24 stundir - 26.01.2008, Blaðsíða 4
Eftir Ægi Þór Eysteinsson
aegir@24stundir.is
Tveir litháískir ríkisborgarar, Aru-
nas Bartkus og Rolandas Jancevi-
cius, hlutu í gær fimm ára
fangelsisdóm fyrir grófa nauðgun í
miðbæ Reykjavíkur í nóvember.
Staðfesti Hæstiréttur dóminn mun
þyngd hans ekki eiga sér hliðstæðu
í íslenskri réttarsögu fyrir nauðg-
un.
Í fyrra hlaut Jón Pétursson tvo
fimm ára fangelsisdóma fyrir tvær
hrottalegar nauðganir, en Jón hélt
konunum föngnum og gekk í
skrokk á þeim á milli þess sem
hann nauðgaði þeim og varð það
til refsiþyngingar.
Neituðu sök
Mennirnir, sem eru 31 árs og 28
ára, réðust á konu á fimmtugsaldri
og reyndu í sameiningu með of-
beldi að nauðga henni í húsasundi
og þröngva henni til munnmaka,
en konan hafði hitt mennina á veit-
ingastað og var samferða þeim nið-
ur Laugaveginn. Rolandas neitaði
sök og sagði konuna hafa tekið þátt
í kynlífsathöfnum sjálfviljug, en
hann kvaðst ekki muna eftir um-
ræddu kvöldi sökum ölvunar.
Sýktir og með dóm á bakinu
Blóðsýni var tekið úr mönnun-
um til DNA-rannsóknar, en rann-
sókn sýnanna leiddi í ljós að Aru-
nas var með klamydíu og Rolandas
sýktur af lifrarbólgu C-veirunni.
Mennirnir hafa ekki orðið upp-
vísir að refsiverðri háttsemi hér á
landi fyrr. Samkvæmt upplýsing-
um frá Interpol hafa þeir þó báðir
hlotið tvo nokkurra ára fangelsis-
dóma í heimalandi sínu fyrir fjár-
kúgun, þjófnað og rán.
Hæstu bætur vegna nauðgunar
Við ákvörðun refsingar var litið
til aldurs ákærðu og sakaferils
þeirra. Litið var til þess hversu
hrottafengin árás mannanna var og
þeirra svívirðilegu og niðurlægj-
andi aðferða þeir beittu og þess
gríðarlega sálartjóns sem þeir ollu
konunni, en hún hefur átt við
þunglyndi að stríða undanfarin ár.
Þeir hafi sýnt fullkomið skeyting-
arleysi gagnvart líðan hennar, kyn-
frelsi og æru, þegar þeir veittust að
henni, notfærðu sér og hlógu að
bjargarleysi hennar, auðsýndu ein-
beittan ásetning til að koma fram
vilja sínum og skirrðust einskis,
þrátt fyrir beiðni hennar um mis-
kunn, eins og segir í dómnum.
Auk fangelsisdómsins voru
mennirnir dæmdir til að greiða
konunni tvær milljónir króna í
miskabætur, en það er hæsta
miskabótaupphæð sem dæmd hef-
ur verið brotaþola hér á landi í
kynferðisbrotamáli.
Fimm ár fyrir
grófa nauðgun
Tveir Litháar í fimm ára fangelsi fyrir nauðgun Dómur án hlið-
stæðu í íslenskri réttarsögu Mennirnir sýktir af sjúkdómum
➤ Konunni var hrint ofan á vél-arhlíf bifreiðar og hún löðr-
unguð.
➤ Þá reyndi Arunas að þröngvalim sínum inn í leggöng kon-
unnar.
➤ Í átökum féll konan af bílnumen þá reyndi Rolandas að
nauðga henni á meðan Aru-
nas reyndi að þröngva lim
sínum í munn hennar.
➤ Mennirnir hættu eftir að Rol-andas hafði sáðlát í munn
hennar.
NAUÐGUNIN
Árvakur/Ómar
Þyngsti dómurinn Dómur héraðsdóms
yfir Litháunum í gær er án hliðstæðu,
enda nauðgunin mjög hrottafengin.
4 LAUGARDAGUR 26. JANÚAR 2008 24stundir
Magnús Geir Þórðarson, núver-
andi leikhússtjóri Leikfélags Akur-
eyrar, tekur við Borgarleikhúsinu í
vor.
„Mér líst afskaplega vel á þetta
og er fullur tilhlökkunar. Þetta er
auðvitað mikil áskorun til að takast
á við og ábyrgð,“ segir Magnús
Geir.
