24 stundir


24 stundir - 26.01.2008, Qupperneq 20

24 stundir - 26.01.2008, Qupperneq 20
20 LAUGARDAGUR 26. JANÚAR 2008 24stundir Voðaleg skrílslæti brutust út í fyrradag þegar nýr lýðræðislegur meirihluti tók við í borgarstjórn Reykjavíkur. Villuráfandi skrópa- veikir menntaskólakrakkar í leit að hasar í bland við hinn alræmda Saving Iceland-lýð gripu fram fyr- ir hendurnar á lýðræðislega kjörn- um fulltrúum og frömdu hryðju- verk á framgangi lýðræðisins í landinu. Stjórnlaus skríll undir stjórn tap- sárra fulltrúa hinna nýju minni- hlutaflokka í borgarstjórn frömdu pólitískt tilræði við fundarsköp í landinu. Þessi lýður var svo ósvífinn að hann meira að segja hlýddi ekki Hönnu Birnu! Henni Hönnu Birnu okkar! Hversu ólýðræðislegur skríll getur ólýðræðislegur skríll eiginlega orðið?? Byggður á blekkingum Æ, nei – sannleikurinn er sá að ósköp fannst mér dapurlegt hve margir stukku á þann vagn að mótmæli í Ráðhúsinu á fimmtu- daginn hefðu verið „skrílslæti“ og á einhvern hátt „tilræði við lýð- ræðið í landinu“. Því var meira að segja hreyft í fullri alvöru hvort hávaðinn í Ráðhúsinu væri ekki sönnun þess að Björn Bjarnason hefði rétt fyrir sér í því að brýna nauðsyn bæri til að koma hér á fót öryggislögreglu, fleiri sérsveitum, varaliði – gott ef það hefði ekki verið gott að hafa hér enn orr- ustuþoturnar frá Bush! Leiðarahöfundar Moggans, Fréttablaðsins og 24 stunda klöppuðu allir þennan stein – þótt vissulega tækju þeir ekki svo sterkt til orða. Á fimmtudaginn gerðist það að við völdum í Reykjavík tók nýr meirihluti sem alveg augljóslega var myndaður á mjög vafasömum forsendum. Hann var byggður á blekkingum á alla kanta, forkast- anlegum vinnubrögðum beggja aðila sem að nýja meirihlutanum koma, og alveg augljóslega í full- kominni andstöðu við stóran meirihluta borgarbúa. Við munum ekki gleyma þessu Um það þarf ekki að fjölyrða. Að sönnu mega Vilhjálmur Þ. Vil- hjálmsson og Ólafur F. Magnús- son vita að við munum ekki gleyma þessu. Og Hanna Birna og Gísli Marteinn mega líka vita að við munum heldur ekki gleyma því að þau skyldu ekki hafa sið- ferðisþroska til að taka í taumana þegar þeim varð ljóst á hve næf- urþunnum siðferðilegum ís Vil- hjálmur og Ólafur F. voru. Ég veit ekki hvort ég treysti mér til að kjósa þetta fólk í næsta próf- kjöri … en að öðru leyti skal ég ekki fjölyrða um það núna. En mig langar að kveða í kútinn þetta tuð um „tilræðið við lýð- ræðið“ sem leiðarahöfundarnir og nótar þeirra höfðu uppi um mót- mælin í Ráðhúsinu. Því hvað gerðist? Gestir í Ráðhús- inu virtu ekki fundarsköp. Það er ljóst. Þeir höfðu í frammi hávaða. Það er ljóst. Þeir stöðvuðu fund í klukkutíma. Það er ljóst. Fáeinir þeirra kölluðu dónaleg orð að Ólafi F. Magnússyni. Það er líka ljóst. En var það „tilræði við lýðræð- ið“? Í Bretlandi enda átakafundir í þinginu oft í algjörri upplausn vegna frammíkalla og dónalegra athugasemda. Þar eru þingmenn sjálfir að verki. Helstu stjórnmála- leiðtogar Breta taka fullan þátt í frammíköllunum og dónaskapn- um. Hefur lýðræði í Bretlandi beðið tjón af? Í Frakklandi og víðar tíðkast að hópar mótmælenda hafa í frammi allskonar uppákomur sem oft hafa stöðvað fundi bæði franska