Morgunblaðið - 22.10.2004, Síða 54
54 FÖSTUDAGUR 22. OKTÓBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Miðasala opnar kl. 15.30
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
Mjáumst
í bíó!
Kr. 450
Sýnd kl. 4. Ísl. tal.
VINCE VAUGHN BEN STILLER
DodgeBall
punginn á þér!
Ó.Ö.H. DV
S.V. Mbl.
Sýnd kl. 4. Ísl. tal.
Kvikmyndir.is DV
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.15.
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. B.i. 16 ára.
Sýnd kl. 5, 8 og 11. B.i. 16 ára. B.i. 16 ára.
Bakvið martraðir hans leynist
óhugnalegur sannleikur
DENZEL WASHINGTON MERYL STREEP
Frá leikstjóra Silence of the Lambs
kl. 5, 8 og 11. B.i. 16 ára.
Sýnd kl. 6.
Sýnd kl. 8 og 10. B.i. 16 ára.
Sýnd kl. 6.
Sýnd kl. 8 og 10. B.i. 16 ára.
Snargeggjuð gamanmynd
frá hinum steikta
Scary Movie hóp
THE HUNT FOR THE BLOOD ORCHID
THE HUNT FOR THE BLOOD ORCHID
„Ég anda, ég sef, ég míg ... Tónlist“
Bubbi Morthens
Til heljar og til baka með
atómbombunni Bubba Morthens
, f, í ... li t
i t
il lj til
t i t
ÞÆR ERU MÆTTAR AFTUR...ENN BLÓÐÞYRSTARI!
KYNGIMAGNAÐUR SPENNUTRYLLIR SEM FÆR HÁRIN
TIL AÐ RÍSA.
ÞÆR ERU MÆTTAR AFTUR...ENN
BLÓÐÞYRSTARI!
KYNGIMAGNAÐUR SPENNUTRYLLIR SEM
FÆR HÁRIN TIL AÐ RÍSA.
„Ég anda, ég sef, ég
míg ... Tónlist“ Bubbi
Morthens
Til heljar og til baka
með atómbombunni
Bubba Morthens
V.G. DVS.V. Mbl. Ó.H.T Rás 2
28.10.04
28.10.04
Ein þeirra hljómsveitasem spila á tónlist-arhátíðinni miklu,
Iceland Airwaves, í ár er
Sign. Forsprakki sveit-
arinnar, sem varð til uppúr
Músíktilraunum árið 2001, er
Ragnar Zolberg Rafnsson.
Sveitin stígur á svið klukkan
22 á Gauk á Stöng í kvöld á
sérstöku Kerrang! K-Club
kvöldi.
Þar verð-
ur rokkið
í fyr-
irrúmi og
spila fleiri
íslenskar sveitir á borð við
Hoffman, Manhattan, Mínus
og Drep þarna í kvöld. Ekki
má heldur gleyma Bretunum
í Yourcodenameis:milo.
„Þetta leggst mjög vel í
mig,“ segir Ragnar Zolberg,
sem hefur vakið athygli fyrir
magnaða sviðsframkomu og
tónlistarhæfileika. „Við er-
um búnir að vera duglegir
að spila okkur saman sem
band,“ segir hann en nýir
meðlimir komu inn fyrir
tveimur mánuðum. Þá bætt-
ust við gítarleikarinn Arnar
G. og bassaleikarinn Silli,
þekktur úr Stripshow, en
einnig er í hljómsveitinni
Egill, bróðir Ragnars, sem
spilar á trommur. Sjálfur
spilar hann á gítar og syng-
ur.
„Ég hef verið með Arnari
áður í hljómsveit og svo hef-
ur Egill verið að spila með
honum Silla. Við erum allir
samrýndir.“
Sign verður með fjögurra
laga plötu til sölu á tónleik-
unum. „Hún er fyrst og
fremst hugsuð sem kynning-
arplata og aðallega út af
Airwaves,“ segir hann en
platan verður einnig til sölu
á tónleikum sveitarinnar á
næstunni.
Sign spilaði líka á Air-waves í fyrra. „Þá vor-
um við á Grand Rokki með
allt annað band. Við erum
með flottara band núna og
fengum alveg frábært slott.
Það er mikill munur á okk-
ur frá því í fyrra því við er-
um komnir með þessa tvo
nýju meðlimi,“ segir Ragnar
sem er aðal lagasmiður
sveitarinnar. „Ég kem með
hugmyndirnar en svo þróast
þær á því að spila saman og
æfa. Þá kemur alltaf eitt-
hvað nýtt.“ Sign hefur gefið
út tvær plötur, Vindar og
breytingar árið 2001, og
Fyrir ofan himininn árið
2002 en hún er að verða
uppseld. „Við vorum að
frétta það um daginn og
það kom okkur mjög á
óvart.“
Líka vakti athygli þegarRagnar gaf út fyrstu
sólóplötu sína, Upplifun, þá
12 ára gamall. Hann hafði þá
þegar látið í sér heyra á
Músíktilraunum með hljóm-
sveitinni Rennireið, sem
komst í úrslit. Það má segja
að hann hafi fengið tónlist-
ina í vöggugjöf en hann er
sonur hins víðkunna tónlist-
armanns Rafns Jónssonar,
sem lést í sumar.
