tíð mjög samrýnd. Ekki er hægt að tala um þennan kafla í lífi Árna Magnússonar án þessa að minnast á og þakka séra Birni Jónssyni sem var sóknarprest- ur í Keflavík á þessum árum. Björn veitti Árna mikinn styrk og um- hyggju í sorgum hans og var tíður gestur á Garðavegi 5 þessi ár. Tengsl sálusorgara og sóknarbarns urðu mér ljós þegar dótturdóttir mín var skírð í fyrrahaust. Árni var þá orðinn nokkuð lasburða og átti erfitt með ferðalög en þegar hann frétti að séra Björn hefði verið fenginn til verksins ljómaði hann allur og sagði að í þessa athöfn myndi hann mæta. Þegar ég sótti hann snemma dags var hann löngu ferðbúinn og hlakkaði mikið til að sjá vin sinn og fyrrum sálusorgara. Séra Björn hafði ekki hugmynd um að í þessari athöfn væri borin til skírnar barnabarnabarn Árna Magn- ússonar en þegar honum varð það ljóst varð honum að orði að eitthvað innra með sér hefði knúið sig til að taka að sér þessa athöfn. Fagnaðar- fundir vinanna voru innilegir og Árni var sérstaklega ánægður með þennan dag. Leiðir okkar Árna lágu fyrst sam- an í HF Keflavík en það var svo árið 1974 að ég kynntist Árna nánar þegar við Lára dótturdóttir hans hófum sambúð. Árni tók ekki annað í mál en að við byggjum hjá honum á Garða- veginum. Þegar hann frétti að við vildum kaupa hjónarúm taldi hann það óþarfa. Honum yrði það leikur einn að smíða slíkan grip fyrir okkur sem og hann gerði. Árni var smiður góður og byggði fjölskyldu sinni snot- urt hús að Garðavegi 5 í Keflavík. Víst er að hann bjó að þeirri reynslu þegar hann endurbyggði foreldrahús sín að Tröð eftir bruna um 1960. Árni var prúðmenni og ljúfmenni sem vildi öllum liðsinna. Þau þrjátíu ár sem ég var svo lánsamur að eiga samfylgd með honum heyrði ég hann aldrei tala illa um nokkurn mann og ég held að hann hafi aldrei átt neina óvildarmenn. Árni hafði gaman af að fara í lax og var góður veiðimaður. Hann sagði mér af mörgum veiðiferðum sem hann fór með frænda mínum laxa- Bjössa frá Akranesi en það var áður en laxveiðar urðu ríkra manna hobbí. Árni var einnig með bíladellu og gerði út leigubíl með vini sínum Didda í HF um tíma. Áhugi Árna á bílum hélst til dauðadags og þótti honum fátt skemmtilegra eftir að hann fluttist á dvalarheimilið Hlévang í Keflavík en að fara á rúntinn með Matta vini sín- um. Matta og hans fjölskyldu ber að þakka þá rækt sem þau sýndu Árna hin síðari ár. Einnig ber að þakka þeim ágætu hjónum Sigurði Alfons- syni, frænda Árna, og Vigdísi konu hans fyrir þá umhyggju og vinskap sem þau sýndu Árna á síðustu árum. Þau hjón voru óþreytandi í að sel- flytja Árna í fjölskylduhóf vítt og breitt um landið. Þegar gera þurfti dagamun var Siggi mættur með nikk- una og hélt uppi fjörinu. Árni Magnússon var tiltölulega heilsuhraustur maður þótt ekki væri hann bindindismaður, t.d. reykti hann alltaf mikið. Fyrir örfáum árum veiktist hann hastarlega af salmón- ellu og náði hann sér aldrei eftir það áfall. Eftir þau veikindi fór heilsu hans smátt og smátt hrakandi. Tólfta ágúst síðastliðinn varð Árni níræður og hélt hann upp á daginn á dvalar- heimilinu Garðvangi. Á þessum sól- ríka og fagra degi komu fjölskyldan og vinir saman og samglöddust góð- um dreng. Siggi þandi nikkuna og Árni lék á als oddi. Ég efa hins vegar ekki að þá vissi hann þegar að hverju stefndi. Fyrir nokkrum dögum, þegar við hjónin sátum við banabeð Árna, var honum umhugað um að koma til skila óskum um útför sína. Hann vildi fá að hvíla hjá sínu fólki og að sinn gamli sálusorgari séra Björn Jónsson sæi um athöfnina. Hann vildi hins vegar engin ræðuhöld. Mér varð að orði að þá þyrfti hann annan prest. Þá brosti sá gamli og sagði að það væri líklega rétt. „Við verðum þá að leyfa Birni að ráða þessu.