Morgunblaðið - 22.10.2004, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 22.10.2004, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. OKTÓBER 2004 47 MENNING SÝNING á verkum þeirra fjögurra listamanna sem eru í úrslitum til hinna virtu bresku Turner- myndlistarverðlauna var opnuð í Tate Britain-safninu í London í gær. Listamennirnir sem eiga verk á sýn- ingunni eru Kutlug Ataman, Jeremy Deller, Langlands & Bell og Yinka Shonibare. Verðlaunin eru árlega veitt breskum listamanni undir fimmtugu, og er verðlaunaféð 40.000 pund, eða rúmar fimm milljónir króna. Þau verða veitt í desember. Sýning fjórmenninganna í ár er afar pólitísk í efnistökum og sagðist Stephen Deuchar, safnstjóri í Tate Britain-safninu, fagna þeirri þróun í Turner-úrslitasýningunum. Þannig er minna um líkamsvessa en á fyrri sýningum og meiri pólitísk meðvit- und, að því er dagblaðið The Guard- ian greinir frá „Pólitísk tengsl eru mjög sláandi í ár. Það er gott að sjá listamenn líta út fyrir listheiminn og sitt líf,“ sagði Deuchar. Langlands & Bell Ben Langlands og Nikki Bell hafa unnið saman síðan 1978. Þeir eiga þekktasta verkið á sýningunni í Tate, en einn hluti þess hefur verið fjarlægður af sýningunni. Það er myndband tekið í réttarsal í Kabul, þar sem afganskur stríðsherra sem um þessar mundir kemur fyrir rétt í London kemur fyrir. Í verki þeirra er einnig gagnvirk stafræn end- ursköpun á herbúðum Osama bin Laden í Afganistan. Kutlug Ataman Kutlug Ataman er myndlist- armaður og kvikmyndagerðarmaður fæddur í Istanbúl árið 1961. Verk hans byggist á sexskiptri mynd- bandsinnsetningu, þar sem sex ein- staklingar í Suðaustur-Tyrklandi tala um líf sitt áður fyrr, sem endaði á ofbeldisfullan hátt. Yinka Shonibare Yinka Shonibare er fæddur í London árið 1962, en fluttist til Lag- os í Nígeríu aðeins þriggja ára að aldri. Hann býr þar enn og lýsir sjálfum sér sem póst-nýlendu- blendingi. Shonibare leitast við í verkum sínum að ögra fyrirfram- gefnum forsendum með því að má út mörkin milli staðlaðra hugmynda um vestræna hámenningu og hefð- bundinna skilgreininga á afrískri list. Jeremy Deller Samvinna og þátttaka eru lyk- ilatriði í listsköpun Jeremy Deller. Meðal verka hans á sýningunni nú er heimildamyndin Memory Bucket, sem greinir frá pílagrímsför gegnum Texas að búgarði George Bush, og uppáhalds hamborgarabúllu hans og skrúðgöngu sem hann stóð fyrir gegnum spænsku borgina San Seb- astian. Áhorfandi skoðar verk Yinka Shonibare sem er kallað „The Swing (after Fragonard)“ á Turner-verðlaunasýningunni í Tate Britain í London. Myndlist | Turner-úrslitasýning opnuð í Tate Britain Pólitísk í efnistökum ingamaria@mbl.is AP NÝTT eða kannski réttara sagt stækkað og endurbætt orgel var vígt í Laugarneskirkju í desember 2002 en þá vantaði í orgelið nokkrar raddir eða pípuraðir sem nú eru komnar á sinn stað þannig að org- elið stendur nú fullklárað með sín- um 28 röddum og er mikil prýði í vesturendanum bæði fyrir auga og eyra. Laugarneskirkja fór þá leiðina að endurnýja og stækka orgelið í stað þess að fá alveg nýtt hljóðfæri, enda pípurnar úr gamla orgelinu með fallegan tón sem fellur vel inn í kirkjuna. Gamla orgelið var 19 raddir sem flestar halda sér óbreyttar eða eru fluttar til um átt- und og hefur síðan níu röddum ver- ið bætt við og góð heildarmynd á raddavalinu og tónumfangi hvers verks orgelsins fyrir sig. Það var Björgvin Tómasson orgelsmiður á Blikastöðum sem annaðist þessa breytingu og nýsmíði og er full ástæða til að óska Laugarneskirkju og Björgvini til hamingju með vel heppnað verk. Fyrstu tónleikar á fullbúið org- elið voru haldnir sunnudaginn 17. október s.l. og féll sá heiður í hlut Eyþórs Inga Jónssonar, annars organista Akureyrarkirkju. Eyþór sagði frá verkunum og í stórum dráttum hvernig hann nýtti orgelið í hverju verki fyrir sig og komst allt sem hann sagði vel og skilmerkilega til skila. Eyþór innsiglaði tónleikana með tveimur verkum eftir Jón Nor- dal, Forspil um sálm sem aldrei var sunginn hljómaði fallega í upphafi og í lokin hljómaði hin glæsilega Tokkata sem Jón samdi til minn- ingar um Pál Ísólfsson. Tokkatan er stórglæsilegt orgelverk sem naut sín vel á orgelið í stór- glæsilegum flutn- ingi Eyþórs og var í raun há- punktur tón- leikanna. Annað verk sem mig langar að nefna er Passacaglían í d-moll BuxWV 161 eftir Dietrich Buxtehude sem Ey- þór flutti á mjög hógværan máta og notaði eingöngu veikari raddir hljóðfærisins sem með sínum hljóm- fagra sjarma gáfu verkinu fallegan og sannfærandi heildarsvip. Tón- leikarnir í heild voru vel fluttir með fjölbreyttu og vel völdu raddavali, músikalskri túlkun sem var alltaf samkvæm sjálfri sér nema í hinni frægu d-moll Tokkötu og fúgu Bachs BWV 565 sem var ekki í góðu jafnvægi. Sem sagt mjög góðir tón- leikar á hljómfagurt og kraftmikið Björgvinsorgel Laugarneskirkju. TÓNLIST Laugarneskirkja Eyþór Ingi Jónsson, orgelleikari. Verk eft- ir Jón Nordal, Sweelinck, Scheidemann, Buxtehude, Bach og Frescobaldi. Sunnu- dagurinn 17. október 2004 kl. 17.00. ORGELTÓNLEIKAR Eyþór Ingi Jónsson Jón Ólafur Sigurðsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.