Morgunblaðið - 06.12.2004, Page 34
D
esember er genginn í garð
og jólin eru rétt handan
við heygarðshornið, sam-
kvæmt áreiðanlegum
heimildum úr dagatali
sjónvarpsins. Veður-
farið hefur gefið okkur
undir fótinn með hvít
jól, nýlega fréttist af
dulítilli hálku á Hellis-
heiði og ég sel það
ekki dýrara en ég
keypti það, en það var
svei mér þá snjóföl á
jörðu í Kópavoginum í
vikunni sem leið. Von-
andi eru þetta áreið-
anlegir fyrirboðar um
það sem koma skal, jól
með jólasnjó eru ein-
hvern veginn svo
miklu jólalegri en jól
með annars konar
jólaúrkomu.
Rétt eins og jólasnjórinn er
ómissandi utandyra svona yfir blá-
jólin þá er jólastjarnan ómissandi
þáttur í jólahaldi landans. Síðustu
áratugi hafa landsmenn keypt
jólastjörnur í tugþúsundavís og
prýtt hýbýli sín með þessum sér-
lega jólalegu plöntum. Jólastjarna,
Euphorbia pulcherrima, er runn-
kennd planta sem getur orðið allt að
þriggja metra há í heimkynnum sín-
um í Mexíkó. Jólastjarnan er af
mjólkurjurtaættinni sem dregur
nafn sitt af mjólkurkenndum
plöntusafa sem hríslast um æðar
plöntunnar. Ættkvíslin sem jóla-
stjarna heyrir til, Euphorbia, inni-
heldur um 2000 mismunandi teg-
undir, margar hverjar eitraðar.
Jólastjarna getur vald-
ið ofnæmisviðbrögðum
hjá fólki þannig að það
er rétt að spyrjast fyr-
ir um hugsanlegt of-
næmi áður en manni
dettur í hug að koma
færandi hendi heim til
vina sinna, svona rétt
til að varðveita vinátt-
una áfram. Sýnt hefur
verið fram á að jóla-
stjarnan sjálf er ekki
eitruð planta, Banda-
ríkjamenn eru dugleg-
ir við að kanna svona
lagað og þar hefur
upplýsingamiðstöð um
eitraðar plöntur gefið
það út að barn, sem er
25 kg á þyngd, getur borðað yfir
500 háblöð jólastjörnu án þess að
finna fyrir neinum eituráhrifum.
Samkvæmt þessu væri jafnvel hægt
að hafa jólastjörnu í jólasalatið með
hamborgarhryggnum og brúnuðu
kartöflunum, en kannski maður
veðji samt á Waldorf áfram.
Blómgun jólastjörnu er mjög sér-
stök. Blómin sjálf eru agnarsmá,
nokkur saman í sveip inn á milli
stórra, litríkra háblaða. Háblöðin
eru í raun og veru ummynduð lauf-
blöð sem geta verið í ýmsum litum.
Jólalegasti liturinn á háblöðunum er
þessi djúpi, blóðrauði litur sem er
jafnframt vinsælastur en einnig er
hægt að fá jólastjörnur með bleik
háblöð, hvít, skellótt og jafnvel gul.
Glimmertíska undanfarinna ára hef-
ur ekki skautað framhjá jólastjörn-
unum, nú þykir það verulega smart
að vera með glimmerbornar jóla-
stjörnur, þær glitra svo fallega í
flöktandi birtu jólakertanna.
Umhirða jólastjarna er frekar
einföld. Þær þola ekki dragsúg,
uppáhaldshitastigið þeirra er stofu-
hiti og best er að hafa þær ekki í
beinu sólarljósi, jólastjarnanna
vegna er kannski ágætt að desem-
ber er dimmasti mánuður ársins.
Algengasti dauðdagi inniblóma er
ofvökvun og svo er einnig með jóla-
stjörnur. Rétt er að vökva þær
reglulega og jafnvel daglega en það
ber að varast að láta þær standa í
bleytu, þá eiga þær það á hættu að
drukkna. Mikilvægt er að passa upp
á jólastjörnuna þegar hún er flutt
milli húsa, ef henni verður kalt fellir
hún blómin og þá endist hún mun
skemur en ella. Rétt er að gefa jóla-
stjörnu ekki áburð á meðan hún er í
blóma.
