Morgunblaðið - 13.11.2004, Qupperneq 42
42 LAUGARDAGUR 13. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
MESSUR Á MORGUN
ÁSKIRKJA: Barnastarf kl. 11. Gítarleikari
Pétur Þór Benediktsson, organisti Kári Þor-
mar. Prestur sr. Þórhildur Ólafs. Guðsþjón-
usta kl. 14. Félagar úr kór Áskirkju syngja,
organisti Kári Þormar. Prestur sr. Þórhildur
Ólafs.
BÚSTAÐAKIRKJA: Barnastarf kl. 11.00.
Foreldrar, afar og ömmur hvött til þátttöku í
barnastarfinu. Guðsþjónusta kl. 14.00.
Félagar úr Kór Bústaðakirkju syngja. Org-
anisti Guðmundur Sigurðsson. Prestur sr.
Bára Friðriksdóttir. Molasopi eftir messu.
DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11.00. Sr. Jakob
Ágúst Hjálmarsson prédikar. Kór Mennta-
skólans í Reykjavík syngur, stjórnandi og
organisti Marteinn H. Friðriksson. Barna-
starf á kirkjuloftinu meðan á messu stend-
ur.
GRENSÁSKIRKJA: Barnastarf kl. 11 í
umsjá Jóhönnu Sesselju Erludóttur og ung-
linga úr kirkjustarfinu. Guðsþjónusta kl.
11. Kristniboðsdagurinn. Samskot til Sam-
bands íslenskra kristniboðsfélaga. Kirkju-
kór Grensáskirkju syngur. Organisti Árni Ar-
inbjarnarson. Ólafur Jóhannsson.
GRUND dvalar- og hjúkrunarheimili: Guðs-
þjónusta kl. 14.00. Organisti Kjartan
Ólafsson. Sr. Ólafur Jens Sigurðsson.
HALLGRÍMSKIRKJA: Fræðslumorgunn kl.
10.00. Kirkjan í fjölmenningarsamfélagi:
Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir can.theol.
Messa og barnastarf kl. 11.00. Sr. Jón
Dalbú Hróbjartsson prédikar og þjónar fyrir
altari ásamt sr. Sigurði Pálssyni og sr. Lár-
usi Halldórssyni. Unglingakór Hallgríms-
kirkju syngur undir stjórn Friðriks S. Krist-
inssonar. Organisti Hörður Áskelsson.
Barnastarfið er í umsjá Magneu Sverr-
isdóttur. Fermingarbörn aðstoða við mess-
una.
HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 11.00. Org-
anisti Douglas A. Brotchie. Sr. Tómas
Sveinsson. Barnaguðsþjónusta kl. 13.00.
Umsjón Sigríður Árnadóttir.
LANDSPÍTALI – háskólasjúkrahús: Hring-
braut: Guðsþjónusta kl. 10.30. Sr. Sigfinn-
ur Þorleifsson.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guðbrands
biskups. Messa og barnastarf kl. 11.
Kristniboðsdagurinn – tekið við framlögum
til kristniboðs. Séra Bára Friðriksdóttir
messar. Organisti Jón Stefánsson. Félagar
úr Kór Langholtskirkju leiða söng. Barna-
starf í safnaðarheimili á sama tíma. Leik-
ritið Hans klaufi sýnt. Kaffisopi eftir stund-
ina. Kl. 17.00. Tónleikar Graduale Nobili,
þar sem kórinn mun m.a. frumflytja íslensk
kórverk.
LAUGARNESKIRKJA: Messa og sunnu-
dagaskóli kl. 11.00. Bjarni Karlsson sókn-
arprestur þjónar, ásamt Sigurbirni Þorkels-
syni meðhjálpara. Sunnudagaskólinn er í
umsjá Hildar Eirar Bolladóttur, Heimis Har-
aldssonar og Þorvalds Þorvaldssonar.
