24 stundir - 14.12.2007, Blaðsíða 58
58 FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 2007 24stundir
Eftir Hildi Eddu Einarsdóttur
hilduredda@24stundir.is
„Jólin eru aldrei mjög langt undan
í mínum huga,“ segir Ólöf Erla
Bjarnadóttir leirkerasmiður, en
hún hannar og framleiðir meðal
annars sérstakar árlegar jólakúlur
úr leir, en þær eru allar hvítar á lit-
inn og bera yfirskriftina íslenskur
vetur og eru seldar í Kirsuberja-
trénu. Á hverju ári er sérstakt
mynstur á kúlunum og þar sem
framleiðsla þeirra og hönnun er
tímafrek þarf hún að byrja að huga
að hönnun jólakúlu ársins í janúar
eða febrúar. Í kjölfarið býr hún til
mótin, steypir í þau, brennir, setur
gljáa og svo framvegis. Allt þetta
tekur sinn tíma og er margra mán-
aða ferli. „Það er kannski erfiðast
að hugsa um jólin á vorin og
snemmsumars en strax í ágúst er
ég alveg búin að gíra mig inn á að
jólin séu að koma,“ segir hún glett-
in.
Þetta er fimmta árið í röð sem
hún framleiðir og selur þessar jóla-
kúlur sem hún segir alltaf njóta
mikilla vinsælda. Áður hefur
mynstrið á þeim meðal annars ver-
ið eins og snjókorn, skafrenningur,
norðurljós og stjörnur, en að þessu
sinni er það með gróðursprotum
sem koma upp úr snjónum. „Ég
hugsa að næstu tvenn jól verði ég
einnig með nýjar kúlur í þessari
seríu en að í framhaldi af því breyti
ég aðeins til og skipti ef til vill um
lit eða form. En ég hætti ekki að
gera svona árgangsvörur, það er al-
veg á hreinu, enda eru margir sem
safna þessum jólakúlum og eru
fljótir að panta þær á hverju ári.“
Fleiri leirmunir
Fyrir utan jólakúlurnar gerir
Ólöf Erla fleiri jólamuni, eins og til
dæmis sérstaka aðventukransa úr
leir og karöflur og staup úr sama
mynstri og jólakúlurnar. En skyldi
hún hafa einhvern tíma til þess að
undirbúa og skreyta fyrir jólin
heima hjá sér í öllu annríkinu?
„Það er voða lítið,“ segir hún og
hlær. „Það er svo mikið að gera í
desember og margir sem koma við
í Kirsuberjatrénu. Við sem þar
störfum reynum að gera eins jóla-
legt hjá okkur og við getum. Einu
sinni buðum við til dæmis við-
skiptavinum okkar upp á jólaglögg
og það mæltist ákaflega vel fyrir.
Heima hjá mér eru það hins vegar
aðallega maðurinn minn og dóttir
sem sjá um að skreyta, enda hef ég
lítinn tíma til þess.“
Ólöf Erla Bjarnadóttir leirkerasmiður hannar árlegar jólakúlur
Íslenskur vetur
er meginþemað
➤ Bjó að Grímsstöðum á Fjöll-um á sínum tíma, en þar var
mjög snjóþungt á veturna.
Þangað sækir hún innblástur
fyrir kúlurnar.
LISTAKONANÁ hverju ári setur Ólöf
Erla Bjarnadóttir nýjar
jólakúlur á markað. Þær
eru handunnar úr leir og
eru allar hvítar á litinn
eins og snjór. Hönnun
þeirra og framleiðsla er
tímafrek og því hugsar
hún um jólin allt árið.
Fallegar jólakúlur „Ég er
með hugann við jólin meira
og minna allt árið enda eru
jólakúlurnar tímafrekar í
vinnslu. En það er í fínu lagi af
því að ég er mikið jólabarn.“
24 Stundir/Kristinn Ingvarsson
Gefa heimaföndur, smásögur,
ljósmyndir og heimagert skraut í
jólagjöf. Ekki láta neysluáróð-
ursfólk segja þér að enginn vilji
eiga föndur eftir hálffullorðið
fólk, illa haldið af nísku. Ekki láta
þér samt nægja að fjölda-
framleiða málaðar spýtur og
skýla þér á bak við abstrakt hugs-
un. Handgerðar gjafir eiga að
koma frá hjartanu og fima fingur
og velvilja þarf í verkið. Leggðu
allt í vinnuna. Afskaplega fallegt
er að gefa fallega unnar myndir,
handskrifuð skreytt bréf og úr-
klippubækur með minningum
frá liðnu ári.
Það er allt í lagi að …
Jólaglaðningur10 heppnir kaupendurjólagjafabréfa eiga möguleika á að vinnaferð fram og til bakatil hvaða áfangastaðarIceland Express sem er!
með ánægju
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
22.900 kr.
Verð:
Langar þig að gleðja einhvern sérstaklega mikið um jólin? Jólagjafabréf
Iceland Express gefur þeim sem þér þykir vænt um spennandi fyrirheit
á nýju ári, hvert sem hugurinn leitar.
Bókaðu vel heppnaða jólagjöf á www.icelandexpress.is
Gjafabréfið gildir sem flug fram og til baka með sköttum til eins af 15 áfangastöðum Iceland Express í Evrópu.
Bókunartímabil jólagjafabréfsins er frá 26. desember til 31. janúar 2008 og eftir það gildir gjafabréfið sem
inneign í 2 ár. Jólagjafabréfið gildir í flug á tímabilinu 15. janúar til 30. júní 2008. Sætaframboð er takmarkað.
Gjöf fyrir þá sem
elska að ferðast
Kertastjákar, kerti,
silfur- og postulínsmunir
Forkunnar fagurt úrval
Húsgögn og listmunir 8 Skúlatúni 6 8 sími 553 0755 8 www.antiksalan.is
Frönsk og dönsk
antikhúsgögnn
Kryddin frá Pottagöldrum eru ómissandi í matreiðsluna
Ilmur af jólum