24 stundir - 14.12.2007, Blaðsíða 6
Eftir Þóru Kristínu Þórsdóttur
thorakristin@24stundir.is
Íbúðalánasjóður hækkaði vexti á
íbúðalánum í gær um 0,2% í kjöl-
far útboðs íbúðabréfa sjóðsins.
Vextirnir eru nú 5,75% og 5,50%
með uppgreiðsluþóknun.
Minni sala á fasteignum var í
nóvember en mánuðinn áður og
voru 20% færri kaupsamningar
vegna fasteigna gerðir á höfuð-
borgarsvæðinu, eða 768 samningar
á móti 956, samkvæmt upplýsing-
um frá Fasteignamati ríkisins. Það
hafa ekki færri keypt sér fasteign á
höfuðborgarsvæðinu síðan í febr-
úar á þessu ári.
Aukin eftirspurn
Hallur Magnússon, sviðsstjóri
hjá þróunarsviði Íbúðalánasjóðs,
segir að aukin eftirspurn sé eftir
lánum hjá sjóðnum í kjölfar vaxta-
hækkana bankanna og sjóðurinn
finni ekki fyrir því að minni sala sé
á fasteignum. Hins vegar ætti mikil
vaxtahækkun að draga úr eftir-
spurn eftir lánum, til lengri tíma
litið.
Vextir hafa oft verið hærri
„Menn mega þó ekki gleyma því
að vextir á íbúðalánum hafa oft
verið hærri. Það er ekki lengra síð-
an en 2002 að raunvextir voru um
6 prósent,“ segir Hallur.
„Hins vegar eru Íslendingar svo
að segja ónæmir fyrir vöxtum. Þeir
virðast kaupa það sem þá langar í
þegar þá langar, sama hvort vext-
irnir eru 5 eða 7 prósent.“
Aðspurður um hvort munur geti
verið á þeim sem taka lán sín hjá
bönkunum og hjá Íbúðalánasjóði
segist Hallur ekki halda að svo sé.
Flúið til nágrannabæja
Vegna hækkandi húsnæðisverðs
hefði jafnvel mátt búast við því að
kröfur fólks gagnvart húsnæði
minnkuðu; það t.d. keypti minna
en áður. Hallur segist ekki greina
slíkan mun en hins vegar sæki sí-
fellt fleiri í að búa í nágrannabæj-
um, s.s. á Akranesi og í Reykja-
nesbæ, vegna þess að þar sé
húsnæðisverð lægra og markaðs-
verð nær brunabótamatinu en víða
gerist á höfuðborgarsvæðinu.
Minna selt í fyrra
Sé fjöldi kaupsamninga skoðað-
ur á milli ára sést að sala húsnæðis
á höfuðborgarsvæðinu er svipuð
nú og hún var árið 2005.
Dregur úr fast-
eignakaupum
Kaupsamningum á höfuðborgarsvæðinu fækkaði um 20 prósent
í nóvember Vextir Íbúðalánasjóðs komnir í 5,50 og 5,75 prósent
➤ Um 20% færri kaupsamn-ingar vegna fasteigna voru
gerðir í nóvember en í októ-
ber á höfuðborgarsvæðinu.
➤ Um 2000 fleiri kaupsamn-ingar hafa verið gerðir á höf-
uðborgarsvæðinu á þessu ári
en voru gerðir allt seinasta ár.
SALA FASTEIGNA
6 FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 2007 24stundir
Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra segir
það réttlætismál að einhleypum konum verði leyft að
gangast undir tæknifrjóvganir. Guðlaugur skipaði
þann 22. október síðastliðinn nefnd í því skyni að end-
urskoða lög og reglugerðir um tæknifrjóvganir. Ráð-
herrann og fjölmargir aðrir binda vonir við að með
endurskoðuninni verði lögunum breytt.
Breytingar boðaðar jafnvel strax á vorþingi
Ekki eru tímamörk á vinnu nefndarinnar en sam-
kvæmt upplýsingum úr ráðuneytinu er vonast til að
það verði snemma á næsta ári. Guðlaugur Þór vill
breyta lögunum. „Eins og staðan er í dag þá er ekki
rökrétt að einstæðar konur fái ekki að gangast undir
tæknifrjóvgun, ekki síst í ljósi þess að einhleypir mega
ættleiða. Ég tel að það sé góður stuðningur við málið á
Alþingi. Ég vona að það komi niðurstaða frá nefndinni
fljótlega svo að við getum gert þessar breytingar strax á
vorþinginu. Ég sé engin efnisleg rök gegn þessu og
okkur er ekkert að vanbúnaði. “ freyr@24stundir.is
Guðlaugur vill leyfa einhleypum konum að fara í tæknifrjóvganir
Réttlætismál segir ráðherra
Fæðingardeild Einhleypar konur vilja tæknifrjóvgun.
57 ökumenn voru myndaðir í
Hvalfjarðargöngum frá þriðju-
degi til fimmtudags fyrir hrað-
akstur. Vöktuð voru 4.122 öku-
tæki og því ók rúmlega eitt
prósent ökumanna of hratt eða
yfir afskiptahraða. Meðalhraði
þeirra var liðlega 83 km/klst en
þarna er 70 km hámarkshraði.
57 af 4.122 yfir
hámarkshraða
Tveir bílar rákust saman á
Reykjanesbraut skammt frá
Vogaafleggjara í gærdag.
Að sögn lögreglunnar á Suð-
urnesjum voru sjúkrabílar og
tækjabíll sendir á staðinn þar sem
óttast var að fólk væri fast í öðr-
um bílnum, sem valt út af veg-
inum, en svo reyndist þó ekki
vera.
Ekki lágu fyrir upplýsingar um
hvort þeir sem í bílunum voru
hefðu meiðst. mbl.is
Árekstur á
Reykjanesbraut
Lögreglumenn á
Hólmavík lögðu í
gærmorgun hald
á lítilræði af
kannabisefnum
og áhöldum sem
talin eru hafa ver-
ið notuð til fíkni-
efnaneyslu. Fannst efnið í bíl,
sem var á leið vestur Steingríms-
fjarðarheiði.
Fjórir menn voru í bílnum.
Telst málið upplýst. mbl.is
Með eiturlyf í bíl
Syngjandi kátir jólasveinar með nikku og gítar.
Álfar og tröll, Grýla og Leppalúði og fjöldinn allur af
þekkturm söngvurum og tónlistarfólki.
Allir með bros á vör, tilbúnir að skemmta þér og þínum.
Hafið samband við eina elstu og reyndustu
jólasveina og skemmtanaþjónustu landsins.
Mætum einnig á jólahlaðborðs skemmtanir.
jóli.is
S. 824 3677 joli@joli.is Geymið auglýsinguna
ostur.is
Kynnið ykkur úrvalið á ostur.is
Gómsæt gjöf fyrir sælkera
Sælkeraostakörfur