Morgunblaðið - 22.10.2004, Side 60
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FÖSTUDAGUR 22. OKTÓBER 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
Sneiddur ostur
í n‡jum umbú›um
Endurlokanlegar
umbúðir
LITLU munar á vinsældum þeirra þriggja
blóma sem landsmenn vilja að verði fyrir valinu
um þjóðarblómið. 7.000 einstaklingar tóku þátt í
vali milli sjö blóma á mbl.is og samkvæmt þeirri
niðurstöðu eru blóðberg, gleym-mér-ei og holta-
sóley þau þrjú blóm sem valið stendur um. Úr-
slitin verða kynnt í Salnum í Kópavogi í dag kl.
15.30 og eru allir sem áhuga hafa velkomnir.
Viðstaddir úrslitastundina verða m.a. forseti
Íslands og landbúnaðarráðherra en ráðuneyti
hans átti frumkvæði að vali blómsins.
„Við áttum von á því að eitt blóm nyti áber-
andi hylli en það virðist ekki vera mjög afger-
andi,“ sagði Tryggvi Felixson, framkvæmda-
stjóri Landverndar, um blómin þrjú sem að hans
sögn báru höfuð og herðar yfir blómin sem valið
á mbl. stóð um.
Tuttugu blóm voru upphaflega kynnt til sög-
unnar sem hugsanleg þjóðarblóm en kynning á
framtakinu, sem var í höndum Landverndar,
hófst í apríl.
Holtasóley
Þrjú blóm
keppa um
titilinn
BlóðbergGleym-mér-ei
BILUN í háspennustreng varð til þess
að rafmagnslaust varð í Hlíðunum í
Reykjavík í um klukkustund í gær-
kveldi. Fór rafmagn meðal annars af
veitingahúsinu Perlunni og truflun
varð á sjónvapsútsendingu vegna þess
að endurvarpsmöstur við Veðurstof-
una duttu út um tíma. Ekki var í gær-
kvöldi vitað hvað orsakaði bilunina í
strengnum.
Vegna rafmagnsleysis þurfti lög-
reglan að stjórna umferð við gatnamót
Miklubrautar og Lönguhlíðar. Morgunblaðið/Kristinn
Rafmagnslaust
í Hlíðunum
ÞEIR léku af innlifun gítarleikari og bassa-
leikari nýrokkssveitarinnar Jan Mayen á
Airwaves-tónleikunum á Grand Rokki í gær-
kvöldi. Þetta er í sjötta sinn sem Iceland
Airwaves-hátíðin er haldin en hún hefur
orðið vinsælli með hverju árinu.
Morgunblaðið/Árni Torfason
Jan Mayen á Grand Rokki
SYSTURFÉLAG Atlantsskipa, Trans-
atlantic Lines, hefur skrifað undir 1,3 millj-
arða króna samning við bandaríska sjóher-
inn um flutninga hersins milli Singapúr og
eyjunnar Diego Garcia í Indlandshafi.
Samningurinn tekur gildi nú í desember og
er til fimm ára. Hefur Transatlantic Lines
fest kaup á 370 gámaeininga skipi sem mun
annast þessa flutninga en kaupverð þess er
um 500 milljónir. Transatlantic Lines er
einnig með samning við varnarliðið vegna
flutninga þess milli Íslands og meginlands
Evrópu en þetta er hins vegar fyrsti samn-
ingurinn sem fyrirtækið fær við bandaríska
sjóherinn.
Eigendur Atlantsskipa og Transatlantic
Lines og Atlantsolíu einnig eru þeir Guð-
mundur Kjærnested og Bandaríkjamaður-
inn Brandon Rose.
„Þetta styrkir stoðir Transatlantic Lines
sem um leið hlýtur að styrkja stoðir okkar
þegar heildarmyndin styrkist,“ segir Birgir
Örn Birgisson, markaðsstjóri Atlantsskipa.
