24 stundir - 26.01.2008, Blaðsíða 14
14 LAUGARDAGUR 26. JANÚAR 2008 24stundir
24stundir
Útgáfufélag:
Ritstjóri:
Fréttastjórar:
Ritstjórnarfulltrúi:
Árvakur hf.
Ólafur Þ. Stephensen
Björg Eva Erlendsdóttir
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
Þröstur Emilsson
Elín Albertsdóttir
Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson Ritstjórn & auglýsingar: Hádegismóum 2, 110 Reykjavík
Aðalsími: 510 3700 Símbréf á fréttadeild: 510 3701 Símbréf á auglýsingadeild: 510 3711
Netföng: 24stundir@24stundir.is, frettir@24stundir.is, auglysingar@24stundir.is
Prentun: Landsprent ehf.
Landhelgisgæzlan stefnir nú að því að setja upp svokallaða strandratsjá
á fjallinu Þorbirni við Grindavík. Sem stendur er aðeins ein strandratsjá
starfrækt við Íslandsstrendur. Sú er í Vestmannaeyjum og var upphaflega
hugsuð til að vakta CANTAT-sæstrenginn, en hefur nýtzt í eftirliti með
öllum siglingum. Með ratsjá á Þorbirni á að vera hægt að fylgjast með allri
skipaumferð samfellt frá Eyjum, út fyrir Reykjanesskaga og á Faxaflóa.
Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæzlunnar, segir í 24 stundum í
gær að helzt þyrfti að setja upp slíkar ratsjár meðfram allri strandlengj-
unni til að fylgjast annars vegar með stóraukinni umferð smábáta og hins
vegar með umferð olíuskipa, sem spáð er að aukist mjög á næstu árum.
Í frétt 24 stunda er vitnað í spá Norðurskautsráðsins, um að eftir sjö ár
muni 500 stór olíuskip á ári eiga leið framhjá Íslandsströndum á leið sinni
norðan úr Barentshafi til Norður-Ameríku. Ekki þarf að hafa mörg orð
um það hvaða áhætta getur fylgt slíkum siglingum.
Ef olíuslys yrði nálægt Íslandi, gæti það valdið óbætanlegum skaða á líf-
ríki Íslands og hafsins í kringum það, á ímynd landsins og viðskiptahags-
munum. Það skiptir því öllu máli að Ísland, í félagi við nágranna- og
bandalagsríki sín, fylgist grannt með þessari skipaumferð og hafi við-
búnað, bæði til að afstýra slysum og bregðast við ef illa fer.
Georg Lárusson nefnir einnig mjög vaxandi umferð smábáta við landið.
Þar á meðal eru hraðbátar, snekkjur og litlar skútur á borð við þá, sem
flutti hingað til lands einhvern stærsta fíkniefnafarm sögunnar í sept-
ember síðastliðnum. Líkur hafa verið leiddar að því
að fíkniefnum hafi áður verið smyglað til landsins
með svipuðum aðferðum. Strandratsjár myndu bæta
til muna eftirlit með siglingum slíkra farkosta, sem er
nú lítið sem ekkert.
Í blaðinu í gær kemur fram að kostnaður við
strandratsjár meðfram allri strönd landsins gæti orðið
allt að 350 milljónir króna. Það eru vissulega miklir
fjármunir, en samt mun minna en t.d. björgunarþyrla
kostar. Nú þegar Íslendingar gefa bæði innra og ytra
öryggi sínu meiri gaum en áður, er ástæða til að skoða
hvort ekki sé ástæða til að ráðast í þessa fjárfestingu í
öryggi landsins.
Fjárfesting
í öryggi
SÆKTU LEIÐARANN Á WWW.MBL.IS/PODCAST
Nú gerist það í annað sinn á
skömmum tíma í höfuðborginni
að embætti fræðslustjóra rumskar
fyrst þegar komið
er fram á dag og
kemur þeim skila-
boðum til for-
eldra í gegnum
útvarp – að halda
skólabörnum
heima vegna veð-
urs, eftir að flest
þeirra eru farin af
stað í skóla eða komin þangað! Ég
hélt að bömmerinn um daginn
hefði kennt þessu embættisliði
sína lexíu en vitleysan endurtekur
sig í dag. […] tilkynning í morg-
unfréttum (kl. 8:00!) að foreldrar
eigi að halda börnum heima þá
voru nemar þessa heimilis löngu
farnir í skóla …
Atli Rúnar Halldórsson
attilla.blog.is
BLOGGARINN
Rumskar seint
En það var annað sem mér fannst
sárt að horfa á í dag. Það var að
horfa á kát og glöð ungmennin
sem hrópuðu
ókvæðisorð á
pöllum Ráðhúss-
ins án þess að
átta sig á því að
verknaður þeirra
var ennþá einn
liður í að grafa
undan lýðræði í
þessu landi og
liður í að búa til meiri skrípaleik
úr þessu máli. Sá grunur læddist
einnig að mér að ef til vill væri
þessi mótmæli skipulögð og sam-
stillt af eldra og reyndara fólki
með aðallega einn tilgang í huga.
