24 stundir - 14.12.2007, Blaðsíða 47
24stundir FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 2007 47
Gestum og gangandi er boðið að
koma í notalega jólastemningu hjá
Toyota og gæða sér á heitu súkku-
laði og smákökum um leið og fólki
gefst kostur á að styrkja gott mál-
efni. „Við bjóðum þeim sem vilja
að koma til okkar og pakka inn
gjöfum sem við útvegum og sjáum
svo um að koma áleiðis til Mæðra-
styrksnefndar Kópavogs fyrir jólin.
Því fleiri sem taka þátt, því fleiri
gjafir verða gefnar til góðs mál-
efnis,“ segir Kristinn Einarsson,
sölustjóri nýrra bíla hjá Toyota.
Auk þess eiga allir þeir sem
reynsluaka bíl hjá Toyota fram að
jólum kost á því að vinna ferð fyrir
tvo til Bandaríkjanna með Ice-
landair á Saga Business Class.
Skreyttir bílar
Í sýningarsal Toyota er orðið
mjög jólalegt en búið er að skreyta
bílana með borðum og eins er búið
að skreyta þak hússins með jóla-
trjám frá Skógrækt Íslands. Að-
spurður hvort mikil sala sé á bílum
á þessum árstíma segir Kristinn að
þó að mörgu öðru þurfi að sinna á
þessum árstíma þekkist einnig að
gefnar séu jólagjafir í dýrari kant-
inum, fyrir utan venjulega end-
urnýjun bíla. Sala á bílum hafi
gengið vel í haust og engin breyt-
ing hafi orðið á því þegar vetur
konungur gekk í garð.
Bílarnir skreyttir
Skreyttir Toyota-bílar.
Jólastemning í Toyota
KYNNING
Fyrirtækið Hákonarson ehf flyt-
ur inn þroskaleikföng fyrir börn
frá þriggja ára aldri. „Við settum
stefnuna á að flytja inn vörur sem
henta leikskólum en þetta eru
einnig vörur sem foreldrar geta
keypt handa börnum sínum,“ segir
Jón Hákonarson, einn eigenda fyr-
irtækisins.
Búslóð fylgir hverju húsi
„Leikskólarnir hafa tekið mjög
vel í þetta enda vandaðar og fal-
legar vörur. Við erum til dæmis að
flytja inn viðardúkkuhús þar sem
öll húsgögn fylgja með ásamt
dúkkunum. Þetta er allt saman úr
tré og er hægt að opna allar skúff-
ur og skápa og svoleiðis þannig að
þetta er enn meira spennandi og
má segja að það fylgi heil búslóð
hverju húsi.“
Að sögn Jóns koma húsin í
nokkrum stærðum og hafa verið
mjög vinsæl.
Litrík leikfangaeldhús
Hákonarson ehf selur einnig lítil
leikfangaeldhús úr tré. „Þetta eru
skemmtileg og litrík eldhús fyrir
bæði stelpur og stráka. Þau eru til
dæmis í grænum og bláum litum
og fara vel inni í barnaherbergj-
unum.“
Aðspurður segir Jón leikföngin
hönnuð til þess að endast lengi en
um austurríska hönnun er að
ræða. „Þetta eru sterk leikföng og
er það meðal annars ástæðan fyrir
því að þau hafa verið svona vinsæl
á leikskólunum. Eins eru þau á
mjög viðráðanlegu verði þannig að
þetta er góður kostur í jólapakk-
ana fyrir foreldra sem eru að leita
að einhverju sem endist og er fal-
legt.“
Vörurnar frá Hákonarson ehf.
eru seldar í fjölda verslana. „Við
höfum verið að selja þetta í búðum
eins og Ligga lá á Laugaveginum,
og Leikbæ, í versluninni Smáfólk í
Ármúla og eins er Europris að selja
minnstu gerðina af húsunum.
Við stefnum síðan á að auka úr-
valið og erum nú þegar búnir að
taka inn nokkrar vörur. Þetta eru
allt vörur sem eru hannaðar með
þroska barnanna í huga, þetta eru
leikföng sem gaman er að gefa og
gagnast börnunum vel.“
Fullbúin dúkkuhús fyrir stelpur og stráka
Vönduð þroskaleikföng
KYNNING
Leikföng Há-
konarson ehf flytur
inn þroskaleikföng.
Heimagerðan ís gera margir Ís-
lendingar sem eftirrétt. Margir
kvarta sáran undan því að ná aldrei
ísnum nægilega mjúkum og að í
honum myndist ískristallar við
geymslu í frysti.
Ráðið við þessu er að nota fleiri
egg og meiri rjóma í ísblönduna á
móti mjólk.
Baileys-ís
6 eggjarauður
1 bolli púðursykur
1/2 dl Baileys
200-300 g Valencia m/núggati
og hnetum
1/2 l rjómi
Blandað saman og sett í frysti.
(Eggjahvíturnar má einnig nota, þá
verður ísinn meiri og léttari).
Ljúffeng konfektsósa
200 g Valencia súkkulaði m/
núggati og hnetum
100 g suðusúkkulaði
3 dl rjómi
Hráefnið er sett í pott, hrært
saman á vægum hita, látið malla í
20 mín.
Þessi verður mjúkur!
Heimagerður jólaís
24stundir/Eyþór
Ómissandi heimatilbúinn ís
Kaupa má form af ýmsum
gerðum að leggja ísinn í.