Hann segir þetta mjög mikilvægan samn-
ing, ef menn standi sig vel geti það opnað
frekari tækifæri til vaxtar og möguleika á
frekari samningum við bandaríska sjóher-
inn. „Það að þeir leiti aftur og aftur til okk-
ar segir að við hljótum að vera að gera
hlutina þannig að þeim líki. Við erum virki-
lega ánægðir með þennan samning.“
Fyrr á árinu endurnýjuðu Transatlantic
Lines og flutningadeild bandaríska land-
hersins samning um flutninga varnarliðsins
milli Íslands og Bandaríkjanna og er sá
samningur einnig til fimm ára.
Gera 1,3 milljarða samning
við sjóher Bandaríkjanna
FYRIRHUGAÐ er að reisa 1.200 fermetra
heilsulind við Laugarvatn og verður vilja-
yfirlýsing þess efnis undirrituð á morgun í
Menntaskólanum að Laugarvatni. Mun
menntamálaráðherra undirrita viljayfirlýs-
inguna fyrir hönd ríkisins. „Þetta verður al-
vöru [heilsulind] með öllu sem því fylgir,“
segir Hafþór Guðmundsson, talsmaður
hollvinasamtaka gufubaðs á Laugarvatni.
Hann segir vel hafa gengið að fá fjárfesta
að framkvæmdinni. Áætlaður kostnaður við
byggingu verði á bilinu 250–300 milljónir
króna þegar upp verði staðið. Hlutafjárlof-
orð er nú þegar orðið 150 milljónir. Hafþór
segist búast við því að framkvæmdir hefjist
eftir áramót og heildarskipulagið verði
tilbúið fyrir sumarið 2006.
Í viðræðum við Bláa lónið
Í húsinu verður að finna veitingastofu,
aðstöðu fyrir minjagripasölu auk þess sem
boðið verður upp á þjónustu sem tengist
gufuböðum s.s. nudd og jóga. Allt kalli þetta
á gríðarlegar skipulagsbreytingar en verið
sé að hanna svæðið við vatnið upp á nýtt þar
sem gert sé ráð fyrir samtenginu við
Íþróttafræðisetur Kennaraháskóla Íslands,
íþróttahúsið, sundlaugina og Íþróttamiðstöð
Íslands.
Að sögn hans eru hollvinasamtökin í við-
ræðum við forsvarsmenn Bláa lónsins og sá
möguleiki fyrir hendi að rekstur heilsulind-
arinnar verði tengdur rekstri Bláa lónsins.
300 milljóna kr. heilsulind reist á Laugarvatni
LÖGREGLU verður gert kleift að sekta sakborn-
inga á vettvangi, innheimta sektina á staðnum og
ljúka málinu þar, samkvæmt frumvarpi til laga
um breytingu á lögum um meðferð opinberra
mála sem Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumála-
ráðherra, kynnti á ríkisstjórnarfundi síðastliðinn
þriðjudag.
Að sögn Rögnu Árnadóttur, skrifstofustjóra
lagaskrifstofu dóms- og kirkjumálaráðuneytisins,
er þarna um einföldun á sektarinnheimtu að ræða.
Sett verða ákveðin skilyrði fyrir því að hægt sé að
innheimta sektir á staðnum: Sektin fari ekki fram
úr 50 þúsund krónum og hinn seki gangist ský-
laust við brotinu. „Þetta á í raun við um einföld-
ustu umferðarlagabrot,“ sagði Ragna. „Þá fær
hinn brotlegi sektarboð á staðnum, greiðir það og
er laus allra mála.“ Ef meintur brotamaður neitar
sök eða þyki einhver vafi leika á um réttmæti
sektar mun mál hans fara hefðbundna leið.
Ekki þurfi að leita dómþola uppi
Einnig er lagt til í frumvarpi dóms- og kirkju-
málaráðherra að breyting verði gerð á birtingu
sektardóma. „Ef dómþoli mætir ekki við upp-
kvaðningu dóms er uppkvaðningin nægileg birt-
ing. Það á ekki að þurfa að leita hann sérstaklega
uppi til að birta honum dóminn. Hann veit að það
er mál í gangi og fær fyrirkall til að mæta við
dómsuppkvaðningu. Ef hann gerir það ekki, er
þetta heimilt.“
Lögregla geti
innheimt sektir
á staðnum
♦♦♦