Reynir Jónasson leikur á orgelið, kór Laug-
arneskirkju syngur, fulltrúar lesarahóps
flytja texta dagsins og messukaffi Sigríðar
kirkjuvarðar bíður svo allra að messu lok-
inni. Þá verður einnig hin árlega kökusala
Kvenfélags Laugarneskirkju haldin í safn-
aðarheimilinu, svo hægt er að grípa sunnu-
dagstertuna með úr kirkjunni. Kvöldmessa
kl. 20.30. Djasskvartett Gunnars Gunn-
arssonar leikur, kór Laugarneskirkju syng-
ur, Bjarni Karlsson þjónar ásamt Sigurbirni
Þorkelssyni. Að messu lokinni er boðið til
fyrirbæna við altarið og til kaffidrykkju í
safnaðarheimili. Athugið að djassistarnir
hefja leikinn kl. 20.00, svo gott er að koma
snemma og njóta alls frá byrjun.
NESKIRKJA: Messa og barnastarf kl. 11.
Litli kórinn – kór eldri borgara leiðir safn-
aðarsöng. Stjórnandi Inga J. Backman.
Organisti Steingrímur Þórhallsson. Dr. Sig-
urður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyr-
ir altari ásamt Þorvaldi Karli Helgasyni.
Börnin byrja í messunni en fara síðan í
safnaðarheimilið. Brúður, söngur, leikir,
bækur, límmiðar og fleira. Umsjón með
barnastarfinu hefur Guðmunda I. Gunn-
arsdóttir guðfræðingur.
SELTJARNARNESKIRKJA: Kristniboðsdag-
urinn haldinn hátíðlegur. Guðsþjónusta kl.
11.00. Guðlaugur Gunnarsson kristniboði
predikar, fermingarbörn lesa ritningartexta
og aðstoða í guðsþjónustunni. Barnakór
Seltjarnarneskirkju syngur undir stjórn
Vieru Manasek. Sunnudagaskólinn er á
sama tíma. Kammerkór Seltjarnar-
neskirkju syngur. Organisti er Pavel Man-
asek og prestur er Sigurður Grétar Helga-
son. Minnum á æskulýðsfélagið kl. 20.00.
ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN: Guðsþjónusta kl.
14.00. Barnastarf á sama tíma. Maul eftir
messu.
FRÍKIRKJAN í Reykjavík: Barnaguðsþjón-
usta kl. 11. Börn verða borin til skírnar.
Notast verður við gömlu Jesúmyndirnar
sem margir foreldrarnir fengu í kirkjunni á
sínum tíma. Umsjón hafa Ása Björk safn-
aðarprestur og Ari Bragi. Anna Sigríður
Helgadóttir syngur einsöng og Carl Möller
verður við hljóðfærið. Heitt verður á könn-
unni fyrir hina fullorðnu og auðvitað verður
munað eftir andabrauðinu og fuglunum við
Tjörnina í lok samveru.
ÁRBÆJARKIRKJA: Fjölskylduguðsþjón-
usta kl. 11. Kristniboðsdagurinn haldinn
hátíðlegur. Myndasýning frá Kristniboðinu,
kór STN og TTT leiða söng. Kaffi, djús og
kex að stundinni lokinni.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Messa kl. 11. Tekið
við gjöfum til Sambands íslenskra kristni-
boðsfélaga. Barnaguðsþjónusta kl.11.
Hressing eftir messuna. Prestur sr. Gísli
Jónasson. Organisti Keith Reed.
DIGRANESKIRKJA: Messa kl.11. Prestur
sr. Magnús Björn Björnsson. Organleikari
Kjartan Sigurjónsson. Kór Digraneskirkju B
hópur. Sunnudagaskóli á sama tíma í kap-
ellu. Léttur málsverður í safnaðarsal að
messu lokinni. Kvöldsamkoma kl. 20.
Unglingakór Digraneskirkju, stjórnandi
Heiðrún Hákonardóttir. Tónlist annast Ást-
ríður Haraldsdóttir og Þorvaldur Hall-
dórsson. Prestur sr. Magnús Björn Björns-
son (sjá nánar www.digraneskirkja.is).