Svona í lokin er rétt að rifja upp
fortíð jólastjörnunnar. Eins og áður
sagði er hún ættuð frá Mexíkó og
þar í landi er uppruni jólastjörn-
unnar alveg á hreinu. Litla fátæka
stúlkan María var á leið til kirkju á
jólunum með bróður sínum, honum
Pabló. Þau voru svo fátæk að þau
áttu engar almennilegar gjafir til að
færa Jesúbarninu, eins og siður er
þar í landi. Í stað þess að koma
tómhent til kirkjunnar tíndu börnin
blóm í blómvönd í vegkantinum. Í
kirkjunni var búið að setja upp leik-
mynd af fjárhúsinu með jötu og
Jesúbarni og öllu tilheyrandi. Þegar
börnin komu til kirkjunnar lögðu
þau fátæklegan blómvöndinn við
jötuna. Skyndilega spruttu fram
rauð, stjörnulaga blöð á blómvend-
inum og allir viðstaddir voru sann-
færðir um að þeir hefðu orðið vitni
að kraftaverki. Frá þessum degi
voru blómin nefnd Flores de Noche
Buena eða blóm heilagrar nætur því
þau blómstruðu árlega á jólunum.
Við höfum nefnt plöntuna jóla-
stjörnu því háblöðin minna okkur á
rauða stjörnu, jólastjörnu.
Guðríður Helgadóttir,
garðyrkjufræðingur.
Jólalegasti litur jólastjörnunnar er þessi djúpi, blóðrauði litur, sem er jafnframt
vinsælastur, en einnig er hægt að fá jólastjörnur með bleik háblöð, hvít, skellótt
og jafnvel gul.
Jólastjarna — hluti af jólahaldinu
VIKUNNAR
BLÓM
Um s j ó n S i g r í ð u r
H j a r t a r
525. þáttur
34 F MÁNUDAGUR 6. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ÓSKAST RAÐ-/PARHÚS
Atli leitar að raðhúsi í Grafarholti eða Graf-
arvogi. Helst í kringum 160. fm.
Gyða leitar að raðhúsi í Salahverfi í Kóp.
Verðb. 25-28 m. Bílskúr væri kostur.
Rúnar leitar að 5. herb. eða einbýli í Selja-
hverfi í Rvk. Verðb. 25-30 m.
Bjarki leitar að einbýli í Keflavík, Njarðvík,
Vogar eða Mosfellsbær. Verðb. 16-17 m.
Skúli leitar að sumarbústað. Verður að vera
vatn, rafmagn og hiti. Helst innan 100 km rad-
íus frá Rvk.
ÓSKAST HÆÐIR
Sigurjón bráðvantar hæð í 101, helst í
kringum 120-140 fm Verðb. 24-26 m.
Andrea leitar að hæð í Hafnafirði. Verðb. 25
m.
Margréti bráðvantar hæð í Ausurbæ Kóp.
Verðb. 21-23 m. Bílskúr væri kostur.
ENGIHJALLI
Björt og falleg þriggja herb. íbúð í Kóp. Íbúðin er á
efstu hæð og er útsýnið stórkostlegt. Flísar á öllu
nema svefnherb. þar eru dúkar. Góðir skápar í herb.
og holi. Viðarinnrétting í eldhúsi. Sameig. þvottah.
V. 13 millj. (907)
LAUGAVEGUR
61 fm 2ja herbergja íbúð í bakhúsi við Laugaveg.
Forstofa flísalögð. Rúmgott baðherb/þvottah. Plast-
parket á stofu, svherb. og eldhúsi sem er með nýrri
innréttingu. Nýjir gluggar og gler. Nýtt rafmagn og
tafla. Verið er að klára að standsetja íbúðina og
garðinn. V. 11,1 millj. (905)
HAMRABORG 1-3
Um er að ræða atvinnuhúsnæði í Kópavoginum,
nánar tiltekið Hamraborg 1-3 (jarðhæð). Húsnæðið
er 125 fm. Flísar á gólfi. Húsnæðið er með tölvu-
lögnum, símalögnum og loftræstikerfi. Ljósir hvítar
veggir. Gengið er inn gegnum sérinngang eða í
gegnum stigaganginn. Eldhúsinnrétting er til staðar.
Í geymslu er hægt að búa til salernisaðstöðu. Í sam-
eign eru tvö klósett. Hentar vel sem skrifstofu fyrir
heildsölu með léttan varning. V. 7,9 millj.(745)
Þorkell leitar að sinni fyrstu íbúð. Verðbil
11-12 m.
