24 stundir - 28.12.2007, Síða 19
SKEIFAN 3E-F · SÍMI 581-2333 · FAX 568-0215 · WWW.RAFVER.IS
Bílkranar
Lyftigeta 2,5 - 85 tm
Eigum til á lager
PM 3522 LC - 3,5 tm.
Mesta lyftigeta: 1100 kg
Eigin þyngd: 475 kg
Væntanlegur
PM 22026 - 22 tm.
Mesta lyftigeta: 9000 kg
Eigin þyngd: 2825 kg
Væntanlegur
fljótlega
Með spil og glussaslönguhjól
GÁLGI
12° yfirhalli
JIB
20° yfirhalli
24stundir FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 2007 19
Margt ersagt um hag æðstuembætt-
ismanna sem vænk-
ast nú meira en hjá
öðrum. Hlynur Þór
Magnússon blogg-
ari segir hina of-
urríku ráða för,
fimmta valdið sem með öðru hafi
yfirtekið fjölmiðlana. „Ástæðulítið
virðist að búast við annarri þróun
hér en t.d. í Rússlandi, þar sem
þing, ríkisstjórn og dómstólar eru
í vasa hinna ofurríku. Þar er lýð-
ræði í orði en auðræði á borði.“
Samkeppni telur hann ekki skýra
laun embættismanna: „Varla trúi
ég að það skipti sköpum hvort
formaður bankastjórnar Seðla-
bankans er með tvö hundruð
þúsund krónum meira eða minna
í mánaðarlaun, vilji Baugur eða
Kaupþing krækja í hann á annað
borð.“
Nýjasta blóm-ið í skrúð-garði dóm-
stólanna fellur
Samfylkingunni
ekki vel í geð. Orðið
á götunni segir
óánægju gríðarlega eftir skipan
Árna M. Mathiesen á Þorsteini
Davíðssyni í embætti héraðsdóm-
ara. Ungir samfylkingarmenn rifji
nú upp frumvarp Lúðvíks Berg-
vinssonar um samþykki Alþingis
við val á dómara í Hæstarétti, en
þeir telja sömu prinsipp gilda um
dómara í undirrétti líka. Orðið
segir þá vilja að ráðherrar Sam-
fylkingar yggli sig framan í Sjálf-
stæðisflokkinn og setji ráðamönn-
um þar stólinn fyrir dyrnar.
Deilan um kirkju og skólafór ekki í jólafrí. Kirkj-unnar menn telja mikla
kirkjusókn um jólin lýsa stuðningi
við sinn málstað í
deilunni. En Baldur
Þórhallsson pró-
fessor sendi séra
Geir Waage skeyti á
Þorláksmessu. Pró-
fessorinn telur
prestinn fara rangt með söguna
þegar hann man ekki að kirkjan
hafi gert neitt á hlut kvenna.
Nafngreindir prestar hafi mót-
mælt vígslu Auðar Eirar 1974 og
einn hafi líkt vígslu kvenpresta við
„andlega kynvillu, afbrigðilega en
ekki eðlilega“. Baldur telur þjóð-
kirkjupresta beita sömu rökum
gegn hjónabandi samkynhneigðra
nú og þeir gerðu áður gegn vígslu
kvenpresta.
beva@24stundir.is
KLIPPT OG SKORIÐ
Stundum gerist það í opinberri
þjóðmálaumræðu að menn beita
brögðum sem ætlað er að afvega-
leiða lesandann frekar en að upp-
lýsa. Tvær aðferðir eru einna al-
gengastar í þeirri viðleitni.
Sú fyrri felst í að rangtúlka um-
mæli viðmælandans, snúa út úr
rökum hans og halla svo réttu máli
sjálfum sér í vil. Með þessari aðferð
komast menn hjá því að takast á
við þau rök sem viðmælandinn
hafði raunverulega lagt fram máli
sínu til stuðnings. Síðan er hjólað í
þennan rangt túlkaða málflutning.
Stefán Ólafsson, félagsfræðipró-
fessor, varð til að mynda fyrir
barðinu á þessari aðferð þegar
sumir stjórnmálamenn hófu að af-
baka rannsóknaniðurstöður hans
sem sýndu að afmarkaður hópur
fólks á Íslandi bjó við fátæktar-
mörk samkvæmt tilteknum alþjóð-
legum skilgreiningum.
Dæma úr leik
Hin aðferðin er sama marki
brennd, nefnilega því að komast
hjá því að takast á við rök viðmæl-
andans. Sú gengur út á að stimpla
viðmælandann og dæma þannig úr
leik í umræðunni. Það var til að
mynda leiðinlegt að sjá um daginn
þegar ungur og efnilegur þingmað-
ur Framsóknarflokksins kaus að
beita þessari aðferð í umfjöllun um
gagnrýni Guðmundar Ólafssonar,
lektors í hagfræði, á hækkun á
lánshlutfalli Íbúðalánasjóðs. Þing-
maðurinn ungi féll því miður í
þann grautfúla pytt að dylgja um
fræðilegan heiður Guðmundar og
pólitískar hvatir í stað þess að ein-
beita sér að hinum efnislega mál-
flutningi. Líkast til hef ég sjálfur
einhverntímann fallið í þennan
sama leiðindapytt en það er ekki
gott að svamla lengi í forinni.
