24 stundir


24 stundir - 26.01.2008, Qupperneq 12

24 stundir - 26.01.2008, Qupperneq 12
Eftir Þóru Kristínu Þórsdóttur thorakristin@24stundir.is Bæjarráð Reykjanesbæjar sam- þykkti einróma á fundi sínum á fimmtudag að lækka fasteigna- skatt svo að álagningarhlutfall lækki úr 0,30% í 0,268%. Krónutalan stendur í stað „Við tókum þá ákvörðun að lækka fasteignaskattinn svo hækkun á fasteignamatinu hækki ekki útgjöldin hjá bæjarbúum, en við höfum lækkað álagning- arhlutfallið jafnt og þétt síðan 2005 þegar það var 0,36,“ segir Böðvar Jónsson, formaður bæj- arráðs. Hann segir jafnframt að bæj- arráðið hafi barist gegn því að hækka útsvarið upp í topp, í samræmi við það sem tíðkast annars staðar. Fasteignamat hækkaði um 12% í árslok 2007 en vegna þess- arar aðgerðar verður fasteigna- skattur hjá íbúum Reykjanesbæj- ar óbreyttur í krónum talið á milli áranna 2007 og 2008. 30 milljónum minna Fjárhagsáætlun bæjarins var afgreidd í desember að sögn Böðvars, og því lá ekki fyrir hve mikil hækkun yrði á fasteigna- mati þegar hún var gerð. Þess vegna er gripið til þessa ráðs nú, að sögn Böðvars Jónssonar, for- manns bæjarráðs. Hann giskar á að húseigendur bæjarins borgi þar með 30 milljónum minna á árinu en ella. ÞEKKIR ÞÚ TIL? Hringdu í síma 510 3700 eða sendu póst á 24@24stundir.is Spara íbúum 30 milljónir  Reykjanesbær lækkar fasteignaskatta ➤ Fasteignamat hækkaði um12% í árslok 2007. ➤ Álagningarhlutfall var 0,36 íReykjanesbæ árið 2005 en verður nú 0,268. ➤ Þar með munu eigendur fast-eigna borga sömu krónutölu í fasteignaskatt á þessu ári og þeir gerðu í fyrra. Í STUTTU MÁLI Reykjanesbær Íbúar borga sama í fasteignaskatt og í fyrra. 12 LAUGARDAGUR 26. JANÚAR 2008 24stundir Tunnum fyrir flokkað sorp verð- ur dreift um Stykkishólm þessa helgi. Stykkishólmur er fyrsta bæj- arfélagið til að gera samning við Ís- lenska gámafélagið um að minnka umfang á almennu sorpi sem fer til urðunar um 80%. Ísland, eins og lönd innan ESB, verður að uppfylla ákvæði um að minnka urðun á lífrænum úrgangi skv. tilskipun sambandsins. Ákvæðið segir að 1. janúar 2009 skuli lífrænn heimilis- og rekstr- arúrgangur sem urðaður er hafa minnkað niður í 75% af því sem hann er nú. Árið 2020 á hann að vera kominn niður í 35%. Stykkishólmur og Gámafélagið gerðu með sér samning sl. nóvem- ber um að hver bæjarbúi fengi tvær tunnur, aðra brúna fyrir pappír til endurvinnslu, hina græna fyrir líf- rænt sorp. Undirbúningur verk- efnisins tók þrjá mánuði og í lokin veittu starfsmenn Gámafélagsins bæjarbúum ráð um endurvinnslu. thorakristin@24stundir.is Flokkun sorps hafin í Stykkishólmi Á að minnka urðun Tunnur Bæjarstjórinn tekur á móti Allt í ljós, átaksverkefni Vinnu- málastofnunar um eftirlit með erlendum starfsmönnum, er lok- ið. Hér eftir verður starfsmaður hjá stofnuninni sem stýrir eft- irlitsstörfum. 