24 stundir - 26.01.2008, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 26. JANÚAR 2008 24stundir
VÍÐA UM HEIM
Algarve 16
Amsterdam 9
Ankara -2
Barcelona 15
Berlín 8
Chicago -2
Dublin 11
Frankfurt 8
Glasgow 10
Halifax -9
Hamborg 8
Helsinki 2
Kaupmannahöfn 7
London 10
Madrid 11
Mílanó 12
Montreal -17
München 5
New York -4
Nuuk -11
Orlando 7
Osló 6
Palma 23
París 9
Prag 5
Stokkhólmur 4
Þórshöfn 4
Lægir, suðvestan 5-10 m/s og dálítil él síð-
degis, en yfirleitt léttskýjað á N- og A-landi.
Frost 0 til 8 stig.
Snýst í austanátt með snjókomu á S-landi í
kvöld.
VEÐRIÐ Í DAG
0
-1
-4
0 -2
Snýst í austanátt
Suðaustan 13-18 m/s og talsverð slydda eða
rigning, en heldur hægari og snjókoma fyrir
norðan og austan. Hvöss suðvestanátt og él
síðdegis, en þurrt A-lands. Frost 0 til 5 stig í
fyrstu á N- og A-landi, annars 0 til 7 stiga hiti.
VEÐRIÐ Á MORGUN
5
4
0 0
0
Slydda eða rigning
WWW.EBK.DK
Danskir gæðasumarbústaðir
(heilsársbústaðir)
Hafðu samband við okkur fyrir frekari
upplýsingar: Anders Ingemann Jensen
farsími nr. +45 40 20 32 38
netfang: aj@ebk.dk
Ert þú í byggingarhugleiðingum?
Gangsetning kerja í álveri Alcoa
Fjarðaáls á Reyðarfirði hefur geng-
ið framar vonum en tvöhundr-
aðasta kerið var gangsett í fyrradag.
Samtals eru 336 ker í tveimur ker-
skálum álversins. Búist er við að
gangsetningu ljúki um mánaða-
mótin mars-apríl.
„Það er búið að vera mikið álag á
starfsfólki, en öll vandamál sem
hafa komið upp hafa verið leyst
farsællega af því frábæra fólki sem
hingað hefur ráðist til starfa. Það er
baráttuhugur ríkjandi og góð
stemning, enda ekki á hverjum
degi sem fólk fær tækifæri til að
taka þátt í svo viðamiklu verkefni,“
segir Ingólfur Kristjánsson, fram-
kvæmdastjóri álframleiðslu Fjarða-
áls.
Nú þegar hafa verið flutt frá fyr-
irtækinu um 40 þúsund tonn af áli
sem fara á markað í Evrópu. Áætl-
að er að álverið framleiði um
346.000 tonn af áli á ári þegar
framleiðslan er komin í fullan
gang.
Með þeirri framleiðslu aukast
vöruflutningar frá landinu um
nærri því fjórðung, skv. fréttatil-
kynningu frá Alcoa.
Verið er að ljúka ráðningum í ál-
verið en áætlað er að þar muni um
400 manns starfa. Þá eru undan-
skildir þeir 200 frá undirverktök-
um og Alcoa-samsteypunni sem
nú starfa við gangsetninguna, en
þeir fara þegar allt er komið á fullt
skrið.
thorakristin@24stundir.is
200 af 336 kerjum hafa verið gangsett í álverinu á Reyðarfirði
40.000 tonn af áli farin út
Álver Gangsetn-
ing gengur vel
Kristín Edwald hæstaréttarlög-
maður ætlar ekki að taka við for-
mennsku í barnaverndarnefnd
Reykjavíkur eftir að hafa verið
skipuð í nefndina að sér forspurðri.
Þetta kom fram í fréttum Útvarps-
ins.
Fram kom að Kristín ætlar að
gegna formennsku til næsta borg-
arstjórnarfundar til að koma í veg
fyrir neyðarástand í barnaverndar-
málum í borginni.
Haft var eftir Kristínu Hrefnu
Halldórsdóttur, framkvæmdastjóra
borgarstjórnarflokks sjálfstæðis-
manna, að Kristín Edwald hafi
óvart verið skipuð sem formaður
nefndarinnar, um hafi verið að
ræða handvömm af hálfu þeirra
sem skipuðu í barnaverndarnefnd-
ina. mbl.is
Kristín Edwald vill ekki í barnaverndarnefnd
Skipuð formaður
að sér forspurðri
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
menntamálaráðherra hafði til úr-
skurðar friðun húsanna við Lauga-
veg 4 og 6, en ekki mun reyna á úr-
skurð ráðherra í málinu vegna
kaupa borgarinnar á fasteignunum.
Borgin gekk frá kaupum við eig-
endur fasteignanna í gær, en kaup-
verðið fæst ekki uppgefið fyrr en
eftir næsta borgarstjórnarfund.
Hún sagði, í fréttum útvarps í gær-
kvöldi, að vegna þess að borgin hefði ákveðið að kaupa húsin og hygð-
ist endurbyggja þau til að varðveita götumyndina, hefði Húsafrið-
unarnefnd ákveðið að draga friðunartillögu sína til baka. En borgin
ætlar að endurbyggja húsin í náinni samvinnu við Húsafriðunarnefnd.
Þorgerður Katrín kvaðst ánægð með niðurstöðu málsins því ákveðið
hefði verið að gera það sem hennar hugur stæði til. Hún vill að götu-
myndin verði byggð upp og tekið verði tillit til friðunar á húsi við
Laugaveg 2.