Plata með Rabba, Fuglar
geta ekki flogið á tunglinu,
kom út í vikunni, og kemur
Ragnar mikið við sögu. Hann
semur flest laganna með
pabba sínum auk þess að
syngja og spila á gítar. „Það
var æðislegt að gera þetta
með honum og ég lærði
rosalega mikið af því. Líka
sem hljóðfæraleikari, ég var
að spila allt öðruvísi tónlist
en ég er vanur að gera og
syngja hana líka,“ segir
Ragnar en meirihluti lag-
anna vartekinn upp í því
fornfræga hljóðveri Abbey
Road í London og segir hann
það hafa verið skemmtilega
upplifun.
Ragnar er spenntur fyrir
Iceland Airwaves. „Það er
alltaf gaman á tónleikum.
Maður nær aldrei að sjá allt.
Það er ekkert eitt sem ég er
mest spenntur fyrir. Ég
hlakka bara mest til þess að
spila.“
’Það var æðislegt aðgera þetta
með honum og
ég lærði rosalega
mikið af því.‘
AF LISTUM
Inga Rún
Sigurðardóttir
ingarun@mbl.is
Ragnar Zolberg er söngv-
ari, gítarleikari og laga-
smiður rokksveitarinnar
Sign, sem spilar á Iceland
Airwaves í kvöld.
Signað á Airwaves
Morgunblaðið/Sverrir
KVIKMYNDIN Sterkt kaffi
(Silný kafe) er frumsýnd hér-
lendis í kvöld en þetta tékknesk/
íslenska samvinnuverkefni hefur
fengið góðar viðtökur. Íslend-
ingar sem koma við sögu fyrir ut-
an leikstjórann og handritshöf-
undinn Börk Gunnarsson eru
Stefanía Thors aðstoðarleikstjóri,
sem fer einnig með aukahlutverk í
myndinni og pabbi hennar, Thor
Thors. Að öðru leyti er tékkneskt
leikaralið í myndinni.
Stefanía, sem hefur búið í
Tékklandi síðastliðin átta ár, var
stödd þarlendis þegar Morg-
unblaðið ræddi við hana og komst
því ekki á formlega frumsýningu í
gærkvöldi. „Mig langaði að koma
heim en við fundum ekki ódýran
miða,“ segir hún.
„Myndin fjallar um mannleg samskipti,
samskipti milli fólks sem er í sambandi,“ seg-
ir Stefanía en myndin er mikið byggð upp á
samtölum. Stefanía aðstoðaði Börk við að
setja íslenskan texta á myndina. „Ég var að
hjálpa til við að gera íslenskan texta við
myndina. Það var svolítið erfitt því Tékk-
arnir tala hratt. En það heppnaðist vel, betur
en enski textinn.“
Kostnaður við myndina hljóðaði upp á um
30 milljónir íslenskra króna og þykir það
ekki mikið. „Það sem er skemmtilegast við
þessa mynd er orkan sem var í kringum
hana. Fólk var ekki að hugsa um peningana
heldur hafði áhuga á að gera hana. Það var
afskaplega skemmtilegur hópur sem vann að
þessari mynd,“ segir Stefanía en vel gekk að
gera myndina.
„Það kom reyndar eitt skondið upp á.
Pabbi er með lítið hlutverk í myndinni. Hann
er ekki leikari en Börkur píndi hann til að
vera með. Ég var eitt skipti send til að sækja
hann. Allt settið var tilbúið og við vorum að
bíða eftir honum en hann var ekki mættur.
Mér tókst að vekja hann með því að henda
steini í gluggann. Þegar það loksins tókst var
hann bara á sloppnum og að fara að fá sér
kaffi og sagði við mig – ég held ég sé bara
hættur við. Ég sagði honum að það væri ekki
hægt. Við vorum þá búin að taka allt upp sem
við þurftum með honum og vantaði bara eina
senu. Það tók mig klukkutíma að tala hann
til,“ segir Stefanía og hefur greinilega gaman
af því að rifja þetta upp.
Hún hefur þekkt Börk í nokkur ár. „Við
erum svo fáir Íslendingarnir hérna úti. Ég
kynntist honum um leið og hann kom hingað
út, fyrir þremur eða fjórum árum. Við eigum
marga sameiginlega vini,“ segir Stefanía sem
er leiklistarmenntuð. Hún fór upphaflega til
Tékklands í meistaranám í leiklist og er því
vanari að vera hinum megin við myndavélina.
Myndin hefur fengið góðar viðtökur frá því
hún var frumsýnd í apríl í Tékklandi. „Á
kvikmyndahátíðinni í Karlovy Vary var
klappað mikið í lok myndarinnar og líka í
miðri mynd, sem er mjög óvenjulegt. Það
hefur gengið mjög vel með myndina.“
Stefanía er ekkert endilega á leiðinni til Ís-
lands aftur. „Mér finnst ég eiga voða mikið
heima í Tékklandi en það kemur alltaf upp
heimþrá í mér af og til. Sérstaklega núna,
það er haust og mig langar í rok og óveður.
Ég er bara úti á peysunni hérna.“
Frumsýning | Stefanía Thors er aðstoðarleik-
stjóri kvikmyndarinnar Sterkt kaffi
Sterkt kaffi í tökum: Frá vinstri eru Stefanía Thors
aðstoðarleikstjóri, Kajsa Elramli leikkona og
Börkur Gunnarsson leikstjóri.
Tékkar tala hratt
ingarun@mbl.is