24 stundir - 28.12.2007, Side 42

24 stundir - 28.12.2007, Side 42
42 FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 2007 24stundir Hvert mannsbarn hefur eflaust látið sig dreyma um að aka vinnu- vélum en þeim virðist fjölga með hverju árinu sem líður. Vinnuvélar eru nýttar í alls kyns verk víða um land og eftirsóknin er mikil í góð- ærinu sem hefur leikið við Íslend- inga um árabil. Morgunblaðið/Eyþór Margvísleg hlutverk vinnuvéla Stórvirkar og glæsilegar vélar Snjómokstur Vinnuvélar eru ómissandi þegar borgarbúar þurfa að komast leiðar sinnar. Fáskrúðsfjarðargöng Vinnuvélar voru nýttar óspart á Austurlandi, þegar fram- kvæmdir hófust við byggingu Kárahnjúkavirkjunar og síðar álvers við Reyðarfjörð. Lítið mál Stórvirk vinnuvél mylur niður gamalt frystihús KEA eins og ekkert sé. Reykjavíkurhöfn Það þurfti aðeins meira en mannahendur þegar dýpka þurfti Reykjavíkurhöfn og vélin kom sér því vel. Nauthólsvík Hér er unnið hörðum höndum við að ljúka gerð ylstrand- arinnar. Komatsu hefur ákveðið að setja á laggirnar fyrirtæki í Yar- oslavl í Rússlandi, sem mun meðal annars koma til með að framleiða gaffallyftara. Áætlað er að fyrsta framleiðslan úr þessari nýju verksmiðju muni líta dags- ins ljós í júní árið 2010. Efnahagslífið í Rússlandi hefur að undanförnu tekið mikinn kipp, með útflutning náttúrlegra auðlinda í fararbroddi. Hefur markaðurinn fyrir ýmsar vinnu- vélar stækkað jafnt og þétt síð- ustu ár. Á Komatsu til dæmis von á því að eftirspurn eftir gaff- allyfturum tvöfaldist á árunum 2006 til 2009. Komatsu hefur hingað til í flestum tilvikum flutt framleiðslu sína til Rússlands frá Japan. Ákvað fyrirtækið að koma á fót framleiðsluaðstöðu í Rússlandi til að bregðast við þessari vax- andi eftirspurn. Íbúar Yaroslavl, þar sem Ko- matsu ætlar að reisa verksmiðj- una, eru um 600 þúsund talsins. Borgin er aðaliðnaðarborg Rúss- lands og liggur með fram ánni Volgu, um 280 kílómetra norð- austur af Moskvu. Komatsu heldur áfram að stækka Ný verksmiðja í Rússlandi Útrás Komatsu Fyr- irtækið ætlar að reisa verksmiðju í Yaroslavl, Rússlandi. Fullt af fróðleik og skemmtilegu efni Serblad 24 stunda Auglysingasimi Katrin s.510 3727 / kata@24stundir.is Heilsa 4.januar 2008

x

24 stundir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.