Morgunblaðið - 22.10.2004, Page 55
VINCE VAUGHN BEN STILLER
www.laugarasbio.is
Sýnd kl. 4 og 6. Ísl. tal.
Kr. 500
COLLATERAL
Fór beint á
toppinn
í USA!
Mbl.
Sýnd kl. 4 og 6. Íslenskt tal.
Sýnd kl. 8 og 10.15. B.i. 16 ára.
Nýjasti stórsmellurinn frá framleiðendum
Shrek. Toppmyndin í USA í dag. Sýnd
með íslensku og ensku tali.
j i ll i l i
i í í
í l li
Sýnd kl. 8 og 10. B.i. 16 ára.
Kvikmyndir.is
DV
Kvikmyndir.is
JAMIE FOXXTOM CRUSE
Sýnd kl. 5, 8 og 10.40 B.i. 16 ára.
Frá leikstjóra Silence of the Lambs
Bakvið martraðir hans leynist
óhugnalegur sannleikur
DENZEL WASHINGTON MERYL STREEP
Hverfisgötu ☎ 551 9000 Nýr og betri
Þú missir þig
af hlátri...
punginn á þér!
Ó.Ö.H. DV S.V. Mbl.
„Ég anda, ég sef, ég
míg ... Tónlist“ Bubbi
Morthens
Til heljar og til baka
með atómbombunni
Bubba Morthens
Sýnd kl. 6 og 10. Sýnd kl. 6 og 8.
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Sýnd kl. 8 og 10.20. B.i. 16 ára.
THE HUNT FOR THE BLOOD ORCHID
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15
DodgeBall
www.regnboginn.is
ÞÆR ERU MÆTTAR AFTUR...ENN BLÓÐÞYRSTARI!
KYNGIMAGNAÐUR SPENNUTRYLLIR SEM FÆR HÁRIN TIL AÐ RÍSA.
28.10.04
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. OKTÓBER 2004 55
Nánasti ráðgjafi GeorgeW. Bush Bandaríkja-forseta heitir Karl
Rove. Rove þessi er ekki mikið
í fjölmiðlum og fæstir vita því
hver hann er; engu að síður
eru menn sammála um að
hann á stóran þátt í þeim
frama sem Bush hefur náð í
stjórnmálum. Kvikmynda-
gerðarmennirnir Michael
Shoob og Joseph Mealey
ganga raunar svo langt að
kalla Rove „heilann í Bush“ í
heimildarmynd sem Háskóla-
bíó hefur verið að sýna und-
anfarna daga. Og ef marka má
myndina Bush’s Brain virðist
heilinn í Bush reiðubúinn til að
beita ýmsum óprúttnum
brögðum til að ná fram mark-
miðum sínum.
Mynd þeirra Shoobs og
Mealeys er byggð á bókinni
Bush’s Brain: How Karl Rove
Made George W. Bush Presid-
ential sem út kom í fyrra.
Morgunblaðið spurði Joseph
Mealey um tengsl þeirra
Shoobs við höfunda bókarinnar,
Jim Moore og Wayne Slater.
„Fæðingu myndarinnar má
rekja aftur til innrásar Banda-
ríkjanna í Írak,“ segir Mealey.
„Ég var óánægður með þá
ákvörðun, eins og fleiri, og
skildi ekki hvers vegna fólk lét
segja sér að tengsl væru á milli
árásanna á Bandaríkin 11.
september 2001 og Saddams
Husseins þegar menn vissu
betur. Og þá las ég grein í Los
Angeles Times eftir Jim
Moore, annan höfund bók-
arinnar, og fannst sem þar
væri að finna mikinn sannleik;
að menn voru að selja fólki
hugmyndina um stríð á mjög
svo pólitískum forsendum [s.s.
að stríð í Írak myndi tryggja
endurkjör Bush]. Ég setti mig
því í samband við hann og mér
til mikillar undrunar reyndust
báðir höfundar reiðubúnir í
samstarf.“
Mealey segir að Moore og
Slater hafi hjálpað mjög til við
gerð myndarinnar og báðir
eru þeir meðal viðmælenda í
Bush’s Brain. „Bæði Jim
Moore og Wayne Slater hafa
stundað blaðamennsku í Texas
í meira en tuttugu ár. Þeir
þekkja George Bush ágætlega
og þeir þekkja Karl Rove vel.
Karl Rove hringir alltaf reglu-
lega í Wayne Slater til að
kvarta yfir einhverju, þ.á m.
þessari mynd. Þeir unnu rann-
sóknarvinnuna sem stuðst er
við í myndinni.“
Mealey fullyrðir að Rove
hafi frá unga aldri átt þann
draum æðstan að verða ráð-
gjafi Bandaríkjaforseta, heil-
inn að baki valdamanninum.
„Hann hóf afskipti af stjórn-
málum mjög snemma og með
því að beita vafasömum að-
ferðum tókst honum að
tryggja sér embætti leiðtoga
repúblikana í háskólum lands-
ins. Það kann að hljóma
ómerkilegt en það þýðir þó að
viðkomandi fer til starfa á að-
alskrifstofu Repúblik-
anaflokksins. Þar bar einmitt
saman fundum Roves og
George Bush eldri og Rove
hitti síðan Bush yngri á þeim
vettvangi.
