24 stundir - 19.01.2008, Side 20
20 LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 2008 24stundir
www.airfree.com • www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25
Airfree lofthreinsitækið
• Byggir á nýrri tækni sem eyðir
ryki, frjókornum og gæludýraflösu
• Eyðir ólykt, bakteríum, vírusum, myglu og öðrum örverum
• Er hljóðlaust og viðhaldsfrítt – tilvalið í svefnherbergið og á skrifstofuna
Betra
loft
betri
líðan
FÉOGFRAMI
vidskipti@24stundir.is a
Ég held að fatahönnuðir hafi sýnt
það og sannað að í fatahönnun
felast viðskiptatækifæri.
Eftir Hlyn Orra Stefánsson
hlynur@24stundir.is
„Ég lít á þetta sem sigur fyrir ís-
lenska hönnunarsamfélagið,“ segir
Steinunn Sigurðardóttir fatahönn-
uður, en hún hlaut í fyrradag árlega
viðurkenningu Félags kvenna í at-
vinnurekstri (FKA).
Steinunn hefur hlotið ýmis verð-
laun á ferlinum og fékk til að
mynda norrænu fatahönnunar-
verðlaunin Ginen sl. haust. Henni
þykir þó sérstaklega vænt um við-
urkenninguna frá FKA. Með þessu
séu konur í atvinnurekstri að við-
urkenna fatahönnun sem atvinnu-
grein.
Viðskiptatækifæri í hönnun
„Mér finnst það skipta miklu
máli að atvinnulífið almennt sjái
tækifærin sem liggja í hönnunar-
tengdum viðskiptum. Ég held að
fatahönnuðir hafi sýnt það og
sannað að í fatahönnun felast við-
skiptatækifæri,“ segir Steinunn.
Hún segir mikla gerjun hafa ver-
ið í íslenskri fatahönnun undanfar-
in ár og að margir ungir fatahönn-
uðir hafi stigið fram á sjónarsviðið.
„Mér finnst það bara frábært og ég
vona að margir hönnuðir eigi eftir
að feta í mín fótspor og halda þessu
áfram. Mér finnst það ekki spurn-
ing að fatahönnun og öll hönnun á
Íslandi sé það hugvit sem við eigum
að flytja út. Og stjórnvöld virðast
loksins vera búin að átta sig á því.“
STEiNUNN sigrar heiminn
Steinunn selur hönnun sína
undir merkinu STEiNUNN í búð
sinni á Laugavegi og í ýmsum fata-
verslunum erlendis. Fyrir einu og
hálfu ári var hún ein í rekstrinum.
Nú eru þær orðnar fjórar og segir
Steinunn fyrirtækið vaxa jafnt og
þétt.
Aðspurð hvort fyrirtækið standi
vel fjárhagslega segir Steinunn:
„Merkið er komið inn í búðir á öll-
um Norðurlöndunum, í Bretlandi,
Japan og Bandaríkjunum, þannig
að það er komin ágætis velta. En
þegar maður á sitt eigið fyrirtæki
vinnur maður líka allan sólar-
hringinn.“
Aðspurð segir Steinunn að sér
hafi ekki fundist það vekja sérstaka
athygli erlendis að hún sé Íslend-
ingur. „Erlendir blaðamenn sjá
þetta ekki sem íslenska hönnun,
heldur norræna.“
Hún segir ákveðna þætti ein-
kenna norræna hönnun. Meira sé
t.d. um tilvísun til landslagsins
heldur en í suðurevrópskri hönnun
og formið lífrænna.
