24 stundir - 26.01.2008, Page 50

24 stundir - 26.01.2008, Page 50
50 LAUGARDAGUR 26. JANÚAR 2008 24stundir LÍFSSTÍLLSPJALLIÐ bladid@24stundir.is a Mér finnst enginn skyldugur til að borða þorramat, ég hef smakkað hann sjálfur og fannst hann í flestum tilvikum vondur. Það er helst að ég kaupi sviðasultu í laumi. Það sækir að manni ákveðinn uggur þegar þessi árstími nálgast. Ég er ekki fyrir þorramat og má segja að ég forðist hann eins og heitan eldinn. Þorramatur var almennt ekki á borðum á mínu bernskuheimili og held ég að flestir fjölskyldumeðlimir séu sömu skoðunar og ég, fyrir utan föður minn. Ég held að ef menn eru ekki aldir upp við að borða súrmat þá sé mjög erfitt að tileinka sér það. Þó hef ég nú smakkað þorramat en meira í fræðilegum tilgangi og hefur það frekar hert mig í trúnni ef eitthvað er. Ég held að þorrablótin séu frekar orðin að tilefni til að koma saman og gera sér glaðan dag sem er alltaf jákvætt, frekar en að borða þorramat- inn. Þó held ég að þessi hefð muni lifa áfram með komandi kynslóðum sem er fínt í sjálfu sér þar sem þetta er hluti af okkar þjóðlegu hefðum. Gourmet matur er þetta hins vegar ekki og ég fer ekki ofan af skoðunum mínum á þorramat þó að stundum hafi ég verið harðlega gagn- rýndur fyrir að tjá þær opinberlega. Verst finnst mér að geta ekki farið út í búð án þess að sjá þennan mat við hliðina á ferskum og fínum matvælum í kjötborðinu. Mér fyndist réttara að þorramaturinn væri seldur í sérverslunum eða afmörkuðum básum, þar sem hann væri ekki fyrir augum fólks eins og mín. Steingrímur Sigurgeirsson blaðamaður. Þorramat ætti að selja í sérverslunum Árvakur/Rax Mín kenning varðandi þorramatinn er sú að hver þjóð reyni að draga landamæri við aðr- ar þjóðir með því að borða eitthvað sem er reglulega ógeðslegt og hinar þjóðirnar geta ekki borðað. Frakkar borða t.d. kindaheila og garnapylsu sem mér finnst mjög gott að fá mér með sinnepi og frönskum þegar ég fer til Frakklands; þá finnst mér ég virkilega vera kominn heim. Ég tel að útlendingar skiptist í tvennt þegar kemur að þorramat. Annars vegar þá sem þora ekki að segja að þetta sé vondur matur af því að þeir vilja að- lagast þjóðfélaginu og hins vegar þá sem nota tækifærið til að sýna hvað þeir eru frús- teraðir á Íslandi. Mér finnst enginn skyldug- ur til að borða þorramat, ég hef smakkað hann sjálfur og fannst í flestum tilvikum vondur. Það er helst að ég kaupi sviðasultu í laumi en annars er þorramatur ekki vel lið- inn á mínu heimili. Þó finnst mér skemmti- legt við þorramatinn að þá sér maður fyrst almennilega hvað maður er að borða þar sem maður situr með kindahaus fyrir fram- an sig. Það er svo mikið um það í Skandin- avíu og hinum germanska heimi að matur sé hakkaður og unninn og svo sósa ofan á, ólíkt því sem þekkist í Frakklandi. Gérard Lemarquis kennari. Hver þjóð á sér ógeðslegan mat Ég get nú ekki beinlínis sagt að ég sé full tilhlökkunar til þorrans en mér finnst alltaf voða gaman að fara á þorrablót upp á stemninguna þótt ég sé ekki mikið gefin fyrir súrmetið og þennan allra harðasta þorramat. Í æsku var ég alin upp við að borða lifrarpylsu og blóðmör og stundum svið, en ekki mikið meira en það. Mömmu finnst reyndar hákarl mjög góður en ég hef ekki komist upp á lagið með að borða hann þrátt fyrir nokkrar tilraunir. Það gæti verið að bragðlaukarnir eigi einfaldlega eft- ir að taka út þennan þroska, hver veit? Annars finnst mér nú dálítið