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 11. Sr. Guðmundur Karl Ágústsson pré-
dikar og þjónar fyrir altari. Organisti er
Lenka Mátéová. Sunnudagaskóli er í safn-
aðarheimili kirkjunnar á sama tíma.
GRAFARVOGSKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11. Unglingakór Grafarvogskirkju og Ung-
lingakór Langholtskirkju Graduale Futuri
syngja. Stjórnendur eru Oddný J. Þor-
steinsdóttir og Bjarney I. Gunnlaugsdóttir.
Organisti er Hörður Bragason. Sr. Kjartan
Jónsson, framkvæmdastjóri KFUM og K,
prédikar, sr. Vigfús Þór Árnason þjónar fyrir
altari. Unglingakór Grafarvogskirkju verður
með kökusölu eftir guðsþjónustuna, allur
ágóðinn rennur í ferðasjóð kórsins sem
ætlar að fara í kórferð til Bandaríkjanna
næsta sumar. Einnig verður safnað fyrir
kristniboðið. Léttmessa kl.20. KK og Ellen
syngja. Hörður Bragason organisti leiðir al-
mennan söng. Birgir Bragason leikur á
bassa og Hjörleifur Valsson leikur á fiðlu.
Sr. Lena Rós Matthíasdóttir annast helgi-
hald. Barnaguðsþjónusta kl. 11 í Graf-
arvogskirkju. Prestur sr. Lena Rós Matth-
íasdóttir. Umsjón hafa Hjörtur og Rúna.
Undirleikari er Stefán Birgisson. Barna-
guðsþjónusta kl. 11 í Borgarholtsskóla.
Prestur sr. Elínborg Gísladóttir. Umsjón
hafa Dagný og Gummi. Undirleikari er Gróa
Hreinsdóttir.
HJALLAKIRKJA: Lofgjörðarguðsþjónusta
kl. 11. Skírn. Sr. Íris Kristjánsdóttir þjónar.
Skúli Svavarsson, kristniboði, prédikar.
Þorvaldur Halldórsson leikur létta og
skemmtilega tónlist. Barnaguðsþjónusta
kl. 13. Við minnum á bæna- og kyrrð-
arstund á þriðjudag kl. 18 (sjá einnig á
www.hjallakirkja.is).
KÓPAVOGSKIRKJA: Messa kl. 11. Sr. Sig-
urjón Árni Eyjólfsson predikar og þjónar fyr-
ir altari. Kór Kópavogskirkju syngur og leið-
ir safnaðarsöng, organisti Julian Hewlett.
Kaffisopi eftir messu. Barnastarf í kirkj-
unni kl. 12.30 í umsjón Önnu Kristínar,
Péturs Þórs og Laufeyjar Fríðu. Bæna- og
kyrrðarstund þriðjudag kl. 12.10.
LINDASÓKN í Kópavogi: Guðsþjónusta í
Lindaskóla kl. 11. Sunnudagaskóli fer
fram í skólastofum meðan á guðsþjónustu
stendur. Jón Ómar Gunnarsson guð-
fræðinemi sem nýverið fór til Eþíópíu á
vegum Kristniboðssambandsins, ásamt
hópi ungs fólks, prédikar og sýnir myndir
frá ferðinni. Að guðsþjónustu lokinni verð-
ur framreitt vestrænt afbrigði af eþíópíska
þjóðarréttinum vodd. Verð á mann 500 kr.,
hámark 2. 000 kr. fyrir fjölskyldu. Minnum
á akstur úr Vatnsenda- og Salahverfi. Kór
Lindakirkju leiðir safnaðarsöng, organisti
Hannes Baldursson. Sr. Guðmundur Karl
Brynjarsson þjónar.
SELJAKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl. 11.
Söngur, sögur, líf og fjör! Salóme Huld
Garðarsdóttir talar. Barnakórinn syngur
undir stjórn Önnu Margrétar Óskarsdóttur.
Guðsþjónustunni verður útvarpað. Guðs-
þjónusta kl. 14. Sr. Valgeir Ástráðsson pré-
dikar. Kór Seljakirkju leiðir söng. Organisti
Jón Bjarnason.