Unnið með Klein og Lauren
Steinunn hefur unnið náið með
ýmsum þekktum hönnuðum, en
hún vann til að mynda um árabil
með Calvin Klein, Ralph Lauren og
Tom Ford hjá Gucci. Hún segir að
tískurisar þessir hafi verið drifnir
áfram af metnaði fyrir hönnun
fremur en gróðasjónarmiðum. „Ég
vil meina að með slík viðhorf muni
fyrirtæki pottþétt á endanum ná að
búa til viðskipti úr hönnuninni.“
Tækifæri í ís-
lenskri hönnun
Fatahönnuður fær viðurkenningu Félags kvenna í atvinnurekstri
Steinunn Sigurð-
ardóttir Hefur hlotið
margar viðurkenningar
fyrir hönnun sína.
➤ Steinunn Sigurðardóttirhannar undir merkinu STEiN-
UNN og selur föt sín hér
heima og erlendis.
➤ Hún fékk í fyrradag við-urkenningu frá Félagi kvenna
í atvinnurekstri.
FARSÆLL HÖNNUÐUR
MARKAÐURINN Í GÆR
!""
!"#
$
%
&#
'()*+
'
,
-./.
0#1
2
345
#"
" 61
"(##
(7
81
!"# "
+9#/
01 - -
:
-
;#
1
-/
!
: -
0 -< =
$
'
>?@A>3BC
>3555AC4>
>3DBA4@4?
AB?A>@543
43DCCCA55
A35>3DBA
3D@5A?>D
@5>B5?3D@
>CDD5@AB4
AD?????
CC??BBB@
A3B5DDB44
BDD?>C?A
,
>5335??
?
A4A4>5
@5DD?B@
>C533C3D
>BA5??
A>A@453
,
,
,
,
CCC?4???
,
,
BE?A
53E??
>DEB5
>?E44
A?E?5
3>E>5
A4EB5
CD@E??
3AE>?
>??E??
CE3D
>3ED5
5EB@
B4E??
>EBB
4EC3
>@?E??
>33?E??
D5CE??
?E55
>DAE??
3E53
A3EA?
,
,
ACB5E??
,
,
BE>5
53E3?
>5E??
>?EC3
A?E>5
3>E5?
ACEA?
C5?E??
3AEA?
>?>E??
CED?
>3ED4
4E?3
B4E5?
AE?>
4EC@
>@AE5?
>3DBE??
D@?E??
?E54
>D@E??
3E5@
,
,
,
A@A?E??
,
4E5?
/
- 5
AC
A5
5>
5@
C
C
C@
AC
3
A>
3>
>B
,
D
,
>
>@
>5
>
C
,
,
,
,
B
,
,
F#
-#-
>@>A??@
>@>A??@
>@>A??@
>@>A??@
>@>A??@
>@>A??@
>@>A??@
>@>A??@
>@>A??@
>@>A??@
>@>A??@
>@>A??@
>@>A??@
>C>A??@
>@>A??@
>C>A??@
>@>A??@
>@>A??@
>@>A??@
>@>A??@
>@>A??@
>C>A??@
B>A??@
4>AA??C
AA@A??C
>@>A??@
>?>A??@
>D>A??@
● Mestu viðskiptin í Kauphöll
OMX í gær voru með bréf í Kaup-
þingi banka, fyrir 740 milljónir
króna.
● Mesta hækkunin var á bréfum í
Teymi eða um 2,03%.
● Mesta lækkunin var á bréfum í
Century Aluminium, 8,47%. Bréf í
P/F Atlantic Petroleum lækkuðu
um 4,05% og bréf í FL Group um
1,47%.
● Úrvalsvísitalan hækkaði um
0,45% og stóð í 5.539,27 stigum í
lok dags.
● Íslenska krónan styrktist um
0,88% í gær.
● Samnorræna OMX-vísitalan
lækkaði um 1,49 %. Breska FTSE-
vísitalan hækkaði um 1,4% og
þýska DAX-vísitalan hækkaði um
0,5%.
Kínverjar hafa sýnt sérstakan
áhuga á Íslandi að undanförnu
sökum áhuga þeirra á Norður-
Íshafi sem framtíðarsiglingaleið.
