Sunnudagsblaðið - 17.10.1965, Side 14

Sunnudagsblaðið - 17.10.1965, Side 14
<wmm$ fföymscBííé íitöp«í« Skopmynd ór Pravda. er sýnir fcvernig Tsjitsjerin varð vid. þegar Zinoieo flutti sínar frægu ræðui'. teldi það nauðsynlegt væri hon- um það frjálst, þótt ég teldi það raunar ástæðulaust sjálfur. Þetta kvöld kom ég frekar seint heim, en fann þá flokk vopnaðra bænda, sem voru að búa sig til svefns í garðinum. Þeir sögðu mér, að nokkrir „júðafantar” hefðu verið að spyrjást fyi'ir um inig í þorpinu, og það benti allt til þess, að eitt- hvert samsæri væri á döfinni gegn mér. En auðvitað fengju þeir skell- inn, ef eitthvað kæmi fyrir mig, og því hefðu þeir komið til að sjá um, að „júðadjöflarnir” létu mig í friði. Þessir „júðadjöflar” voru að sjálfsögðu lögreglumennirnir, sem voru sendir til að vernda okkur gegn bændunum. Ég sagði Georgí Vasselivitsj frá þessu, og lögreglan let okkur í friði eftirleiðis. Bænd- urnjr, voru aldrei annað en elsku- legheitin tóm. Aumingja Georgí Vassilevitsj. Þetta getur ekki hafa gerzt löngu áöur en heilsa hans bilaði. Og þótt hann segði ekki af sér fyrr en 1930 var hann aðeins lítið í Mosk- vu. Hann þjáðist af sykursýki, og varð aö vera langdvölum í Þýzka- landi til lækninga hjá Klemperer, frægum sérfræöingi, sem hafði verið kallaöur til Moskvu, þeg- ar Lenin fékk slag í fyrsta skipti. Klemperer kynnti Tsjit- sjerín fyrir frú von Siemens, sem bauð honum oft að koma á sveitasetur hennar í Wannsee. Þar varði hann mörgum dögum í að lesa franskar skáldsögur, tauga- veiklaöur, einmana og allur af sér genginn, Hann sneri síöar aftur til Moskvu, þegar sykursýkin var ögn farfn að skána, en ándleg og líkam- leg heilsa hans gerði honum ókleift að taka aftur þátt í opinberum málum. Ekki löngu síðan sneri Wiíliam C. Bullitt, sem hafði verið náinn vinur hans á byltingarárun- um og var mikill stuðningsmaður bolsévikastjórnarinnar og harður andstæðingur hernaðaríhlutunar vesturveldanna, aftur til Moskvu og var þar sendiherra Bandaríkj- anna frá 1934 til 1936. Hann reyndi strax að komast í samband við Ge- orgí Vassilevitsj, og fór áð heim- sækja hann, eftir að liafa komizt að því, hvar hann bjó. Hann barði aö dyrum og hringdi nokkrum sínnum án árangurs. Loks opnaö- ist örlítil rifa á dyrnar, og í gætt inni sá hann villidýr í mannsmynd, blóðhlaupin augu og vanhirt grátt hár og skegg. Það var Tsjitsjerín, sem skellti hurðiimi aftur framan í hann og vildi ekki koma fram aftur. Hann dó skömmu síðar. Þetta voru hörmuleg ævilok manns, sem um tólf ára skeið hafði gegnt meginhlutverki við framkvæmd utanríkisstefnu Sovétríkjanna. Ef til vill er rétt að skýra frá enn einu atviki sem dæmi um að- ferðir leynilögreglunnar. Meðal þjónustumanna minna var Pólverji að nafni Juravski, sem hafði verið í rússneska hernum og starfað um nokkurra ára skeið sem þjónustu maður keisarans, áður en hann var myrtur í Ekaterinburg. Sir CharleS Eliot, yfirmaður heraflans í Síb- eríu, hafði ráðið hann til stai’fa í Omsk; og ég hafði haldið Juravski í þjónustu minni, þegar hann gerð- ist sendiherra í Tokio og ég varð yfirmaður, og síðan hafði ég tekið hann með mér til Moskvu. Systir hans, Teresa, starfaði einnig 1 sendiráðinu, og af því að hún var pólsk varð hún að koma í utan- ríkisráöuneytið á hverjum mánu- degi og undirrita plagg, eins og aðrir útlendingar. Þetta hafði hún gert að staðaldri í tvö eða þrjú ár, en þá var það einn mánudag, mig minnir árið 1925, að hún kom ekki aftur til sendiráðsins. Það var ekkl fyrr en undir miðnætti, að hun loks birtist, og þá fleygðx húu sér í gólfið full örvæntingar og vildi ekki tala við neinn. Loks tókst ein- 510 SUNNXIDAGSBLAÐ - ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Sunnudagsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sunnudagsblaðið
https://timarit.is/publication/302

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.