24 stundir - 19.01.2008, Qupperneq 64
64 LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 2008 24stundir
Misty, Laugavegi 178,
Sími 551 3366
Góð þjónusta – fagleg ráðgjöf
www.misty.is
Flottur haldari í D,DD,E,F,FF,G,H,HH
á kr. 5.650,-
Mjúkur og lekker í C,D,DD skálum
á kr. 5.650,-”
Á leið í sólina...eða kannski í bústað?
buxur með belti í S,M,L,XL á
kr. 2.990,-
buxur sem má bretta upp í S, M,L,XL
á kr. 2.990,-
Laugavegi 53 • Sími 552 3737
Opið virka daga 10-18 • Laugar daga 10-16
ALLAR ÚTSÖLUVÖRUR Á
ENN MEIRI
VERÐLÆKKUN
50-70% AFSLÆTTI
24LÍFIÐ
24@24stundir.is a
Drengurinn hafði leðurkennd útbrot
víða um líkamann, meðal annars á and-
liti og kviði, og eftir rannsóknir var hann
greindur með ofnæmi fyrir nikkel.
Leikaranum og Íslandsvininum
Kiefer Sutherland hefur nú verið
sleppt úr fangelsi en kallinn hefur
þurft að sitja í steininum síðan 5.
desember. Sutherland var lok-
aður inni fyrir að hafa ekið undir
áhrifum áfengis. Sutherland var
að sjálfsögðu frelsinu feginn en
tímasetning fangelsisvistarinnar
hefði vart getað komið á betri
tíma því framleiðsla á 24-
þáttunum liggur nú niðri vegna
verkfalls handritshöfunda. vij
Sutherland fær
frelsið á ný
Undirbúningur fyrir þriðju Tran-
sporter-myndina er nú vel á veg
kominn og tilkynnt verður innan
tíðar hver muni leikstýra mynd-
inni. Orðrómur segir að Olivier
Megaton muni leikstýra mynd-
inni en hann hefur áður leikstýrt
myndinni The Red Siren. Jason
Statham mun að öllum líkindum
snúa aftur til að leika aðal-
hlutverkið í myndinni. vij
Nýr leikstjóri
fyrir Transporter
Eftir Viggó I. Jónasson
viggo@24stundir.is
Samkvæmt rannsóknum dr. Lio-
nels Bercovitch, prófessors í húð-
sjúkdómafræðum, inniheldur
helmingur vinsælustu farsímanna
á Bandaríkjamarkaði nikkel.
Nikkel getur valdið heiftarlegum
ofnæmisviðbrögðum.
Í janúarhefti Canadian Medi-
cal Association Journal birtist
grein dr. Bercovitch þar sem
hann greinir frá sjúkrasögu 18
ára unglings. Drengurinn hafði
leðurkennd útbrot víða um lík-
amann, meðal annars á andliti og
kviði, og eftir rannsóknir var
hann greindur með ofnæmi fyrir
nikkel.
Nokia-símar nikkelfríir
Ofnæmisvaldurinn reyndist
vera farsíminn hans en hátt
magn nikkels var í Samsung-síma
drengsins. Þetta er ekki eina til-
fellið þar sem hægt er að rekja
nikkelofnæmi til farsíma en
greint hefur verið frá slíkum til-
fellum meðal annars í Japan,
Kóreu, Austurríki og Ítalíu.
Bercovitch prófaði 22 vinsæl-
ustu farsímana sem fást í Banda-
ríkjunum til að sjá hversu hátt
hlutfall þeirra innhéldi nikkel.
Um helmingur þeirra farsíma
sem prófaðir voru reyndist inni-
halda nikkel.
Valmyndartakkarnir á bæði
Samsung og Sony Ericsson inni-
héldu nikkel sem og skrautmerk-
ingar á Motorola-farsímunum.
Prófaðar voru fimm mismunandi
gerðir af Nokia-símum en eng-
inn þeirra reyndist innihalda
nikkel.
Kemur ekkert á óvart
„Þetta er ekki lífshættulegt en
getur verið alveg feikimikið
vandamál,“ segir Davíð Gíslason,
yfirlæknir ofnæmisdeildar Land-
spítalans í Fossvogi. Davíð er
ekki kunnugt um sambærileg til-
felli hér á landi en hann segir að
ef símarnir innihalda á annað
borð nikkel þá komi ofnæm-
isviðbrögð vegna farsíma lítið á
óvart. „Það liggur í augum uppi
ef nikkel er í ytra byrði símans.“
Ofnæmisvaldar? Helmingur vin-
sælustu farsímanna í Bandaríkjunum
inniheldur nikkel sem getur verið
skaðlegt heilsunni.