Þetta segir Rober Wade, prófessor
við The London School of Econo-
mics, í grein í Financial Times.
Hann bendir á að ýmislegt bendi
til þess að árið 2015 geti hefð-
bundin skip siglt um Norður-
Íshaf allt árið um kring. Ísland muni þá gegna mikilvægu hlutverki
fyrir vöruflutninga á hafi, en það sé sérstakt hagsmunamál fyrir Kín-
verja að geta siglt stórum fragtskipum sínum um Íshafið.
Bendir prófessorinn jafnframt á að ekkert annað land reki stærra
sendiráð á Íslandi en Kínverjar, og að Ólafur Ragnar Grímsson hafi
fengið einstakar viðtökur er hann heimsótti Kína. Þá hafi Kínverjar
verið Íslandi innan handar í baráttunni fyrir sæti í öryggisráði Sam-
einuðu þjóðanna. hos
Lega Íslands mikilvæg
Pólitísk samstaða er um það í
Bandaríkjunum að dæla enn
meira fé inn í efnahagskerfið til
að bregðast við þeim nið-
ursveiflum sem verið hafa á
mörkuðum, en Dow Jones-
vísitalan hefur t.d. fallið um tæp
10% frá áramótum.
Talið er að meira en 100 millj-
arðar dollara muni skila sér inn í
hagkerfið með ýmsum stjórn-
valdsaðgerðum, svo sem skatta-
lækkunum og afskriftum skulda.
Að sögn talsmanns Hvíta hússins
er von á aðgerðum mjög fljótlega.
The New York Times segir að
fjárfestar hafi ekki tekið mikið
mark á orðum Ben S. Bernanke,
bankastjóra bandaríska seðla-
bankans, sem sagði markaði
mundu glæðast á næstunni, enda
væri hagkerfið „einstaklega
seigt“. hos
Brugðist við
vanda vestra
Penninn hefur keypt 51% hlut í
írsku kaffihúsakeðjunni In-
somnia, samkvæmt frétt á írskum
viðskiptavef, RTÉ. Að sögn Kerr
er stefnt að því að opna 20 ný In-
somnia kaffihús á Írlandi og með
tilkomu Pennans verði horft til
útrásar Insomnia annars staðar í
Norður-Evrópu á næsta ári. Alls
starfa 200 manns hjá Insomnia.
mbl.is
Penninn kaupir
írsk kaffihús
Niðurstöður könnunar Creditinfo Íslands á vanskilum fyrirtækja sýna
ótvírætt að fyrirtæki með konur í stjórn eru hlutfallslega áhættuminni.
27.000 fyrirtæki voru skoðuð. Niðurstöðurnar sýndu að í stærri fyr-
irtækjum þar sem fjöldi stjórnarmeðlima var 3 eða fleiri, eru fyrirtæki
með eingöngu konum í stjórn til muna ólíklegri til að lenda í alvar-
legum vanskilum en fyrirtæki þar sem sem sitja þrír eða fleiri karl-
menn í stjórn. Munurinn er 0,75% á móti 2,21%. Í niðurstöðum út-
tektarinnar má sjá að fyrirtæki eru alltaf líklegri til að lenda í
vanskilum þar sem engar konur eru í stjórn. Fyrirtæki með færri
stjórnarmenn en þrjá þar sem eingöngu konur eru í stjórn eru líklegri
til að lenda í vanskilum en þar sem er blönduð stjórn. Úttektin var
gerð á 27.000 fyrirtækjum sem skiluðu ársreikningi fyrir árin 2005-
2006. bee
Öruggara að hafa konur í stjórn
Actavis hefur samið við lyfjafyr-
irtækið Pfizer um kaup á lyfja-
verksmiðju sem sérhæfð er í
framleiðslu krabbameinslyfja.
Verksmiðjusvæðið er um 300.000
fermetrar og fastir starfsmenn
um 340 talsins. mbl.is
Actavis kaupir