Gunnar leitar að 2ja herb. íb. miðsvæðis í
Rvk. Helst 101, 105 eða 107. Verðb. 10-12 m.
Kristín leitar að 2ja herb. íb. í 109 eða 110
Rvk. Verðb. 8-10,5 m.
Þór leitar að 2ja herb. íb. í Hlíðarhverfi, Rvk.
Verðb. 10-12 m.
Svala leitar að 2ja herb. íb. Helst í Kópavogi
eða Hafnafirði. Verðb. 10-14 m.
Höfum kaupendur að öllum stærðum
eigna sem þurfa á standsetningu að
halda. Allt kemur til greina.
ÓSKAST 3JA HERB.
Berglind leitar að 3ja - 4ja herb. íb. í Bakka-
hverfi í Reykjavík. Verð upp í 14. m.
Steinþór leitar að 3ja herb. íb. í Grafarvogi
eða Kópavogi. Verðb. 13,5-17 m.
Tinna leitar að 3ja herb. íb. í Vesturbæ, Rvk.
Verðb. 12-16 m.
Heiðar leitar að 3ja herb. íb. í Austurbæ,
Rvk. Verð. 13-18 m.
Birkir leitar að 3-4ja herb. Opinn fyrir allri
staðsetningu. Verð upp að 15 m.
ÞJÓNUSTUSÍMI EFTIR LOKUN 664 50 60
VOGAGERÐI
Fallega og góða 3ja herb. íbúð á 1 hæð í góðu fal-
legu 5 íbúða húsi í Vogum Vatnsleysustrandaströnd.
Góð forstofa. Eldhús með góðri nýl. innréttingu.
Baðh. m/baðkari og nýl. innréttingu. Góð stofa með
suðursvölum. Tvö svefnherb. Sérgeymsla í sameign
og sameiginlegt þvottahús. V. 8,9 m. (914)
SUÐURGATA
Um er að ræða mjög skemmtilega íbúð á 1. hæð í
tvíbýlishúsi, húsnæðið hefur verið tekið allt í gegn
að utan, íbúðinn hefur verið tekinn mikið í gegn að
innan, gengið er inn flíslagðan gang, þar er fata-
hengi 4 svefnherbergi eru og tvö þeirra með skáp,
plastparket á gólfum, eldhús með góðri viðarinnrétt-
ingu og flísum á gólfi, baðherbergi er flísalagt, bað
með sturtu, stofan er mjög rúmgóð, plastparket á
gólfi, þvottahúsið er við hliðná innganginum. Flott
íbúð á góðum stað í Sandgerði.
ENGIHJALLI
Erum með nokkur bil í verslunarkjarna í austurbæ
Kópavogs til leigu eða sölu
REKSTUR
Nánari upplýsingar um fyrirtæki á skrifstofu Hús-
anna í bænum og í þjónustusíma 664 50 60 utan
skrifstofutíma. Meira á www.husin.is
Grill og söluturn í góðum rekstri í Austurbæ
Reykjavíkur. Miklir tekjumöguleikar.
SÖLUTURN í Austurbænum, miklir möguleikar.
SÖLUTURN Í KÓPAVOGI Mikil velta, mikil fram-
legð.
VEITINGASTAÐUR Vorum að fá í sölu veitingahús
í Miðbænum.
VEITINGA OG VEISLUÞJÓNUSTA Í KÓPAVOGI.
BÍLALEIGA Góð viðskiptasambönd.
FJÁRSTERKIR AÐILAR leita að bar og/eða veit-
ingastað. Margt kemur til greina.
HÚSIN Í BÆNUM HAFA MIKIÐ AF ÖÐRUM FYR-
IRTÆKJUM Á SKRÁ - SÖLUMENN REYNDIR
INNAN VEITINGA- OG FYRIRTÆKJAGEIRANS.
Hamraborg 5, 200 Kópavogi
husin@husin.is
53 50 600
Fax 53 50 601
Sveinn Ó. Sigurðss. lögg. fasteignasali
Vigfús
sölumaður
s. 664 5065
5 til 7 herbergja
VOGASEL
170 fm íbúð á tveimur hæðum. Efri hæðin er mjög
skemmtilega hönnuð. Þar er stórt svefnherbergi með
svölum og miklu útsýni til Esjunnar, baðherbergi,
sjónvarpshol, stór stofa og stórar suðursvalir. Auð-
velt er að bæta við svefnherbergi á hæðinni. Á neðri
hæð er garðskáli, andyri, snyrting með steypibaði,
tvö svefnherbergi, arinstofa, borðstofa, eldhús,
þvottahús/búr. Verð 26,9 millj. Til afhendingar strax
við kaupsamning.