ÍSLENSKA KRISTSKIRKJAN, Fossaleyni
14, Grafarvogi: Morgunguðsþjónusta kl.
11. Fræðsla fyrir börn og fullorðna. Friðrik
Schram heldur áfram að ritskýra valda
kafla úr Rómverjabréfinu. Samkoma kl.
20. Mikil lofgjörð og fyrirbænir. Vilborg R.
Schram prédikar. Þáttur kirkjunnar „Um
trúna og tilveruna“ er sýndur á Omega kl.
13.30.
BOÐUNARKIRKJAN, Hlíðasmára 9, Kóp:
Samkomur alla laugardaga kl. 11.00.
Bænastund alla þriðjudaga kl. 20.00. Bibl-
íufræðsla allan sólarhringinn á Útvarp Boð-
un FM 105,5. Allir alltaf velkomnir.
FÆREYSKA SJÓMANNAHEIMILIÐ: Sam-
koma sunnudag kl. 20.30. Allir velkomnir.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Sunnudagur: Kl.
19.30 bænastund. Kl. 20 samkoma. Um-
sjón Miriam Óskarsdóttir. Mánudagur:
Heimilasamband. Ingeleif Øgmundsdóttir
talar.
FRÍKIRKJAN KEFAS, Vatnsendabletti
601: Samkoma kl. 14.00. Bryndís Svav-
arsdóttir talar. Lofgjörð og fyrirbænir. Tví-
skipt barnastarf fyrir 1–5 ára og 6–12 ára
börn á samkomutíma. Kaffi og samfélag
eftir samkomu. Allir eru velkomnir. Þriðju-
daginn 16. nóv. er bænastund kl. 20.30.
Föstudaginn 19. nóv. er 10–16 ára starf kl.
20.00.
KFUM og KFUK v/Holtaveg: Samkoma
kl.17 á „Kristniboðsdaginn“. Ræðumaður
Ragnar Gunnarsson. Kristniboðsþáttur í
höndum Salome Huldar Garðarsdóttur.
Mikill söngur og mikil lofgjörð. Tónlistin
byrjar 15 mínútum fyrir auglýstan sam-
komutíma. Undraland fyrir börnin. Matur á
vægu verði eftir samkomuna. Allir vel-
komnir.
FÍLADELFÍA: Almenn samkoma kl. 16.30.
Ræðum. Helge Flatoy frá Noregi. Gosp-
elkór Fíladelfíu leiðir lofgjörð. Fyrirbænir í
lok samkomu. Barnakirkja á meðan sam-
komunni stendur. Allir velkomnir. Miðviku-
daginn 17. nóv. kl 18.00 er fjölskyldu-
samvera – „súpa og brauð“. Ræðumaður
Ásmundur Magnússon. Allir velkomnir.
Fimmtudaginn 18. nóv. kl. 15.00 er sam-
vera eldri borgara. Bænastund alla laug-
ardaga kl. 20.00. Bænastundir alla virka
morgna kl. 06.00. www.gospel.is
KROSSINN: Almenn samkoma að Hlíða-
smára 5 kl. 16.30.
BETANÍA, Lynghálsi 3: Samkoma kl. 11
sunnudaga. Einnig samkomur kl. 19.30 á
föstudögum.
KIRKJA JESÚ KRISTS hinna síðari daga
heilögu, Mormónar, Ásabraut 2, Garða-
bæ: Guðsþjónusta sunnudag kl. 9 árdegis
á ensku og kl. 12 á íslensku.
KAÞÓLSKA KIRKJAN:
Reykjavík, Kristskirkja í Landakoti, dóm-
kirkja og basilíka: Sunnudaga: Messa kl.