90 fyrirtæki, af 267, fengu áminningarbréf vegna óskráðra erlendra starfsmanna og 30 voru beitt dagsektum. þkþ Greinargerð „Allt í ljós“ 90 með óskráða starfsmenn STUTT ● Til Rúðuborgar Kvikmyndin Köld slóð hefur verið valin í að- alkeppni á kvikmyndahátíðinni í Rúðuborg í Frakklandi. Há- tíðin sem beinir sjónum að norrænum kvikmyndum er haldin um miðjan mars. Leik- stjóra myndarinnar og aðalleik- urum hefur verið boðið á hátíðina. Köld slóð eða Cold trail eins og hún nefnist á ensku verður sýnd sýnd fjórum sinn- um á hátíðinni. ● Skilorð Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi tæplega þrítuga konu í hálfs árs skil- orðsbundið fangelsi fyrir að dæla bensíni á bíl og aka á brott án þess að greiða fyrir og fyrir að stela farsíma og kveikjuláslyklum úr búnings- klefa starfsmanna skóla í Reykjavík. Margir unglæknar á Slysa- og bráðadeild LSH hafa ráðið sig annað og aðrir eru að íhuga mál- ið. Félagið ítrekar að það for- dæmi ákvörðun sviðstjóra Slysa- og bráðasviðs að taka lækni af neyðarbíl höfuðborgarsvæðisins. Þá varar félagið við því að sjúk- lingar séu settir í aukna hættu við breytinguna. Þegar lífið liggur við er kallaður út læknir frá Slysa- og bráðadeild LSH en sá hinn sami sinnir líka sjúklingum á deildinni. Þar verður ekki fjölg- að starfsmönnum sem „gengur í berhögg við yfirlýsingar yf- irstjórnar LSH“. Einnig óttast unglæknarnir að breytingin geti leitt til dauðsfalla sem hefði verið hægt að komast hjá. Unglæknar óttast dauðsföll Læknalausir neyðarbílar Útfararþjónustan ehf. Stofnað 1990 Símar: 567 9110 & 893 8638 www.utfarir.is • runar@utfarir.is Alhliða útfararþjónusta Rúnar Geirmundsson Sigurður Rúnarsson Elís Rúnarsson Þorbergur Þórðarson Styrkir úr Forvarnasjóði 2008 Lýðheilsustöð auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Forvarnasjóði. Tilgangur sjóðsins er að stuðla að forvörnum á sviði áfengis- og vímuvarna og eru styrkir veittir til verkefna eða afmarkaðra rannsókna. Sérstök áhersla er lögð á að verkefnin séu samstarfsverkefni og að þau tengist börnum og ungmennum á mismunandi skólastigum eða ungu fólki utan skóla. Að þessu sinni er auglýst sérstaklega eftir verkefnum sem taka til forvarna í framhaldsskólum. Mikilvægt er að í umsókninni sé gert grein fyrir mati á verkefninu. Lýðheilsustöð metur umsóknirnar í samstarfi við áfengis- og vímuvarnaráð. Áskilinn er réttur til að senda umsóknir til umfjöllunar fagaðila, óska eftir nánari upplýsingum um verkefni, framkvæmdaaðila og fjármögnun. Einnig áskilja styrkveitendur sér rétt til að skilyrða styrkveitingar og ákveða að styrkir verði greiddir út í samræmi við framvindu verkefnis. Sé sótt um styrk til framhaldsverkefna þarf framvinduskýrsla að liggja fyrir. Umsóknarfrestur er til 18. febrúar 2008 og skal sótt um á eyðublöðum sem eru á heimasíðu Lýðheilsustöðvar, www.lydheilsustod.is. Styrkir, sem veittir eru á árinu, skulu sóttir fyrir 31. desember 2008. Nánari upplýsingar fást í síma 5 800 900, johann@lydheilsustod.is eða á heimasíðunni www.lydheilsustod.is en þar er sótt rafrænt um styrkinn. Umsóknum skal skila rafrænt á netfangið johann@lydheilsustod.is Hlíðasmára 14 sími 588 2122 www.eltak.is Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum mesta úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Hafðu samband líðas ára 14 Sí i 588 2122 .eltak.is Árvakur/ÞÖK
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

24 stundir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.