Morgunblaðið - 22.10.2004, Síða 45

Morgunblaðið - 22.10.2004, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. OKTÓBER 2004 45 DAGBÓK Verkfall ÉG er stúlka í 7. bekk sem er orðin þreytt á þessu eilífðar verkfalli. Er ekkert verið að hugsa um okkur börnin sem þurfum að dúsa heima daginn út og daginn inn og höfum ekkert að gera? Amma segir að hér sé fólk bara að hugsa um sjálft sig og enga aðra en í þessu máli er það bara þannig að á meðan kallarnir í sveitarstjórnunum eru að reyna að semja við Kennarasambandið eru krakkar sem kannski ætla í Harvard eða Yale en til að komast inn í þá verður maður að hafa gott og mikið vit í kollinum, en það fáum við ekki með því að dúsa heima og læra ekki neitt. Sumum finnst kannski gaman að vera í „fríi“ en öðrum ekki. Er ekki hægt að fá gamla kennara til að kenna þeim sem vilja læra, svona á meðan. Jóhanna María Skarphéðinsdóttir, 7. ÁEJ. Umslag fannst í Hagkaupum UMSLAG með peningum fannst sl. miðvikudag í Hagkaupum í Skeif- unni. Upplýsingar í síma 847 3700. Giftingarhringur í óskilum GIFTINGARHRINGUR, karl- manns, fannst í Laugardalslaug fyr- ir 3 vikum. Upplýsingar í síma 697 9209. Bleikt stelpuhjól í óskilum BLEIKT stelpuhjól er í óskilum við Verðlistann á Laugalæk. Upplýs- ingar á staðnum eða í síma 553 3755. Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is Lagadeild, félagsvísindadeild og við-skipta- og hagfræðideild Háskóla Ís-lands standa í dag fyrir ráðstefnu umrannsóknir í félagsvísindum. Ráð- stefnan er haldin í Lögbergi og Odda og hefst hún klukkan níu að morgni og stendur til klukk- an fimm síðdegis. Þetta er í fimmta skipti sem opin ráðstefna um rannsóknir í félagsvísindum er haldin í Háskól- anum. Á ráðstefnunni verða 28 málstofur en hver málstofa varir í tvær klukkustundir. Alls verða haldnir 111 fyrirlestrar um nýlegar íslenskar rannsóknir, en þeir eru gefnir út í ráðstefnurit- um sem verða til sölu frá og með ráðstefnudeg- inum. Ritin eru þrjú, eitt fyrir lagadeild, annað fyrir viðskipta- og hagfræðideild og það þriðja fyrir félagsvísindadeild. Friðrik H Jónsson, forstöðumaður Fé- lagsvísindastofnunar segir stöðu rannsókna á sviði félagsvísinda vera afar sterka hér á landi. „Það sést meðal annars á því að þessi ráðstefna um rannsóknir í félagsvísindum er haldin á hverju ári. Það væri ekki hægt nema af því að á Íslandi eru mjög margir góðir og mjög virkir fræðimenn á sviði félagsvísinda,“ segir Friðrik og bætir við að mikilvægi félagsvísinda fyrir ís- lenskt samfélag sé mjög mikið og jafnvel meira en fólk geri sér grein fyrir. „Þetta mikilvægi birtist á ýmsan hátt. Má til dæmis nefna mjög öflugt starf félagsvísindadeildanna í Háskóla Ís- lands, mjög mikla aðsókn stúdenta í slíkt nám í Háskólanum og loks að á undanförnum árum hafa bæði Háskólinn í Reykjavík og Háskólinn á Akureyri sett á stofn nýjar deildir í félagsvís- indagreinum. Það hefði ekki verið gert nema af því að nægilegt framboð er af góðum fræðimönn- um til að sinna kennslu í þessum greinum og eft- irspurn er eftir menntun í félagsvísindum er mik- il bæði meðal stúdenta og úti í samfélaginu.“ Hvar liggja helstu áherslurnar? „Það er ómögulegt að svara þessar spurningu. Til þess er fræðasviðið of vítt. Góð leið til að fá yfirlit um þá miklu fjölbreytni og grósku sem er í rannsóknum í félagsvísindum á Íslandi er að gefa sér tíma til að heimsækja heimasíðu ráðstefn- unnar, (http://www2.hi.is/page/radstefna) og fara yfir allt sem þar er að finna.