10.30. Messa á ensku kl. 18.00. Alla
virka daga: Messa kl. 18.00. Miðvikudag-
inn 17. og föstudaginn 19. nóvember er
einnig messa kl. 8.00 (á latínu). Laug-
ardaga: Barnamessa kl. 14.00 að trú-
fræðslu lokinni. Jóhannes Páll II páfi boð-
aði það heimskirkjunni allri við hátíðlega
messu í Róm á dýradag, 10. júní á þessu
ári, að sérstakt ár yrði haldið sem „ár alt-
arissakramentisins“. Við viljum gjarnan
fylgja þessari hvatningu páfans. Þannig
verður frá októbermánuði á þessu ári hald-
in tilbeiðslustund í Kristskirkju á hverju
fimmtudagskvöldi að messu lokinni, þ.e.
frá kl. 18.30 til 19.15. Reykjavík, Mar-
íukirkja við Raufarsel: Sunnudaga: Messa
kl. 11.00. Laugardaga: Messa á ensku kl.
18.30. Virka daga: Messa kl. 18.30. „Ar
altarissakramentisins“: Tilbeiðslustund á
mánudögum frá kl. 19.00 til 20.00. Riftún
í Ölfusi: Sunnudaga: Messa kl. 16.00.
Miðvikudaga kl. 20.00. Hafnarfjörður, Jós-
efskirkja: Sunnudaga: Messa kl. 10.30.
Miðvikudaga: Messa kl. 18.30. „Ár alt-
arissakramentisins“: Tilbeiðslustund á
miðvikdögum kl. 17.30. Karmelklaustur:
Sunnudaga: Messa kl. 08.30. Virka daga:
Messa kl. 8.00. Keflavík, Barbörukapella:
Skólavegi 38: Sunnudaga: Messa kl.
14.00. Stykkishólmur, Austurgötu 7: Alla
virka daga: Messa kl. 18.30. Sunnudaga:
Messa kl. 10.00. Ísafjörður: Sunnudaga:
Messa kl. 11.00. Flateyri: Laugardaga:
Messa kl. 18.00. Bolungarvík: Sunnu-
daga kl. 16.00. Suðureyri: Sunnudaga:
Messa kl. 19.00. Akureyri, Kaþólska
kirkjan: Péturskirkja, Hrafnagilsstræti 2:
Laugardaga: Messa kl. 18.00. Sunnu-
daga: Messa kl. 11.00.
KIRKJA SJÖUNDA DAGS AÐVENTISTA:
Aðventkirkjan Ingólfsstræti 19, Reykja-
vík. Biblíufræðsla kl. 10.00. Guðþjónusta
kl. 11.00. Ræðumaður: Eric Guðmunds-
son. Loftsalurinn Hólshrauni 3, Hafn-
arfirði: Guðþjónusta/Biblíufræðsla kl.
11.00. Ræðumaður: Styrmir Ólafsson.
Safnaðarheimili aðventista Gagnheiði 40,
Selfossi: Biblíufræðsla kl. 10.00. Guð-
þjónusta kl. 11.00. Ræðumaður Björgvin
Snorrason. Safnaðarheimili aðventista
Blikabraut 2, Keflavík: Biblíufræðsla kl.
10.15. Guðþjónusta kl. 11.00. Ræðumað-
ur Kåre Kaspersen. Aðventkirkjan Breka-
stíg 17, Vestmannaeyjum: Biblíufræðsla
kl. 10.00. BRAUTARHOLTSKIRKJA á Kjal-
arnesi: Barnaguðsþjónusta sunnudag kl.
11 f.h. Gunnar Kristjánsson sókn-
arprestur.
LANDAKIRKJA í Vestmannaeyjum: Kristni-
boðsdagurinn. Kl. 11.00 Sunnudagaskóli í
Landakirkju. Dýrin í Hálsaskógi koma í
heimsókn, Lilli klifurmús, Mikki refur og
hugsanlega Marteinn skógarmús. Aldrei
að vita nema fleiri dýr komi og sýni sig. En
allir í skóginum eiga víst að vera vinir! Bibl-
íusagan verður á sínum stað, við biðjum
saman og syngjum. Barnafræðarar kirkj-
unnar halda utan um stundina ásamt
presti kirkjunnar. Fjölmennum með börnin.