þings- ins, Evrópuþingsins og annarra stofnana. Ríkir ekki lýðræði í Frakklandi? Réttur og borgaraleg skylda Nei, þetta er bull. Á Íslandi hef- ur valdsjúkum stjórnvöldum og þægum þjónum þeirra tekist að koma því inn hjá fólki að það sé hinn ógnarlegasti dónaskapur að virða ekki fundarsköp stjórnvald- anna. Það sé tilræði við lýðræðið en ekki sjálfsagður réttur borg- aranna að mótmæla því sem borg- ararnir túlka sem gerræði stjórn- valda. Eins og átti sér stað í Ráðhúsinu á fimmtudaginn. En lýðræði er ekki fundarsköp. Ekki einu sinni þó Hanna Birna stjórni fundi. Að sjálfsögðu ber mönnum yf- irleitt að virða almennar kurteis- isreglur eftir fremsta megni. En blöskri fólki yfirgangur stjórn- valda er það réttur og jafnvel borgaraleg skylda fólks að mót- mæla þannig að eftir sé tekið – en ekki bara eins og stjórnvöldunum passar best. Það er þrælslund. Jafnvel þó það kosti að eitt og eitt dónalegt orð falli, þá er það samt skárra en að við sitjum öll eins og þægir þrælar þegar ómerkilegir menn makka í sínum bakherbergjum og fara með valdið eins og þeim sýnist. Lýðræði er ekki fundarsköp aIllugi Jökulsson skrifar um mótmæliStjórnlaus skríll undir stjórn tap- sárra fulltrúa hinna nýju minni- hlutaflokka í borgarstjórn framdi pólitískt tilræði við fundarsköp í landinu! Ráðhúsið í Reykjavík „Var þetta tilræði við lýðræðið?“ Snjóblásararnir komnir í hús - Loksins á Íslandi - 10HP, Rafmagnsstart, drif, 16” hjól, 74 cm 5HP Briggs & Stratton, drif, 13” hjól, 61cmAllir þekkja hina landsfrægu varahluta- og viðgerðaþjónustu okkar. G. Tómasson ehf Smiðjuveg 30, rauð gata sími: 577 6400 www.hvellur.com hvellur@hvellur.com Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Munið Mastercard ferðaávísunina Verð kr. 54.990 Flug og gisting í viku Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli á gististað ”án nafns” í Zell am See / Schuttdorf (sjá skilmála ”stökktu tilboðs”) með morgunverði í 7 nætur. Sértilboð 16. og 23. febrúar. Verð kr. 37.990 Flugsæti með sköttum. Sértilboð 16. og 23. febrúar. Netverð á mann. Verð kr. 89.990 Frábært **** hótel með hálfu fæði Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli á Hotel Unterberghof í Flachau með hálfu fæði í viku. Sértilboð 23. febrúar. Ath. sértilboð 2. febrúar v/forfalla kr. 94.990, m.v. gistingu í tvíbýli (aðeins 2 herbergi). Verð kr. 69.990 Vikuferð með hálfu fæði Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli á Hotel Traube *** í Zell am See með hálfu fæði í 7 nætur. Sértilboð 16. eða 23. febrúar. Skíðaveisla í Austurríki 16. og 23. febrúar frá kr. 37.790 Vikuferð frá 54.990 – flug og gisting Heimsferðir bjóða frábær tilboð á skíði í Austurríki í febrúar. Bjóðum vikuferðir 16. og 23. febrúar á sértilboði, bæði flugsæti sem og frábær tilboð á flugi og gistingu. Tryggðu þér skíðafrí á besta verðinu og bókaðu strax. Mjög takmarkað framboð flugsæta og gistingar á þessum frábæru kjörum! Ath. einnig sértilboð á hinu frábæra Hotel Unterberghof í Flachau 2. febrúar v/forfalla, kr. 94.990 m.v. gistingu í tvíbýli (aðeins 2 herbergi í boði). Árvakur/Ómar
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

24 stundir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.