24 stundir - 26.01.2008, Page 28
28 LAUGARDAGUR 26. JANÚAR 2008 24stundir
Eftir Kristjönu Guðbrandsdóttur
dista@24stundir.is
Hvaða lifandi manneskju líturðu upp til
og hvers vegna? Halls Ingólfssonar tónlist-
armanns. Vegna þess að hann er svo stór.
Annars reyni ég að bera virðingu fyrir fólki
yfirleitt og lít upp til allra sem eru að gera
góða hluti.
Hver er þín fyrsta minning? Ég bara man
það ekki.
Hver eru helstu vonbrigðin hingað til?
Helstu vonbrigðum lífs míns vil ég halda
út af fyrir mig. En svona almennt séð
valda flestir stjórnmálamenn mér síend-
urteknum vonbrigðum.
Hvað í samfélaginu gerir þig dapran?
Stjórnmálamenn, allskonar æðstuprestar og
aðrir trúarfasistar. Fjölmiðlar og auglýs-
ingar líka … stundum.
Leiðinlegasta vinnan? Að skeina 100.000
fitugar grálúður í frystihúsinu á Dalvík fyr-
ir sléttum 30 árum.
Uppáhaldsbókin þín? Þær eru margar.
Sögurnar hans Hallgríms Helgasonar,
ljóðabækur eftir Þórarin Eldjárn, nokkrar
eftir HKL og Biblían. Eina bókin sem ég
hef lesið oft er Þrír á báti og hundurinn sá
fjórði eftir Jerome K. Jerome.
Hvað eldarðu hversdags, ertu góður
kokkur? Já. Ég er stórkostlegur kokkur.
Hversdags elda ég fisk, kjöt, grænmeti,
pasta, hrísgrjónagraut, blómkálssúpu, pyls-
ur, egg, beikon, pitsur og margt fleira.
Hver myndi leika þig í kvikmynd byggðri
á ævi þinni? Hilmir Snær, Baltasar Kor-
mákur og Ingvar Sigurðsson myndu slást
um að fá að leika mig ef þetta væri íslensk
mynd. Ef þetta væri Hollywood-framleiðsla
þá væri það án vafa George Clooney. Bill
Murray kemur líka sterkur inn.
Að frátalinni húseign, hvað er það dýr-
asta sem þú hefur fest kaup á? Það myndi
vera bíllinn minn. Ég fékk að vísu góðan
afslátt en hann er örugglega dýrasti hlutur
sem ég hef borgað fyrir. Reyndar borgaði
ég ekkert fyrir hann því ég fékk hann út á
lán. Þegar ég hugsa málið þá á ég í raun
ekki bílinn minn, ég held að Lýsing eigi
hann. Dýrasti hluturinn er þá sennilega
steinsteypta ruslatunnuskýlið sem ég keypti
í fyrra … nei, veistu ég er bara ekki alveg
með þetta á hreinu …
Mesta skammarstrikið? Ég er alltaf að
gera einhver skammarstrik og vil helst ekki
gera upp á milli þeirra. Ég man reyndar
eftir einu tiltölulega saklausu. Ég hringdi
eitt sinn, fyrir um fimmtán árum, í Þor-
stein Bachmann leikara sem er einmitt að
leika með mér í Hafnarfjarðaleikhúsinu
núna og þóttist vera auglýsingaleikstjóri og
bauð honum að leika í auglýsingu gegn ríf-
legri greiðslu, einni milljón króna minnir
mig sem var talsverður peningur þá. Þor-
steinn var fremur blankur á þessum tíma
og féllst meira að segja á að koma nakinn
fram fyrir þennan pening. Hann varð því
eðlilega súr þegar ég kynnti mig undir
mínu rétta nafni og sagði honum rétta er-
indið sem var að fá hann til að spila með
mér bridds um kvöldið.
Hvað er hamingja að þínu mati? Að vera
bankastjóri. (Kannski ekki akkúrat núna en
svona yfirleitt).
Hvaða galla hefurðu? Mótþróaþrjósku-
röskun. Og flesta aðra hefðbundna galla
sem ég nenni ekki að telja upp, svo sem
eins og almenna leti og ómennsku.
