24 stundir - 19.01.2008, Síða 48
48 LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 2008 24stundir
Vín vikunnar
Château Musar 1998
Líflegt og opið í nefi með myntu, lakkrís, kakó, cedarvið og nettan fjósakeim. Heitur og
rjómakenndur í munni með hindberjum, bökuðum skógarberjum og flauels-
mjúk tannín sem endast lengi í munni.
Vínið er gerjað í opnum steinsteyptum tönkum, látið liggja á franskri eik í allt að 2 ár og
svo á flösku í 4 ár til viðbótar. Château Musar er tilvalið til neyslu 10 ára gamalt og á eftir
að batna næstu 12-14 ár.
Flott val með nautakjöti, lambi og flestum krydduðum réttum.
Château Musar var stofnað árið 1930 af Gaston Hochar en er rekið í
dag af syni hans Serge. Fyrirtækið er staðsett í 18. aldar kastala í Ghazir
rétt fyrir utan Beirut. Héraðið var í mörg ár í miðpunkti borgarstyrj-
aldar og víngarðarnir hættulega nálægir víglínunni. Átökin bárust að
görðunum meðan á uppskeru stóð 1983 og þurfti Serge að smygla
sér í gegn á litlum bát svo að hann gæti framleitt vínið. Á seinni
hluta 8. áratugarins hafði ástandið ekkert batnað og hlaut víngerðin
talsverðar skemmdir af völdum sprengjuárása, enda þjónuðu vín-
kjallararnir tvennum tilgangi á þessum tíma þar sem þeir voru til-
valin sprengjuskýli fyrir bæjarbúa.
Þrúgur: Cabernet Sauvignon, Cinsault, Carignan, Grenache &
Mourvedre
Land: Líbanon
Hérað: Bekaa Valley
Elísabet Alba Valdimarsdóttir
vínþjónn
Château Musar 1998
Eftir Einar Jónsson
einarj@24stundir.is
Það er óþarfi að setja samasem-
merki á milli skyndibita og óholl-
ustu þó að margir tengi skyndibit-
ann öðru fremur við djúpsteiktan
og brasaðan mat. Samhliða auk-
inni vitund um heilsusamlegt mat-
aræði hefur skyndibitastöðum sem
leggja áherslu á léttari matreiðslu
fjölgað. Einn af þeim er Culiacan
þar sem boðið er upp á mexíkósk-
an, heilsusamlegan mat.
Ekkert dósajukk
„Við leggjum rosalega mikið
upp úr því að gera allt frá grunni
sjálf. Við búum til allar sósur, salsa
og þess háttar á hverjum morgni og
notum ferskasta hráefni sem við
getum fengið hverju sinni en ekk-
ert dósajukk,“ segir Sólveig Guð-
mundsdóttir, einn eigenda Culiac-
an.
„Margir þekkja mexíkóska mat-
argerð aðeins af dósamat sem þeir
kaupa úti í búð og hella honum svo
saman,“ segir hún og tekur undir
að fólk fái hugsanlega ranga mynd
af mexíkóskri matargerð gegnum
dósamatinn. „Það segir sig náttúr-
lega sjálft að það sem þú býrð til
samdægurs er allt öðruvísi en eitt-
hvað sem er sett í niðursuðudós og
er svo kannski á hillunni í einhver
ár,“ segir Sólveig.
Saddur án samviskubits
Þó að Sólveig leggi mikið upp úr
hollustunni er ekki þar með sagt að
maturinn sé ekki saðsamur. „Við
höfum talað um að maður verði
saddur án samviskubits. Maður
verður alveg saddur á þessu og er
það allan daginn. Samt er maður
að borða rétt, fita er í lágmarki,
ekkert majónes og ekkert djúp-
steikt. Það besta við þetta er að
þetta er ekki þessi dæmigerði
heilsumatur sem maður þarf að
pína ofan í sig,“ segir Sólveig.
