24 stundir - 14.12.2007, Blaðsíða 52
52 FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 2007 24stundir
Tákn heilagrar þrenningar
til styrktar blindum
GJAFABRÉF OG ÚRVAL SKEMMTILEGRA
GJAFAPAKKA FYRIRJÓLIN:
Nýtt: Súkkulaðidekur
Dekrum við líkama og sál með yndislegum
súkkulaðimeðferðum:
Súkkulaðiandlitsbað, Súkkulaðifótsnyrting
Súkkulaðihandsnyrting
Súkkulaðilíkamsmeðferð
Súkkulaðivax
Tilboð
Þú kaupir sukkulaðiandlitsbað og -fótsnyrtingu og
færð handsnyrtingu í kaupbæti
ÁRSÁTAK: - 60 % afsláttur!
Ótakmörkuð mæting íEurowave í 1 ár
36 skipti í Sogæðanudd
15 skipti í UltraCel cellómeðferð
15 skipti í Aqua Detox afeitrun
3 x 1/1 U.C.W. leirvafningur
3 x hálfur U.C.W. leirvafningur
Verð 92.700 - aðeins 7725 pr.mán
Svona tilboð kemur aðeins 1 sinni á ári!
Visa og Mastercard vaxtalausar léttgreiðslur - allt að 6 mán.
Fríir prufutímar í Eurowave og sogæðanudd
Smiðjuvegi 1 - Sími 564 4858 - www.fyrirogeftir.is
Eftir Írisi Ölmu Vilbergsdóttur
iris@24stundir.is
Jimmy Routley einkaþjálfari kemur
frá Freetown í Síerra Leóne og
hann hefur verið mjög duglegur að
heimsækja heimalandið síðan
hann flutti til Íslands.
„Jólin í Síerra Leóne eru gjörólík
þeim íslensku til dæmis að því leyti
að fólk hittist gjarnan á ströndinni
um jólin og spilar fótbolta og dans-
ar. Jólaskraut er líka sjaldséð í
þorpunum en það er þó eitthvað
um það að fólk í borgunum setji
upp jólaskraut. Það er þó aldrei
neitt í líkingu við það sem þekkist
hér,“ segir Jimmy.
Jólagjafir eru mjög mikilvægur
hluti af íslenskum jólum en það er
ekki tilfellið í Síerra Leóne. „Við
gefum ekki jólagjafir sem slíkar
heldur gefum við hvort öðru mat.
Fólk eldar hvað fyrir annað og há-
tíðin snýst að mestu leyti um að
það að borða. Maturinn er þó að
sjálfsögðu ekkert í líkingu við það
sem við borðum hér á landi en
þetta er mikill hátíðarmatur í
Síerra Leóne.“
Jimmy er ekki mjög hrifinn af
jólagjöfum því honum finnst oft
bera á svo mikilli græðgi hjá þeim
sem taka við þeim og einnig þeim
sem gefa. „Fólk virðist alltaf vera að
reyna að slá út jólagjafahauginn frá
því árið áður og þetta snýst því ekki
svo mikið um gjöfina sem slíka
heldur frekar um hversu margar
þær eru og hvað þær kosta.“
Jimmy fer þó aldrei í jólaköttinn
enda finnst íslensku fjölskyldunni
hans ekki hægt að halda jól án þess
að gefa honum pakka. „Alltaf þegar
ég er spurður að því hvað ég vilji í
jólagjöf segi ég að ég þurfi ekki að
fá neitt en ég fæ nú samt alltaf eitt-
hvað. Ég fer þó aldrei til Síerra
Leóne um jólin án þess að taka
með mér helling af gjöfum til að
gleðja börnin í nágrenninu. Það
eru svo margir þarna sem eiga ekk-
ert og það er því mikilvægt að
hugsa til þeirra á jólunum.“
Algengt er að nýbúar haldi í
gamla siði frá heimalandinu og
reyni þá jafnvel að blanda þeim
saman við þá íslensku.
„Ég hef ekki reynt að taka upp
jólasiði að heiman enda eru þeir
svo ólíkir að ég get ekki séð hvernig
ég ætti að geta samræmt þá. Þegar
ég hef eytt jólunum í Afríku með
fjölskyldunni minni skiljum við
gjafirnar eftir heima og höldum
látlaus jól þar sem einfaldur matur
er borðaður af pappa-
diskum og dansað er öll kvöld,“
segir Jimmy sem verður fjarri góðu
gamni þessi jól þar sem hann og
Bryndís, sambýliskona hans, eru
nýbúin að eignast sína aðra dóttur.
„Mér finnst mikilvægast um jól-
in að borða ekki yfir mig og vera
hraustur og hamingjusamur.“
Í Síerra Leóne er spilaður fótbolti á ströndinni um jólin
Íbúar Síerra Leóne
gefa aldrei jólagjafir
Er eigandi líkamsæktarstöðv-arinnar PI Fitness Gym.
Kennir kick box og muay thaiboxing ásamt því að taka fólk
í einkaþjálfun.
Hefur búið á Íslandi í 15 ár oger nú íslenskur ríkisborgari.
Býr með Bryndísi Lind ogeiga þau tvær dætur. Hann á
einnig son á unglingsaldri.
JIMMY ROUTLEYJólin eru mikill hátíð-
artími í flestum löndum
heimsins en hátíðarhöld-
in eru þó með ólíku sniði.
Á meðan sumir fara á
skíði um jólin fara aðrir í
sólbað á ströndinni. Jóla-
maturinn er einnig mjög
ólíkur.
Einföld jól Jimmy ásamt tengdaforeldrum sínum, Sigurði og
Ástu, og mágkonu sinni Snædísi. Litla daman er
Yasmin Cassandra dóttir hans sem nýlega eignaðist litla systur.
Þjóðlegir réttir yfir hátíðarnar
Ömmubakstur er jólin
Ömmubakstur framleiðir ýmsa
þjóðalega rétti sem eru ómissandi
yfir jólin, eins og laufabrauð, flat-
kökur, rúgbrauð, kleinur og
pönnukökur. ,,Það má með sanni
segja að Ömmubakstur er jólin,“
segir Snorri Sigurðsson, markaðs-
stjóri fyrirtækisins.
Framleiðsla laufabrauðs hefst
hjá Ömmubakstri í byrjun sept-
ember ár hvert. Fyrirtækið býður
upp á laufabrauðið steikt, ósteikt
og með kúmeni. Snorri segir að
einnig sé töluvert um það að fólk
sérpanti hjá þeim laufabrauð úr
rúgmjöli.
Fyrir utan laufabrauðið er mikið
keypt af flatkökum og rúgbrauði
yfir hátíðirnar. ,,Flatkökurnar frá
Ljósmynd/hér kemur texti
Ömmubakstur Gerir jólin þægilegri
aðinn pönnukökur á þessu ári.
Snorri segir að þær séu mjög snið-
ugar fyrir jólaboðin þar sem ein-
ungis þarf að hita þær. „Við hjá
Ömmubakstri gerum jólin þægi-
legri fyrir fólk.“
okkur eru mjög vinsælar í kringum
allt hangikjötið,“ segir Snorri. „Svo
er rúgbrauð og flatkökur auðvitað
líka mikið borðað með skötunni
og síldinni.“
Ömmubakstur setti á mark-
KYNNING