Ef þú byggir yfir ofurmannlegum hæfi-
leikum hverjir væru þeir? Ég myndi gjarn-
an viljað geta lesið hugsanir fólks. Það væri
gaman að vita hvað nýi borgarstjórinn er
að hugsa.
Hvernig tilfinning er ástin? Óbærilega
þunglyndisleg gleði.
Hvað grætir þig? Flestallt. Ég er alltaf væl-
andi.
Hefurðu einhvern tímann lent í lífs-
hættu? Já, ég held það. Næst því að deyja
komst ég þegar stýrið á Citroën-bifreið
föður míns festist í beygju á talsverðum
hraða nálægt Þórunnarstræti á Akureyri.
Bíllinn sneiddi naumlega fram hjá nokkr-
um ljósastaurum en vinir mínir hlógu eins
og brjálæðingar í aftursætinu og héldu að
ég væri að grínast í þeim, eitthvað að
flippa. Stýrið festist sem sagt í botni og ég
reyndi af öllum lífs- og sálarkröftum að
rétta bílinn af. Ég var 17 ára þegar þetta
gerðist og verkjaði í handleggina af átök-
unum alveg þangað til ég varð átján. Fyrir
utan það er maður alltaf að drepast úr
stressi og áhyggjum af einhverri vitleysu.
Hvaða hluti í eigu þinni meturðu mest?
Ég er voða lítið fyrir hluti. Samt er ég allt-
af að kaupa eitthvert drasl sem ég hugsa
illa um og hlutir eiga gjarnan til að bila og
skemmast hjá mér. Ætli ég verði ekki að
segja bara hljóðfærin mín. Kramer-bassinn,
gítarinn og píanóið.
Hvað gerirðu til að láta þér líða vel?
Leggst í heitt vatn eða sest niður við pí-
anóið eða með gítar og spila eitthvert rugl.
Hverjir eru styrkleikar þínir? Ég er frábær
söngvari, afbragðsgóður dansari og stór-
kostlegur knattspyrnumaður. Félagslega
væru það kannski hugmyndaauðgi og
svona þokkaleg jarðtenging.
Hvað langaði þig að verða þegar þú varst
lítill? Þegar ég var 7 ára ætlaði ég að vera
bakari. Sá draumur rættist á vissan hátt
þegar ég lék bakaradrenginn í Dýrunum í
Hálsaskógi.
Er gott að búa á Íslandi? Það er gott að
búa í Kópavogi, – við vitum að minnsta
kosti hver verður bæjarstjóri á morgun.
Hefurðu einhvern tímann bjargað lífi
einhvers? Ekki svo ég viti. Guðni Ágústs-
son sagði mér að ég hefði einu sinni bjarg-
að hans pólitíska lífi en ég held að það séu
ýkjur hjá honum.
Hvert er draumastarfið? Að vera rithöf-
undur. Það er notaleg innivinna. Ég sé fyr-
ir mér arineld, pípu, flókainniskó og hlýjan
slopp.
Hvað ertu að gera núna? Núna er ég að
undirbúa mig fyrir frumsýningu á nýju
íslensku leikverki eftir Hávar Sig-
urjónsson sem heitir Halla og Kári.
Frumsýningin er í kvöld í Hafnarfjarð-
arleikhúsinu og ég leik þar persónu sem
ber hið skemmtileg nafn „Sjónvarpið“. Ég
er svona að koma mér í rétta gírinn fyrir
þetta.
Hjálmar Hjálmarsson
Árvakur/Árni Sæberg
Hjálmar stígur á svið Hafn-
arfjarðarleikhússins í nýju ís-
lensku gamanleikriti, Höllu og
Kára, eftir Hávar Sigurjónsson.
Leikritið er frumsýnt í kvöld.
Listræni hópurinn að baki upp-
færslunni er gamli Hafnarfjarð-
arleikhúshópurinn, einvala lið
listamanna sem gerði m.a. sýn-
ingarnar Englabörn, Grettissaga,
Salka – ástarsaga, Cyrano de
Bergerac og Kryddlegin hjörtu.
Hilmar Jónsson leikstýrir.
a
Ég er haldinn mótþróaþrjóskuröskun. Og hef flesta aðra hefð-
bundna galla sem ég nenni ekki að telja upp, svo sem eins og
almenna leti og ómennsku.
24spurningar