fyndið að sjá þegar maður fer á þorrablót hve löng röð myndast við borðið þar sem í boði er ann- að en þorramatur. Mér finnst vera orðið minna um að fólk kaupi þennan mat til að hafa heima heldur sæki frekar þorrablótin og þá meira upp á stemninguna en til að borða matinn. Það sem ég held að muni viðhalda þessari hefð og mér finnst skemmtilegt er að á leikskólum, í það minnsta þeim sem börnin mín hafa verið á, hafa verið haldin þorrablót og gert svo- lítið úr þorranum. Hildur Dungal, forstjóri Útlendingastofnunar. Stemning á þorrablótum Þjóðlegan mat eins og harðfisk, slátur og lifrarpylsu borða ég nú ekkert endilega bara á þorranum heldur allt árið um kring. Annars er ég lítið fyrir hákarl og finnst að fólk gæti alveg eins drukkið frosið piss eins og að leggja sér slíkt til munns. Ég held að hrútspungar og há- karlinn séu einmitt helst það sem fólk á erfitt með að láta ofan í sig af þorramatn- um. Sjálfur fer ég yfirleitt sem ræðumað- ur eða skemmtikraftur á þorrablót og kem mér þá yfirleitt mjög fljótt út áður en ég þarf að borða nokkuð. Það er nokkuð til í því held ég að fólk fari á þorrablót frekar upp á stemninguna en til að borða matinn. Ég vona nú samt að þessi hefð muni lifa áfram með komandi kynslóðum þar sem mér finnst nú ekki alveg við að hæfi að fara á þorrablót og fá sér pasta með skinku. Annars finnst mér grjónagrautur og slátur alltaf gott og spurning hvort slíkt gæti ef til vill verið það sem koma skal á þorrablótum fram- tíðarinnar. Það væri ef til vill frekar það sem fólk myndi vilja borða en hinn súri og sultaði þorramatur. Bjarni Haukur Þórsson, höfundur og leikari. Frosið piss betra en hákarl Ég er hrifin af hangikjöti, sviðum, hrúts- pungum og sviðasultu en svo er annað sem mér finnst miður gott, en það ógeðslegasta sem ég hef smakkað er selshreifar. Þeir litu út eins og litlar barnahendur og ég skildi ekki hvernig fólk gat yfirhöfuð lagt sér þetta til munns. Ég er alin upp við þorramat og er sólgin í hrútspunga og sviðasultu og kaupi mér slíkt oft bara ein til að gera vel við mig því það er ekki almenn hrifning á heimilinu. Sonur minn elskar reyndar hákarl sem hann kaupir í Kolaportinu og geymir í frystinum, þetta borðar hann síðan eins og snakk. Mér finnst hákarl hins vegar hvorki góður né vondur heldur frekar bara ómerkilegur og lyktin er alveg skelfileg svo ég legg ekki á mig að borða hann. Harðfiskur er meira að mínu skapi sem nasl enda er hann algjör snilld, hollur og góður. Það er ekki siður í kringum mig að fara á þorrablót en stundum hef ég keypt þorrabakka og fengið til mín gesti. Mér finnst þetta skemmtilegur siður sem minnir okkur á gamla daga og það að stund- um borðuðu forfeður okkar ónýtan mat. Við getum alla vega þakkað fyrir það val sem við höfum í dag. Sigrún Edda Björnsdóttir leikari. Sólgin í sviðasultu og hrútspunga Þykir þér þorramatur góður eða fúlsar þú við honum? Nú er þorrinn genginn í garð og honum fylgja þorrablót þar sem fólk kemur til að borða þorramat, skemmta sér og syngja. Borð svigna undan þorramatnum þar sem hrútspungar, sviðasulta, há- karl og svið eru meðal þess sem borið er fram á trogum og brennivínið flæðir. Ekki eru þó allir á eitt sáttir um það hvort mat- urinn sem finna má á þorrahlaðborðinu sé ljúffengur eður ei. Við- mælendur helgarinnar höfðu mjög svo skiptar skoðanir á þorra- mat og láta hér allt flakka.

x

24 stundir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.