Morgunblaðið - 13.11.2004, Síða 61
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. NÓVEMBER 2004 61
Morphine“ og „As Tears Go By“ frá
upphafi tónlistarferils hennar.
Fagnaðarlætin sem fylgja síðast-
nefndu lögunum gefa klárlega til
kynna að það voru gömlu lögin sem
flestir tónleikagesta vonuðust til að
heyra.
Og Faithfull lætur ljúflega að
óskum gesta, hvort sem þeir minn-
ast hennar helst frá sjöunda ára-
tugnum, uppgötvuðu söngkonuna
við endurkomu hennar undir lok
áttunda áratugarins, nú eða kynnt-
ust henni nýlega fyrir tilstilli yngri
tónlistarmanna á borð við Cave, Al-
barn eða Jarvis Cocker. Það er létt
yfir Faithfull á tónleikunum, hún
spjallar við gesti, er laus við tilgerð,
viðurkennir að hún sé taugaóstyrk
og lætur framíköll sér í léttu rúmi
liggja á meðan hún syngur lag eftir
lag í tæplega tveggja tíma vel út-
hugsaðri dagskrá. Gömlu lögin, að-
eins yngri lög og svo nýju lögin
hljóma öll í bland og tryggja að eng-
um aðdáanda söngkonunnar finnst
hún vanrækja „sitt“ tímabil. Lögin
sem flutt eru af Before the Poison
eru líka viturlega valin og búa yfir
sömu tilfinningu trega, gamalla
drauma og brostinna vona sem
henta rödd og persónu Faithfull svo
vel. Fyrir vikið virka þau líka kunn-
ugleg í eyrum tónleikagesta sem
ekki tapa þræðinum, enda hér engin
óþarfa áhætta tekin sem sýnt gæti
söngkonuna í nýju og óþægilegu
ljósi. Fagnaðarlætin í tónleikalok
sýna líka og sanna að áheyrendur
kunnu vel að meta það sem í boði
var.
Marianne Faithfull er kannski
ekki lengur kyntákn sveipuð ljóma
af sambandi við eina af stærstu
stjörnum sjöunda áratugarins. En
árin sem liðið hafa, gleði og sorgir,
vonir og vonbrigði, hafa gefið söng
hennar vissan brodd sem fyrir til-
stilli þessarar seiðandi og sér-
kennilegu raddar hljómar enn meira
sannfærandi fyrir vikið.
Anna Sigríður Einarsdóttir
MIÐASALA á tónleika Stranglers í íþróttahúsinu Smáranum,
Kópavogi, hefst í dag. Tónleikarnir fara fram laugardaginn 4.
desember og sjá Fræbbblarnir um upphitun.
Miðasalan hefst á hádegi og verða miðarnir seldir í Aðalstöð-
inni Keflavík, Skútunesti Akranesi, Fossnesti Selfossi, Leiruvegi
Akureyri og á Nestisstöðvunum Ártúnshöfða, Háholti Mosfellsbæ,
Gagnvegi, Borgartúni, Geirsgötu, Stórahjalla Kópavogi og Lækj-
argötu.
Aðeins eitt verð er á miðum, 3.900 krónur, en bæði er boðið upp
á stæði og sæti.
The Stranglers er ein helsta sveitin sem tengd hefur verið
breska pönkinu, þó að sveitin hafi reyndar byrjað nokkru fyrr en
sú bylgja skall á. Sveitin lék hérlendis árið 1978 og átti stóran
þátt í því að hrinda af stað íslensku pönkbylgjunni. Stranglers á
að baki glæstan feril, var einkar áhrifarík sveit en á meðal
þekktra laga eru t.d. „No More Heroes“, „Golden Brown“, „Al-
ways the Sun“ og „Nice in Nice“. Nýverið kom út platan Norfolk
Coast og hefur hún fengið góða dóma gagnrýnenda.
Tónleikar | Stranglers í Smáranum
Miðasala hefst í dag
The Stranglers, eins og þessir framverðir pönkbylgjunnar líta út í dag.
Ómar segir að stefnt verði að því
að stilla upp graffítíverkum á svið-
inu til að sýna heildarmynd hipp-
hopp-menningar, sem sam-
anstendur af breiki, graffítí, MC og
DJ. Það er við hæfi því í gær átti
hipphopp-menning formlegt af-
mæli. 12. nóvember fyrir þremur
áratugum gerði götuhreyfingin
Zulu Nation, undir stjórn Afrika
Bambaataa, daginn að formlegum
stofndegi hipphopps.
Íslenskt hipphopp
alltaf að þéttast
Hipphopp-menningin á Íslandi
færist enn í aukana þótt hún hafi
ekki lifað nærri eins lengi á land-
inu. „Hún er alltaf að þéttast og
eflast þó hún sé ekki alltaf í sviðs-
ljósinu. Núna er meira um það að
fólk starfi með fólki erlendis,“ seg-
ir hann og bendir á Antlew/
Maximum og Cell 7 í þessu sam-
bandi. „Taktsmiðir hér á landi
vinna líka með bandarískum röpp-
urum að gera lög í gegnum Netið.“
Óhætt er að segja að hipphopp
njóti mikilla vinsælda í heiminum.
Fjórða plata Eminem, Encore,
kom út í gær og er búist við að hún
seljist vel. Strax var búið að senda
3,5 milljónir eintaka í plötubúðir í
Bandaríkjunum.
TFA var stofnað árið 1998 og
eru samtökin búin að standa fyrir
keppnum frá 1999 og er Ómar því
vanur að standa að svona skipu-
lagningu. Hann segir að það hjálpi
mjög að halda keppnir sem þessar
innan Unglistar en það var gert í
fyrsta sinn í fyrra. „Það er alveg
frábært. Það auðveldar mjög að
halda viðburði með Hinu húsinu.
Þetta er þvílíkur stuðningur sem
kemur af Unglist. Mér finnst þetta
vanmetin hátíð því hún gerir svo
mikið fyrir menninguna. Margir
komast á kortið bara fyrir Ung-
list.“
Keppnin byrjar klukkan 20 í Tjarn-
arbíói og húsið verður opnað hálf-
tíma fyrr. Ókeypis er inn og ekkert
aldurstakmark.
www.unglist.is
www.hiphop.is
ingarun@mbl.is