“ Hvað má gera betur hér á landi hvað varðar rannsóknir? „Félagsvísindi, eins og önnur fræði hér á landi, myndu alveg þola auknar fjárveitingar til rann- sókna. En aðalatriðið er þó bara að reyna að gera betur í dag en í gær. Þegar á heildina er lit- ið er félagsvísindamönnum á Íslandi að takast það.“ Vísindi | Fimmta ráðstefnan um rannsóknir í félagsvísindum í Háskóla Íslands Mikil fjölbreytni og gróska  Friðrik H. Jónsson er fæddur á Siglufirði 1951. Hann lauk kenn- araprófi frá Kenn- araskóla Íslands, 1972, BA prófi í sálfræði frá HÍ 1976, MSc í fé- lagssálfræði frá Lond- on School of Econo- mics, 1977 og doktorspróf frá Há- skólanum í Sheffield, 1986. Friðrik hefur kennt við HÍ frá 1983 og er nú dósent í félagssálfræði í sálfræðiskor og for- stöðumaður Félagsvísindastofnunar. Friðrik er kvæntur Guðnýju Á. Steinsdóttir og eiga þau tvö börn. 1. e4 d5 2. exd5 Dxd5 3. Rf3 Rf6 4. d4 Bf5 5. Be2 e6 6. O-O Be7 7. Rh4 Bg6 8. c4 Dd8 9. Rc3 c6 10. Be3 Rbd7 11. Hc1 Rg4 12. Bxg4 Bxh4 13. d5 Re5 14. Be2 cxd5 15. cxd5 O-O 16. Db3 exd5 17. Hfd1 b6 18. Hxd5 De7 19. Hd4 Hac8 20. Hcd1 Bf5 21. Rd5 De6 Staðan kom upp á Ólympíu- skákmótinu sem stendur nú yfir í Calviu á Mallorca. Rússinn Vadim Zvjaginsev (2650) hafði hvítt gegn David Monell (2263) og stóð frammi fyrir þeirri ákvörðun hvort það gengi upp að taka biskupinn á h4. 22. Hxh4! Bc2 23. Db4!? 23. Da3 hefði reyndar einnig gengið upp vegna 23...Bxd1 24. Re7+ og hvítur vinnur. 23... Rc6 það hefði verið snoturt ef hvítur hefði fengið eftir 23... Bxd1 að leika 24. Re7+ Kh8 25. Hxh7+! Kxh7 26. Dh4+ og drottning svarts fellur út- byrðis. Eftir textaleikinn hefur hvítur léttunnið tafl. 24. Dd2 Bxd1 25. Bxd1 Hfd8 26. Bb3 Ra5 27. Hd4 Rxb3 28. axb3 h6 29. h3 He8 30. b4 Df5 31. Rc3 Hc6 32. Hd5 Dc8 33. Hd7 Hg6 34. Dd5 Hf8 35. Bf4 De8 36. Kh2 De1 37. Bg3 Hg5 38. De4 Da1 39. De2 Hg6 40. Hd1 He6 41. Hxa1 og svartur gafst upp. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is Hvítur á leik. GUÐFRÆÐI- og heimspekideildir Háskóla Íslands standa fyrir Hug- vísindaþingi í dag og á morgun. Á þinginu, sem fer fram í Aðalbygg- ingu Háskólans, velta um sextíu fræðimenn af öllum sviðum hugvís- inda fyrir sér íslenskri og erlendri menningu í nútíð og fortíð. Meðal umræðuefna verða lýð- ræði, hugmyndir um þátttöku- lýðræði og kosningarétt barna auk tengsla við umhverfisvernd. Sérstök málstofa verður haldin um banka- kerfið og þátt þess í nývæðingu at- vinnulífsins. Tvær málstofur verða helgaðar kristni og kvennahreyf- ingu og önnur helguð tengslum list- sköpunar og trúar. Þá verður fjallað um málvitund og þjóðernisvitund Vestur-Íslendinga auk þess sem tekist verður á um hvort Sonator- rek Egils Skallagrímssonar og kvæði Gísla Súrssonar eru heiðinn eða kristinn kveðskapur lagður í munn heiðinna manna. Auk þess verður sjónum beint að riddarabók- menntum í einni af málstofunum á þinginu. Einnig verður á ráðstefnunni gerð grein fyrir nýjum rannsóknum á Jónsbók og fjallað um íslenskt mál að fornu og nýju auk þess sem kast- ljósinu verður beint að þýsku á Ís- landi, táknmáli og erlendum málum og ýmsar hliðar á tengslum mál- anna við íslensku. Þingið hefst kl. 13 í dag í Hátíð- arsal Aðalbyggingar Háskólans og stendur til kl. 17 á morgun. Aðgang- ur er ókeypis og eru allir velkomnir. Fræðasamfélag | Hugvísindaþing Háskólans hefst í dag Morgunblaðið/Kristinn Háskóli Íslands er miðstöð rannsókna í hugvísindum á Íslandi. Menning í sínum breiðasta skilningi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.