Jafngott heitt og kalt
Sólveig deilir þremur réttum
með lesendum 24 stunda. Þar á
meðal er uppskrift að quesadillas
með kjúklingi. Hún bendir á að út-
búa megi quesadillas á marga vegu
og upplagt sé að nota afganga. Tor-
tilla og ostur er undirstaðan og svo
getur fólk leikið sér með fyll-
inguna. „Útkoman ræðst af því
hvað maður leggur mikið í þetta.
Við erum til dæmis að malla sós-
urnar í marga klukkutíma. Þegar
maður gerir það er maturinn alveg
jafngóður heitur og kaldur,“ segir
Sólveig að lokum.
Sólveig Guðmundsdóttir eldar heilsusamlegan mexíkóskan mat
Skyndibiti getur
líka verið hollur
Það er ekkert náttúrulög-
mál að skyndibiti sé
óhollur. Sólveig Guð-
mundsdóttir á Culiacan
leggur áherslu á að mat-
reiða mexíkóskan mat á
heilsusamlegan hátt.
Ekki dæmigerður
heilsumatur Sólveig
Guðmundsdóttir segir
að maturinn sé ekki
þessi dæmigerði
heilsumatur sem fólk
þurfi að pína ofan í sig.
➤ Sólveig lærði iðnhönnun íBandaríkjunum þar sem hún
bjó ásamt eiginmanni sínum.
➤ Hún hannaði meðal annarsinnréttingar og merki veit-
ingastaðarins.
➤ Fyrsta Culican-staðinn opnaðihún árið 2003 og annan 2006.
SÓLVEIG
Árvakur/Kristinn Ingvarsson
LÍFSSTÍLLMATUR
matur@24stundir.is
Mögulega er hugarfari hans best
lýst í laginu Things Have Changed,
frá árinu 2000: I used to care, but
things have changed. Svo virtist
sem stríðið gegn hryðjuverkum myndi ekki setja
mark sitt á tónlist Dylans. Aðrir yrðu að taka upp
kyndilinn. » Meira í Morgunblaðinu
í dag
Laugardagur 19. janúar 2008
Þrettán ára vakti hann heimsathygli. 1972 sigr-
aði hann sovésku maskínuna í einvígi aldarinnar í
Reykjavík. Árið 1992 tefldi hann aftur við Boris
Spassky í Júgóslavíu, braut viðskiptabann Samein-
uðu þjóðanna og komst upp á kant við bandarísk
stjórnvöld. Hann varð íslenskur ríkisborgari árið
2005. Fischer lést í fyrradag. » Meira í Morgunblaðinu
Bobby Fischer látinn
Rokk og ról, erfiðisvinna, framandi slóðir og þau
klæðahöft sem konur hafa sætt sig við voru meðal
þess sem fatahönnuðir á borð við Miuccia Prada
og Alexander McQueen nýttu sem innblástur fyrir
haust- og vetrartísku karla 2008, sem sýnd var í
Mílanó í vikunni. » Meira í Morgunblaðinu
Rokk, rómantík og notagildi
Bob Dylan í skugga stríða
Myndin töfrar fram
heillandi sögu og
magnaða stúdíu um
samband skáld-
skapar og veruleika
KVIKMYNDIR»
Fimm stjörnu
ástarsaga
TÓNLIST»
Íslensk krútt leggja
Evrópu að fótum sér
reykjavíkreykjavík
ÍÞRÓTTIR»
Ólafur úr leik í bili
Sundsvall spennt fyrir Sverri Garðarssyni
Hólmfríður hafnaði Malmö og Hamburger
Erum ekki í liðinu til að horfa á Ólaf
Það er meira
í Mogganum.