Þann tilgang að koma Ólafi F.
Magnússyni aftur í veikindafrí.
Salvör Gissurardóttir
salvor.blog.is
Að brjóta niður
[Í]slendingar leggja ekki í vana
sinn að hlaupa á þingpalla Al-
þingis né borgarstjórnar nema
þegar þeim er of-
boðið og það er
sjaldan.
Sumstaðar í
heiminum hefðu
mótmælendur
mætt hermönn-
um og táragasi
fyrir það eitt að
vera á móti
ríkjandi stjórnvöldum. Annars
staðar hefði fólk kannski tekið
lýðræðið sem sjálfsögðum hlut og
ekki látið sig málið varða. Mik-
ilvægast af öllu er að fólk hefur
bæði rétt til að láta í sér heyra á
Íslandi og sem betur fer tekur
það alvarlega þegar illa er farið
með leikreglur lýðræðisins.
Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
bryndisisfold.blog.is
Létu í sér heyra
Ólafur Þ.
Stephensen
olafur@24stundir.is
Eftir eina ótrúlegustu uppá-
komu í íslenskum stjórnmálum
í langan tíma datt allt í dúnalogn í gær. Að minnsta
kosti á yfirborðinu. Nýr meirihluti sem fáir styðja og
enginn getur lofað að lifi til vors er staðreynd. Í heitu
pottunum og á vinnustöðunum spá menn í spilin, en
vita samt ekkert hvað þeir eru að fara. Eða hvert póli-
tíkin er að fara. Því það veit enginn. Gunnar Helgi
Kristinsson, prófessor í stjórnmálafræði, sagði í vik-
unni að pólitíkin virtist vera að breytast æ meira í það
sem kalla mætti klækjastjórnmál. En skyldi svo vera?
Voru stjórnmálamenn fyrr á árum öðruvísi gerðir? Eða
voru þeir bara betur varðir gegn opinberri umræðu,
lausir við beinar útsendingar, lausir við óútreiknanlega,
óflokksbundna fréttamenn og lausir við bloggsíður?
Atli Rúnar Halldórsson sem lengi sagði pólitískar frétt-
ir í Ríkisútvarpinu telur að klækir við borgarstjórn-
arskiptin tvö á síðustu mánuðum hafi ekki náð neinum
hæðum. „Ég vann í pólitík í kringum stjórnarslitin
1979 í kringum stjórn Gunnars Thoroddsen. Sú uppá-
koma var ekki síður klækjakennd þar sem menn veif-
uðu rýtingum og föðmuðust til skiptis. Mér fannst það
vera miklu skrautlegra þá. Það vafðist ekki fyrir mönn-
um þá að kljúfa flokka til að komast að.“
Stjörnuþoka og víkingaútgerð
Atli Rúnar telur að einungis þrír flokkar í borg-
arstjórn séu stjórntækir eins og er. Að hans mati eru
það Sjálfstæðisflokkur, Samfylking og Vinstri græn.
Lýsingin á hinum tveimur endurspeglar ástand sem
birst hefur í fjölmiðlum. Framsóknarflokkurinn er vík-
ingaútgerð en F-listinn, frjálslyndir, óháðir Íslands-
hreyfingin eða hvað á að kalla það er eins konar
stjörnuþoka í upplausn sem erfitt er að skilja. Svona
lýsir fréttamaður sem lengi sérhæfði sig í pólitískum
flækjum og klækjum ástandinu í dag. Hann telur klæk-
ina hvorki meiri né minni en þeir hafi alla tíð verið.
Valgerður Anna Jóhannsdóttir, varafréttastjóri Sjón-
varps, segir pólitíkina sögulega á margan hátt. Aldrei
áður hafi komið upp sú staða að borgarstjóri hafi ekki
varamann sinn á bak við sig. Aldrei hafi Sjálfstæð-
isflokkurinn verið í meirihluta í borgarstjórn án þess að
eiga borgarstjórann. Bara þetta sýni hve sögulegt þetta
sé, að ekki sé minnst á andrúmsloftið í Ráðhúsinu.
Stjörnuþoka stjórnmálanna
SKÝRING
Auglysingasimi
Katrin s.510 3727 / kata@24stundir.is
KOLLA s. 510 3722 / kolla@24stundir.is
Heilsa
Serblad 24 stunda
29.januar 2008