24 stundir - 19.01.2008, Qupperneq 58
58 LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 2008 24stundir
Einar, hvernig er leitað að
lífsmerkjum í geimnum?
Eina lífið sem við þekkjum er hér
á jörðinni. Af þeim sökum byggist
leitin að lífi á öðrum hnöttum fyrst
og fremst á aðferðum sem gætu hugs-
anlega nýst til að finna merki um
jarðlíkt líf annars staðar.
Í næsta nágrenni, eins og á reiki-
stjörnunni Mars og öðrum stöðum
í sólkerfinu, beinist leitin einkum
að einföldum lífsformum. Fram að
þessu hefur það yfirleitt verið gert
með því að senda geimför á staðinn
til þess að taka ljósmyndir og kanna
yfirborðssýni með vísindalegum að-
ferðum. Enn sem komið er hefur slík
leit ekki borið ár angur.
Leit að lífi á fjarlægum reiki-
stjörnum er mjög skammt á veg
komin. Menn gera sér þó vonir um
að þegar unnt verður að nema ljós
frá reikistjörnum á svokölluðum
byggilegum svæðum í viðkomandi
sólkerfum megi kanna hvort ljósið
sýni merki um jarðlíkar aðstæður.
Það eykur líkurnar á því að þar sé líf
að finna.
Margir gera sér vonir um að vits-
munaverur sé að finna í fjarlægum
stjörnukerfum. Með því að giska á
hvaða áhrif framandi siðmenning
hefði á umhverfi sitt mætti leita að
slíkum ummerkjum. Einnig gætu fjar-
lægar vitsmunaverur haft áhuga á því
að upplýsa aðra um tilvist sína með
reglubundnum merkjasendingum, til
dæmis með útvarpsbylgjum eða ljós-
bylgjum. Að auki mætti reikna með
að frá heimkynnum þeirra bærust
stöðugar útsendingar frá útvarps- og
sjónvarpsstöðvum. Í rannsókn-
arsamvinnuverkefni sem gengur
undir nafninu SETI (The Search
for Extrat errestrial Int elligence)
er stöðugt verið að leita að slíkum
sendingum. Ekkert hefur fundist
enn sem komið er.
krakkagaman@24stundir.is
KRAKKAGAMAN
12
3
4
5
6
Mikki Mús
Dýragarðurinn
GUFFI, LÍTTU AÐEINS
Í SMÁSJÁNA!
HVAÐ ERTU MEÐ? ÞETTA ER BARA VENJULEGUR
VATNSDROPI!
VÁ!
MIKIÐ ERU ÞESSIR
DROPAR SKRÍTNIR!
VERÐLAUNAÞRAUT
K
R
A
K
K
A
K
R
O
SS
G
Á
TA
Hvað sagði núllið við áttuna?
- Hey, flott belti!
VETRARÞRAUT
Getur þú hjálpað stráknum að finna útifötin sín?
Send ið lausn ir á Krakka gam an- 24 stund ir,
Há deg is mó um 2, 110 Reykja vík.
Sylvía Rós Einarsdóttir
Austurgötu 42
220 Hafnarfirði
Einn hepp inn þátt tak andi fær
nýja bók, MEÐ HETJ UR Á
HEIL AN UM, eft ir Guð jón R.
Jón as son sem Salka gef ur út.
Bók in fjall ar um Sigga, 13 ára
bretta gaur.
Nafn vinningshafa síðustu
verðlaunaþrautar er:
Einar Guðmundsson stjarneðlisfræðingur í yfirheyrslu!
Hvernig er leitað að geimverum?
Líta þær svona út?
Beð ið eft ir merkja send-
ingu ut an úr geimi
á völdum vörum
ÚTSALA
sjá einnig á www.th.is
Skólavörðustíg 7, Reykjavík. Sími 551 5814. www.th.is