24 stundir - 28.12.2007, Blaðsíða 32
32 FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 2007 24stundir
Eftir Hildu H. Cortez
hilda@24stundir.is
Starfsmenn hjá framkvæmdasviði
Reykjavíkurborgar sjá um að halda
borginni hreinni en
framkvæmdasvið ber ábyrgð á
gerð, rekstri og viðhaldi gatna,
stíga og opinna svæða í borginni.
Guðni Hannesson, yfirverkstjóri
hjá þjónustumiðstöðinni að Stór-
höfða, segir alltaf nóg að gera en
telur borgina sjaldan jafn und-
irlagða rusli og eftir gleði gaml-
ársnætur, enda mikið sprengt á
gamlárskvöld og borgin full af alls
kyns rusli.
Skólavörðuholtið undirlagt
„Við förum alveg sérferð á ný-
ársdagsmorgun. Skólavörðuholtið
er yfirfullt af flugeldum og slíku
þannig að menn eru rifnir upp
snemma á nýársmorgun til þess að
hreinsa göturnar. Það ber þá mest
á þessu flugeldarusli og getur tekið
dágóðan tíma að hreinsa upp eftir
landann. En þetta kemur smátt og
smátt. Nýársdagur er ekki erfiðasti
tími ársins. Þetta er farið að dreif-
ast yfir veturinn hjá okkur. Það er í
raun enginn tími verstur en það er
misjafnt hvaða verkefnum þarf að
sinna á hverjum tíma, en það þarf
alltaf að halda borginni hreinni.“
Guðni segir sópunina vera í lág-
marki á þessum tíma inni í hverf-
um borgarinnar. „Það er aðallega
miðborgin sem við höldum
hreinni en hún er hreinsuð á
hverjum morgni, hún verður líka
að vera hrein og fín fyrir hátíð-
arnar.
Vetrartíminn fer meira í að salta
og ryðja götur heldur en á sumrin,
þá er meiri þörf á götusópun.
Fleira fólk safnast þá saman í bæn-
um og því fylgir meira rusl.“
Að sögn Guðna kemur það fyrir
að menn lendi í vandræðum með
drukkið fólk sem er í bænum fram
undir morgun á sumarnóttum um
helgar. „Þá förum við bara eins og
kettir í kringum heitan graut og
byrjum að hreinsa þá staði þar
sem minnst umferð er. Færum
okkur svo að miðjunni þegar flest-
ir eru farnir heim.“
Ganga illa um
„Það er afskaplega mikið af
flöskurusli þegar mannfjöldi hefur
komið saman í bænum. Fólk geng-
ur afar illa um. Ég er nýkominn
frá Heidelberg þar sem ég tók eftir
því að göngugatan í miðbænum
var tandurhrein daginn eftir mik-
inn mannsöfnuð, þrátt fyrir að
hún hefði verið smekkfull af fólki
allan daginn eins og hérna á
Menningarnótt. Þjóðverjinn er svo
agaður, eitthvað annað en Íslend-
ingarnir en það er meira líkt með
okkur og Dönunum,“ segir Guðni
og hlær.
24 stundir/Sverrir
Reynt að halda götum borgarinnar hreinum allan ársins hring
Skólavörðuholtið fullt
af flugeldarusli
➤ Framkvæmdasvið Reykjavík-urborgar ber ábyrgð á bygg-
ingu, rekstri og viðhaldi
mannvirkja í eigu borg-
arinnar.
➤ Þjónustumiðstöðin sinnirákveðnum verkefnum fyrir
alla borgina, svo sem upp-
setningu og viðhaldi umferð-
ar- og gangbrautaljósa og
vetrarþjónustu.
VIÐHALD BORGARINNARStarfsmenn framkvæmd-
sviðs Reykjavíkurborgar
hafa í nógu að snúast all-
an ársins hring en þeir sjá
um að halda borginni
hreinni. Guðni Hann-
esson yfirverkstjóri segir
Íslendinga ekki ganga
nægilega vel um.
Nýársdagur Borgin er yf-
irfull af flugeldarusli að
morgni nýársdags.
Aukning á stærð vökvabors
eykur afkastagetu um allt að
15% ef miðað er við stærð nýs
vökvabors frá Caterpillar. Ham-
arinn H180D vegur tæp fjögur
tonn og er hannaður fyrir Cat
345C og 365C skurðgröfur.
Hamarinn er fleiri kostum bú-
inn. Sjálfvirkt slökkvikerfi gerir
það að verkum að pressan slekk-
ur sjálfkrafa á sér þegar hún
nemur ekkert yfirborð til þess að
vinna á. Upphengikerfið dregur
úr höggþunga sem leiðir af
pressunni um vélarhúsið við
notkun en það gerir það að
verkum að mun þægilegra er að
stjórna vélinni og eykur líftíma
gröfunnar ásamt því sem hávaði
er minni.
Stærri vökvabor eykur afköst
Afkastageta eykst um 15%
Framkvæmdir Stærð
vökvabors hefur áhrif á
afkastagetu hans.
Ert þú leið(ur) á
að skipta um perur?
DÍÓÐULJÓSIN FRÁ OKKUR ERU:
Ljósin frá okkue geta lýst leið þína lengi lengi ...
Klettagarðar 11, 104 Reykjavík
TRUCK - LITE
Ljósasamlokurnar frá okkur eru:
ÓBRJÓTANDI
HÖGGÞOLNAR
ENDAST OG ENDAST
ORKUSPARANDI
ÓBRJÓTANDI
10.000 KLST.
ÁBYRGÐ PASSA
FYRIR ALLAR
GERÐIR VÖRU- OG
FLUTNINGABÍLA
Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða
Datek óskar viðskiptavinum
sínum og landsmönnum öllum
gleðilegra jóla og farsældar
á nýju ári.
h
Smiðjuvegur 50 (rauð gata), 200 Kópavogur, s 520 3100
Japan/U.S.A.
STÝRISENDAR,
SPINDILKÚLUR
OG FÓÐRINGAR
í jeppa í miklu úrvali
Vagnhöfða 7
110 Reykjavík
Sími: 517 5000
UPPLÝSINGAR OG INNRITUN Í SÍMA 894 2737
www.ovs.is
Staðsetning Mjódd
VINNUVÉLANÁMSKEIÐ
NÁMSKEIÐ HEFST 11 JAN. 2008