Morgunblaðið - 22.11.2004, Síða 3
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. NÓVEMBER 2004 B 3
Golfvöllur
Oddfellowa
Aðalfundarboð
Aðalfundur Golfklúbbsins Odds verður haldinn
sunnudaginn 28. nóvember kl. 13.00.
Fundarstaður: Golfskálinn, Urriðavatnsdölum.
Dagskrá:
● Skýrsla stjórnar.
● Kynning á endurskoðuðum ársreikningi félagsins.
● Umræður um skýrslu stjórnar og ársreikning.
● Umræður og atkvæðagreiðsla um lagabreytingar ef einhverjar eru.
● Kosning stjórnar og varamanna í stjórn.
● Önnur mál.
ÞAÐ sem hefur sett stóran svart-
an blett á knattspyrnuna í Evrópu
á undanförnum árum eru kyn-
þáttafordómar. Það er óþolandi
að hópur áhorfenda þjóðanna á
Balkanskaga, á Ítalíu og á Spáni,
já, jafnvel í Hollandi, hafa fengið
að vaða uppi og gert dökkum
knattspyrnumönnum lífið leitt
með ókvæðishrópum og komist
upp með að kasta í þá ýmsu laus-
legu. Það var frægt fyrir rúmu
ári þegar leikmenn Arsenal fengu
heldur betur að kynnast kyn-
þáttafordómum áhorfenda og
mótherja í Valencia á Spáni, þar
sem áhofendur hafa oftar en ekki
sýnt kynþáttahatur í orði og
verki. Þá sagði Patrik Vieira, fyr-
irliði Arsenal, að Knatt-
spyrnusamband Evrópu,
UEFA, þori ekki að taka af
alvöru á kynþáttafordómum
sem fari stöðugt vaxandi á
meginlandi Evrópu.
Það er ekki langt síðan dómari
í Hollandi, sem dæmdi leik
Eindhoven og Den Haag, ákvað
að blása leikinn af er tíu mínútur
voru eftir – þar sem hann taldi að
stuðningsmenn Den Haag hefðu
farið yfir strikið í kynþátta-
fordómum gegn leikmönnum
Eindhoven.
Þá var það frægt á dögunum
þegar Luis Aragones, landsliðs-
þjálfari Spánverja, ræddi nið-
urlægjandi um Thierry Henry,
leikmann Arsenal og franska
landsliðsins – fyrir landsleik á
Spáni og kallaði Henry, einn
besta og virtasta knattspyrnu-
mann heims, svartan skít.
Þegar landsliðsþjálfarar reyna
að stappa stálinu í sína menn með
kynþáttafordómum fyrir lands-
leiki, er ekki að búast við fyr-
irmyndar framkomu áhorfenda á
leikjum, sem Henry fékk svo að
kynnast.
Aragones varð sér til minnk-
unar og hann verður að lifa við
það, að margir líta á hann sem
kjána, enda ekki annað hægt.
Spánn var svo aftur vettvangur
kynþáttahaturs í sl. viku, þegar
ungmennalið Spánar og Englands
áttust þar við. Eftir leikinn sendi
enska knattspyrnusambandið frá
sér skriflega kvörtun til Knatt-
spyrnusambands Evrópu, UEFA,
vegna þess að þrír leikmenn
enska landsliðsins urðu fyrir
barðinu á kynþáttafordómum.
Hluti áhorfenda á leiknum mun
ítrekað hafa gert gys að litar-
hætti þeirra Carlton Cole, Darren
Bent og Glen Johnson, en þeir eru
blökkumenn.
Sama dag og enska knatt-
spyrnusambandið kvartaði, end-
urtók leikurinn sig þegar Spán-
verjar og Englendingar léku
a-landsleik á Bernabeu-leikvell-
inum í Madrid. Hróp voru gerð að
dökkum leikmönnum enska liðs-
ins í hvert skipti sem þeir komu
við knöttinn, eða voru á ferðinni á
hliðarlínunni við áhorfendabekki
– þegar þeir tóku innköst eða
hornspyrnur.
Framkoma margra áhorfenda
var vægast sagt óþolandi – og
börn og unglingar, sem voru á
leiknum, horfðu upp á framkomu
sem ekki er boðleg. Kynþáttahat-
ur á hvergi að líða – hvorki á
knattspyrnuvöllum né á öðrum
stöðum.
Spánverjar verða að taka til í
sínum garði. Það þýðir ekkert
fyrir þá að vonast eftir að fá að
halda Ólympíuleikana 2012 í
Madrid, þegar dökkir keppendur
eru óvelkomnir til borgarinnar
og verða fyrir aðkasti. Spánverj-
ar geta ekki með sanni sagt að
Madrid sé opin og vinaleg borg,
þegar kynþáttahatur kraumar
innan borgarmúra og fær að ráða
ríkjum á opinberum stöðum.
