Morgunblaðið - 22.10.2004, Side 53

Morgunblaðið - 22.10.2004, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. OKTÓBER 2004 53 EKKI verður annað sagt en að þessi fyrsta útgáfa Karls Davíðs Lúðvíks- sonar, Dirty Mood Booster, komi skemmtilega á óvart, grípandi og dægilegt, hæfilega fram- sækið draum- kennt popp. Útsetningar á plötunni eru fjöl- breyttar þótt þær haldi sig á sömu slóðum framan af, stundum full- mjúkar, „God’s Children“ hálf valí- umleg, en undir lok plötunnar koma prýðilegir sprettir sem koma í veg fyrir að hún verði leiðigjörn. Þannig er skemmtileg stígandi í fimmta lagi plötunnar, „To Lo“, en einnig er það sjötta, „AA“ skemmtilega poppað með þungri undiröldu. Áttunda lagið, sem heitir því viðeigandi nafni „Jimi Sky“, brýtur stemmninguna líka skemmtilega upp og svo kemur á eft- ir þunglyndisleg strengjaballaða af bestu gerð, en það og næstu tvö lög á eftir eru mjög áþekk að stemmningu, eru tengd og eins og renna saman þar til fjarar út í brak og bresti í „Spirals“ – einkar skemmtileg flétta. Á köflum skriplar á skötu í fram- burðinum, til að mynda í fyrsta er- indi upphafslagsins, „In Your Dreams“ þegar hann raular við kassagítarundirleik, en um leið og fleiri hljóðfæri slást í hópinn skiptir það ekki máli. Textarnir eru líka mis- jafnir, stundum klaufalega orðaðir, en allajafna gera þeir það sem þarf, skreyta og skapa tregablandna stemmningu. Síðasta lagið er svo „God’s Childr- en“ endurtekið, en án söngs – eig- inlega óþarft því Spirals endar svo skemmtilega. Það býr mikill metnaður í þessari plötu og ekki bara í handgerðu og óneitanlega býsna frumlegu umslag- inu. Lögin eru mörg vel samin, sum hreint afbragð, laglínur grípandi og útsetningar vel heppnaðar. Ekki skortir Karl Davíð tónlistarhæfileika og vonandi að hann haldi áfram á þeirri braut sem hann hefur markað sér. Mikill metnaður Tónlist Íslenskar hljómplötur Karl Davíð Lúðvíksson kallar sig Dirty Mood Booster. Ekki kemur fram í um- slagi (vasa) plötunnar hver gerði hvað en þó að Árni Bergmann lagði honum lið við útsetningar og stýrði upptökum. Karl Davíð gefur sjálfur út. 61,29 mínútur. Dirty Mood Booster – Narcoleptic Dream Árni Matthíasson LOVE Guru er kynlegur kvistur í íslensku tónlistarlífi og einhver sá skemmtilegasti sem fram í sviðsljósið hefur stigið í lengri tíma. Hann er partíhetja af bestu sort, syngur og rappar um það eitt að njóta lífsins og allra þeirra lystisemda sem það hefur upp á að bjóða. Þetta er náttúrlega eitt stórt djók og það fyndið djók. Þá má ekki vanmeta þátt Dj Young á plötunni en hann er greinilega lúnk- inn tónlistarmaður, naskur á að grafa upp og splæsa saman grípandi stefjum, laglínum og hljóðbútum. Þetta væri ekki næstum því eins mikið gaman ef góðra laga hans nyti ekki við. En Love Guru er eins og fyrr segir fyndinn, ekki bara konseptið sem slíkt, þessi samfestingsklæddi, löðrandi sveitti foli, held- ur hafa flestir textar hans, eins innantómir og bullkenndir þeir eru á yfirborðinu, að geyma lúmskan ádeilubrodd, misjafnlega föst og rætin skot á galtóma og gegndarlausa partímenningu hnakkakyn- slóðar þessa lands. Við erum að tala um leir- burð af bestu sort: „Party krakkar og FM hnakkar yeah/allir hér inní húsinu/haldið ykk- ur frá búsinu/fáið ykkur frekar rúsinu (sic)/ allir út á gólf.“ („1,2, Selfoss“). Love Guru er líka ekki bara innantómt partídýr. Hann hef- ur tilfinningar, samvisku og notar tækifærið til að færa ungviðinu hollan boðskap og góðan á tungumáli sem það skilur: „Við ættum að syngjog (sic) tralla eins og Richie Scopí (sic)/ Hoppa og dansa eftir lögunum hans Moby/ Koma hreint fram eins og snillingurinn Koby/ Þú hefur það betra en fólkið í Næróbí.“ („Hjálpumst að“) Kaldhæðnin felst svo í því að það er einmitt þessi hnakkakynslóð sem fallið hefur hvað kylliflatast fyrir steypunni. Og skýringin er einföld. Lögin eru – þrátt fyrir allt djókið – alveg bullandi grípandi og skemmtileg. Love Guru er miðpunkturinn, nýtur að- stoðar ágætis söngkvenna af yngri kynlóð- inni, sem krydda viðlögin hæfilega og Dj Young sýður svo allt saman á vel smellinn máta. En þegar allt kemur til alls ristir þessi músík ekki djúpt og það er nú einu sinni svo með alla brandara, að þeir eru fyndnastir í fyrsta sinn og eiginlega bara fyndnir einu sinni, skiptir þar engu hve fyndnir þeir eru. Þetta Love Guru partí endist því trúlega skemur en gott hnakkapartí. En mikið skrambi er þetta samt feitt partí. Hrista rassinn, hér kemur bassinn TÓNLIST Íslenskar plötur Party hetja - 100% grúv er plata gerð af Love Guru og Dj Young. Fram koma auk þeirra Hreimur, Þóra Sif og Kristín Ýr, Mc Augost og Eva Maria, Tinna Marina, Nylon, Litli, B.T., Svansie, The Bet, Pétur Jóhann Sigfússon o.fl. Hljóðblöndum og mastering Dj Young. Útgefandi MSK. LOVE GURU - Party hetja  Skarphéðinn Guðmundsson Love Guru er löðrandi sveitt partíhetja. flísar Stórhöfða 21, við Gullinbrú, sími 545 5500. www.flis.is  netfang: flis@flis.is Allt fyrir baðherbergið

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.