Kl. 14.00 guðsþjónusta í Landakirkju. Ung-
barn verður borið til skírnar. Kór kirkjunnar
syngur undir stjórn Guðmundar H. Guð-
jónssonar organista. Fermingarbörn lesa
ritningarlestra. Foreldrar fermingarbarna
hvattir til að mæta með börnunum sínum.
Prestar sr. Þorvaldur Víðisson og sr. Krist-
ján Björnsson. Kl. 20.30 Æskulýðsfélag
Landakirkju og KFUM&K í Landakirkju.
Hulda Líney og sr. Þorvaldur.
LÁGAFELLSKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
20.30. Kristniboðsdagurinn. Ath. breyttan
tíma. Hugvekja Kristín Bjarnadóttir kristni-
boði. Einsöngur Gyða Björgvinsdóttir.
Saxófónleikur Sigurður Flosason. Kirkjukór
Lágafellssóknar. Organisti Jónas Þórir.
Tekið á móti framlögum til kristniboðs-
sambandsins. Sunnudagaskóli í safn-
aðarheimilinu kl. 13. Umsjón Hreiðar Örn
og Jónas Þórir. Jón Þorsteinsson.
HAFNARFJARÐARKIRKJA: Kristniboðs-
dagurinn. Fjölskylduhátíð kl. 11.00. Allir
leiðtogar sunnudagaskóla kirkjunnar taka
þátt og leikur hljómsveit þeirra undir söng.
Sr. Þórhallur Heimisson leiðir samkom-
una. Kirkjurútan ekur að venju. Rúta fer frá
Hvaleyrarskóla kl.10.55. Poppguðsþjón-
usta kl. 20.00. Hljómsveitin Gleðigjafarnir
leikur, sr. Þórhallur Heimisson leiðir sam-
komuna og sr. Gunnþór Ingason predikar.
Guðsþjónustunni bjóða fermingarbörn öll-
um kirkjugestum til kaffiveislu.
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði: Barna-
guðsþjónusta kl. 11. Skemmtileg stund
fyrir alla fjölskylduna. Messa kl. 14. Kór
Víðistaðasóknar syngur undir stjórn Úlriks
Ólasonar. www.vidistadakirkja.is
FRÍKIRKJAN í Hafnarfirði: Barnasamkoma
kl.11. Umsjón hafa Sigríður Kristín, Örn og
Hera. Góð stund fyrir alla fjölskylduna.
Guðsþjónusta kl. 13. Örn Arnarson og kór
kirkjunnar leiða tónlist og söng. Ferming-
arbörn eru hvött til þess að bjóða skírn-
arvottum sínum til kirkju. Ungliðakaffi að
lokinni guðsþjónustu til styrktar Usavarthi,
fósturdrengs á Indlandi.
ÁSTJARNARSÓKN, Samkomusal Hauka,
Ásvöllum: Barna- og fjölskylduguðsþjón-
usta sunnudag kl. 11. Kaffi, djús og kex
eftir helgihald.
KÁLFATJARNARSÓKN: Kirkjuskóli í Stóru-
Vogaskóla laugardaginn 13. nóvember kl.
11.15. Messa í Kálfatjarnarkirkju sunnu-
dag kl. 14. Altarisganga. Kaffispjall í þjón-
ustuhúsinu eftir helgihaldið.
VÍDALÍNSKIRKJA: Messa kristniboðs-
dagsins kl 11.00. Sunnudagaskólinn á
sama tíma, eldri og yngri hópar. Félagar úr
kór Vídalínskirkju leiða safnaðarsönginn
undir stjórn Jóhanns Baldvinssonar org-
anista. Tekið á móti samskotum til kristni-
boðsins. Sr. Friðrik J. Hjartar þjónar. Eftir
messu sjá félagar úr Kvenfélagi Garða-
bæjar um léttan málsverð í safnaðarheim-
ilinu sem borinn er fram í boði sókn-
arnefndar. Allir velkomnir. Prestarnir.
BESSASTAÐASÓKN: Sunnudagaskóli kl.
11.00 í sal Álftanesskóla. Ásgeir Páll,
Kristjana og Sara taka á móti öllum sem
mæta. Fjölmennum. Prestarnir.
BESSASTAÐAKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
14.00. Kristniboðsins minnst og tekið á
móti samskotum til starfs þess. Álft-
aneskórinn leiðir safnaðarsönginn undir
stjórn Sigrúnar M. Þórsteinsdóttur org-
anista. Sr. Friðrik J. Hjartar og Gréta Kon-
ráðsdóttir djákni þjóna. Allir velkomnir.
Prestarnir.
ÞORLÁKSKIRKJA: Sunnudagaskóli kl. 11.
Minnt er á helgistundir alla miðvikudaga
kl. 18. Baldur Kristjánsson.
NJARÐVÍKURKIRKJA (Innri-Njarðvík):
Guðsþjónusta kl. 14. Kristín Þórunn Tóm-
asdóttir héraðsprestur prédikar og þjónar
fyrir altari. Kór kirkjunnar syngur undir
stjórn Gísla Magnasonar organista. Með-
hjálpari Kristjana Gísladóttir. Baldur Rafn
Sigurðsson.
KEFLAVÍKURKIRKJA: Sunnudagaskóli kl.
11 árd. Elín Njálsdóttir umsjónarmaður.
Guðsþjónusta kl. 14 í Kirkjulundi. Barn
borið til skírnar. Prestur sr. Ólafur Oddur
Jónsson. Kór Keflavíkurkirkju leiðir söng.
Organisti og stjórnandi Hákon Leifsson.
Veitingar í boði sóknarnefndar eftir messu.
HVALSNESKIRKJA: Laugardagurinn 13.
nóvember: Safnaðarheimilið í Sandgerði.
Kirkjuskólinn kl.11. Allir velkomnir. NTT-
starfið – Níu til tólf ára starfið er í safn-
aðarheimilinu í Sandgerði á þriðjudögum
kl. 17. Samverustundir foreldra eru í safn-
aðarheimilinu á þriðjudögum kl. 13. Sókn-
arprestur.
ÚTSKÁLAKIRKJA: Laugardagurinn 13.
nóvember: Safnaðarheimilið Sæborg.
Kirkjuskólinn kl.13. Allir velkomnir. NTT-
starfið – Níu til tólf ára starfið er safn-
aðarheimilinu Sæborgu á fimmtudögum
kl. 17. Sóknarprestur.
HNÍFSDALSKAPELLA: Messa kl. 11.
Kvennakórinn syngur undir stjórn Huldu
Bragadóttur. Kirkjuskóli kl. 13. Sókn-
arprestur.
GOÐDALAKIRKJA í Skagafirði: 100 ára af-
mæli kirkjunnar. Hátíðarmessa sunnudag
kl. 13.30. Sr. Jón Aðalsteinn Baldvinsson
vígslubiskup prédikar. Sóknarprestur sr.
Ólafur Þ. Hallgrímsson þjónar fyrir altari.
Kirkjukór Mælifellsprestakalls syngur. Org-
anisti Sveinn Árnason. Kaffiveitingar í boði
sóknarnefndar verða á Bakkaflöt að lok-
inni athöfn og þar mun sóknarprestur flytja
erindi um kirkjuna.
SIGLUFJARÐARKIRKJA: Kirkjuskólinn
heldur áfram kl. 11.15–13. Rebbi refur og
Gulla gæs mæta. Mikið leirað í safn-
aðarheimilinu. Kl. 20.30–21.15 Taize-
messa við kertaljós og fallega söngva. Sig-
urður Ægisson.
HRÍSEYJARKIRKJA: Guðsþjónusta
kl.11.00. Yfirskrift: Samfélag í trú og gleði.
Kórar Stærra-Árskógskirkju og Hríseyj-
arkirkju syngja undir stjórn Arnórs Brynjars
Vilbergssonar við undirleik Kolbrúnar Jóns-
dóttur. Einnig verður stund með börnunum
og sungnir verða hreyfisöngvar.
