24 stundir - 28.12.2007, Blaðsíða 42
42 FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 2007 24stundir
Hvert mannsbarn hefur eflaust
látið sig dreyma um að aka vinnu-
vélum en þeim virðist fjölga með
hverju árinu sem líður. Vinnuvélar
eru nýttar í alls kyns verk víða um
land og eftirsóknin er mikil í góð-
ærinu sem hefur leikið við Íslend-
inga um árabil.
Morgunblaðið/Eyþór
Margvísleg hlutverk vinnuvéla
Stórvirkar og
glæsilegar vélar
Snjómokstur
Vinnuvélar eru ómissandi
þegar borgarbúar þurfa að
komast leiðar sinnar.
Fáskrúðsfjarðargöng Vinnuvélar voru nýttar óspart á Austurlandi, þegar fram-
kvæmdir hófust við byggingu Kárahnjúkavirkjunar og síðar álvers við Reyðarfjörð.
Lítið mál Stórvirk vinnuvél mylur niður
gamalt frystihús KEA eins og ekkert sé.
Reykjavíkurhöfn Það þurfti aðeins meira
en mannahendur þegar dýpka þurfti
Reykjavíkurhöfn og vélin kom sér því vel.
Nauthólsvík Hér er unnið hörðum
höndum við að ljúka gerð ylstrand-
arinnar.
Komatsu hefur ákveðið að
setja á laggirnar fyrirtæki í Yar-
oslavl í Rússlandi, sem mun
meðal annars koma til með að
framleiða gaffallyftara. Áætlað er
að fyrsta framleiðslan úr þessari
nýju verksmiðju muni líta dags-
ins ljós í júní árið 2010.
Efnahagslífið í Rússlandi hefur
að undanförnu tekið mikinn
kipp, með útflutning náttúrlegra
auðlinda í fararbroddi. Hefur
markaðurinn fyrir ýmsar vinnu-
vélar stækkað jafnt og þétt síð-
ustu ár. Á Komatsu til dæmis
von á því að eftirspurn eftir gaff-
allyfturum tvöfaldist á árunum
2006 til 2009.
Komatsu hefur hingað til í
flestum tilvikum flutt framleiðslu
sína til Rússlands frá Japan.
Ákvað fyrirtækið að koma á fót
framleiðsluaðstöðu í Rússlandi
til að bregðast við þessari vax-
andi eftirspurn.
Íbúar Yaroslavl, þar sem Ko-
matsu ætlar að reisa verksmiðj-
una, eru um 600 þúsund talsins.
Borgin er aðaliðnaðarborg Rúss-
lands og liggur með fram ánni
Volgu, um 280 kílómetra norð-
austur af Moskvu.
Komatsu heldur áfram að stækka
Ný verksmiðja í Rússlandi
Útrás Komatsu Fyr-
irtækið ætlar að reisa
verksmiðju í Yaroslavl,
Rússlandi.
Fullt af fróðleik og skemmtilegu efni
Serblad 24 stunda
Auglysingasimi
Katrin s.510 3727 / kata@24stundir.is
Heilsa
4.januar 2008