“ Þetta var í síðasta sinn að ég sá Árna brosa en það var aldrei langt í brosið hjá honum. Árni Magn- ússon lést að morgni laugardagsins 16. október saddur lífdaga og hvíld- inni feginn. Guð blessi minningu Árna Magn- ússonar. Einar Sveinn Guðjónsson. Elsku pabbi minn. Nú þegar komið er að kveðjustund vil ég þakka þér fyrir allt sem þú gerðir fyrir mig með þessum bænaversum sem þú kenndir mér þegar ég var lítil stelpa. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni. Sitji guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson) Láttu nú ljósið þitt loga við rúmið mitt. Hafðu þar sess og sæti, signaður Jesú mæti. (Höf. ók.) Sofðu rótt, elsku vinur. Þín Lára. ÁRNI MAGNÚSSON  Fleiri minningargreinar um Árna Magnússon bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Höfundar eru: Sigurður Alfonsson. ATVINNUHÚSNÆÐI Síðumúli 35 — Til leigu 1. hæð á besta stað. Alls um 380 fm. Hægt að skipta í smærri einingar. Upplýsingar í símum 553 8099 og 824 6099. HÚSNÆÐI ÓSKAST Íbúð óskast til leigu Óskum eftir að taka á leigu íbúð á höfuðborgar- svæðinu með minnst tveimur svefnherbergjum, með eða án húsgagna, frá 15. nóvember 2004 til 31. janúar 2005. Áhugasamir hafi samband í síma 585 9000. ÓSKAST KEYPT Þorláksbiblía Óskum eftir að fá til skoðunar Þorláksbiblíu fyrir fjársterkan safnara. Bókin ehf. - Antikvariat Klapparstíg 25-27, símar 552 9720/867 9832. TIL SÖLU Veitingastaður á Akureyri Til sölu eða leigu 36 sæta glæsilega innréttaður veitingastaður á Akureyri. Góð velta og mikil sóknarfæri. Tilvalið fyrir ungt fólk með metnað að skapa sér skemmtilegt vinnuumhverfi. Upplýsingar í síma 892 8583. Veitingahús Til sölu eða leigu er 200 fermetra húsnæði fyrir veitingahús í Tryggvagötu 4—6. Tilvalið fyrir kokk og þjón að opna sinn eiginn veitingastað með litlum tilkostnaði. Eldunar- tæki, stólar, borð og borðbúnaður til staðar. Upplýsingar í síma 892 8583. I.O.O.F. 12  18510228½  Ma. I.O.O.F. 1  18510228  Fl. R A Ð A U G L Ý S I N G A R Í kvöld kl 20.30 heldur Bjarni Sveinbjörsson erindi „Para- mahansa Yogananda boðberi Kriya Yoga“ í húsi félagsins í Ing- ólfsstræti 22. Á morgun laugar- dag kl. 15-17 er opið hús, með fræðslu og umræðum kl. 15.30 í umsjón Erlings Þorsteinssonar: „Armageddon og hvað svo.“ Á sunnudögum kl. 10.00 er hug- leiðingarstund með leiðbeining- um fyrir almenning. Starfsemi félagsins er öllum opin. www.gudspekifelagid.is mbl.is ATVINNA Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug vegna andláts og útfarar bróður okkar, mágs og frænda, PÁLS KRISTJÁNSSONAR, Lönguhlíð 20, Bíldudal. Sérstakar þakkir til starfsfólks Sjúkrahúss Patreksfjarðar. Jóna Kristjánsdóttir, Teitur Kristjánsson, Margrét B. Aðalsteinsdóttir og frændsystkini.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.