Morgunblaðið - 22.10.2004, Side 52

Morgunblaðið - 22.10.2004, Side 52
52 FÖSTUDAGUR 22. OKTÓBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ                                       !            HÉR er á ferðinni rómantísk mynd með þeim Jennifer Lopez, Susan Sarandon, Stanley Tucci og sjarmör allra tíma, Richard Gere, í aðal- hlutverkum. Um er að ræða end- urgerð á japanskri mynd frá árinu 1996 en Gere leikur vinnusjúkan lög- fræðing sem á yfirborðinu lifir hinu fullkomna lífi. Hann finnur engu að síður fyrir tómarúmi og dag einn ákveður hann að skella sér í dans- tíma, aðallega vegna þess að hann kom auga á íðilfagran kennarann. (Lopez). Brátt fær lögfræðingurinn þó mikinn áhuga á dansinum og sækir tímana grimmt en leynir því um leið fyrir fjölskyldunni. Konan hans (Sarandon) fer að gruna hann um framhjáhald og sendir á hann einkaspæjara. En sálartetur lög- fræðingsins er að skríða saman hægt og örugglega vegna dansins og hann fer að endurmeta líf sitt vegna þessa nýfengna áhuga. Dansinn bjargaði lögfræðingnum: Gere í hlutverki sínu. Frumsýning | Shall We Dance? Dömufrí ERLENDIR DÓMAR Roger Ebert Metacritic.com 45/100 New York Times 60/100 (skvt. Metacritic) Variety 60/100 (skvt. Metacritic) JONATHAN Demme er einn af virtustu leik- stjórum samtímans og á að baki þrek- virki eins og Phila- delphia og Silence of the Lambs. Í þessari endurgerð af sígildri mynd John Franken- heimer frá 1962 (sem meðal annars skartaði Frank Si- natra, Janet Leigh og Angela Lans- bury) fær Demme Denzel Washington til liðs við sig á nýjan leik. Segir af varaforsetaefni í Bandaríkjunum (leiknum af Liev Schreiber) sem er fyrrum stríðs- hetja úr Persaflóastríðinu. Félagi hans þaðan, Ben Marco (leikin af Washington) glímir á meðan við martraðir úr stríðinu og fer að gruna að ekki sé allt með felldu í kringum varaforsetaefnið. Manch- uriansamsteypunni og móður varaforsetaefnisins (Meryl Streep) er a.m.k. umhugað um að Marco sé ekki að fetta fingur út í þessi mál og upphefst nú hin æsilegasta atburðarás. Stál í stál: Washington og Streep. Frumsýning | The Manchurian Candidate Samsærið mikla ERLENDIR DÓMAR Roger Ebert Metacritic.com 73/100 New York Times 90/100 (skvt. Metacritic) Variety 90/100 (skvt. Metacritic) Svolítið ólíkt Addams-fjölskyldunni: Christina Ricci í The Gathering. ERLENDIR DÓMAR Variety gefur myndinni góða umsögn, segir hana hryllingsmynd hins hugsandi manns. Þar sem myndin hefur ekki verið gefin út í Bandaríkjunum né í Bret- landi hefur engin gagnrýni birst í stærri miðlum. Þýskar og franskar kvik- myndavefsíður, svo og fagblöð og vefsíður um hryllingsmyndir gefa yfir höfuð jákvæða dóma. ÞESSI hrollvekja er eftir breska leikstjórann Brian Gilbert sem á að baki ólíkar myndir eins og gamanmyndina Vice Versa (1988) með Judge Reinholdt, Wilde sem segir sögu ljóðskáldsins Oscar Wilde sem leikinn er af Stephen Fry og dramað Not Without My Daughter með Sally Field. Það er Christina Ricci sem fer með aðalhlutverkið í myndinni en hún leikur bandaríska stúlku sem er á ferðalagi um England. Hún kemur að smábæ þar sem hún lendir í bílslysi með þeim afleið- ingum að skammtímaminnið skaddast. Fjölskyldan sem olli slysinu býður henni að búa hjá sér á meðan hún jafnar sig en henni er ómögulegt að muna hvað hún ætlaði sér að gera í bænum. Á sama tíma fer hún að sjá hryllilegar sýnir og ókunnugt fólk og æði vafasamt fer að of- sækja hana. Lykillinn að baki þessum undarlegu atburðum ligg- ur í sýnum stúlkunnar og einnig í gamalli kirkju sem var grafin upp í bænum fyrir ekki svo löngu. Frumsýning | The Gathering Ógn hins óþekkta

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.