24 stundir - 14.12.2007, Page 50
50 FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 2007 24stundir
besta mæting sem ég man eftir,
það mættu 90 manns og það er
óhætt að segja að við höfum bjarg-
að mannslífi þar, því maðurinn
fannst meðvitundarlaus í snjó-
skafli. Mætingin var alveg ótrúleg
og það kom á óvart hversu margir
voru tilbúnir að stökkva frá jóla-
borðhaldinu og koma. Það var
einhver samkennd sem kom upp í
mönnum,“ segir Frímann sem
hefur einnig setið í svæðisstjórn
björgunarsveita á höfuðborg-
arsvæðinu undanfarin ár. Hann
segir að börnin hafi rekið upp stór
augu þegar heimilisfaðirinn gerði
sig líklegan til að fara frá borð-
haldinu, en bætir við að skilningur
frá fjölskyldu og vinnuveitendum
sé ómetanlegur fyrir björg-
unarsveitarmenn.
Flugeldasalan mikilvæg
Flugelda- og jólatrjáasala björg-
unarsveitanna er gríðarlega mik-
ilvæg og er í raun alger grundvöll-
ur fyrir því að reksturinn gangi
upp að sögn Frímanns. „Öll tæki
og tól og allur búnaður veltur á
flugeldasölunni og rekstur sveit-
Eftir Hauk Harðarson
haukurh@24stundir.is
„Björgunarsveitarstarfið sameinar
tvennt: þörfina fyrir að hjálpa fólki
og ferðamennsku,“ segir Frímann
Andrésson sem hefur verið með-
limur í Flugbjörgunarsveit Reykja-
víkur frá 1988. Hann áætlar að af
þeim tæplega 20 þúsund sem hafa
verið skráðir í björgunarsveitir í
gegnum tíðina séu um 5000 virkir
félagar sem eru til taks allan ársins
hring. Þar sem björgunarsveit-
arstarfið er allt í sjálfboðavinnu er
ekki hægt að skikka neinn til að
vera í viðbragðsstöðu en Frímann
segir að vegna fjölda þeirra sem
eru virkir í starfi sveitanna sé alltaf
hægt að stóla á að einhver mæti í
útköll eins og sannaðist 24. desem-
ber fyrir þremur árum.
Útkall yfir jólasteikinni
Á aðfangadag árið 2004 barst
útkall á tíma sem flestir vilja njóta
í ró og næði. Klukkan sex á að-
fangadagskvöld kom tilkynning
um drukkinn karlmann sem hafði
næstum orðið úti. „Þá var ein
anna yfirhöfuð. Þannig að það er
alveg ótrúlegt hvað þetta hefur
mikið að segja. Hagnaður af flug-
eldasölunni þarf að duga út árið
og fram að næstu flugeldasölu,“
segir Frímann.
Honum líst illa á að einkaaðilar
séu að koma inn á flugelda-
sölumarkaðinn í samkeppni við
björgunarsveitirnar. „Ég hvet fólk
til að fara á réttu staðina til að
kaupa flugelda þar sem pening-
unum er vel varið því fólk fær
þetta til baka. Það er alveg pott-
þétt,“ segir Frímann sem verður
við öllu búinn yfir hátíðirnar.
Björgunarsveitarmenn ávallt í viðbragðsstöðu
Útkall á aðfangadagskvöld
➤ Virkir björgunarsveitarmenná Íslandi eru um 5000 talsins.
➤ Langmestur hluti starfsins erunninn í sjálfboðavinnu.
➤ Flugeldasala er björg-unarsveitum gríðarlega mik-
ilvæg og er forsenda fyrir því
að starfsemin gangi upp.
GÖFUGT STARFÞörfin til að hjálpa
náunganum er missterk í
fólki en óhætt er að segja
að hún sé í ríkum mæli
hjá björgunarsveit-
armönnum. Fjöldi manna
er ávallt í viðbragðsstöðu
þegar slys ber að hönd-
um. Líka yfir hátíðarnar.
24 Stundir/Kristinn Ingvarsson
Frímann Andrésson Hefur verið björgunarsveit-
armaður í tæp 20 ár. Þörfin fyrir að hjálpa fólki og
ferðamennska er aðaldrifkrafturinn segir Frímann sem
hefur upplifað eitt og annað í störfum sínum.
Kirkjukór Lágafellssóknar held-
ur tónleika til styrktar Fjöl-
skylduhjálp Íslands í Fríkirkjunni í
Reykjavík sunnudagskvöldið 16.
desember kl. 20. „Það eru svo
margir hjálpar þurfi og okkur
fannst að peningurinn kæmi þessu
fólki vel. Það er dapurlegt að sjá
hve margir eiga ekki fyrir einu né
neinu fyrir jólin,“ segir Valgerður
Magnúsdóttir, formaður kórsins.
Nýtt málefni á hverju ári
Kirkjukór Lágafellssóknar hefur
haldið styrktartónleika á aðventu
frá árinu 1999 og verður nýtt mál-
efni fyrir valinu á hverju ári.
„Fyrstu styrktartónleikarnir sem
við héldum voru að tilstuðlan
Margrétar Árnadóttur sópr-
ansöngkonu. Hún var nýorðin
ekkja og hélt tónleika í minningu
mannsins síns í Neskirkju og upp
úr því byrjaði þetta allt saman,“
segir Valgerður og bendir á að tón-
leikarnir hafi unnið sér fastan sess í
kórstarfinu.
Ómissandi tónleikar
„Það er fastur liður í jólaund-
irbúningi okkar að láta eitthvað
gott af okkur leiða og halda þessa
tónleika. Ég held að okkur fyndist
það dapurt ef við hættum þessu,“
segir hún.
Kórinn kemur ekki einn fram á
tónleikunum því að meðal gesta
eru Margrét Árnadóttir, Egill
Ólafsson, Jóhann Friðgeir Valdi-
marsson og Ragnhildur Gísladóttir
sem einmitt er verndari Fjöl-
skylduhjálparinnar.
Aðgangseyrir er 2.500 krónur.
Kirkjukór Lágafellssóknar
Það eru svo
margir hjálparþurfi
Kórfélagar Félagar í Kirkju-
kór Lágafellssóknar láta gott
af sér leiða fyrir hver jól.
Laugavegi 82,
á horni Barónsstígs
sími 551 4473
Náttsloppar og
náttfatnaður í
úrvali
Gott verð