24 stundir - 19.01.2008, Blaðsíða 32

24 stundir - 19.01.2008, Blaðsíða 32
32 LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 2008 24stundir Hvaða lifandi manneskju lítur þú upp til og hvers vegna? Ég lít mikið upp til foreldra minna og ömmu. Þetta eru yndislegar mann- eskjur sem vilja allt fyrir alla gera og eru góðar fyrirmyndir barna sinna. Hver er þín fyrsta minning? Þegar ég var niðri í bæ í Eyjum með mömmu og datt og fékk gat á hausinn í annað skiptið þann dag. Hver eru helstu vonbrigðin hingað til? Ég velti mér ekki mikið upp úr von- brigðum heldur reyni að sjá björtu hliðarnar á málunum. Hvað í samfélaginu gerir þig dapra? Glæpir. Leiðinlegasta vinnan? Að standa í helstu matvörubúðum landsins og kynna súkkulaði fyrir jól- in. Uppáhaldsbókin þín? Skólabækurnar. Hvað eldarðu hversdags, ertu góður kokkur? Ég elda nú ekkert gríðarlega mikið en tel mig geta gert ágæta kjúklingarétti. Hver myndi leika þig í kvikmynd byggðri á ævi þinni? Jennifer Aniston þar sem við þykjum næstum því eins; hehe. Að frátalinni húseign, hvað er það dýrasta sem þú hefur fest kaup á? Tölvan mín ábyggilega. Mesta skammarstrikið? Þegar ég og vinkona mín stálum pox- myndum þegar við vorum litlar. Hvað er hamingja að þínu mati? Að eiga góða vini og fjölskyldu og hafa markmið í lífinu. Hvaða galla hefurðu? Ég er hrikalega óstundvís, svo finnst mér leiðinlegt að taka til. Ef þú byggir yfir ofurmannlegum hæfileikum, hverjir væru þeir? Að passa að allir hefðu í sig og á. Hvernig tilfinning er ástin? Hún er einstök. Hvað grætir þig? Söknuður og tap. Hefurðu einhvern tímann lent í lífs- hættu? Já, ég held það. Hvaða hluti í eigu þinni meturðu mest? Þeir eru svo margir að ég get ekki gert upp á milli. Hvað gerirðu til að láta þér líða vel? Ég hreyfi mig, borða góðan mat og er í góðra vina hópi. Hverjir eru styrkleikar þínir? Ég er sjálfstæð og metnaðargjörn. Hvað langaði þig að verða þegar þú varst lítil? Mig langaði alltaf til þess að verða íþróttakennari. Er gott að búa á Íslandi? Það er langbest. Hefurðu einhvern tímann bjargað lífi einhvers? Nei, ekki í bókstaflegri merkingu. Hvert er draumastarfið? Íþróttasálfræðingur með einkarekna stofu. Hvað ertu að gera núna? Ég er að svara 24 spurningum fyrir blaðið 24 stundir. 24spurningar Margrét Lára Viðarsdóttir „Þetta er tvímælalaust mesta viðurkenning sem ég hef hlotið á mínum ferli til þessa. Engin verðlaun hafa komið mér jafnmikið á óvart og þessi,“ sagði hin 21 árs gamla knattspyrnukona, Margrét Lára Viðarsdóttir, hálfklökk eftir að hafa verið valin íþróttamaður ársins 2007 með nokkrum yf- irburðum af Samtökum íþróttafréttamanna í hófi á Grand Hóteli. Margrét Lára hefur spilað með Val og íslenska lands- liðinu og sló markamet með báðum liðum á síðasta ári. a Ég lít mikið upp til foreldra minna og ömmu. Þetta eru yndislegar mann- eskjur sem vilja allt fyrir alla gera og eru góðar fyrirmyndir barna sinna. Árvakur/Jón Svavarsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.