24 stundir - 26.01.2008, Side 1
24stundirlaugardagur26. janúar 200818. tölublað 4. árgangur
Afsar Sonia Shafie er frá Íran og
hefur gert kvikmynd um eigið líf,
ömmu sinnar og mömmu. Mynd-
in lýsir vel aðstæðum kvenna í
Íran en Afsar Sonia heldur fyr-
irlestur um þær í dag.
Þrjár konur frá Íran
MENNING»29
Leikarinn Hjálmar Hjálmarsson
svarar 24 spurningum eftir sinni
bestu sannfæringu og viðurkennir
að flestallt græti hann og að ham-
ingjan sé fólgin í því að vera
bankastjóri.
Hvar er hamingjan?
24SPURNINGAR»28 Bæjarlind 1 - Sími 544 4510 Opið alla daga frá kl. 10.-20.
Fjallalamb
Svið 30% afsl.
Þorramatur úr kjötborði
Frá kjarnfæði
„Ég var nokkuð langt niðri á tímabili, en sótti mér viðeigandi aðstoð og
aðhlynningu til að sigrast á þessum veikindum. Þúsundir Íslendinga lenda
í svipuðum erfiðleikum á hverju ári, en snúa fullfrískir aftur út í sam-
félagið. Mér finnst hvorki ég né aðrir eiga skilið að brugðist sé við and-
legum veikindum með jafn neikvæðum hætti og við höfum
séð sums staðar undanfarna daga, segir Ólafur F. Magnússon.
Sigraðist á veikindum
Árvakur/Kristinn
„Þúsundir lenda í svipuðum erfiðleikum“
»38
Eftir Ægi Þór Eysteinsson
aegir@24stundir.is
„Það hefur aldrei verið felldur
þyngri dómur fyrir eitt nauðgunar-
brot hér á landi, en þess ber að geta
að mennirnir voru tveir og var það
þeim til refsiþyngingar.“
Þetta segir Sigríður J. Friðjóns-
dóttir saksóknari, sem sótti mál
gegn tveimur Litháum sem dæmd-
ir voru í fimm ára fangelsi hvor í
Héraðsdómi Reykjavíkur í gær fyr-
ir hrottalega nauðgun í miðbæ
Reykjavíkur í nóvember.
„Auk þess að vera tveir voru
fleiri refsiþyngjandi ástæður. Þeir
áttu sakaferil að baki og ollu miklu
sálrænu tjóni hjá einstaklingnum,
eins og gerist alltaf í svona málum.
Svo var árásin mjög hrottafengin
og mennirnir unnu saman, svo
segja má að árásin hafi verið skipu-
lögð,“ segir Sigríður.
Fagnaðarefni
„Auðvitað fögnum við því að
það skuli almennt falla dómur í
nauðgunarmáli og að gerendur séu
látnir sæta ábyrgð. Við veltum því
hins vegar fyrir okkur í þessu tilfelli
hvort þetta sé það sem koma skal.
Það er hugsanlegt að dómstólar séu
að senda þau skilaboð að dómar í
nauðgunarmálum séu að þyngjast,
og við fögnum því auðvitað ef svo
er,“ segir Þórunn Þórarinsdóttir,
starfskona hjá Stígamótum.
„Það sem við myndum hins veg-
ar vilja sjá eru fleiri dómar í nauðg-
unarmálum því við vitum, af þeim
fjölda mála sem kemur inn til okk-
ar, að aðeins lítið brot af þeim fer
alla leið. Kannski verður þetta mál
til þess að auka trú fólks á dóms-
kerfinu og að fleiri stígi fram með
sín mál,“ segir Sigríður.
Konunni voru dæmdar tvær
milljónir króna í miskabætur, en
aldrei hafa nauðgunarfórnarlambi
verið dæmdar jafn háar bætur hér á
landi.
Gera má ráð fyrir að dómi hér-
aðsdóms verði áfrýjað til Hæsta-
réttar.
Þyngsti
nauðgunar-
dómurinn
Þyngsti nauðgunardómur hérlendis féll í
gær Hugsanlega stefnubreyting hjá dóm-
stólunum, segir talskona Stígamóta
DÓMUR ÁN HLIÐSTÆÐU»4
➤ Kristinn Óskarsson hlaut fjög-urra og hálfs árs fangels-
isdóm árið 2001 fyrir að
nauðga kærustu sinni ítrekað
og ganga í skrokk á henni í
sumarbústað.
➤ Stefán Hjaltested Ófeigssonhlaut fjögurra og hálfs árs
dóm fyrir tvær nauðganir ár-
ið 2004.
➤ Edward Apeadu Korantenghlaut þriggja ára fangels-
isdóm árið 2007 fyrir að
nauðga fjórtán ára stúlku.
AÐRIR „ÞUNGIR“ DÓMAR
Reykjavíkurborg þarf að greiða um
550 milljónir fyrir Laugaveg 4 og 6.
Borgin samdi um kaupin við eig-
endur í gær. Þeir keyptu húsin á
250 milljónir í fyrra og hagnast því
um að minnsta kosti
300 milljónir.
Borgin greiðir
550 milljónir
»2
Íslenskir fjárfestar horfa í síaukn-
um mæli til Rúmeníu. „Ég held að
kommúnisminn hafi leikið Rúm-
ena hvað verst af ríkjunum á þessu
svæði,“ segir Jafet Ólafsson, einn
þeirra sem fjárfesta í
Rúmeníu.
Flykkjast til
Rúmeníu
»19
Breytingar á heilbrigðiskerf-
inu í Þýskalandi hafa dregið
úr tekjumöguleikum lækna.
Þess vegna hefur bækl-
unarskurðlæknir í Nürnberg í
Þýskalandi, Erwin Meusel,
krafist peninga af sjúklingum
sínum þegar þeir hafa þurft að
fara á salerni á læknastofu
hans. Læknirinn segir að þetta
leiði til meira hreinlætis á sal-
erninu en aðrir fullyrða að
læknirinn leiti allra leiða til að
afla fjár, að því er Bild Zeitung
greinir frá.
Borga á sal-
erni læknis
0
-1
-4
0 -2
GENGI GJALDMIÐLA
GENGISVÍSITALA 126,11
ÚRVALSVÍSITALA 5.451
SALA %
USD 65,14 -1,05
GBP 129,15 -0,36
DKK 12,87 -1,11
JPY 0,60 -2,17
EUR 95,88 -1,10
-1,03
4,8
NÁNAR 4
VEÐRIÐ Í DAG
14
Sama verð
á kiljunni
NEYTENDAVAKTIN