24 stundir - 19.01.2008, Qupperneq 49
24stundir LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 2008 49
Leður sófasett
Hornsófasett
Sófasett með skemli
Tungusófar
Tungu hornsófar
Stakir sófar
Borðstofuborð og
stólar
Skenkar
Sófaborð
Eldhúsborð
Rúmgaflar
Leðursófasett áður 239,000
Nú 119,900
Hornsófar tau áður 198,000
Nú 103,000
Hornsófar leður áður 249,000
Nú 149,000
Erum í Dugguvogi 2. Sími 557-9510
HÚ
SG
AG
NA
-
L
AG
ER
SA
LA
HÚSGAGNA
LAGERSALA
VERÐDÆMI
Opnunartími
mán-fös 9.00-18.00 lau 11.00-16.00
ALLTAF FRÁBÆRT VERÐ!
Elísabet Alba mælir með Concha Y Toro Late Harvest Sauvignon
Blanc 2003.
Þroskaðar perur, papaya og þurrkuð apríkósa í nefi greiða leiðina
fyrir silkimjúk bökunarkrydd og hunangsgljáðar melónur sem
gefa flotta byggingu og þægilegan sætleika sem situr lengi eftir.
Þrúga: Sauvignon Blanc
Land: Chile
Svæði: Maule Valley
Skyrkaka
Hráefni:
1 pakki kanilkex frá Lu, mulið
(Bastogne)
80 g brætt smjör
5 dl rjómi, þeyttur
500 g KEA vanilluskyr
3 msk. bláberjasulta
150 g bláber
200 g jarðarber
Aðferð:
Blandið kexmylsnunni og smjör-
inu saman og þrýstið á botninn á
vel smurðu smelluformi. Hrærið
rjómann varlega saman við van-
illuskyrið og hellið ofan á kexbotn-
inn. Setjið bláberjasultuna gætilega
ofan á, ásamt bláberjum og jarð-
arberjum sem hafa verið skorin í
bita. Það er í góðu lagi að útbúa
skyrtertuna daginn áður, en hún
þarf allavega að standa í kæli í 3-4
klukkustundir áður en hún er bor-
in fram.
EFTIRRÉTTUR
Alvöru skyrkaka í lokin
Quesadillas með kjúklingi (má
nota annað kjöt í staðinn). Hægt er
að útbúa quesadillas á marga vegu
og tilvalið að nota afganga. Tortilla
og ostur er undirstaðan en svo er
hægt að leika sér með fyllinguna. Ef
útbúið fyrir krakka er nóg að setja
bara ost og til dæmis nautahakk.
Hráefni:
Tortilla stór (helst frosna, þær
eru miklu betri en þær sem eru í
hillunum)
Ostur, rifinn
Salsasósa (sterk eða mild eftir
smekk)
Græn paprika, rauðlaukur og
sveppir steikt á pönnu
Kjúklingabringur (grillaðar og
kryddaðar) skornar í bita (eða
annað kjöt að eigin vali)
Aðferð:
Dreifið salsasósunni á tortilluna,
setjið rifinn ost, steikta grænmetið
og kjúklinginn á helminginn. Ost
svo aftur ofan á og brjótið tortillu
saman. Betra er að hafa minna í
hverri tortillu en meira því þá
hitnar hún auðveldlega í gegn.
Einnig er mikilvægt að jafnvægi sé
á milli brauðs, osts og fyllingar.
Hitið í ofni eða á þurri pönnu þar
til osturinn er bráðnaður og tor-
tillan er stökk. Skerið í sneiðar og
berið fram með sýrðum rjóma og
guacamole. Það er voða gott að
hafa nachos-flögur og ostasósu
með þessu. Veljið nachos sem er
ekki mikið kryddað, helst bara
saltað. Krydduðu flögurnar taka
alltof mikið frá matnum.
Guacamole
Hráefni:
2 avocado stöppuð
¼ laukur (smátt saxaður),
2 msk. kóriander ferskt smátt
saxað
½-1 rauður chili smátt saxaður
lime-safi
salt og pipar eftir smekk
Aðferð:
Blandið saman og smakkið til.
AÐALRÉTTUR
Quesadillas með kjúk-
lingi og Guacamole
Elísabet Alba mælir með
Montes Alpha Chardonnay
2006. Mikill sítrus í nefi með
melónu og vott af vanillu.
Perur, karamelluð epli, an-
anas og bananar eru þétt í
munni með rjómakennda
kókosáferð. Langur endir
með frískandi sýru.
Þrúga: Chardonnay
Land: Chile
Hérað: Casablanca
Hot́n sweet salat
Hráefni:
Icebergkál
klettasalat
dressing (salatdressing að eigin
vali)
kornsalsa (mais, chili, kóriander,
ristuð rauð paprika, limesafi, salt
og pipar)
sweet chili-sósa
sýrður rjómi (smá sletta)
nachos-flögur
Aðferð:
Öllu blandað saman og flögurnar
kramdar yfir.
FORRÉTTUR
Salat undir mexíkóskum áhrifum
Árvakur/Kristinn Ingvarsson
Elísabet Alba Valdimarsdóttir vínþjónn mælir með Villa María
Private Bin Riesling 2006.
Ferskt og hreint í nefi, blómlegt með áberandi lime og melónu. Sí-
trónubörkur, steinefni og gul epli í munni með létt krydd í bak-
grunninum. Hálfþurrt með bleikum greipaldin í lokin.
Þrúga: Rieslin, Land: Nýja Sjáland, Hérað: Marlborough
Veitingastaður Hótels Holts hef-
ur verið opnaður á ný eftir end-
urnýjun. Staðurinn nefnist nú
Gallery og státar af stærstu og
fullkomnustu eldavél landsins.
Yfirmatreiðslumaður Gallerys er
Friðgeir Ingi Eiríksson sem hefur
stjórnað eldhúsi Michelin-
staðarins Clairefontaine í Lyon í
Frakklandi undanfarin ár. Skarp-
ari skil verða milli hádegisstaðar
og kvöldverðarstaðar en verið
hefur.
Nýr og endurbættur veitinga-
staður verður opnaður um miðj-
an næsta mánuð á Hótel Óðins-
véum en staðnum hefur nú verið
lokað vegna breytinga.
Veitingastaðurinn hefur verið
kenndur við Sigga Hall und-
anfarin ár en hann segir nú skilið
við staðinn. Eyþór Rúnarsson
landsliðskokkur verður eftir sem
áður yfirmatreiðslumeistari veit-
ingastaðarins.
Breytingar á
veitingastöðum
Auglýsingasíminn er
510 3744