Útúrsnúningur
Stundum er báðum þessum að-
ferðum beitt samtímis. Sjálfur fékk
ég svoleiðis jólakveðju frá Bjarna
Harðarsyni, þingmanni Framsókn-
arflokksins, fyrst á þessum vett-
vangi á laugardaginn síðastliðinn
og svo aftur í Morgunblaðinu á að-
fangadag (tekin af vef þingmanns-
ins). Forsaga málsins er sú að ég
hafði verið fenginn til að skýra frá
nýjum sáttmála ESB í Silfri Egils
helgina áður. Í stað þess að gagn-
rýna málflutning minn efnislega
fór þingmaðurinn í þann leiðangur
að snúa út úr máli mínu. Raunar er
engu líkara en að hann hafi ekki
einu sinni heyrt þá gagnrýni sem ég
færði fram á stjórnsýslu ESB í þætt-
inum en það get ég ekki vitað um.
Þvínæst hóf þingmaðurinn stimp-
ilinn á loft og þar með átti að
dæma mig úr leik sem ómarktækan
í málinu. Raunar gekk þessi þing-
maður lengra en ég hef áður séð
því hér var vísvitandi farið með
rangt mál. Í grein sinni hér í
blaðinu fullyrti þingmaðurinn að
ég sé formaður Evrópusamtak-
anna. Þegar ég benti honum á að
þá vegtyllu hefði ég aldrei hlotið og
raunar aldrei sóst eftir breytti hann
mér í talsmann þessara sömu sam-
taka í Morgunblaðsgreininni. Samt
veit þingmaðurinn fullvel að ég hef
fyrir löngu látið af pólitískum af-
skiptum og starfa í dag sem for-
stöðumaður Evrópufræðaseturs
Háskólans á Bifröst. Eigi að síður
kaus þingmaðurinn að halla réttu
máli í stað þess að takast á við mál-
efnið og tókst svo á einhvern stór-
undarlegan hátt að blanda þeim
Hitler og Stalín inn í málið. Vandi
minn er sá að ég myndi gjarnan
vilja rökræða við þingmanninn um
ríkjasamvinnu í Evrópu og stöðu
Íslands í alþjóðlegu samstarfi en
grein hans var svo yfirfull af gíf-
uryrðum, fordæmingum, rausi og
rangfærslum að það er tæpast
hægt.
Það er sjálfsagt að gagnrýna mál-
flutning manna harkalega en ég
held að flestu fólki leiðist að ræða
við menn sem hafa meira fyrir því
að snúa út úr og halla réttu máli
heldur en að takast á með rökum.
Höfundur er dósent í stjórnmálafræði og
forstöðumaður Evrópufræðaseturs
Háskólans á Bifröst
Hugleiðing um
þjóðmálaumræðu
VIÐHORF aEiríkur Bergmann Einarsson
Þingmað-
urinn ungi
féll því miður
í þann graut-
fúla pytt að
dylgja um
fræðilegan
heiður Guðmundar og
pólitískar hvatir í stað
þess að einbeita sér að
hinum efnislega mál-
flutningi.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
frá kr. 73.560
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Heimsferðir bjóða frábært tilboð á allra síðustu
sætunum í 14 nátta ferð til Dóminíska lýðveldisins
18. janúar. Njóttu lífsins við ótrúlegar aðstæður í
Karíbahafinu á þessari fögru paradísareyju sem
býður frábærar aðstæður fyrir ferðamanninn.
Heimsferðir bjóða einstakt tækifæri til að upplifa
stórkostlegar strendur, frábæra tónlistarmenningu,
fjölbreytta afþreyingu og einstakt mannlíf. Athugið
mjög takmarkaður fjöldi flugsæta og gistingar í boði!
18. janúar
2. janúar
9. janúar
16. janúar
Verð kr. 73.560
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 1
barn (2-11 ára í 14 nætur á Tropical
Casa Laguna *** með “allt innifalið”,
18. janúar.
Verð kr. 89.790
Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli í
14 nætur á Tropical Casa Laguna ***
með “allt innifalið”, 18. janúar.
Takmörkuð gisting í boði!
Dóminíska lýðveldið
Ótrúlegt tilboð - 14 nátta ferð
- með allt innifalið
ATVINNUBLAÐIÐ
atvinna@24stundir.is
alltaf á laugardö
gum
Pantið gott pláss t
ímanlega