Nokkru síðar, þegar Rove
hafði opnað ráðgjafarskrif-
stofu í Texas, hitti hann Bush
yngri á ný og komst að þeirri
niðurstöðu að Bush væri af
réttum ættum, hefði rétt útlit,
sambönd og fjármagn og að
Rove gæti gert hann að for-
seta Bandaríkjanna.
George W. Bush vildi ekki
verða stjórnmálamaður, vissi
raunar ekkert hvað hann vildi
gera með líf sitt. En Karl Rove
sá til þess að hann varð forseti
og Bush tekur engar ákvarð-
anir án þess að Karl Rove ráði
þar einhverju um. Það á meira
að segja við um þá ákvörðun
að efna til hernaðaraðgerða.“
Pólitískar
heimildarmyndir
Joseph Mealey hefur ekki
leikstýrt áður en hefur verið
kvikmyndatökumaður í tvo og
hálfan áratug. Hann segir
meðleikstjóra sinn, Michael
Shoob, hins vegar hafa leik-
stýrt áður, þó ekki pólitískri
heimildarmynd. „Við höfum
verið sakaðir um að vera hluti
af hinni vinstrisinnuðu Holly-
wood sem ekkert vilji fremur
en níða af George W. Bush
skóinn. En hvorugum okkar
var kunnugt um að það væru
margar myndir um stjórnartíð
Bush í bígerð, eins og þó var
raunin, þegar við frumsýndum
okkar. Þessar myndir spretta
einfaldlega upp úr þeim jarð-
vegi sem skapast hefur í
Bandaríkjunum,“ segir Meal-
ey og bætir við: „George Bush
má eiga það að hann hefur
stuðlað að því að fólk spáir
meira í stjórnmálin en áður.“
Mealey segir að mynd
þeirra hafi nú verið sýnd í bíó-
húsum í a.m.k. fimmtán stór-
borgum í Bandaríkjunum.
Hún hafi þó auðvitað alls ekki
verið sýnd eins víða og mynd
Michaels Moores, Fahrenheit
911, „enda er hann sérfræð-
ingur í þessu“.
Bush’s Brain sé einnig kom-
in út á DVD-mynddiski og hún
verði send út á Sundance-
rásinni, sjónvarpsrás sem leik-
arinn Robert Redford á og
rekur, kvöldið fyrir kjördag.
Mealey segist ekki vera
rannsóknarblaðamaður og
Michael Moore sé það ekki
heldur. „Við grófum ekkert
nýtt upp,“ segir hann. „Allt
sem kemur fram í þessum
myndum hefur birst í einu
formi eða öðru í fjölmiðlum og
það á við líka um Fahrenheit
911. Munurinn er bara sá að
enginn blaðamaður hefur
tengt hlutina saman með þess-
um hætti. Það er það sem við
höfum gert: við höfum sett
hlutina í ákveðið samhengi.“
Mealey segist sammála því
að mikill munur sé á Fahren-
heit 911 og Bush’s Brain.
Mynd þeirra Shoobs sé hefð-
bundnari heimildarmynd sem
einfaldlega byggist á viðtölum
við fólk sem þekki til viðfangs-
efnisins.
„Ég ætla ekki að leyna því
að ég er sammála því sem
fram kemur í Fahrenheit 911,“
segir Mealey. „En við ákváð-
um að þessi mynd okkar þyrfti
að vera þannig að hún vekti
menn til umhugsunar, alveg
sama hvar þeir stæðu í stjórn-
málum. Við lögðum okkur
fram um að predika ekki yfir
fólki. Og repúblikanar sem
hafa séð myndina hafa margir
sagt okkur að þeir hafi orðið
fyrir áhrifum, sumir hafa jafn-
vel sagt að þeir ætli ekki að
kjósa Bush aftur.“
Athygli vekur sú staðreynd
að í reynd sést aðalpersóna
Bush’s Brain, Karl Rove, lítið í
myndinni og þegar hann er í
mynd virðist sem þar fari bara
býsna vingjarnlegur gaur. „Já,
það er rétt. Hann virðist mein-
laus. Og Moore og Slater sem
þekkja hann segja hann vin-
gjarnlegan í viðkynningu, gáf-
aðan mjög og að áhugavert sé
að taka hann tali. En eins og
Jim Moore hefur sagt hefur
hann þessa myrku hlið einnig.
Hann sýnir enga vægð í póli-
tískri baráttu.“
Mealey segir það aftur á
móti rangt, sem svo margir
virðast halda, að George W.
Bush sé heimskur. Titill
myndar þeirra Shoobs vísi alls
ekki til þess. „Engu að síður er
það svo að hann hefur snilling
sér við hlið; Karl Rove veit
hvað þarf til að vinna og hann
gerir hvað sem þarf til að
vinna. Bush er því engan veg-
inn heilalaus, langt því frá.
Hann hefur eigin heila og svo
annan sér við hlið.“
Kvikmyndir | Joseph Mealey er höfundur myndar um ráðgjafa Bandaríkjaforseta
Bush skortir
ekki heila
Karl Rove, pólitískur ráðgjafi Bush
Bandaríkjaforseta, er viðfangsefni
heimildarmyndar, Bush’s Brain, sem
nú er sýnd í Háskólabíói. Davíð Logi
Sigurðsson ræddi við annan leikstjóra
myndarinnar, Joseph Mealey.
AP
david@mbl.is
Kvikmyndin Bush’s
Brain hefur vakið tals-
verða athygli en hún er
nú sýnd í Háskólabíói.
Skrítinn skuggi. Karl Rove á
hægri hönd Bush forseta.