Inga Jóna Þórðardóttir, formað-
ur stjórnar Leikfélags Reykjavíkur,
segir álit stjórnarinnar hafa verið
einróma um val á Magnúsi Geir í
embættið. „Margir þættir koma
inn þegar umsækjendur eru metnir
fyrir starf eins og þetta, svo sem
listræn sýn viðkomandi, hugmynd-
ir og tilfinning fyrir rekstri. Magn-
ús Geir hefur auðvitað líka góða
reynslu af rekstri leikhúss,“ segir
Inga Jóna. þkþ
Leikhússtjóraskipti verða í Borgarleikhúsinu
Magnús Geir hæf-
astur umsækjenda
STUTT
● Hraðakstur Brot 202 öku-
manna voru mynduð á gatna-
mótum Bústaðavegar og Flug-
vallarvegar á miðvikudag og
fimmtudag. Fylgst var með öku-
tækjum sem ekið var Bústaðaveg
í vestur og yfir fyrrnefnd gatna-
mót. Á tuttugu og fjórum
klukkustundum fóru 7.316 öku-
tæki þessa akstursleið og því ók
lítill hluti ökumanna, eða tæp-
lega 3%, of hratt eða yfir af-
skiptahraða. Meðalhraði hinna
brotlegu var rúmlega 73 km/klst
en þarna er 60 km hámarkshraði.
● Óhappahrina Margir
árekstrar urðu á höfuðborg-
arsvæðinu í gær samkvæmt
upplýsingum lögreglunnar.
Frá því klukkan sjö í gærmorg-
un fram að kvöldmat urðu
sautján árekstrar sökum slæmr-
ar færðar en að sögn lögregl-
unnar urðu engin slys á fólki.
Hlutabréf hækkuðu mikið
í verði í Kauphöll Íslands
í gær. Úrvalsvísitalan end-
aði í 5.451 stigi, sem er
4,82% hækkun frá
fimmtudegi. Þetta er
næstmesta hækkun vísi-
tölunnar á einum degi í
sögu kauphallarinnar en
sú mesta var 6,11% í
október árið 2001.
Úrvalsvísitalan hefur ver-
ið reiknuð út frá árinu
1998 en hefur verið reiknuð afturvirkt til þess tíma sem hlutabréfa-
viðskipti hófust með formlegum hætti hér á landi. Miðað við það er
hækkunin í gær sú þriðja hæsta en í mars 1993 hækkaði vísitalan um
5% á einum degi.
Greiningardeild Kaupþings segir í ½5 fréttum sínum, að ætla megi að
kaupendur hafi beðið á hliðarlínunni eftir að óveðrinu slotaði og
streymt í stríðum straumum inn á markaðinn í gær eftir að ljóst varð
að hann hafði náði til botns í bili á miðvikudaginn. Þessi atburðarás
sverji sig í ætt við þá þróun, sem hafi orðið á alþjóðlegum hlutabréfa-
mörkuðum í vikunni. Þar með sé ekki sagt að hækkanir síðustu dægr-
in séu varanlegar enda ríki mikil óvissa enn á fjármálamörkuðum með
tilheyrandi óstöðugleika.
mbl.is
Næstmesta hækkun
hlutabréfa frá upphafi
Neytendasamtökin eru frjáls félagasamtök: stofnuð árið 1953. Þau
verja hag félagsmanna og berjast fyrir hagsmunum neytenda.
Sjá www.ns.is - netfang:ns@ns.is
Neytendasamtökin gerðu könnun á bókinni Eldveggur
eftir Henning Mankell í kiljuformi.
Sama verð var í öllum verslunum nema Office 1 sem
var 180 krónum ódýrari.
Ekki er heimilt að vitna í þessa könnun í auglýsingum.
Nær sama verð alls staðar
Ingibjörg
Magnúsdóttir
NEYTENDAVAKTIN
Eldveggur e. Henning Mankell (kilja)
Verslun Verð Verðmunur
Office 1 1.690
Iða 1.870 10,7 %
Penninn-Eymundsson 1.870 10,7 %
Hagkaup 1.870 10,7 %
Bókabúðin Hamraborg 1.870 10,7 %
Sunnlenska bókakaffið 1.870 10,7 %
Happatappar
Kynntu þér málið á www.kristall.is
Opið 10-20 virka daga Laugard. 10-18 Sunnud. 12-18
Allt á sinn stað!
©
In
te
r I
KE
A
Sy
st
em
s B
.V
. 2
00
8
www.IKEA.is
495,-
BUMERANG herðatré
antíkbæsuð 8 stk.