24 stundir - 28.12.2007, Qupperneq 13
24stundir FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 2007 13
Samtök gyðinga í Íran gagn-
rýna fréttir af hópi 40 manna
sem á jóladag fluttust til Ísr-
aels og segja stöðu þeirra 20
þúsunda gyðinga sem búa í Ír-
an ekki slæma.
Yehiel Eckstein, formaður
samtaka sem stutt hafa hóp-
inn, segir íranska gyðinga í
bráðri hættu og vísar þar til
yfirlýsinga Íransforseta um
tortímingu Ísraelsríkis.
„Íranskir gyðingar geta
ferðast hvert sem þeir vilja,
hvenær sem þeir vilja, en líkt
og aðrir Íranar mega þeir ekki
ferðast til Ísraels,“ segir
Maurice Motamed, fulltrúi
gyðinga á íranska þinginu. aij
Tvennt er í haldi lögreglu í
Bandaríkjunum, grunað um
að hafa banað sex manns á
jóladag. Parið var handtekið
snemma á miðvikudag, stuttu
eftir að lögregla fann lík í ná-
grenni Seattle.
Líkin fundust í og við húseign
í sveitinni skammt frá Seattle.
Hafði lögreglu verið gert við-
vart eftir að eitt fórnarlamb-
anna mætti ekki til vinnu.
Talið er að fórnarlömbin hafi
verið skyld. Voru tvö þeirra á
sextugsaldri, tvö á fertugsaldri
og tvö börn. Talið er að annað
hinna grunuðu sé skylt fórn-
arlömbunum. aij
Stjórnarher Srí Lanka segist
hafa eyðilagt tugi báta Tamíl-
tígranna og drepið allt að 40
uppreisnarmenn í bardaga
undan norðvesturströnd Srí
Lanka á miðvikudag. Í gær
gerði stjórnarherinn svo loft-
árás á hafnarlægi tígranna á
sama svæði.
Aðgerðirnar eru ekki sér-
aðgerð, heldur hluti af herferð
stjórnar Srí Lanka til að
þvinga Tamíl-tígrana að
samningaborðinu, segir Uda-
ya Nanayakkara, talsmaður
stjórnarhersins. aij
Umdeildur flutningur
Gyðingar flytj-
ast frá Íran
Washington-ríki
Í haldi vegna
sex morða
Srí Lanka
Hart barist á
sjó og landi
Lögregla í Skotlandi hefur haft afskipti af
börnum á barnaskólaaldri vegna ölvunar og
telja fagaðilar unglingadrykkju vera stærra
vandamál í dag en fyrir áratug. Þetta kom í ljós
við könnun The Scotsman á drykkjusiðum
unglinga.
Undanfarin fimm ár hefur lögregla hneppt
ríflega 2.000 unglinga í varðhald vegna óláta og
ölvunar. Í þeim hópi eru 34 börn undir tólf ára
aldri og yngsta barnið var aðeins 10 ára. Þessar
tölur endurspegla þó ekki nema hluta vandans,
þar sem fjölda barna er komið til síns heima án
þess að þau séu handtekin.
Dave Smith, varðstjóri í Strathclyde-um-
dæmi, þar sem flest tilvikin eiga sér stað, stað-
festir þetta. Segist hann undanfarin ár hafa séð
aukningu á háskalegri ölvun almennings. „Út-
breiðsla áfengis hefur aukist og aldursmörkin
færst neðar,“ segir Smith. „Það er meira áfengi á
boðstólum og það er ódýrara en nokkru sinni
fyrr.“
Áfengisvarnarsamtök segja ástandið kalla á
hertar reglur um áfengissölu. „Við viljum ekki
gera ungt fólk að glæpamönnum að ástæðu-
lausu, en reglur um áfengissölu verða að tryggja
að reglum um lágmarksaldur sé framfylgt.
Starfsmenn áfengisverslana ættu að hljóta þjálf-
un í að takast á við unga drykkjumenn,“ segir
Frank Soodeen, talsmaður Alcohol Concern.
Verstu tilfellin koma ekki inn á borð lögregl-
unnar, heldur starfsfólks heilbrigðiskerfisins,
segir George Crooks, framkvæmdastjóri NHS
24. Segir hann að hjálparlínu samtakanna berist
fjöldi símtala frá foreldrum barna allt niður í
átta ára aldur.
andresingi@24stundir.is
Unglingadrykkja vaxandi vandamál í Skotlandi
Lögreglan tekur tíu ára fyllibyttur
Sviðsett mynd Unglingar að drekka landa , brugg.
Mynd úr safni , fyrst birt 19931210 á síðu c4 (Áfengis-
og fíkniefni 1 , síða 21 röð 1b)
á höfuðborgarsvæðinu, Akureyri, Selfossi og
í Keflavík um jól og áramót 2007
* Skv. áfengislögum er óheimilt að hafa opið á sunnudögum.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
3
0
9
3
8
Afgreiðslutíma vínbúða um allt land má sjá á www.vinbud.is