Morgunblaðið - 06.12.2004, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 06.12.2004, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. DESEMBER 2004 F 15 SÉRBÝLI ATVINNUHÚSNÆÐI HÆÐIR 4RA-6 HERB. 3JA HERB. Langholtsvegur Falleg og mikið end- urnýjuð 81 fm íbúð í kj. Ný og glæsileg inn- rétting í eldhúsi, rúmgóð stofa, tvö herb. og flísalagt baðherb. með nýjum sturtuklefa. Parket á gólfum. Þvottaaðst. í íbúð. Laus strax. Verð 14,4 millj. Grundarstígur Mjög falleg og mikið endurn. 91 fm íbúð á 2. hæð í góðu steinhúsi í hjarta miðborgarinnar. Rúmgóð stofa, tvö herb. með góðum skápum, flísal. baðherb. og eldhús m. hvítum innrétt. og borðaðst. Stórar svalir út af öðru herb. m. útsýni til suðv. Þvottaaðst. í íbúð og sérgeymsla í kj. Áhv. húsbr. 4,1 millj. Verð 16,9 millj. Langholtsvegur Nýkomin í sölu falleg 80 fm íbúð í kjallara í góðu steinhúsi auk sér geymslu í kj. Parketl. stofa, eldhús m. upp- gerðri innrétt. og borðaðst., 2 rúmgóð herb. og baðherb.Nýlegt gler og gluggar og hús í góðu ástandi að utan. Sér bílastæði á lóð. Verð 13,9 millj. 2JA HERB. Grettisgata - sérinng. Falleg og nánast algjörlega endurnýjuð 42 fm íbúð á jarðhæð m. sérinng. Nýleg gólfefni, innrétt- ingar, tæki og lagnir. Laus strax. Verð 8,7 millj. Nökkvavogur Mjög góð 58 fm íbúð á 1. hæð auk 12 fm sér íbúðarherb. í kj. Íb. skiptist í forst., stórt herb. m. góðum skáp- um, baðherb., stofu og eldhús með borðað- stöðu auk geymslu. Flísar á gólfum. Laus strax. Áhv. húsbr. Verð 10,9 millj. Íbúðin er til sölu eða leigu. SUMARBÚSTAÐIR Sumarbúst. - Skorradal Nýr og glæsilegur 81 fm sumarbústaður í byggingu í Hvammsskógi, Skorradal, með glæsilegu út- sýni yfir Skorradalsvatn. Bústaðurinn skiptist í forstofu, stóra stofu, eldhús, tvö herbergi og snyrtingu auk geymslu. Stór verönd. Verð 18,0 millj. Sumarb. í landi Nesja Glæsi- legt um 127 fm sumarhús í landi Nesja við Þingvallavatn. Húsið er hæð og upp- steyptur kj., afar vel staðsett með glæsi- legu útsýni yfir Þingvallavatn og allan fjallahringinn. Á hæðinni er alrými, stofa, borðstofa, eldhús og 2 svefnherb. Niðri er rúmgott svefnherb., stórt baðherb., þvottaherb., saunaklefi og geymsla. 55 fm timburverönd umlykur alla efri hæð bústaðsins. Leigulóð ræktuð trjám og runnum. EINSTÖK STAÐSETNING Í FALLEGU UMHVERFI. Seljavegur Góð 3ja herb. risíbúð í þríbýli í vesturbænum. Eldhús m. nýlegri innréttingu og borðaðstöðu, stofa og tvö herb., bæði með skápum. Nýtt raf- magn og tafla fyrir húsið. Verð 11,0 millj. Brunabótamat 8,4 millj. Austurströnd - Seltj. Hárgreiðslu- stofa í eigin húsnæði við Austurströnd með góðum gluggum með miklu auglýsingagildi. Húsnæðið er 63 fm og skiptist í stórt opið rými auk kaffistofu og w.c. Hús nýlega við- gert og málað að utan. Næg bílastæði. Verð á húsnæði 9,9 millj. og rekstur 3,0 millj. Nánari uppl. veittar á skrifstofu. Ánanaust Virðulegt skrifstofu- og versl- unarhús. Húsið er á þremur hæðum, sam- tals að gólffleti 1817 fm. Innréttingar og sameign í góðu ásigkomulagi. Góð aðkoma og næg bílastæði. Útsýni yfir Faxaflóann. Húsnæðið er að mestu leyti laust nú þegar. Heimild fyrir byggingu einnar hæðar ofan á húsið. Möguleiki að breyta húsnæðinu í íbúðir. Allar nánari uppl. veittar á skrifstofu. Ármúli Heil húseign við Ármúla. Um er að ræða 3.046 fm alls, sem skiptast í versl- unarhúsnæði á götuhæð, skrifstofuhúsnæði á 2. hæð auk geymslukjallara og iðnaðar- húsnæðis á tveimur hæðum með innkeyrslu á báðar hæðir. Lóð frágengin með malbik- uðu plani og góðu athafnarými. Húseignin er nánast öll í útleigu í dag. Nánari uppl. veittar á skrifstofu. Eirhöfði 1.150 fm iðnaðarhúsnæði á þremur hæðum