STÆRRA-ÁRSKÓGSKIRKJA:
Guðsþjónusta kl. 14.00. Samfélag í trú og
gleði. Kórar Stærra-Árskógskirkju og Hrís-
eyjarkirkju syngja undir stjórn Arnórs Brynj-
ars Vilbergssonar við undirleik Kolbrúnar
Jónsdóttur. Einnig verður stund með börn-
unum og sungnir verða hreyfisöngvar.
BAKKA- OG BÆGISÁRSÓKNIR: Sameig-
inleg guðsþjónusta verður í Bakkakirkju í
Öxnadal sunnudag kl. 14. Kristniboðsdag-
urinn. Kirkjukaffi á Bakka á eftir. Allir vel-
komnir. Sóknarprestur.
AKUREYRARKIRKJA: Sunnudagaskóli kl.
11. Messa með léttri tónlist kl. 20.30. Sr.
Svavar A. Jónsson. Stúlknakór Akureyr-
arkirkju syngur undir stjórn Eyþórs Inga
Jónssonar. Snorri Guðvarðsson leikur á
gítar og Kristján Jónsson á bassa. Tekið
við samskotum til kristniboðs.
HJÁLPRÆÐISHERINN á Akureyri: Laug-
ardagur: Kvöldvaka með happdrætti kl. 20
í umsjá unglingahópsins. Sunnudagur: Al-
menn samkoma kl. 11. Erlingur Níelsson
flytur ræðuna. Sunnudagaskóli kl. 11. Allir
velkomnir.
KFUM og KFUK, Akureyri: Kaffisala á veg-
um Kristniboðsfélags kvenna í Sunnuhlíð
til ágóða fyrir kristniboðið í Eþíópíu og Ken-
ýa kl. 15 til 17 á sunnudag, 14. nóvember.
Kristniboðssamkoma kl. 20.30 um kvöld-
ið, ræðumaður er Jónas Þórisson kristni-
boði. Tekið á móti gjöfum til kristniboðs-
ins.
LJÓSAVATNSPRESTAKALL: Þorgeirs-
kirkja. Kyrrðarstund sunnudagskvöld kl.
20.30.
ÁSSÓKN í Fellabæ: Kirkjuselið í Fellabæ.
Kristniboðsdagurinn. Sunnudagaskólinn
kl. 11. Kl. 20.30 kvöldmessa. Sókn-
arprestar á Héraði þjóna fyrir altari í sam-
eiginlegri messu prestakallanna þriggja.
Allir velkomnir.
ODDAKIRKJA á Rangárvöllum: Guðsþjón-
usta kl. 11. Stúlknakórinn Hekla leiðir
sönginn. Organisti Nína María Morávek.
Sóknarprestur.
VILLINGAHOLTSKIRKJA: Guðsþjónusta
nk. sunnudag kl. 13.30. Organisti og kór-
stjóri Eyrún Jónasdóttir. Vænst er þátttöku
fermingarbarna og aðstandenda þeirra.
Stutt barnaguðsþjónusta eftir hefðbundna
guðsþjónustu. Eftir guðsþjónustuna verður
fermingarfræðsla. Kristinn Á. Friðfinnsson.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA: Messa sunnu-
dag kl. 11. Sóknarprestur.
TORFASTAÐAKIRKJA: Kvöldguðsþjónusta
sunnudagskvöld kl. 20.30. Aðalsafn-
aðarfundur Torfastaðasóknar verður að
guðsþjónustu lokinni. Sóknarprestur og
sóknarnefnd Torfastaðasóknar.
SELFOSSKIRKJA: Messa sunnudag kl.
11. Sunnudagaskóli hefst kl. 11.15. Létt-
ur hádegisverður að lokinni messu. Morg-
untíð sungin þriðjudag til föstudags kl. 10,
kaffisopi á eftir. Foreldramorgnar miðviku-
daga kl. 11. Næsta miðvikudag kemur
Svanborg Egilsdóttir ljósmóðir í heimsókn.
EYRARBAKKAKIRKJA: Messa kl. 14.
Morgunblaðið/ÓSÁ
Kálfatjarnarkirkja
Guðspjall dagsins:
Skattpeningurinn.
Kristniboðsdagurinn.
(Matt. 22.)