24 stundir - 28.12.2007, Blaðsíða 12
12 FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 2007 24stundir
kökur með 1” til 2” hólkum
bomba.is
Þetta er
sú minnsta
Sprengjukóngurinn
verður á staðnum
49 skota
100 skota
300 skota
600 skota
Víkurhvarf 6, Kópavogi
Eingöngutertur
Flugeldasala fagmannsins
Við hjálpum þér
að gera áramótin
eftirminnileg
Flugeldasala
Fjórtán ára drengur lést eftir
að hafa sniffað bensín í Ála-
borg fyrir jól. Sjúkraflutn-
ingamenn lífguðu drenginn
við á vettvangi en hann hafði
fengið hjartastopp. Honum
var haldið lifandi í önd-
unarvél yfir jólin.
Að sögn umgekkst drengurinn
hóp eldri unglinga sem orð-
aðir hafa verið við ofbeldi og
vímuefnaneyslu.
Vel er þekkt að bensíngufur og
kveikjaragas, sem notuð hafa
verið sem vímugjafar, geta
valdið hjartastoppi. aij
Álaborg í Danmörku
Lést eftir
bensínsniff
STUTT
● Rússland Enn einn frambjóð-
andinn í rússnesku forseta-
kosningunum hefur dregið
framboð sitt til baka. Segir Bor-
is Y. Nemstov, frambjóðandi
frjálslyndra, kosningabaráttuna
vera skrípaleik, þar sem stjórn-
völd í Kreml beiti sér á óeðlileg-
an hátt.
● Kannabis Félags- og heil-
brigðisráðherra Finnlands
hefur lagt til að notkun kann-
abisefna í læknisfræðilegum
tilgangi verði gerð lögleg.
Eftir Andrés Inga Jónsson
andresingi@24stundir.is
Yfir jólin fóru loftherir þriggja
Norðurlanda í viðbragðsstöðu
vegna flugs rússneskra sprengiflug-
véla. Á jóladag veittu norskar og
danskar orrustuþotur rússneskri
herflugvél eftirför og á miðvikudag
fór rússnesk flugvél inn á loft-
stjórnarsvæði Finnlands, að sögn
finnskra yfirvalda.
Flogið yfir Finnland
Varnarmálaráðuneyti Finnlands
segir að þota af gerðinni Tupulev
Tu-154 hafi á miðvikudag farið
hálfan kílómetra inn í lofthelgi
Finnlands og verið innan hennar í
þrjár mínútur. Rússar hafa neitað
því að flugvélin hafi farið inn á
finnskt svæði.
Finnar segja ekki ólíklegt að
mannleg mistök hafi valdið því að
flugvélin hafi farið inn fyrir mörk
finnsku lofthelginnar. Mörk loft-
umferðarsvæðanna í Finnska flóa
séu flókin og oft megi lítið út af
bera.
„Ef veðuraðstæður eru óhag-
stæðar getur breiddin á alþjóðlega
loftsvæðinu verið til vandræða,
sérstaklega ef um óreynda flug-
menn er að ræða,“ segir Jyrki Iivo-
nen, upplýsingafulltrúi finnska
varnarmálaráðuneytisins.
„Áhöfn vélarinnar vék af stefnu
og stefndi í átt að Finnlandi að
beiðni eistneskra flugumferðar-
stjóra,“ sagði Alexander Drobys-
hevsky, talsmaður yfirmanns rúss-
neska flughersins, við Iter-Tass, og
ítrekaði að vélin hefði ekki farið
inn í finnska lofthelgi.
Eltingarleikur á jóladag
Danskar orrustuþotur voru á
jóladag sendar á móti rússneskri
Tu-160 flugvél, sem borið getur
kjarnavopn. Hafði vélin tekið á loft
í Murmansk í norðurhluta Rúss-
lands og flogið sem leið lá suður
með Noregi í fylgd norskra orr-
ustuvéla. Var vélin innan öryggis-
svæðis sem nær utan um lofthelgi
Danmerkur þegar þotur danska
flughersins voru sendar á loft.
Dönsku þoturnar veittu
sprengjuvélinni eftirför í um 20
mínútur, en þá tóku breskar þotur
við eftirförinni. Var hersingin næst
Danmörku í 120 kílómetra fjar-
lægð frá lofthelgi landsins.
Aukin tíðni atvika
Undanfarna mánuði hafa rúss-
neskar herþotur í auknum mæli
flogið í eða við lofthelgi NATO-
ríkja. Danski flugherinn fylgdi
þotu á sömu leið 30. október síð-
astliðinn og þrír mánuðir eru síðan
finnsk stjórnvöld mótmæltu því að
rússnesk herflutningavél fór inn í
finnska lofthelgi. Þá er stutt síðan
rússneski flotinn var við æfingar
úti fyrir Noregsströndum.
HVAÐ VANTAR UPP Á?
Hringdu í síma 510 3700 eða
sendu póst á frettir@24stundir.is
Rússar sveima
um Skandinavíu
Rússneskar herflugvélar fljúga reglulega nærri lofthelgi NATO-ríkja Fóru inn fyrir
lofthelgi Finnlands, að sögn finnskra yfirvalda
➤ Rússnesk herflugvél rauf loft-helgi Finnlands á miðviku-
dag.
➤ Á þriðjudag var danski flug-herinn í viðbragðsstöðu
vegna rússneskrar herflug-
vélar í nágrenni danska flug-
stjórnarsvæðisins.
➤ Undanfarnar vikur hafa öllNorðurlöndin, utan Svíþjóð-
ar, átt við herafla Rússlands.
RÚSSARNIR KOMA
AFPTuplev-160 Sprengjuflugvélar sveima æ oftar í kringum Skandinavíu