sem er sérhannað undir matvælaiðnað, en býður upp á mikla mögu- leika hvað varðar notkun. Á aðalhæð er vörumóttaka, vinnslusalur, skrifstofur o.fl., á jarðhæð eru 4 rými með innkeyrsludyrum og góðri lofthæð og á efri hæð eru skrifstof- ur o.fl. Húseign í góðu ástandi. Aðkoma með besta móti, malbikað plan beggja vegna hússins og fjöldi bílastæða. Heil húseign við Stangarhyl. Húsnæðið er vel innréttað sem skrif- stofu- og lagerhúsnæði með inn- keyrsludyrum. Eignin er í dag að mestu nýtt af eiganda hennar en er að hluta til í útleigu til skemmri tíma. Góð aðkoma er að eigninni og næg bílastæði. Nánari upplýsingar veittar á skrifstofu. Kringlan - skrifstofuhæð Góð skrifstofuhæð á 7. hæð að séreignarflatar- máli 278 fm auk hlutdeildar í sameign og bílastæðarýmum. Hæðin skiptist í opið rými, 9 lokuð herbergi og tvær geymslur. Verð 75,0 millj. Smiðjuvegur - Kóp. Glæsilegt 525 fm skrifstofuhúsnæði á tveimur hæðum í nýlegu húsi. Húsnæðið er innréttað á afar vandaðan og smekklegan hátt og er vel búið tölvu- og símalögnum. Fjöldi skrif- stofuherbergja, auk móttöku á báðum hæðum o.fl. Mikil lofthæð. Næg bílastæði. Verð 59,0 millj. Smiðshöfði Tvær húseignir: Annars vegar iðnaðarhúsnæði, stálgrindarhús, að gólffleti 1558 fm auk 88 fm steinsteypts verkstæðishúss. Þrennar innkeyrsludyr. Hins vegar 582 fm iðnaðarhúsnæði auk létts millilofts. Tvennar innkeyrsludyr. Mal- arborin lóð. Nánari uppl. veittar á skrif- stofu. Laugavegur - skrifstofu- húsn. til leigu Vandað og vel inn- réttað skrifstofuhúsnæði á 4. hæð til leigu í góðu steinhúsi í hjarta miðborgar- innar. Nánari uppl. veittar á skrifstofu. Borgartún - skrifstofuhúsnæði Höfum til sölu gott 116 fm skrifstofu- húsnæði á 2. hæð. Húsnæðið skiptist í móttöku, opið rými, skrifstofueldhús og tvö afstúkuð herbergi. Vel staðsett eign við fjuölfarna umferðaræð. Verð 14,2 millj. Bakkabraut - Kópavogi Atvinnuhúsnæði samtals að gólffleti 302 fm sem skiptist í tvö bil, 151 fm hvort. Annað bilið er vel innréttað og með litlu millilofti, en hitt er minna innréttað, en með stóru og góðu millilofti. Getur elst sitt í hvoru lagi. Nánari uppl. veittar á skrifstofu. Skipholt - vefnaðar- og kvenfataversl- un í eigin húsnæði Ein af elstu starfandi verslunum í Reykjavík. Verslunin er í um 40 fm eigin húsnæði og verslar með kvenfatnað og vefnaðarvöru. Til greina kemur að selja húsnæðið sér. Nánari upplýsingar á skrifstofu. TIL ATHUGUNAR FYRIR EIGENDUR ATVINNUHÚS- NÆÐIS Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU Höfum kaupendur að atvinnuhúsnæði af ýmsum stærðum og gerðum á höfuðborgarsvæðinu með traustum langtímaleigusamningum. Hér er um að ræða mjög trausta kaupendur með öruggar kaup- greiðslur. Eignir á verðbilinu 50.000.000-3.000.000.000 koma til greina. Þeir fasteignaeigendur, sem kynnu að hafa áhuga, eru vinsamlega beðnir um að hafa samband við Jón Guðmundsson, lögg. fast- eignasala, sem veitir frekari upplýsingar. Háaleitisbraut - skrifstofuhúsnæði. Gott 85 fm skrifstofuhúsnæði á 2. hæð í góðu lyftuhúsi. Húsnæðið skiptist í bið- stofu, þrjár skrifstofur, stórt fundaher- bergi og geymslu. Parket á gólfum. Sameign er nýlega endurnýjuð. Gott út- sýni. Laust fljótlega. Verð 10,5 millj. Fyrir rúmum mánuði varspurt í pistli hvort „bídett-ið“ væri fallið í gleymsku.