Mun ekki reyna á friðun
sem sé algjörlega rúið trausti og
stuðningi innan flokksins, fólk
sem hafi ítrekað reynt að beita
svikum og óheilindum til að ná
sínu framgengt. Stjórn Alfreðs
fordæmir vinnubrögðin.
„Við viljum ekki vinna með
svona fólki, við viljum ekki fólk í
flokknum okkar sem er ekki að
hugsa um hag flokksins,“ segir í
ályktun Alfreðs.
Stjórn Alfreðs, Félags ungra
framsóknarmanna í Reykjavík
suður, segir afsögn Björns Inga
Hrafnssonar gríðarlegt áfall.
Með ólíkindum sé að ein-
staklingar eins og Guðjón Ólafur
Jónsson sem og ónefndur fyrrver-
andi félagsmaður og borg-
arfulltrúi Framsóknarflokksins
geti lagst svo lágt til að skemma
vísvitandi fyrir flokknum. Fólk
Vilja ekki vinna með Guðjóni Ólafi
Stjórn Póstmannafélags Íslands
tilkynnti samninganefnd félags-
ins í gær að kjaradeila þess við Ís-
landspóst hf. færi til rík-
issáttasemjara. Samninganefndin
hefur fundað fimm sinnum sl.
þrjá mánuði og telur að aðkoma
Ríkissáttasemjara sé nauðsynleg
eigi samningar að nást. þkþ
Kjaradeilan til ríkissáttasemjara
Eftir Ægi Þór Eysteinsson
aegir@24stundir.is
Reykjavíkurborg þarf að reiða fram
að minnsta kosti 550 milljónir
króna fyrir fasteignirnar á Laugaveg
4 og 6, samkvæmt heimildum 24
stunda.
Reykjavíkurborg og Kaupangur,
eigandi fasteignanna, komust að
samkomulagi um kaup borgarinnar
á fasteignunum í gær.
Núverandi eigandi húsanna
keypti þau fyrir ári á 250 milljónir
króna og hagnast því um að
minnsta kosti 300 milljónir króna á
sölunni.
Fórnarkostnaður 500 milljónir
„Ég óttast að sú leynd sem hvílir
yfir þessum kaupum bendi til þess
að verðið hafi hækkað umtalsvert
frá því sem talað var um í borg-
arráði í gær,“ segir Óskar Bergsson,
borgarfulltrúi Framsóknarflokksins.
„Þegar öll kurl verða komin til graf-
ar sýnist mér allt benda til þess að
fórnarkostnaður borgarinnar vegna
þessara kaupa verði um það bil hálf-
ur milljarður króna.“ Í því sam-
hengi vísar Óskar til verðsins fyrir
fasteignirnar, kostnaðarins við að
gera þau upp og markaðsvirðis
þeirra að því loknu.
„Við í fyrrverandi meirihlutanum
vorum búin að láta vinna fyrir okk-
ur skýrslu um umkaup á húsunum
og endurgerð og þeir Vilhjálmur og
Ólafur höfðu ekki fyrir því að kynna
sér þá skýrslu áður en þeir ruku til
og keyptu húsin. Það kom fram í
borgarráði í gær að sumir borgar-
fulltrúar vissu ekki af skýrslunni en
Ólafi var fullkunnugt um hana enda
í meirihluta þar til í gær.“
Endurbyggja og selja
Í tilkynningu frá borginni eru
kaupin sögð í samræmi við til-
lögu borgarstjóra á fundi borgarráðs
á fimmtudaginn.
Í tillögu borgarstjóra segir að
borgin hyggist standa vörð um
nítjándu aldar götumynd Laugaveg-
ar.
Borgin hyggst gera húsin upp og
viðhalda götumyndinni en stækka
rými sem nýtist í verslun og þjón-
ustu. Borgin hyggst selja fasteign-
irnar að endurbyggingu lokinni.
Borgin borgar
um 550 milljónir
Talið er að borgin þurfi að borga um 550 milljónir fyrir Laugaveg
4 og 6 Borgin samdi um kaup húsanna við eigendur þeirra í gær
➤ Fyrrverandi meirihluti fól VSTað vinna útreikninga á hugs-
anlegum kaupum og endur-
uppbygging á reitnum fyrir
tveimur vikum.
➤ Þar kemur m.a. fram að aukuppkaupanna þyrfti borgin
að vera tilbúin að verja 389
milljónum til uppbygging-
arinnar ef farið yrði að hug-
myndum Torfusamtakanna.
SAGAN
Laugavegur 4 og 6 Talið er að fórn-
arkostnaður borgarinnar vegna húsanna
verði um hálfur milljarður króna.
STUTT
● Eldsvoði Minniháttar eldur
kom upp í íbúð á Sléttuvegi í
gær. Íbúðin var mannlaus en
reykskynjari hafði farið í gang.
Búið var að slökkva eldinn þeg-
ar slökkvilið kom á staðinn.
● Uppsagnir 540 manns
hefur verið sagt upp í fisk-
vinnslu frá því tilkynnt var í
sumar að þorskkvóti yrði
130.000 tonn á þessu fisk-
veiðiári. RÚV greindi frá.
Dregið yrði úr þorskveiðum
um rúm 60.000 tonn. Mót-
vægisaðgerðir ríkisstjórn-
arinnar verða endurskoðaðar í
ljósi fenginnar reynslu, segir
sjávarútvegsráðherra.
Leiðrétt
Ritstjórn 24 stunda vill leiðrétta hvaðeina,
sem kann að vera missagt í blaðinu.
Leiðréttingar birtast að jafnaði á síðu 2.