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2800 HELGARÁSKRIFT 1700 PDF Á MBL.IS 1700
» Meira í Morgunblaðinu
Laugardagur 19. 1. 200881. árg.
lesbók
DYLAN OG PÓLITÍKIN
DYLAN GAFST UPP Á BOÐSKAPNUMOG NÚ ER LEITAÐ AÐ
ARFTAKANUM, EINHVERJUM SEM SYNGUR UM HEIMINN Í DAG » 3
Þrjátíu ár frá útkomu fyrstu breiðskífu Van Halen » 7
Morgunblaðið/Golli
Ekkert öruggt „Ef einhver í leikhúsinu væri búinn að finna verkefnaval sem er öruggt, þá væri bara einn leikhússtjóri í heiminum,“ segir
Guðjón Pedersen í viðtali við Jóhann Bjarna Kolbeinsson en Guðjón hættir sem leikhússtjóri Borgarleikhússins 1. ágúst. » 4
Eftir Þröst Helgason
vitinn.blog.is
Þ að leikur enginn vafi á því að íslensk kvik-myndagerð er í mikilli sókn. Fagmennskahefur orðið meiri við vinnslu myndanna ogíslenskir handritshöfundar og leikstjórar
hafa fundið leið til þess að vekja áhuga bíógesta.
Segja má að þeir hafi farið að fordæmi krimmans.
Lykillinn að vinsældum hans er sá að umfjöllunar-
efnin eru samfélagsleg og sprottin úr samtímanum.
Hið sama á við um vinsælustu íslensku kvikmynd-
irnar á síðustu árum. Mýrin eftir Baltasar Kormák
sló auðvitað í gegn en hún byggist reyndar á sam-
nefndri glæpasögu Arnaldar Indriðasonar. Blóðbönd
eftir Árna Ólaf Ásgeirsson gerist í reykvískum sam-
tíma og fjallar um upplausn fjölskyldu. Kvikmyndin
Börn eftir Ragnar Bragason gerir slíkt hið sama og
systurmynd hennar, Foreldrar, eftir sama höfund.
Þetta á einnig við um Astrópíu þó að þar sé nálgunin
ekki jafn raunsæisleg og fleiri mætti telja. Allt eru
þetta frábærar bíómyndir sem vakið hafa mikla at-
hygli.
Nýjasta kvikmynd Baltasars Kormáks, Brúðgum-
inn, sprettur úr íslenskum samtíma þótt handritið sé
byggt á leikritinu Ívanov eftir Tsjekov. Hið sama á
reyndar við um uppfærslu Baltasars á Ívanov í Þjóð-
leikhúsinu en verkin vann leikstjórinn samhliða með
sama hópi leikara. Þó er ekki sama sagan sögð. Brúð-
guminn bregður á leik með frumtextann, snýr upp á
hann þannig að hinn vonlausi, týndi, óþarfi maður
Tsjekovs fær jafnvel uppreisn æru. Hér hefur í raun
tekist að breyta þunglamalegu rússnesku drama í
ljúfsára gamanmynd sem sækir kraft í skopstælingu
á mörgum þeim hugmyndum sem frumverkið varpar
fram og á íslenskum samtíma.
Myndin er frábær skemmtun sem er ekki síst þétt-
um leikhópi að þakka. Lengi háði allt of stílfærður og
stór leikur íslenskum kvikmyndum. Þetta er í raun og
veru enn þá einn af helstu göllum íslensks leikhúss en
kvikmyndaleikur hefur snarbatnað á undanförnum
árum einhverra hluta vegna. Leikstjórar og leikarar
virðast hafa betri tilfinningu fyrir þessum grimmilega
raunsæja miðli.Í hausthefti kvikmyndatímaritsins Filmmaker
fjallar Howard Feinstein gagnrýnandi um Mýrina og
segir að Baltasar Kormákur hafi ein „bestu augun“ í
kvikmyndagerð nú um stundir. Ég veit ekki nákvæm-
lega hvað það þýðir en af Brúðgumanum að dæma er
Baltasar alveg örugglega ekki að missa sjón.
Snúið uppá ÍvanovMENNINGARVITINN
Brúðguminn Ljúfsár gamanmynd.