Morgunblaðið - 06.12.2004, Síða 1
mánudagur 6. desember 2004 mbl.is
Fasteignablaðið
// Markaðurinn
Greiðslumati er ætlað að sýna fjárhagsstöðu
og greiðslugetu viðkomandi, enda mikilvægt
fyrir bæði lánveitanda og lántaka að ráðist
sé í raunhæfar fjárfestingar. 2
// Útsýnisíbúðir
Gott útsýni mun einkenna íbúðirnar í nýju
fjölbýlishúsi sem er í smíðum við Löngu-
línu 7 í Garðabæ. Í húsinu verða 19 íbúðir
og lyfta. 26
// Jólastjarna
Jólastjörnur kjósa stofuhita, óbeina birtu og
engan dragsúg. Áburðargjöf er óþörf þegar
hún er í blóma og hún getur fellt blöðin verði
henni kalt í flutningum milli húsa. 36
// Bollagarðar
Bollagarðar voru einn af gömlu bæjunum á
Seltjarnarnesi, en eru nú hluti af stóru ein-
býlishúsahverfi. Atli Þór, Bryndís og Ási búa
nú á Bollagörðum. 44
Óendanlegir
möguleikar
!
!
"
# $
%
%
#
#
&
&
'
'
("%% )
*
!*
'*
*
+
+
+
+
!"
#&
'$&
&!
#$! !%
,-
.
" "
/ 0 12"
345/ 6"
70 "0
"6"
8"12"
9 :"556"
;< " =
&' 6"-"
;< " =
&'
8 ".6
>
"
!%')
&
&
!
'&
&$%
%%
'$#
EMBÆTTI byggingarfulltrúans í
Reykjavík er 100 ára á þessu ári. Af
því tilefni var haldið málþing í Ráð-
húsi Reykjavíkur í síðustu viku sem
bar yfirskriftina „Er Reykjavík falleg
borg?“ Steinunn Valdís Óskarsdóttir
borgarstjóri og Magnús Sædal Svav-
arsson byggingarfulltrúi röktu stutt-
lega sögu embættisins, en Salvör
Jónsdóttir, sviðsstjóri skipulags- og
byggingarsviðs Reykjavíkur, stýrði
málþinginu og pallborði.
Fyrsti byggingarfulltrúinn, Knud
Zimsen verkfræðingur, síðar borgar-
stjóri, tók til starfa 1. apríl 1904 en þá
hafði byggingarnefnd Reykjavíkur
þegar starfað í 65 ár eða frá 29. maí
1839. Embætti byggingarfulltrúans
hefur haft mikil áhrif á útlit borgar-
innar, sérstaklega fyrstu áratugina
en þá var byggingarnefnd jafnframt
skipulagsnefnd borgarinnar.
Frummælendur á málþinginu voru
Andri Snær Magnason rithöfundur,
Áslaug Thorlacius myndlistarmaður,
Egill Ólafsson tónlistarmaður, Hilm-
ar Þór Björnsson arkitekt og Ómar
Ragnarsson fréttamaður. Þau leituð-
ust við að svara spurningunni í yfir-
skrift þingsins og sagði Andri Snær
m.a. að fegurð væri ákvörðun því fólk
tæki ákvörðun um það hvað því þætti
fallegt. Hann benti á að hús ættu
sögulegan rétt og mikilvægt væri að
skilja hluta af sögunni eftir handa
komandi kynslóðum. Egill Ólafsson
flutti beitta ádrepu um það að slæm
umgengni væri óvirðing við umhverf-
ið, en Hilmar Þór lagði til í ræðu sinni
að borgarbúar reyndu að upplifa
Reykjavík með sama hætti og þegar
þeir heimsækja erlendar borgir.
Hann sagði að allir ættu að prófa að
upplifa einn dag í Reykjavík eins og
þeir væru ferðamenn. Það mætti gera
með því að byrja daginn á því að
borða morgunmat á veitingahúsi,
ganga síðan um bæinn og versla,
skoða byggingar og söfn og fá sér loks
góðan kvöldverð á veitingastað. Með
þeim hætti fengi fólk nýja sýn á borg-
ina sína og mannlífið yrði litríkara.
Ómar Ragnarsson klykkti út með að
segja að höfuðborgin væri hjartað í
þjóðlífinu.
„Höfuðborgin er
hjartað í þjóðlífinu“
Morgunblaðið/Kristinn
Magnús Sædal Svavarsson byggingarfulltrúi flutti ræðu á málþingi sem haldið
var í tilefni af 100 ára afmæli embættis byggingarfulltrúa Reykjavíkur.