Það er alltaf uppörvandi og ánægjulegt að fá viðbrögð við því sem í þessum pistlum birtist, en nú var slegið met. Það var greinilegt að bídettið var ekki fallið í gleymsku, þetta vinsæla hreinlætistæki bítlaár- anna, þó reyndar sé ekki vitað til að þeir síðhærðu piltar frá Liverpool hafi nokkurn tímann sungið um þetta ágæta tæki. En nú verður að koma með nokkra upprifjun fyrir þá sem ekki hafa lesið fyrrnefndan pistil. Bídett, sem við fyrstu sýn líkist klósettskál, er þó lík- ara handlaug, með botnventli og tappa, notað til að skola botn lík- amans og ekki síður til fótaþvotta. Nú skal taka af öll tvímæli; þetta tæki er jafn nýtilegt og þarft fyrir karla sem konur og er hér með af- neitað með öllu það sem upp á pistla- höfund var borið; að í umfjölluninni hefði örlað á svolítilli kvenfyrirlitn- ingu. Það átti að birtast í því að ræða um bídett sem kvennagagn, en það er eins víst og tvisvar tveir eru fjórir að karlar þurfa ekki síður að skola á sér botninn. Þetta mætti meira að segja rökstyðja með dæmum en verður ekki gert, við erum nú einu sinni stödd á virðulegum síðum Morgunblaðsins en ekki á sóðalegu exinu. Það var líka ánægjulegt að það voru ekki síður karlar en konur sem létu í sér heyra og nostalgían var ein- róma; allir söknuðu tækisins og vildu hefja það aftur til vegs og virðingar, á því væri full þörf. Hvað á barnið að heita? Líftími bídettsins hérlendis var skammur og líklega þess vegna var því aldrei gefið íslenskt nafn. Að vísu er það ekki alveg rétt, einhverjir voru með tilburði til nafngiftar, en þeim tilraunum er engin ástæða að halda á lofti. Það var lýst eftir nýyrði, íslensku nafni á þetta tæki, sem á sinni tíð þótti sjálfsagt í öllum betri baðher- bergjum. Það komu ýmsar tillögur að nöfnum og er hér sett saman nafn- ið „botnlaug“, er það ekki samþykkt? Við leitum ekki mótatkvæða, betra nafn finnst ekki, eða hvað? En nú kann einhver að spyrja; er ekki verið að búa til enn eina þörfina, við höfum verið án þessa tækis í mörg herrans ár og enginn kvartað? Í rauninni hafa margir kvartað, en mest við sjálfa sig. Þær hreinlætis- þarfir sem svo auðvelt hefði verið að uppfylla með botnlaug hefur fólk uppfyllt á annan hátt en miklu óþægilegri. Það kom fram í net- póstum, meðal annars, að það hefði verið lausn að nota hitastýrða blönd- unartækið við baðkerið eða í sturt- unni en ekki beinlínis þægileg. Eitt er víst; botnlaugar eru fram- leiddar hjá leiðandi verksmiðjum sem framleiða hreinlætistæki svo það er ekkert því til fyrirstöðu að innflytjendur geti boðið þessa ágætu vöru. En snúum okkur aðeins að karl- peningnum, þessum hermdar- verkamönnum gegn hreinlæti í bað- herbergjum landsins og þó víðar væri leitað. Karlar og konur eru æði ólík að líkamlegri gerð, sem betur fer, annars væri lífið ömurlegt, já lík- lega bara ekkert líf. Þessi munur veldur því að það eru sama hverjar þarfir konunnar eru, þær setjast alltaf á salernið. En ekki karlinn, hann krýpur ekki eða beygir kné ótilneyddur, uppréttur skal hann standa meðan báðir fætur eru jafn langir. En þá kemur í ljós að hittni hans er ekki eins og best væri á kos- ið, menn eru misjafnlega handlagnir. Þá kemur að sértæki karlsins, þvagskálinni. Jafnvel í hana geta sumir ekki hitt og frægt er að ein verksmiðja framleiddi þvagskálar fyrir flugstöðina á Shiphol með mynd af flugu í botni. Þá brá svo við að hittnin snarbatnaði, déskotans pödd- unni skyldi drekkt! En hvers vegna fá karlar ekki þvagskál í baðher- bergi, tæki sem þeir hafa svo mikla þörf fyrir? Hvernig væri að innlitið og útlitið skoðaði gamalt og úr sér gengið bað- herbergi fyrir niðurrif og síðan aftur þegar allt er komið í stand. Og þar yrði botnlaug, og þar yrði þvagskál, mikið yrði það flott, svaka sniðugt og rosalega hagkvæmt. Botnlaug og þvagskál frá Missel, hagkvæm tæki og þægileg. Botnlaug skal hún heita Lagnafréttir eftir Sigurð Grétar Guðmundsson pípulagningameistara/ sigg@simnet.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.