24 stundir - 26.01.2008, Page 30
Hjúkrunarfræðingar
HRAFNISTA
ATVINNA
LAUGARDAGUR 26. JANÚAR
AUGLÝSINGASÍMI 510 3728 / 510 3726
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
A
L
C
40
74
6
10
1/
08
Framtíðarstörf hjá Fjarðaáli
Verkefnastjóri í viðhaldsstýringu
Ábyrgðarsvið:
• Bæta áreiðanleika og gæði framleiðslunnar með því að áætla og skipuleggja
fyrirbyggjandi viðhald og reglulegar ástandsskoðanir véla og tækja.
• Sjá um skráningu og greiningu á tæknigögnum sem gefa skýra mynd af stöðu
viðhaldsmála og árangri.
• Sjá um samskipti og samhæfingu viðhaldsteymis og framleiðsluteyma.
• Hafa náið samstarf við notendur búnaðar, viðhaldsteymi, innkaupateymi
og birgðahald.
Hæfniskröfur:
• Iðnfræði eða iðnmenntun, t.a.m. vélfræði eða rafmagnsfræði. Önnur iðn-
menntun kemur einnig til greina. Tæknifræðimenntun kostur en ekki skilyrði.
• Góð reynsla af viðhaldi véla og tækja.
• Góð tölvukunnátta skilyrði.
• Góð íslensku- og enskukunnátta.
Raf- og véliðnaðarmenn
Við leitum að raf- og véliðnaðarmönnum til að sinna
viðhaldi tækja og búnaðar Alcoa Fjarðaáls.
Takmark Fjarðaáls er að verða í fremstu röð á heimsvísu
í meðferð og viðhaldi tækja. Allir starfsmenn fyrirtækis-
ins taka þátt í að tryggja áreiðanleika tækjanna og
viðhaldi er stýrt í samræmi við raunverulegt ástand
þeirra.
Unnið er í teymum og verkefnin eru fjölbreytt. Áhersla
er lögð á frumkvæði og stöðugar endurbætur. Tækifæri
til símenntunar og starfsþróunar eru óvíða fleiri.
www.alcoa.is
Ef þú hefur áhuga á starfi hjá Fjarðaáli hafðu þá samband við Sigurlaugu Þorsteinsdóttur eða
Tómas Odd Hrafnsson hjá Capacent, í síma 540 1000 eða á netföngin
sigurlaug.thorsteinsdottir@capacent.is / tomas.hrafnsson@capacent.is eða skráðu umsókn
þína á www.capacent.is og haft verður samband við þig.
Umsóknarfrestur er til og með 3. febrúar.
Kynntu þér Austurland
tækifæranna á austurat.is
Viltu gulltryggja þér stöðu-
hækkun? Lestu þá áfram. Það er
talið bera árangur að sleikja sig upp
við yfirmanninn eða reyna að verða
besti vinur hans. Hér koma nokkur
góð ráð frá yfirmönnum um hvað
er vænlegast til árangurs að þeirra
mati. Í fyrsta lagi skaltu hugsa þig
um áður en þú spyrð spurninga,
það er ekkert að því að spyrja og þá
sérstaklega þegar þú ert nýbyrjuð/
byrjaður en oft getur maður sagt sér
svarið sjálfur hugsi maður sig dálítið
um. Ef ekki þá er vænlegra að spyrja
samstarfsfólkið heldur en yfirmann-
inn sem væntanlega hefur þegar nóg
á sinni könnu. Hafðu sjálfstraust
til að treysta á sjálfa/n þig og þína
skynsemi. Næst skaltu ekki búast
við að yfirmaður þinn eigi ráð við
öllum þeim vandamálum sem
kunna að koma upp. Ef þú ætlar að
bera undir hann vandamál skaltu
einnig vera tilbúin/n með lausn og
sjá hvað honum finnst. Það er mun
vænlegra en að ætlast til að hann
leysi vandamálið. Þá skaltu ekki
biðjast afsökunar heldur frekar taka
afleiðingum gjörða þinna. Frekar en
að segja eitthvað á borð við: afsakið
hvað þetta var illa unnið, skaltu
frekar segja: ég tel að þetta verkefni
hefði getað verið betur af hendi leyst
og ég mun leggja mig enn meira
fram við næsta verkefni og læra
af mistökum mínum. Loks er afar
mikilvægt að reyna eins og kostur er
að hafa stjórn á tilfinningum sínum
og senda ekki tölvuskeyti í reiði og
æsingi því þú átt mjög líklega eftir
að sjá eftir slíku síðar meir. Taktu
þér frekar góða stund í að jafna þig
á því sem hefur reitt þig til reiði eða
angrað þig áður en þú sest niður og
skrifar hnitmiðaðan og hlutlausan
póst. Þetta mun falla betur í kramið
hjá yfirmanninum og sýna hæfni
þína til að vinna í hópi.
Viltu gulltryggja þér
stöðuhækkun?