55 þúsund áhorfendur voru á
Bernabeu-vellinum þegar ófögn-
uðurinn átti sér stað. Þrátt fyrir
að fyrir leikinn hafi tíu mín. löng
mynd verið sýnd á stóru tjaldi –
með áróðri gegn kynþátta-
fordómum og á vellinum hafi ver-
ið komið fyrir borðum til að skora
á menn að sameinast um að vinna
gegn kynþáttafordómum á knatt-
spyrnuvöllum.
Það er ljóst að forráðamenn
knattspyrnumála á Spáni eiga
mikið verk fyrir höndum og einn-
ig Knattspyrnusamband Evrópu,
UEFA. Sambandið getur ekki
lengur setið auðum höndum og
horft upp á þann ófögnuð sem er
að magnast í mörgum löndum og
er byrjuð að skjóta rótum hjá
þjálfurum og leikmönnum. Burt
með ófögnuðinn!
Sigmundur Ó. Steinarsson
sos@mbl.is
Burt með
ófögnuðinn
Á VELLINUM
VIGGÓ: Þrír markverðir hafa verið
kallaðir til sögunnar – Birkir Ívar
Guðmundsson, 28 ára (54 landsleikir),
Heiðar Guðmundsson, 24 ára (1), og
Roland Valur Eradze, 33 ára (27),
sem hafa ekki mikla reynslu í alþjóð-
legum stórmótum.
VINSTRA HORN
BOGDAN: Guðmundur Þórður
Guðmundsson og Jakob Sigurðsson.
ÞORBJÖRN: Gústaf Bjarnason og
Konráð Olavson.
GUÐMUNDUR ÞÓRÐUR: Gústaf
Bjarnason og Guðjón Valur Sigurðs-
son, sem er mjög öflugur hornamað-
ur, sem getur brugðið sér í skyttu-
hlutverk.
VIGGÓ: Guðjón Valur Sigurðsson,
25 ára (114), og Logi Geirsson, 22 ára
(11), sem getur einnig brugðið sér í
hlutverk skyttu. Guðjón Valur hefur
ekki verið eins öflugur og áður að
undanförnu, Logi er að hefja sinn feril
sem leikmaður með þýska meistara-
liðinu Lemgo og á eftir að sanna sig.
LÍNA
BOGDAN: Þorgils Óttar Mathie-
sen, sem var í hópi bestu línumanna
heims og valinn til að leika með
heimsliði.
ÞORBJÖRN: Geir Sveinsson, sem
var einnig í hópi bestu línumanna
heims og valinn lið HM 1995.
GUÐMUNDUR ÞÓRÐUR: Sigfús
Sigurðsson og Róbert Sighvatsson,
mjög traustir línumenn.
VIGGÓ: Róbert Gunnarsson, 24
ára (41), sem er geysilega öflugur
línumaður og hefur verið einn mesti
markaskorari í dönsku 1. deildar-
keppninni undanfarin tvö ár. Vignir
Svavarsson, 24 ára (13).
HÆGRA HORN
BOGDAN: Valdimar Grímsson,
sem var valinn sex sinnum til að leika
með heimsliðinu og var valinn í lið
HM 1997 í Japan. Bjarki Sigurðsson,
sem var einnig valinn í heimslið og í
lið HM 1993 í Svíþjóð. Tveir frábærir
hornamenn.
ÞORBJÖRN: Valdimar Grímsson
og Bjarki Sigurðsson.
GUÐMUNDUR ÞÓRÐUR: Einar
Örn Jónsson.
VIGGÓ: Einar Örn Jónsson, 28 ára
(100), og Þórir Ólafsson, 25 ára (4).
Einar Örn hefur ekki náð sér á strik
eftir EM í Svíþjóð 2002 og eftir að
hann gerðist leikmaður með Wallau
Massenheim í Þýskalandi. Þórir á
margt eftir ólært.
VINSTRI SKYTTA
BOGDAN: Alfreð Gíslason, sem
var leikmaður á heimsmælikvarða og
valinn leikmaður B-keppninnar í
Frakklandi 1989, Atli Hilmarsson,
Júlíus Jónasson og Héðinn Gilssson.
ÞORBJÖRN: Sigurður Bjarnason,
Julian Róbert Duranona, Júlíus
Gunnarsson og Patrekur Jóhannsson.
GUÐMUNDUR ÞÓRÐUR: Sigurð-
ur Bjarnason og Dagur Sigurðsson.
VIGGÓ: Jaliesky Garcia Padron, 29
ára (29), Markús Máni Michaelsson,
23 ára (6), Arnór Atlason, 20 ára (7) og
Ingimundur Ingimundarson, 24 ára
(8).