HJALTABAKKI
91,1 fm 4ra herb. íbúð á 3. hæð ásamt 14,1 fm
geymslu í kjallara að auki. Parketlagt hol með skáp.
Stofa og borðstofa með útg. á suðursvalir. Eldhús
með eldri innréttingu og parketi á gólfi. Baðherbergi
með lítilli innréttingu og flísalagt að hluta ásamt
baðkari með sturtu og tengi fyrir þvottavél. Svefn-
herbergin eru þrjú, öll með parketi á gólfi og eru
skápar í tveimur þeirra. V. 12,6 millj. (312)
FÍFULIND 13-15
Góða 4ra herbergja 110 fm íbúð á 2. hæð í góðu
fjölbýli. Snyrtileg sameign sem gengið er frá út á
svalir að sérinngangi, komið er inní litla forstofu, þar
innaf er lítið hol og beint innaf kemur þvottahúsi
eldhús með sæmilegri eldhúsinnréttingu til vinstri
eru tvö barnaherbergi, baðherbergi flísalagt með
baðkari, hjónaherbergi frá því til hægri er svo sjón-
varpshol, stór stofa með góðum svölum. Gólfefni
parket og flísar á gólfum.
BAKKASTÍGUR
53 fm kjallaraíbúð rétt við Mýrargötu. Eldhús m/dúk
á gólfi og ljósri innrétt. Baðherb. flísalagt m/sturtu.
2 sv.herb. m/dúk á gólfi. Forst. flísalögð m/fata-
geymslu. Þvottaherb./geymsla er í íbúðinni. V. 9,6
millj. (930)
ÓSKAST 4RA HERB.
Kristín leitar að 4ja herb. íb. með bílsk. Op-
in fyrir öllum staðsetningum.
Steinar leitar að 4ja herb. íb. í Kópavogi.
Helst í Lindar- eða Salahverfi Verðb. 16-20 m.
Ólafur leitar að 4ja herb. íb. í 101 eða 107
Rvk. Verðb. 13-17 m.
Helga leitar að 3-4ja herb. íb. í Grafavogi
eða Árbæ. Verðb. 18-20 m.
S K Ó L A G E R Ð I
197,4 fm tvíbýlishús. Stigi upp er parketlagð-
ur sem og stofan og borðstofan sem taka við
um leið og upp er komið. Sjónvarpsherb. með
flísum á gólfi og útgengi á suðursvalir.
Vinnuherbergi/svefnherbergi með filtteppi á
gólfi en hann var yfirbyggður eftir að húsið
var byggt. Úr vinnuherberginu er einnig
gengt í þvottahúsið og þaðan í eldhúsið sem
að er með dúk á gólfi, rúmgóðri innréttingu
rúmgóðum borðkrók, nýlegum ofn, hell-
uborði og uppþvottavél frá Bloomberg. Á
svefnherbergja gangi er stór fataskápur og
parket á gólfi. Tvö barnaherbergi, annað með parketi á gólfi en hitt með dúk á gólfi. Hjónaherbergi
með ljósu teppi á gólfi, fataskáp minni kommóðu og hillusetti. Baðherbergið er með flísum á gólfi
dúk á veggjum og sturtuklefa.
VANTAR ALLAR EIGNIR Á SKRÁ
SKOÐUM OG VERÐMETUM SAMDÆGURS,
ÞÉR AÐ KOSTNAÐARLAUSU.Edgardo Solar
sölumaður
s. 865 2214
V O G A S E L
GLÆSILEG FASTEIGN TIL SÖLU.
Húsið er samtals 440m2 að stærð með mikla
möguleika. Aðalíbúð er fullbúin og leyfi kom-
ið frá Byggingafulltrúa í Reykjavík að skipta
eigninni í tvær sjálfstæðar íbúðir eða eignar-
hluta. Möguleikar að innrétta allt að 4 aukaí-
búðir í fasteigninni eða aðlaga með öðrum
hætti að þörfum kaupanda/leigutaka.
Þorsteinn
sölustjóri.
s. 662 5577