Farsímar ógna heilsufari almennings
Helmingur far-
síma með nikkel
Um helmingur farsíma á
Bandaríkjamarkaði inni-
heldur nikkel og geta
þeir valdið notendum
nikkelofnæmi með til-
heyrandi kláða, exemi og
óþægindum.
➤ Á milli 15-20 prósent kvennaá Íslandi eru með nikk-
elofnæmi.
➤ Algengustu sökudólgarnirfyrir nikkelofnæmi eru skart-
gripir sem innihalda nikkel,
svo sem hálsmen og eyrna-
lokkar.
NIKKELOFNÆMI
Í kvöld verður á Nasa árlegt árs-
listakvöld útvarpsþáttarins Party
Zone sem er á dagskrá Rásar 2. Til-
efnið er sem endranær sjálfur árs-
listi Party Zone en hann er á dag-
skrá Rásar 2 fyrr um kvöldið frá
19:30 til miðnættis. Þar verða
kynnt 50 bestu lög ársins 2007 sem
valin eru af ríflega 30 plötusnúð-
um, frumkvöðlum í íslenskri dans-
senu og hlustendum þáttarins.
Árslistakvöldið er haldið í þrett-
ánda sinn en sjálfur er þátturinn
og árslistinn sem slíkur átján ára.
Það eru herramennirnir Helgi Már
Bjarnason og Kristján Helgi Stef-
ánsson sem sjá um þennan lífseig-
asta danstónlistarþátt Íslands, sem
hefur hlotið viðurnefnið Dans-
þáttur íslensku þjóðarinnar.
Piltarnir hafa gjarnan boðið upp
á alþjóðlega plötusnúða á við-
burðum sem þeir standa fyrir og
engin undantekning verður á því á
Nasa í kvöld. Marc Romboy kemur
frá Þýskalandi og Tomas And-
ersson og hljómsveitin Super
Diskant koma frá Svíþjóð, en DJ
Casanova frá Hafnarfirði og DJ La-
zer frá Hvolfsvelli halda einnig
uppi stuðinu.
heida@24stundir.is
Átjándi árslisti Party Zone
Vísitalan lækkaði um 4,6% í gær
eftir að X17.com birti myndir af
Britney þar sem hún sýndi á graf-
ískan hátt að Rósa frænka var í
heimsókn. Greiningardeildin tel-
ur að botninum sé náð. afb
BRITNEY-VÍSITALAN
2006 2007 2008
19. 01. 2008 -8.353-4,6%
Mikil lækkun
Söngvarinn ástsæli Einar Ágúst
Víðisson hefur nú hafið leik með
nýrri hljómsveit sem heitir Taktík.
Meðlimir eru reynsluboltar úr öll-
um áttum, en auk Einars Ágústs eru
í bandinu Eysteinn Eysteinsson
trommari úr Pöpunum, Ingi Valur
sem hefur verið í Sixties undanfarin
misseri og Ingimundur Óskarsson
sem bæði hefur spilað með Sixties
og súpergrúppunni Dúnd-
urfréttum.
„Bandið á hvorki að kljúfa atóm
né finna upp hjólið. Þetta er árshá-
tíðarband, og stofnað til að anna
eftirspurn hjá Prime-umboðs-
skrifstofunni. Við höfum allir spilað
allan andskotann, og það er það
góða við Ísland: Maður getur unnið
við svo margt í músíkinni“ sagði
Einar Ágúst; um það bil að stíga
upp í vél á leið til Akureyrar.
Einar Ágúst þvertók fyrir að
bandið stefndi á landvinninga
næsta sumar og ekki er heldur
breiðskífa á leiðinni. „Ég er bara á
fullu að kynna mína plötu og svo að
trúbadorast, þannig að þetta band
er bara ætlað á árshátíðarnar. Þetta
er svona dægrastytting hjá okkur
gömlu mönnunum.“ En hvar er
hægt að sjá Taktík spila? „Jaaa,
London er bókuð og einhver fyr-
irtæki. Ég veit nú minnst um þetta,
það er Palli hjá Prime sem heldur
utan um þetta. Hljómsveitin var
stofnuð að hans undirlagi og því
látum við hann bara segja okkur
hvar við eigum að mæta næst.“
heida@24stundir.is
Einar Ágúst stofnar hljómsveitina Taktík
Annar eftirspurn á árshátíðum
Einar Ágúst Spilar á árshá-
tíðum í London og víðar
Árvakur/RAX