Garcia er afar einhæfur leikmaður,
en þeir Markús Máni, Ingimundur og
Arnór eiga margt eftir ólært í göldr-
um handknattleiksins.
LEIKSTJÓRN
BOGDAN: Sigurður Gunnarsson
og Páll Ólafsson, sem vann sér það
orð að vera fjölhæfasti leikmaður
Þýskalands er hann lék þar.
ÞORBJÖRN: Patrekur Jóhannes-
son og Dagur Sigurðsson.
GUÐMUNDUR ÞÓRÐUR: Patrek-
ur Jóhannesson, Dagur Sigurðsson,
Aron Kristjánsson og Snorri Steinn
Guðjónsson.
VIGGÓ: Dagur Sigurðsson, 31 árs
(194), og Snorri Steinn Guðjónsson,
23 ára (55). Dagur hefur lengi verið í
skugga Patreks Jóhannessonar sem
leikstjórnandi og virðist eiga nokkuð í
land að ná sinni fyrri getu. Snorra
Stein vantar sjálfstraust til að láta
verkin tala.
HÆGRI SKYTTA
BOGDAN: Kristján Arason, sem
var valinn til að leika með heimsliði og
útnefndur í hóp bestu handknattleiks-
manna heims hjá alþjóða handknatt-
leikssambandinu, IHF, og Sigurður
Sveinsson. Tveir af litríkustu hand-
knattleiksmönnum Íslands.
ÞORBJÖRN: Ólafur Stefánsson,
sem var tvö ár í röð valinn handknatt-
leiksmaður Þýskalands. Einn besti
leikmaður heims.
GUÐMUNDUR ÞÓRÐUR: Ólafur
Stefánsson, sem var valinn í lið EM í
Svíþjóð 2002.
VIGGÓ: Ásgeir Örn Hallgrímsson,
20 ára (31), og Einar Hólmgeirsson,
22 ára (16), tveir ungir leikmenn, sem
eiga framtíðina fyrir sér í skyttustöð-
unni. Ásgeir Örn leikur svipaðan
handknattleik og Ólafur Stefánsson,
en Einar líkist frekar Sigurði Sveins-
syni – skytta.
Þess má geta að landsliðshópur
Viggós á eftir að styrkjast mikið þeg-
ar Ólafur Stefánsson og Sigfús Sig-
urðsson verða tilbúnir í slaginn. Og þá
á hann alltaf þann möguleika að velja
Alexander Peterssons í stöðu skyttu
vinstra megin.
Aðrir leikmenn, sem léku ekki í
Svíþjóð og eru í sjónmálinu, eru Gylfi
Gylfason, hornamaður hægra megin,
Róbert Sighvatsson, línumaður og
Ragnar Óskarsson, leikstjórnandi,
svo einhverjir séu nefndir.
Morgunblaðið/Golli
Guðjón Valur Sigurðsson og Rúnar Sigtryggsson fagna gegn Kóreu á Ólympíuleikunum í Aþenu.
ÍSLENSKA landsliðið í hand-
knattleik – undir stjórn Guð-
mundar Þórðar Guðmundssonar
– tók þátt í öllum stórmótum sem
boðið var upp á þegar hann var
með liðið.
Undir stjórn Guðmundar
tryggði landsliðið sér rétt á að
leika á Evrópumótinu í Svíþjóð
2002. Þar varð liðið í fjórða sæti
og tryggði sér rétt til að taka
þátt í heimsmeistarakeppninni í
Portúgal 2003 og EM í Slóveníu
2004. Á HM í Portúgal tryggði
landsliðið sér rétt til að leika á
ÓL í Aþenu – eina Norður-
landaþjóðin. Áður en var farið á
ÓL tryggði landsliðið sér rétt til
að taka þátt í HM í Túnis, sem
verður í janúar komandi.
Alltaf með á stórmóti
undir stjórn Guðmundar
Stjórn KSÍ leggur ekki
til fjölgun árið 2006
STJÓRN Knattspyrnusambands Íslands tilkynnti á fundi með for-
mönnum félaga á laugardaginn að hún myndi ekki leggja fram til-
lögu á ársþinginu í febrúar um að liðum í efstu deild karla yrði
fjölgað úr tíu í tólf árið 2006. Að mati sambandsins þarf að lengja
tímabilið um tvær vikur, og þá að vori, til að fjölgun geti orðið, og
heimavellir félaganna geti ekki tekið við leikjum svo snemma vors.
Til að málið verði tekið fyrir á ársþinginu þarf því að koma fram
tillaga þar að lútandi frá einhverju aðildarfélaga KSÍ.